Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1991, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1991, Blaðsíða 6
L&mww * m Uflönd Bandamenn höfnuöu hugmyndum Saddams Hussein um friö meö skilyrðum: Friður ef Saddam er hrakinn frá völdum Georg Bush Bandaríkjaforseti hafnaöi umsvifalaust hugmyndum Saddams Hussein um vopnahlé í Persaflóadeilunni gegn því að hann kallaði her sinn heim frá Kúvæt en í staðinn yrði gengið að skilyrðum hans að blanda málefnum Palestínu- araba og fleiri vandamálum í Mið- Austurlöndum í deiluna. Bush kallaði hugmynd Saddams „ruddalegt hrekkjabragð" og að eng- in leið væri að ganga að skilyrðum hans. Hann sagði einnig að stríðið við Persaflóa héldi áfram þar til írak- ar kölluðu her sinn heim frá Kúvæt skilyrðislaust eða yrðu reknir þaðan með hervaldi ella. Þá sagði Bush í svari sínu við tilboði Saddams að auðveldasta leiðin fyrir íraka til að stuðla að friði væri að steypa harö- stjóranum af stóli. Áður en Bush hélt ræðu sína í gær höfðu leiðtogar ríkjanna, sem mynda bandalagið gegn írak, lýst yfir megn- um efasemdum sínum með friðartil- boðið. Á það var bent að í raun fæl- ist ekkert nýtt í því annað en nú fyrst er Kúvæt nefnt á nafn í hugmýndum íraka um lausn deilunnar. Eftir ræðu Bush mátti þó vera ljóst að friðartil- boðið breytti engu um framgang stríðsins. í Bagdad fögnuðu menn tilboði segir George Bush og kallar friöartilboö hans hrekkjabragö Saddams og svo virtist í fyrstu sem því væri almennt trúað að nú kæm- ist á friður. Þá létu Sovétmenn í ljós vonir um að þetta gæti orðið upphaf- George Bush Bandaríkjaforseti réðst harkalega á Saddam Hussein i ávarpi og kallaði friðartilboð hans hrekkjabragð. Simamynd Reuter ið að friðarviðræðum. I þeim löndum araba, sem stuðningur við íraka er hvað mestur, var tilboðinu fagnað en arabískir andstæðingar íraka tóku því fálega. Fulltrúar Egypta sögðu að útilokað væri að fallast á vopnahlé á öðrum forsendum en þeim sem kveðið væri á um í ályktum öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna númer 660 frá því í haust. Þar er þess krafist að írakar kalli her sinn tafarlaust og skilyrðis- laust heim frá Kúvæt. í fyrstu fréttum frá Bagdad mátti skilja að írakar hygðust fara að áætl- uninni en síðar komu öll skilyrðin í ljós. Þá sáust engin merki þess að íraski herinn væri að leggja niður vopn í Kúvæt. Loftárásir á herinn hættu því aldrei. Árásarferðir til skotmarka í írak og Kúvæt-eru nú komnar á áttunda tug þúsunda. Þeim er haldið áfram við- stöðulaust. Síðustu daga hefur verið lögð áhersla á árásir á framlínu ír- aska hersins. Árásirnar hafa aukist jafnt og þétt enda er fastlega gert ráð fyrir árás á landi í kjölfarið. Reuter Saddam vildi stundarfrið Tilboð íraka um að draga her sinn frá Kúvæt meö skilyrðum kom á sama tíma og bandamenn hertu sóknina gegn íraksher í og við Kúvæt og hófu að ryðja jarðsprengjusvæði meö þar til gerðum sprengjum. Einkum voru það hermenn úr framvarðarsveitum íraka í Kúvæt sem urðu illa fyrir barðinu á loftár- ásum bandamanna rétt eins og inn- rás landherjanna væri á næsta leiti. Oft er búið að segja frá því að árás á landi hljóti að hefjast með kröftugum loftárásum á framlínuna. í gær var m.a. um sjö tonna þungum sprengj- um varpað á her íraka. Það eru ein- hverjar öflugustu sprengjur sem til eru ef kjarnorkusprengjur eru frá- taldar. Grunur um yfirvofandi innrás studdist einnig við að landher banda- manna virtist vera á hraðferö aö landamærunum. Nú er talið aö þar séu um 80 þúsund hermenn banda- manna í viðbragðsstöðu. Fréttir frá yfirmönnum landherj- anna í Saudi-Arabíu bentu einnig til þess að árás á landi væri skammt undan. Þetta hefur fengið menn til að álykta sem svo að Saddam Husse- ein hafi séð sitt óvænna og reynt að koma með friðartilboð á síðustu stundu til að fá bandamenn til að hika. Herforingjarnir hikuðu þó ekki lengi og boð um að hætta árásum komu aldrei. Eftir að friðartilboðið kom frá írök- um sagði Moshe Arens, varnarmála- ráðherra ísraels, að allt benti til að Saddam Hussein væri nú farinn að flnna alvarlega fyrir nálægðinni við herafla bandamanna. „Ég held að Saddam geri sér grein fyrir hvað staða hans er erfið,“ sagði Arens. ísraelsmenn brugðust að vonum hart við fréttunum frá Bagdad, enda var fljótlega ljóst að frelsun Kúvæts átti öðru fremur að vera á kostnað ísra- elsmanna. Fleiri hafa orðið til að túlka tilboð Saddams sem merki um að staöa ír- aka fari dagversnandi. Alexander LURIE'S Von um frið á urslitastundu. "P E fl C E!" Teikning Lurie Haig, fyrrum hershöfðingi og varn- armálaráðherra Bandaríkjanna, sagði að Saddam hefði það eitt í huga að kaupa sér stundarfrið meö því að fá bandamenn til aö velta fyrir sér SÖGUBÆKLINGURINN ER KOMINN OPIÐ Á MORGUN, SUNNUDAG, KL. 14.00-17.00 FLUG 0G BÍLL SUMARHÚS FERÐIR UM BANDARÍKIN FLÓRÍDA HAWAII SIGLINGAR í KARÍBAHAFINU SÓLARLANDAFERÐIR FERÐIR MEÐ TJÆREB0RG FERDASKRIFSTOFAN Suðurgötu 7 - Sími 624040 Roland Dumas, utanríkisráð- herra Frakka, ræddi hugsanlegt boð Saddams Hussein, að draga her sinn frá Kúvæt, við Mikhail Gorbatsjov Sovétforseta þegar hann var í Moskvu fyrr í vik- unni. Tilboðið, ásamt skilyrðum þess, á að hafa komið fram í við- ræðum Jevgenis Primakov við Saddam Hussein. Dumas lét James Baker, starfs- bróöur sínn í Bandaríkjunum, vita um hvað honum og Sovét- forseta hefðí farið í milli um þessa hugmynd. Dumas taldi rétt að taka tilboðinu með varúð. Reuter Peningamarkaður hvort hægt væri að fallast á tilboðið. Þá taldi hann að Saddam vonaðist til að samstaðan gegn írak gliðnaði ef friðartilboðið kæmi verst við ísraels- menn. Reuter INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób. 3-3.5 Lb , Sparireikningar 3ja mán. uppsbgn 3-4 Lb.Sp 6mán. uppsogn 4-4,5 Sp 12 mán. uppsögn 5 Lb.íb 18mán. uppsögn 10 ib Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Bb.Lb.Sp Sértékkareikningar 3-3,5 Lb Innlán verðtryggö Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1,5 Allir 6mán. uppsögn 2,5-3,0 Allir nema ib Innlán meðsérkjörum 3-3,25 Íb Innlán gengistryggð Bandarikjadalir 6-6,25 Bb Sterlingspund 12-12,6 Sp Vestur-þýsk mörk 7,75-8 Bb.Sp Danskarkrónur 8,5-9 Sp ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvixlar(forv.) 13,75 Allir Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi Almenn skuldabréf 13,5-14,25 Lb Viðskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir Hlaupareikningar(yfirdr.) 17.5 Allir Utlan verðtryggð . Skuldabréf 7.75-8.75 Lb Utlán til framleiðslu Isl. krónur 13,25-14 Lb SDR' 10,5-11,0 Lb Bandarikjadalir 9,5-10 Lb Sterlingspund 15.5-15,7 Allirnema Sp Vestur-þýsk mörk 10,75-11,1 Lb.lb Húsnæðislán 4,0 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 21,0 MEÐALVEXTIR Óverðtr. jan. 91 13,5 Verðtr. jan. 91 8.2 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala feb. 3003 stig Lánskjaravísitalajan. 2969 stig Byggingavisitala feb. 565 stig Byggingavísitala feb. 176,5 stig Framfærsluvisitala jan. 149.5 stig Húsaleiguvísitala 3% hækkun . jan. VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 5.364 Einingabréf 2 2,901 Einingabréf 3 3,522 Skammtímabréf 1,798 Kjarabréf 5,278 Markbréf 2,811 Tekjubréf 2,055 Skyndibréf 1,572 Fjölþjóðabréf 1,270 Sjóðsbréf 1 2,574 Sjóðsbréf 2 1,829 Sjóðsbréf 3 1.786 Sjóðsbréf 4 1,544 Sjóösbréf 5 1,077 Vaxtarbréf 1,8137 Valbréf 1.7000 islandsbréf 1,114 Fjórðungsbréf 1,067 Þingbréf 1,113 Öndvégisbréf 1,102 Sýslubréf 1,121 Reiðubréf 1,092 Heimsbréf 1,021 HLUTABRÉF Sölu- og kaupgengi að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: KAUP SALA Sjóvá-Almennar hf. 6,55 6,88 Eimskip 5.64 5,92 Flugleiðir 2,43 2,55 Hampiðjan 1,76 1,84 Hlutabréfasjóðurinn 1.76 1,84 Eignfél. Iðnaðarb. 1,91 2,00 Eignfél. Alþýðub. 1,40 1.47 Skagstrendingur hf. 4,15 4,35 islandsbanki hf. 1,45 1.52 Eignfél. Verslb. 1,36 1.43 Olíufélagið hf. 6.00. 6,30 Grandi hf. 2,28 2,38 Tollvörugeymslan hf. 1,07 1.12 Skeljungur hf. 6,40 6,70 Ármannsfell hf. 2,35 2,45 Fjárfestingárfélagið 1,28 1.35 Útgerðarfélag Ak. 3,50 3,68 Olis 2,15 2,28 Hlutabréfasjóður VlB 0,95 1,00 Almenni hlutabréfasj. 1,01 1,05 Auðlindarbréf 0,96 1,01 Islenski hlutabréfasj. 1,02 1,08 (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við- skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi, kge. Skammstafanir: Bb= Búnaðarbankinn, lb = Islandsbanki Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast i DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.