Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1991, Blaðsíða 44
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Ás skrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 16. FEBRUAR 1991.
Omar Sharif:
Bridsið
hefur
setið á
hakanum
„Ég verð hér þar til á þriðjudag.
Mótið er í gangi nær allan tímann
svo ég fæ engan tíma til að skoða
mig um þótt ég gjarnan vildi,“ sagði
hinn heimsþekkti kvikmyndaleikari
og bridsspilari, Omar Sharif, við
komuna til landsins seinnipartinn í
gær.
Omar Sharif er sérstakur gestur á
opna Flugleiðamótinu í brids sem
*■ fram fer á Hótel Loftleiðum um helg-
ina.
DV tók á móti Sharif og pakist-
anska bridsaranum, Zia Mahmood, í
Leifsstöð. Blaðamaður spurði Sharif
meðal annars að því hvort hann
væri alveg hættur að leika í kvik-
myndum:
„Nei. Undanfarið hef ég nær ein-
göngu eytt tímanum í að leika. Kvik-
myndaleikurinn hefur verið númer
eitt. Því miður hef ég ekki getað spil-
aö mikiö brids undanfariö. Þú yeist
^ hvernig þetta er, það er meira upp
úr kvikmyndaleiknum að hafa.“
Sharif sagðist vel gera sér grein
fyrir styrk Flugleiðamótsins, Zia
hefði talið upp alla spilarana fyrir
sig. Ferðafélagi Sharifs, Zia Mah-
mood, er af mörgum talinn besti ein-
staki bridsspilari heims.
Samkvæmt áætlunum átti Sharif
að spila með Frakkanum Paul
Chenla á mótinu en sá varð stranda-
glópur í París. Jón Baldursson hleyp-
ur í skarðið og Zia spilár með ísrael-
anum Lev.
-IS/hlh
> c 7M77
SMIÐJUKAFFI ^
SEHDUM FRITT H£IM
OPNUM KL. 18 VIRKA DAGA
OG KL. 12 UM HELGAR
TVÖFALDUR1, vinningur
LOKI
Loks verður manni
þá boðið heiðurssæti
á lista
Ásgeir Hannes Eiríksson hugar að sérframboði:
Þetta er eins konar
grasrótarframboð
- gerir tilkall til peninga úr sjóðum Borgaraflokksins
„Það hefur verið rætt um að
stofna hverfislista í Breiðholti.
Þetta hverfisframboð er hugsað í
framhaldi af frumvarpi mínu um
einmenningskjördæmi. Af hverju
ekki að bjóða fram á þennan hátt
um allt land? Viðkvæmustu stjóm-
málin í landinu, það sem fólki er
virkOega annt um, eru auövitað
afkoman á hverjum stað. Sem einn
af frumbyggjunum i efra Breiðholti
og eini þingmaður Reykvíkinga,
sem býr í hverfinu, tel ég mig vera
í góðrnn tengslum við fólkið þar.
Þetta er eins konar grasrótarfram-
boð,“ sagöi Ásgeir Hannes Eiríks-
son þingmaður í samtali við DV.
Ásgeir hefur undanfarið rætt
stofnun hverfislista í Breiðholts-
hverfi og nálægum byggðum fyrir
komandi alþingiskosningar.
- Sagt er aö þú munir höfða sér-
staklega til láglaunafólks og utan-
garðsfólks með hverfisframboði
þínu:
„Ég geri það hvar sem ég kem.
Þetta eru mínir menn.“
Ásgeir hefur kannað niöguleik-
ana á því að fá til framboðs sins
hluta af ríkisstyrknum sem runnið
hefur til Borgaraflokksins.
„Mér fmnst eðlilegt að hver þing-
maður fái þessa peninga til afnota
sem slikur. Þeir eru hugsaðir til
að greiða fyrir sérfræðiaðstoð og
útgáfu á þingmálum hvers þing-
manns. Peningarnir eru ekki hugs-
aðir sem kosningasjóður. Þó að það
sé orðið nokkuð framorðið þykir
mér eðlilegt að gera tilkall til þeirra
í þessu samhengi."
Ásgeir segir að þingflokkurinn
hafi peningana til frjálsrar ráðstöf-
unar og þetta er fyrst og fremst
mál þingflokksins. Hafi menn, sem
hann hafi rætt við, þar á meðal
þingforsetar og menn í fjárveit-
inganefnd, þó ekki séö neitt þvi til
fyrirstöðu að peningunum sé skipt
á þennan hátt.
- Á listinn að heita Breiðholtslist-
inn?
„Já, eða Efri byggðir. Ég vil taka
fleiri byggðir þarna upþ frá með í
dæmið.“
Ásgeir sagði aö enn væri málið á
umræðustigi og hann liti á það sem
eðlilegt framhald frumvarpsins um
einmenningskjördæmi sem hann
hefur lagt fyrir þingið. Telur hann
langsterkast fyrir Borgaraflokkinn
að bjóða fram á þennan hátt.
„Viö sjáum hvað setur en það er
fullt af fólki í kringum mig sem líst
ekki síður á þennan kost en ann-
an.“
-hlh
ZiaMahmood og OmarSharif í Leifsstöð í gær.
Varanleg verð-
lækkunáolíu?
Verð á olíu hrundi á mörkuðum
um allan heim þegar fréttist af frið-
artilboði íraka í gær. Um tíma var
tunnan seld á 16,5 dali.
Verðið hækkaði þó á ný þegar við-
brögð bandamanna voru Ijós. Olíu-
tunnan virtist þó ætla að verða ódýr-
ari þegar mörkuðum var lokað í gær
en hún var fyrir síðustu hræringar
en menn áttu von á enn nýjum svipt-
ingum. Reuter
Áofsahraðaá
Reykjanesbraut
Ökumaður var stöðvaður á ofsa-
hraða á Reykjanesbraut aðfaranótt
föstudags. Lögreglan í Keflavík
mældi hann á 151 kílómetra hraða.
Ökumaðurinn var sviptur ökuskír-
DV-mynd Brynjar Gauti teini til bráðabirgða. -ÓTT
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Hlýnar eftir helgi
Á sunnudag verður breytileg átt og yfirleitt úrkomulaust framan af degi en síðan þykknar upp suðvestanlands með vaxandi suðaustan-
átt. Víðast verður frost en mest í innsveitum norðan- og austanlands.
Á mánudag verður stíf sunnanátt og milt. Rigning um sunnan- og vestanvert landið en úrkomulítið norðaustanlands. Hiti 4-6 stig.