Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1991, Síða 19
MÁNUDAGUR 15. APRÍL 1991.
19
jov __________________________________________________________Merming
Roger McGuinn - Back from Rio:
„Bjartur snýr aftur“
Áriö 1967 komst maður nokkur aö þeirri
niðurstöðu að nafn hans væri leiður kross
að bera. Hann hét Jim en ekki lengur. Roger
hét hann svo. Tæpast stórfrétt, eða hvað?
Maðurinn var poppari og giska frægur sem
shkur. Þess vegna var nafnbreytingin frétt
og fékk vængi veigamikla. Jim var leiðtogi
hljómsveitar sem hét Byrds og þótti svar
Kana við Bítlunum. En frægðin er harður
húsbóndi og söguhetjan átti að hafa fengið
sig- fullsadda. Samkvæmt sögunni fékk
kempan bróður sinn, Roger, til að hlaupa í
skarðið og taka við poppstjörnuhlutverkinu
meðan okkar maður, Jim, lét sig hverfa á
kjötkveðjuhátíð í Rio. Auðvitað er sagan
skrök en óneitanlega skemmtileg og hún var
Roger ofarlega í huga þegar hann undirbjó
endurkomu sína í sviðsljósið eftir langt hlé.
McGuinn stofnaði Byrds árið 1963 og var
eini meðhmurinn sem hélt sæti sínu allt til
loka 1973. Byrds ruddu braut þjóðlagarokk-
inu og fundu gullinn meðalveg milh Bítla og
Bobs Dylan. Eftir daga Byrds gaf McGuinn
út 5 sólóplötur og 3 skífur á árunum 1979-80
í félagi viö Byrdsmennina Clark og Hhl-
Hljómplötur
Skúli Helgason
mann. Allan 9. áratuginn heyrðist hins vegar
ekki bofs frá McGuinn og margur hélt vininn
dauðan úr öhum. Áhrifa Byrds gætti þó í
auknum mæh austan hafs sem vestan: REM,
Tom Petty, Smiths o.fl. sóttu greinilega
margt í þá smiðju sem geymdi finlegan radd-
söng og bjartan Rickenbackerhljóm McGu-
inns.
Það hefur verið gaman að fylgjast með
upprisu nokkurra öldunga rokksins á síð-
ustu árum. Neil Young, Lou Reed, Bob Dyl-
an, Roy Orbinson, Rolling Stones, Paul
McCartney hafa ahir gefið út afbragðs plötur
að undanfórnu eftir áralanga lægð. Það var
því tilhlökkunarefni að heyra í Roger McGu-
inn eftir 11 ára hlé.
Back from Rio nær ekki sama flugi og plöt-
ur fyrrnefndra hstamanna. Platan er ákaf-
lega venjuleg, hljómurinn eftir bandarískri
forskrift: notalegur en yfirborðslegur. Back
from Rio er ekki það öskur sem maður á von
á frá manni sem setið hefur keflaður í 11 ár
og reyndar mun McGuinn hafa eytt þessum
tíma í knæpuspil, allsáttur við sig og sitt.
Þekktir rokkarar reka inn nefiö: Byrds-félag-
arnir Crosby og Hillmann; Tom Petty (eggið
undan hænunni) og Elvis Costello lánar lag-
ið You Bowed down sem reyndar er besta lag
plötunnar. King of the Hill er tvísöngur
McGuinns og Pettys, ágætt popplag, en þar
er nú eins og hænuskömmin sé farin að stæla
eggiö því kennimark Pettys er greinilegt.
Annars staðar er víða svamlað í hunangs-
sætu meöalmennskufeni þar sem helsta birt-
an kemur frá sjáaldri McGuinns, hinum 12
strengja Rickenbacker gítar.
Roger McGuinn var ekki besti lagasmiður
Byrds og sólóplötur hans bera þess nokkur
merki. Back from Rio er þar engin undan-
tekning, hún er fáguð og áheyrheg en án allra
thþrifa. Það er hins vegar ekkert því til fyrir-
stöðu að platan falli vel í kram þeirra sem
hafa gaman af vandaðri spilamennsku og
melódísku poppi.
NEYMRHNAPM»JÓNU$TA j Mé
Ney&arhnappur frá Vara fyrir heimabúandi sjúklinga og aldraða \\v//
VARI - alhliða öryggisþjónusta síban 1969
9-1 -29399
Styðjum
Steingrím
Þjóðin þarfnast hans við
stjórnvölinn áfram.
Þitt val - Þín framtíð!
við ftr á laugardag
er okkar framlag