Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1991, Blaðsíða 11
L'ÁU'GÁfcÖÁGÚk 16.' 'FEÉRÚÁk íáál.'
11
Fordkeppnin:
Hugsanlegt að Eileen
Ford komi til íslands
- og velji íslenska sigurvegarann
Hugsanlegt er aö sjálf fyrirsætu-
mamma heimsins, Eileen Ford,
komi hingað til lands og velji ís-
lenska Fordstúlku. Að sögn Alix
Labatut, framkvæmdastjóra Su-
permodel of the World, mun Eileen
Ford fara til Norðurlandanna um
miðjan apríl og er mögulegt að hún
kæmi til íslands í leiðinni. Þá
myndi keppnin frestast en ráðgert
var að halda hana í lok mars. End-
anleg ákvörðun verður þó ekki tek-
in fyrr en um þessa helgi.
Það yrði mikill heiður ef Eileen
Ford kæmi hingað til lands til að
velja þátttakanda. Hún er braut-
ryðjandi á þessu sviði og um þessar
mundir eru nákvæmlega fjörutíu
og fimm ár síðan hún setti á stofn
umboðsskrifstofu fyrirsæta í New
York. Nú eru Fordskrifstofur um
víða veröld og Eileen Ford er sú
manneskja sem- tískuheimurinn
ber mesta virðingu fyrir.
Supermodel
í Los Angeles
Keppnin Supermodel of the
World mun hins vegar fara fram í
Los Angeles um miðjan júlí. Þar
koma saman stúlkur frá tæplega
þrjátíu löndum og keppa um titil-
inn hver verður súpermódel árs-
ins. Þeirrar stúlku bíður mikið
ævintýri. Hún fær samning upp á
rúmar tíu milljónir hjá Ford Mod-
els, hundrað og fimmtíu þúsund
króna demantshring frá Cartier,
samning við snyrtivörufyrirtæki
og margt fleira. Sú stúlka fær einn-
ig að skreyta forsíður helstu tísku-
blaða heimsins. Þær stúlkur sem
komast í úrslit keppninnar geta
Eileen Ford, Christie Brinkley, Jeff McGregor og súperfyrirsæta síðasta árs, Anneliese Seubert, frá Astraliu.
einnig vahð úr störfum.
í ár leitar Ford Models að stúlku
sem hefur öðruvísi útlit. Að sögn
Alix Labatut þarf stúlkan ekki að
vera falleg heldur hafa útlit sem
þykir óvanalegt, hvað sem meint
er með því. Árið 1989 leitaði Ford
Models að Gretu Garbo útliti og
norska stúlkan Synne Myrebo þótti
hafa það. í fyrra var hins vegar
leitað að útliti Katherine Hepburn.
í ár er ekki verið að leita að útliti
gamalla stjarna heldur þessu
óvenjulega.
Stúlkurnar, sem komust í úrslit Supermodel of the World, í veislu sem
Cartier hélt fyrir þátttakendur keppninnar.
í síðasta blaði sögðum við frá því
að tvær stúlkur frá Norðurlöndum
heíðu sigrað í keppninni og þær
báðar frá Noregi. Árið 1982 sigraöi
Renee Simonsen frá Árhus í Dan-
mörku þannig að þær eru fleiri
skandinavísku stúlkurnar sem
hafa orðið súpermódel. Síðan
Renee vann titilinn hefur hún verið
ein eftirsóttasta fyrirsæta heims og
leikið í nokkrum kvikmyndum þar
að auki.
Erfitt að komast
að hjá Ford Models
Það er ekki auðvelt að komast að
sem fyrirsæta hjá Ford Models.
Daglega berast til skrifstofunnar
mörg hundruð myndir frá stúlkum
sem áhuga hafa á að starfa hjá fyr-
irtækinu. Þá er fjöldi manns starf-
andi á skrifstofunni sem tekur við
símhringingum frá stúlkum allan
daginn sem spyrjast fyrir um
möguleika á starfi. Viðskiptavin-
irnir hringja að sjálfsögðu einnig
en þeir þurfa ekki annað en lýsa
stúlkum sem þeir vilja og þá leitar
tölva að réttu fyrirsætunum. Ford
Models er einnig með sérstaka
deild fyrir karlmenn og aðra fyrir
börn.
Mikill áhugi er jafnan á fyrir-
sætustarfmu og það er ekki síður
hér á landi en erlendis. Starfið get-
ur gefið mikið af sér, því fylgja
ferðalög og stúlkurnar kynnast því
fólki sem hefur sambönd bæði í
tísku- og kvikmyndaheiminum.
Nú þegar hafa margar myndir
borist af stúlkum sem áhuga hafa
á keppninni en umsóknarfrestur-
inn rennur út um næstu mánaða-
mót. Best er að vera tímanlega að
senda inn myndir. Miðaö er við
aldur frá 14 til 24ra ára og hæðin
þarf að vera yíir 172 sm. Fyllið út
þátttökuseðilinn og sendið ásamt
mynd merkt: Fordkeppnin, helgar-
blað DV, pósthólf 5380,125 Reykja-
vík... eða komiö með myndirnar
í Þverholt 11.
-ELA
Hér eru þátttakendur í keppninni við fræga sundlaug í Los Angeles,
Beverly Wilshire sundlaugina.
NÝTT Á ÍSLANDI - VÖNDUÐ NORSK HEILSÁRSHÚS
Fallegir, gagnvaröir, með stórum veröndum og vönduðum handriðum. „Fransk-
ir“ opnanlegir gluggar. Einangraðir með 6“ steinull í þaki og gólfi og 4“
í útveggjum. Klæddir að innan með völdum, sérþurrkuðum, norskum furu-
panel. Margar gerðir og stærðir, eða sérhannaðir eftir tillögu þinni. Afgreiðslu-
frestur 3 vikur.
TZC & Cc. h/t 91-670470
Sumarbústaðir
greiðslukjör
Fordkeppnin - þátttökuseðill
Nafn:................................
Fæðingardagur og ár..................
Heimilisfang.........................
simi.......r.........................
Staöa................................
Hæð..................................
Þyngd................................