Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1991, Qupperneq 21
MÁNUDAGUR 15. APRÍL 199L
í litrófi
stjórn-
málanna
Ýmislegt hefur verið að gerast á
pólitískum vettvangi að undan-
fórnu. Nýir flokkar eða samtök
hafa komið fram á sjónarsviðið svo
nú verða 11 listar í framboði í kom-
andi kosningum. - Einnig hafa
sögulegar sviptingar átt sér stað í
Sjálfstæðisflokknum, með snörp-
um hvelli, þegar Davíð Oddsson
braust fram eins og þruma úr heið-
skíru lofti rétt fyrir landsfund
flokksins og tilkynnti að nú væri
hans tími kominn til að taka völdin
- það væri flokknum fyrir bestu.
I fyrstu var sem titringur gripi
um sig meðal forystumanna flokks-
ins svo að þeir gátu ekki dulið ótta
sinn við fylgistap vegna þessa til-
tækis borgarstjóra. En skjótt skip-
ast veður í lofti... Davíð sagði rétt
si svona hvað þeir mættu - ekki
KjaHarinn
Aðalheiður Jónsdóttir
verslunarmaður
„Svo kann að fara að Davíð Oddsson
verði einræðisherra í næstu ríkis-
stjórn þótt ekki sé víst að Sjálfstæðis-
flokkurinn fái hreinan meirihluta.“
gera - og það dugði... foringinn
hafði talað: - Formann mátti ekki
kjósa af vorkunnsemi!... Vor-
kunnsemi fyrir hvað? þetta lætur
dálítið undarlega í eyrum þeirra
sem ekki þekkja leikflækjur stjórn-
málanna.
Valdahroki
Nú er Davíð farinn að tala við
fólkið úti á landi og segja því frá
brennandi áhuga sínum fyrir
byggðamálum. Hingað til hafi hann
borið hag borgarinnar fyrir brjósti.
Nú sé röðin komin að landsbyggð-
inni.
Verður Davíð sama átrúnaðar-
goöið úti á landi eins og í höfuð-
borginni? Kannski er það einmitt
einræði sem þessi þjóð vill?... einn
flokk og sterkan foringja sem lætur
eins og vind um eyru þjóta vilja og
óskir fólksins en keyrir allt áfram
með ótrúlegum valdahroka.
Eitthvert hrikalegasta dæmið um
einræðisverk borgarstjórans er
Ráðhúsið, bæði hvað varðar útlit
þessarar ófrýnilegu braggabygg-
ingar og allt annað í því sambandi,
svo sem allt fjármagnið sem í það
fer og betur hefði verið varið til að
bæta lífskjör borgaranna og síöast
en ekki síst að taka ekki tillit til
þótt tugir þúsunda mótmæltu þess-
um framkvæmdum heldur banna
að undirskriftalistar mættu nokk-
urs staðar sjást á opinberum stöð-
um... En Reykvíkingar voru ekk-
ert að misvirða þennan gjörning
því í töluðum orðum rigndi yfir
Davíð traustsyfirlýsingum og í
borgarstjómarkosningunum, sem
fóru fram rétt um sama leyti, fékk
Sjálfstæðisflokkurinn meira fylgi
en nokkru sinni fyrr... Svo að
Reykvíkingar vilja sýnilega ekki
lýðræði.
Lýðræði eða...?
Svo kann að fara. að Davið Odds-
son verði einræðisherra í næstu
ríkisstjórn. þótt ekki sé víst aö
Sjálfstæðisflokkurinn fái hreinan
meirihluta.
Þá getur hann samt orðið ein-
valdur, svo mjög sem krata langar
nú í gamla hækjuhlutverkið. Og
það hlýtur rétt að takast, slíkan
liðsauka sem þeir hafa fengið af
póhtískum flóttamönnum.
Eitt sinn var slagorð Jóns Bald-
vins fyrir kosningar: „Hverjir eiga
ísland?“ Þá fór hann vítt um land
með skemmtikrafta til að láta fólk
hlusta á pólitíska skrípaleiki og til-
kynna hversu margt hann ætlaöi
að gera ef hann kæmist til valda
t.d. moka framsóknarflór- svo eitt-
hvað sé nefnt. En Jón Baldvin
komst til valda án þess að moka
flór eða bæta ástandiö á nokkurn
hátt, svo vitað sé. Hins vegar tókst
honum í samvinnu við Sjálfstæðis-
flokkinn að koma á matarskattin-
um illræmda. Þó að þessi maður
stimph sig vinstra megin við miðju
sýnir það aðeins að hann þekkir
ekki sjálfan sig og þarf, ef hann
vill ná áttum að leita að sér annars
staðar - jafnvel hægra megin við
íhaldið. Þannig hefur hans pólitíski
ferill oft litið út frá vinstra sjónar-
horni.
Nýtt vígorð
Nú er vígorð Alþýðuflokksins:
„Íslandí A-flokk“... ogþykirýms-
um það hljóma skringilega. Stór-
fenglegar auglýsingar birtast í
blöðum um hvað þeir eru og flóð
af spurningum. Einn slíkur auglýs-
ingalisti var að berast mér í hendur
rétt í þessu. Þar stendur: - Við er-
um A-listinn. Skreytt með rauðum
strikum (kannski á það að tákna
vinstra megin við miðju!) - Þá
koma nöfn tveggja framboðs-
kandidata og spurningasyrpa. „ís-
land í A-flokk“.
Varla þarf að efast um að þessir
framboðskandidatar fara létt með
að svara þessum spruningum á
kratiska vísu: annar fæddur inn í
Alþýðuflokkinn rétt eins og maður-
inn sem fæddist í Alþýðuhúsinu á
ísafiröi og var skírður áður en
hann fæddist - hinn, einn pólitísku
flóttamannanna, sem að líkindum
er þjakaður af EB-æðiskastinu sem
hefur lagst ofurþungt á suma
stjórnmálaflokka og einstaklinga. -
Því var ekki nema eðlilegt að hann
veldi þessa leið... Kannski getur
glórulaus frjálshyggja og undir-
lægjuháttur við EB auðveldað
svarið: „Hveijir eiga ísland?"
Aðalheiður Jónsdóttir
w/
mmm ■
GOODfYEAR
HEKLA
LAUGAVEGI 174
9 6955604.674363
GOODfYEAR
60 ÁR
Á ÍSLANDI
BORGARTÚNl 31 • PÓSTHÓLF 880 • 121 REYKJAVlK • SlMI 62 72 22
VERKLEGT
HLBOD
Við náðum sérstökum samningum á takmörkuðu magni af
Black og Decker iðnaðarverkfærum og lækkum verðið snarlega meðan birgðir endast.
PS4-11K
<! Slípirokkur í stáitösku
11000 snún. á mín. sterkur og
handhægur, 41/i”, 720W.
Sölustaðir um land alH.
SINDRI
-sterkur í verki
ALoftborhamar í stáitösku
Fyrir SDS steinbora, stiglaus
afturábak og áfram, 550W.
P22-71K
Höggborvél í stáitosku>
Óvenjulega fjötbreytt og kraftmikil
með afköst í hámarki, 2ja gíra,
stiglaus - afturábak og áfram, 500W.
Pll-69
Borvélv
Létt, afar sterk, örugg og fjölhæf,
stiglaus - afturábak og áfram, 450W.