Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1991, Blaðsíða 10
10
MÁNUDAGUR 15. APRÍL 1991.
Útlönd
Óttast að miMl mengum verði á Rivierimni eftir að olíuskip sprakk og sökk:
Olía lekur úr f lakinu á hafsbotni
Sjónarvottar segja að olía streymi
nú úr flaki olíuskipsins Haven þar
sem það sökk í gær rúma mílu fyrir
utan höfnina í Aernzano, nærri
Genúa á Ítalíu. Mikil sprenging varð
í skipinu seint í síðustu viku og log-
uðu eldar í þvi allt þar til það sökk.
Yfir hundrað þúsund tonn af olíu
voru í skipinu þegar slysið varð.
Nokkur hluti olíunnar brann en mik-
ið fór einnig í sjóinn og er óttast að
mengunin eigi eftir að aukast þegar
olían streymir úr tönkum skipsins á
hafsbotni.
Fuglar við ströndina eru þegar
teknir að drepast í olíunni og meng-
unarsérfræðingar segja að veruleg
hætta sé að olían berist einnig á
frönsku Rivieruna. Þetta er 'eitt
versta mengunarslys sem orðið hef-
ur á Miðjarðarhafi.
í umhverfisráðuneytinu í Róm
hafa fengist þær upplýsingar að um
430 þúsund tunnur af olíu hafi enn
verið í Haven þegar það sökk. Það
er um helmingur farmsins. Fjar-
stýrður kafbátur með myndavél hef-
ur verið sendur niður að skipinu til
að kanna ástandið. Sagt var að olíu-
skipið liti ekki verr út en búist var
við.
Nú eru uppi hugmyndir um að
dæla olíunni úr skipinu. Það hefur
verið gert áður við líkar aðstæður
en skipsskrokkurinn er á um 70
metra dýpi. Þetta er þó verk sem
krefst töluverðs undirbúnings og
hefsi ekki fyrr en eftir nokkra daga.
Björgunarmenn segja að ef veður
haldist gott og lekinn úr skipinu auk-
ist ekki frá því sem nú er muni tak-
ast að koma í veg fyrir alvarlega
mengun við strendur Ítalíu og
Frakklands.
Haven var skráð á Kýpur en sigldi
með olíu fyrir íran. Áhöfnin var frá
ýmsum löndum og fórust flmm úr
henni við sprenginguna. Reuter
Miklir eldar brunnu í olíuskipinu Haven þangað til það sökk í gær. Nú streymir olía úr tönkum þess á hafsbotni.
Símamynd Reuter
Lögðuáflótta
frá milljarða þýfi
Þjófamir, sem stálu 20 my ndum
eftir listmálamann Vincent van
Gogh í Amsterdanm, skildu ailt
þýfið eftir í bíl í borginni og lögðu
á flótta. Myndimar eru vart
metnar til íjár en þó er talið að
verðmæti þeirra nemi milljörð-
um króna. Lítil von er þó um að
selja stolnar myndir eftir van
Gogh vegna þess hve þekktar þær
eru.
Ránið á myndunum var óvenju
bíræfið en þó lýsti lögreglan ræn-
ingjunum sem viðvaningum þvi
harla lítil von er um að komast
undan með málverk sem er vand-
lega gætt. Ræningjarnir tóku
verði í safninu i gíslinu og létu
greipar sópa um sýningarsalina.
Talið er að þeir hafi hugsað sér
að fá lausnargjald fyrir myndirn-
ar en gáfust upp á öllu eftir að
hafa verið meö myndirnar i
nokkra klukkutíma.
Ræningjamir hafa ekki fundist
enn og telur lögreglan litlar likm*
á að þeir komi nokkru sinni í leit-
irnar. Málið verður samt rann-
sakaðíþaula. Reuter
—
Ferðamenn sneru vonsviknir frá
van Gogh safninu í Amsterdam
morguninn eftir að 20 myndum
þaðan var stolið. Símamynd Reuter
fólk
fyrir fólk
FRJÁLSLYNDIR
FRAMBOÐSLISTI FRJALSLYNDRA,
F-LISTINN, í REYKJANESKJÖRDÆMI
1. Júlíus Sólnes, alþingismaður, Seltjarnarnesi
2. Ólína Sveinsdóttir, deildarstjóri, Kópavogi
3. Hilmar Þorbjörnsson, lögregluvarðstjóri,
Mosfellsbæ
4. Sigríður Jónasdóttir, varðstjóri, Kópavogi
5. Guðmundur Karlsson, framkvæmdastjóri,
Hafnarfirði
6. Guðvarður Haraldsson, flugvallarstarfsmaður,
Sandgerði
7. Kristján ingvarsson, verkfræðingur, Garðabæ
8. Davíð W. Jack, flugvirki, Garðabæ
9. Einar Júlíusson, sölumaður, Seltjarnarnesi
10. Bára Magnúsdóttir, verslunarkona, Kópavogi
11. Gunnþór Sigurgeirsson, sölumaður, Hafnarfirði
12. Einara S. Einarsdóttir, verslunarkona,
Setjarnarnesi
13. Gréta Jónsdóttir, húsmóðir, Grindavík
14. Sæmundur Hafsteinsson, sálfræðingur
Garðabæ
15. Gerður Einarsdóttir, húsmóðir, Hafnarfirði
16. Henning L. Guðmundsson, pípulagningam.,
Keflavík
17. Þorsteinn Geirsson, verktaki, Seltjarnarnesi
18. Málfríður Þórðardóttir, Kópavogi
19. Heiðrún Sigurbjörnsdóttir, Kópavogi
20. Björn Haraldsson, verslunarmaður, Grindavík
21. Heimir Br. Jóhannsson, prentsmiðjustjóri,
Kópavogi
22. Guðmundur Jóhannson, framkvæmdastjóri,
Mosfellsbæ