Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1991, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 15,-APRÍL 1991.
3
Fréttir
Þröstur Sigtryggsson, fyrrum skipherra, um væntanleg þyrlukaup fyrir Landhelgisgæsluna:
Betra að kaupa þrjár litlar
„Þaö hefur oft heyrst í fjölmiðlum
eftir að þyrluáhafnir Landhelgis-
gæslunnar hafa unnið björgunaraf-
rek að okkur „vanti“ stóra þyrlu með
afísingarbúnaði. Rökin fyrir þessu
hafa verið sett þannig fram að hinn
almenni borgari hefur tahð að þyrla
með afísingarbúnaði geti flogið í nán-
ast hvaða veðri sem er. ísingin í lofti
myndi ekki hafa þar nein áhrif á.
Þetta er rangt. Þyrla með afísingar-
búnaði getur ekki ílogið við ísingar-
skilyrði nema stuttan tíma. Afísing-
artæki eru til þess að þyrlur komist
út úr ísingu en ekki til að fljúga í
henni,“ sagði Þröstur Sigtryggsson,
fyrrum skipherra hjá Landhelgis-
gæslunni, í samtali við DV um þyrlu-
kaupin sem nú eru fyrirhuguð.
Þröstur hefurt verið skipherra hjá
Landhelgisgæslunni í meira en.30 ár
er hann með um 2.700 flugtíma sem
skipherra bæði á þyrlu og öðrum
flugfórum. Hann segist vera mjög
óánægður með það að til standi að
kaupa eina stóra þyrlu fyrir Land-
helgisgæsluna. Hann telur að selja
eigi bæði minni og stærri þyrlur
Landhelgisgæslunnar og kaupa í
staðinn þrjár af sömu gerð og stærri
þyrlan, bara með kraftmeiri mótor-
um og betri búnaði.
Rangar fullyrðingar
„Menn hafa talað um að ef þyrla
hefur afísingartæki geti hún flogið
beint yfir landið, stystu leið á slys-
stað við flest veðurskilyrði. Þetta er
ekki rétt. Hún þarf viö ísingarskil-
yrði að fljúga meðfram ströndum,
rétt eins og þyrla án afísingartækja.
í Noregi hefur þyrlum með afísingar-
búnað verið bannað að fljúga yfír
land við ísingarskilyrði. Þess vegna
vil ég að keyptar verði 3 þyrlur af
sömu stærð og stærri þyrlan sem nú
er hjá Landhelgisgæslunni í stað
einnar stórrar, sem kosta mun á ann-
an milljarð króna. Þessar þrjár þyrl-
ur á svo að staðsetja á þremur stöð-
um á landinu. Stöðum, vandlega
völdum meö tiiliti til verður og flug-
skilyrða. Með þessu móti væri mun
styttra fyrir þyrlumar á slysstað,
hvort heldur væri um að ræða slys
á sjó eða landi, heldur en að staö-
setja eina eða fleiri þyrlur á suðvest-
urhomi landsins eins og nú er. Með
þessu móti kæmum við fleirum til
hjálpar og á styttri tíma en með því
að kaupa eina stóra þyrlu eins og nú
virðist vera fyrirhugað,“ sagði Þröst-
ur.
Hann benti á að önnur rök sem
Þröstur Sigtryggsson: betra að
kaupa þrjár litlar þyrlur en eina
stóra. DV-mynd GVA
notuð hefðu verið fyrir þvi að kaupa
stóra þyrlu væru þau að hún gæti
bjargað heilli áhöfn af frystitogara.
Þyrlan sem nú er í notkun geti ekki
híft upp frá borði nema 2 til 3 menn
í einu.
Misskilningur
„Ég er viss um að þarna er líka
misskilingur á ferðinni. Sú þyrla sem
menn hafa helst haft augastað á,
Super Puma, getur alls ekki við allar
aðstæður lyft upp 26 mönnum í kyrr-
flugi. Hún hefur að vísu pláss fyrir
26 maims og getur við bestu skilyrði,
og litlar eldsneytisbirgðir, lyft þeim
hópi manna. En langt frá strönd við
erfiðar aðstæður fer því fjarri að hún
geti þetta. Ég kem heldur ekki auga
á hvenær þyrla þyrfti að bjarga 26
manna áhöfn frystitogara úr sjávar-
háska. Þetta eru bestu búnu skip flot-
ans. Helst dettur mér í hug að þessi
staða kæmi upp ef þau stranda. Þá
er það oftast nærri landi. Þannig að
fljótlegt er að flytja áhöfnina til lands
í nokkrum ferðum eins og dæmin
sanna,“ sagði Þröstur.
Nýjar þyrlur varnarliðsins
Þá nefndi hann einnig að varnar-
hðiö væri að fá fjórar nýjar, stórar
þyrlur á þessu ári. Hann leggur til
að reynt verði að semja við varnar-
liðið um að hjá því verði staðsettur
íslenskur maður kunnugur staðhátt-
um til sjós og lands. Þá væri hægt
að bjarga öllum þeim sem þyrlurr á
annað borð geta bjargað hér við land.
Þröstur nefndi sem dæmi að ef þyrla
af meðal stæð hefði verið staðsett á
Austurlandi þegar Syneta strandaði
við Skrúð, hefði auðveldlega áátt
bjarga allri áhöfninni.
Þyrlurnar tvær til hægri eru af Puma-gerð.
DV-mynd S
„En eftir stendur samt að eins og urnar sem til er í landinu eru stað- landsins. Því verður að breyta,“
mál eru nú er allar björgunarþyrl- settar á htlu svæði á suðvesturhorni sagðiÞrösturSigtryggsson. -S.dór
/ ••
UTSOLU
Á meðan bírgðír endast
seljum við margar þýskar rúmgerðir,
mjög vandaðar, með
20-30% afslætti
Aðeins eítt tíl tvö stykkí tíl af hverrí tegund svo nú er bara
að koma strax og velja sér vandað rúm.
BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-681199- FAX 91-673511
við flytjum-sendum-sækjum
25050
& SENDIBILASTOÐIN HF
opið um kvöld og helgar