Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1991, Blaðsíða 12
12
LAUGARDAGUR 16. FEBRÚAR 1991.
Sælkerinn
Sanngjamt verð og
góðar pitsur á Pizza Hut?
Steindór I. Ólafsson, forstjóri Pizza Hut.
Nokkuð hefur verið rætt um
verðlag á pitsum hér á Sælkerasíð-
unni og hefur verið bent á að verð
á pitsum sé óvenju hátt hér á landi.
Af því tilefni var Steindór Ólafsson,
forstjóri Pizza Hut, tekinn tali.
„Ég tel að pitsurnar hér hjá okk-
ur séu á sanngjörnu verði,“ segir
Steindór. „Ég held að menn verði
að skoöa allt dæmið,“ heldur Stein-
dór áfram. „Verðlag á matvælum
er mjög hátt hér á landi. Ég get
nefnt sem dæmi að kílóið af osti
kostar 500 kr. og við notum um 2
tonn af osti á mánuði. Við notum
t.d. hangikjöt og svínaskinku en
þessar afurðir eru mjög dýrar væg-
ast sagt, svo ekki sé nú minnst á
grænmetið sem er margfalt dýrara
hér en erlendis. Pizza Hut í Evrópu
kaupir t.d. allan ost og kjöt á einum
stað fyrir alla veitingastaöina og
þessar afurðir eru því miklu ódýr-
ari hjá þeim en okkur.
Viö notum aðeins fyrsta flokks
hráefni eins og t.d. hörpuskelfisk í
sjávarréttapitsurnar. Þá látum við
framleiða pepperoni og ítalskar
pylsur fyrir okkur sérstaklega og
flytjum inn ailt krydd til þessarar
pylsugerðar.
Hjá Pizza Hut er farið eftir
ákveönum gæðastaðli við pitsu-
gerðina og sérstakir eftirlitsmenn
fylgjast með því að við bregðum
ekki út frá honum. Deigið er vigtað
og það síðan látið hefast í sérstök-
um ofni við 37 gráða hita. Allt það
sem á pitsuna fer er síðan vigtað
og þannig átt þú ávallt að fá pitsuna
þína nákvæmlega eins. Pitsan fer
eftir færibandi í gegnum sérstakan
ofn og þar bakast hún í nákvæm-
lega 6,45 mínútur."
Þá vitum við það.
Steindór I. Ólafsson starfaði m.a.
annars sem hótelstjóri á Hótel Loft-
leiðum og hann er því gamalreynd-
ur veitingamaður. Steindór og fjöl-
skylda hans reka Pizza Hut á Hótel
Esju og í Kringlunni. Um 50 manns
starfa hjá fyrirtækinu.
- Hvernig gengur reksturinn?
„Jú, við getum ekki kvartað,"
svarar Steindór. „Pizza Hut er
heimsþekkt fyrirtæki og það eru
starfræktir 7.000 Pizza Hut staðir
víðsvegar í heiminum, m.a. í
Moskvu. íslendingar hafa tekið
Umsjón
Sigmar B. Hauksson
okkur vel og útlendingarnir þekkja
merkið.“
- En Steindór, fá útlendingamir
ekki taugaáfall þegar þeir sjá verð-
in hjá ykkur?
„Jú,“ svarar Steindór, „en þegar
þeir eru búnir að dvelja hér í
nokkra daga og kynna sér verðlag-
ið á veitingastöðunum þá koma
þeir nú aftur.“
Góð pitsa getur verið öndvegis
matur enda eru pitsur vinsælasti
hraðrétturinn í heiminum í dag.
Mikilvægt er að hráefni sé fyrsta
flokks eins og á raunar við um all-
an mat. Miklivægasti þátturinn er
senmlega osturinn og að pitsan sé
rétt bökuð. Pitsan er matur unga
fólksins og þegar fjölskyldan fer
út að borða er algengt að pitsustað-
ur verði fyrir valinu. Pitsur er alls
ekki óhollur matur, öðru nær, en
ákjósanlegt væri samt að deigið
væri úr heilhveiti. Vonandi halda
veitingamenn verði á pitsum eins
hagstæðu og unnt en gæta samt
þess að aðeins sé notað fyrsta
flokks hráefni.
NÝR BÍLL FRÁ FIAT
FRUMSÝNDUR
UM HELGINA!
Hönnuðir Fiat eru þekktir fyrir að horfa til framtíðar.
En nútíðin - notagildið og hagkvæmnin gleymast ekki.
Frá þeim hafa komið tímamótabflar á undanförnum árum.
Fyrst Uno, síðan Tipo og nú Tempra - bfll sem að mati
sérfræðinga keppir við þá bestu í sínum flokki.
Kemur þar margt til: Fallegt straumlínulaga útlit Tempra gleður augað og eykur að
sjálfsögðu sparneytni, enda er loftmótstaða aðeins 0,28 cd.
Geysilegt innanrými og allar hurðir opnast 80 gráður.
Innréttingar og búnaður af bestu gerð, og ekkert
sparað til að gera aksturinn hljóðlátan, þægilegan
og ánægjulegan.
Ryðvörn í heimsklassa.
ytra byrði galvanhúðað sem \t**x*^
hugsanlegu ryðvörn. 8 ára ryðvarnarábyrgð!
Staðalbúnaður er m.a. vökvastýri, vdtistýri,
þokuljós, rafmagnsvindur í rúðum,
Allt stál
tryggir bestu
FIAT: TEMPRA