Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1991, Síða 18
18
MÁNUDAGUR 15. APRÍL 1991.
100 kr. leikurinn
mánudaga til föstudaga
kl. 12.00-17.00.
Keilusalurinn
Öskjuhlíð
Sími 621599.
Sápuhúsiö
Snyrtivörukynning
Michelle Amberni, húðfræðingur frá Stendahl,
verður með ráðgjöf miðvikudaginn 17. apríl frá
kl. 10-18.
Verið velkomin.
Sápuhúsiö
Laugavegi 17
Sólar-brúnku púður
Sólar-brúnku púður, er kjörlð fyrlr þcer sem vilja
hafa fallegan sólar-blœ. Elnnlg mó nota sólarpúðrið
sem klnnallt. Kemur í 2 tegundum, fyrlr þurra húð
og fyrlr blandaða aaaw.
húð.
Nýju fersku sumariltlrnir
fró Stendhal.
Þelr skapa þér
fallega tllbreytingu.
DUGGUVOGI 2 SÍMI 686334
RENNIBEKKIR
Vegna einstaklega hagstæðra samninga getum við
boðið verðlækkun á eftirtöldum stærðum:
Lengd 915 mm, þverm. 307 mm.
Kr. 242.700,-
Lengd 1020 mm, þverm. 339 mm.
Kr. 294.900,-
Lengd 1270 mm, þverm. 356 mm.
Kr. 396.100,-
(Verð án vsk.)
IÐNVÉLAR OG TÆKI
I & T HF.
SMIÐSHÖFÐA 6 - S. 674800
Hagnýt lögfræði
Án kaupmála verða húsið og bíllinn ekki séreign hjóna.
Kaupmálar:
„Með allt á
hreinu...“
„Algengast er að hjón geri kaupmála
til að tryggja að eign komi ekki til
skipta við skilnað...“
Hin almenna skipan á íjármálum
hjóna er hjúskapareignatilhögun-
in. Hjúskapareignir teljast öll þau
verðmæti sem hjón flytja með sér
í hjúskapinn, eða eignast síðar allt
til hjúskaparloka, nema heimild sé
til að telja þau séreign.
Séreignir geta átt rót sína að
rekja til samninga milli hjóna (eins
og gerð kaupmála), til fyrirmæla
þriðja aðila eða verið reistar á laga-
fyrirmælum. Sá munur er á séreign
og hjúskapareign að þegar til
skipta kemur vegna skilnaðar er
séreign haldið utan skipta og fær
hinn makinn ekki hlutdeild í því
fé. Sé um hjúskapareign að ræða
fær maki hins vegar helming af
eignum hins við skipti.
Hvað er kaupmáli?
Kaupmáli er skriflegur samning-
ur milli hjóna eða hjónaefna, sem
lýtur að tilhögun á fjármálum
þeirra á milli. Rétt er að geta þess
að fólk, sem býr saman í óvígðri
sambúð, getur ekki gert með sér
kaupmála.
Hvenær er nauðsynlegt að
gera kaupmála?
í fyrsta lagi ef hjón eöa hjónaefni
vilja að munir, sem annað þeirra á
eða mun eignast, verði séreign
þess.
í öðru lagi má ákveða í kaupmála
að séreign, sem stofnast hefur við
kaupmála, erfðaskrá eða gjöf frá
þriðja aðila, veröi hjúskapareign,
svo framarlega sem þaö brýtur
ekki í bága viö ákvarðanir arfleif-
anda eða gefanda.
Að siðustu er þörf kaupmála ef
um er að ræða gjaíir milli hjóna-
efna, sem viðtakandi á aö fá við
giftinguna, og gjafir á milli hjóna.
Þetta á þó aðeins við um gjafir sem
ekki teljast venjulegar. Er þá átt
við gjafir sem eru hóflegar miðað
við efnahag gefanda og má sem
dæmi nefna að ef annaö hjóna gef-
ur hinu fasteign, þá myndi slík gjöf
vart teljast venjuleg. Kaupmála
þarf hins vegar ekki til venjulegra
tækifærisgjafa og ekki heldur til
hluta eins og lífsábyrgðar, lífeyris
eöa slíkra framfærslutrygginga.
Helstu ástæður fyrir kaup-
málagerð
Algengast er að hjón geri kaup-
mála til að tryggja að eign komi
ekki til skipta viö skilnað. Sem
Umsjón:
ORATOR
- félag laganema
dæmi má taka ef annað hjóna kem-
ur inn í hjúskap meö miklar eignir
en hitt með lítil verðmæti. Vill það
sem meira á þá oft tryggja sig á
þennan hátt gagnvart mögulegum
skuldheimtumönnum hins.
Form kaupmála
Það er ófrávíkjanlegt skilyrði
þess að kaupmáli teljist gildur að
hann sé skriflegur og undirritaður
af aðilum. Ef annar aðili er ólög-
ráða (þ.e. ef hann er ekki orðinn
18 ára eða hefur verið sviptur lög-
ræði), þarf einnig undirritun lög-
ráðamanns. Einnig er gildisskil-
yrði að kaupmáli sé skráður í kaup-
málabók.
Kaupmálabók er haldin í hverju
lögsagnarumdæmi, en auk þess
heldur dómsmálaráöuneytið skrá
um alla skráða kaupmála og geta
þeir sem hafa lögmætra hagsmuna
aö gæta fengið upplýsingar úr
kaupmálaskrá ráðuneytisins. Skv.
gildandi reglum ber að skrá kaup-
mála í því umdæmi þar sem eigin-
maðurinn á varnarþing (lögheim-
ili). Skráningu annast sýslumenn,
bæjarfógetar og borgarfógeti.
Ef kaupmáli hefur í för með sér
yfirfærslu að eignarrétti að fast-
eign, skrásettu skipi, sem er stærra
en 5 smálestir, skrásettu loftfari
eöa fyrirtæki, sem skrásett er á
verslanaskrá, þarf að þinglýsa
kaupmála svo hann öðlist gildi
gagnvart grandlausum viðsemj-
endum.
Ógildir kaupmálar
Ogildir eru þeir kaupmálar sem
óskráðir eru. Einnig er kaupmáli
ógildur ef ólögráða maður stendur
að kaupmálagerð án þess að lög-
ráöamaður undirriti kaupmálann
ásamt honum. Önnur ógildingartil-
vik geta einnig komið til, svo sem
andlegur vanþroski eða ef annar
aðilinn hefur undirritað kaup-
málann undir áhrifum áfengis,
lyfja eða fíkniefna.
Að síðustu getur verið um það
að ræða að annar aðilinn hafi verið
fenginn til aö gera eða undirrita
kaupmála með ólögmætum hætti,
s.s. með svikum, nauðung eða mis-
neytingu.
Áigengast er að fólk leiti sér lög-
fræðilegrar aöstoðar við gerð kaup-
mála og kemur þvi sjaldan til þess
að kaupmálar séu ógildir.
Er dýrt að gera kaupmála?
Unnt er að gera kaupmála bæði
fyrir og eftir hjúskaparstofnun,
eins og áður segir. Ef kaupmáli er
geröur fyrir hjúskap er fast skrán-
ingargjald, frá 1. jan. 1990, kr. 2.500
og við þaö leggst stimpilgjald, kr.
50.
Ef kaupmáli er hins vegar gerður
eftir stofnun hjúskapar eru tekin
0,4% af nettóséreign, þ.e. eign aö
frádreginni skuldum sem á henni
hvíla. Taka má sem dæmi að hjón
ætli að gera fasteign, að verðmæti
kr. 10.000.000, að séreign konunnar.
Séu áhvílandi veöskuldir á eign-
inni, kr. 4.000.000, yrðu tekin 0,4%
af nettóséreign, þ.e. 0,4% af
6.000.000. Gjaldiö, sem hjónin
þyrftu að borga, væri þá 24.000 kr.
+ 2.550 kr. í skráningargjald.
Algengustu tilefni kaupmála-
gerðar eru að fasteign sé gerð að
séreign og er þá miðað við fast-
eignamatsverð. Einnig er oft um
að ræða lausafé, svo sem innbú og
bifreiðar, en í þeim tilfellum er það
metið hve mikils virði munur er.