Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1991, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1991, Síða 28
28 MÁNUDAGUR 15. APRÍL 1991. Sljómmál Hverju spáir þú um úrslit kosninganna í Vestur- landskjördæmi? (Spurt í Ólafsvík) Gunnar Hjartarson skólastjóri: Það er eríitt að segja. Ætli ég segi þó ekki að gömlu flokkarnir Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag, Framsókn og Sjálf- stæðisflokkur fái einn mann hver, eða jafnvel að Sjálfstæðisflokkurinn fái 2 menn. Ómar Lúðvíksson trésmiður: Ég spái að Framsóknarflokkur fái 2 menn, Alþýðubandalag 1, Sjálfstæðisflokk- urinn 1 og Alþýðuflokkurinn 1 mann. Gréta Jóhannesdóttir verslunarmað- ur: Ég vil hafa þetta svipað og verið hefur. Sigríður Eggertsdóttir, starfsmaður félagsheimilisins: Ég veit það ekki, ég spái ekkert í þetta. Alfons Finnsson sjómaður: Ég pæli ekkert í pólitík. En megi sá hæfasti vinna! Bj öm V alberg bílamálari: Ég hef ekk- ert spáð í það. En það er öruggt að Framsóknarflokkurinn sækir á. Hins vegar líst mér ekkert á Sjálf- stæðisflokkinn. DV Framboðsfundur í Vesturlandskjördæmi: „Kann madurínn ekki að lesa?“ Um 350 manns sóttu framboðsfund þeirra hsta sem bjóða fram í Vestur- landskjördæmi sem haldinn var í Ólafsvík. Fundurinn var haldinn í félagsheimili Ólafsvíkur og um tíma var salurinn kjaftfullur og menn stóðu meðfram veggjum og í and- dyri. Frambjóðendur sátu í gryfju í miðjum salnum en áheyrendur sátu skör ofar. Nokkrir frambjóðendanna höfðu á orði að þetta væri eins og í dýragarði. „Við erum hér eins og dýr í búri. Það er eins gott að enginn verði bitinn,“ varð einum að orði. j Skipulagningfundarins varþannig aö fyrst hafði hver listi 8 mínútur í framsögu, þá voru fyrirspurnir, ann- aðhvort skriflegar eða munnlegar, leyfðar í 15 mínútur og að því loknu höfðu listarnir 10 mínútur til að svara fyrirspurnum og segja lokaorð. Fundurinn fór mjög kurteislega af stað og var fremur þunglamalegur framan af. En þegar fyrirspumir tóku að berast lifnaði ögn yfir saln- um og nokkur hiti var í mönnum um tíma. Það sem hamlaöi hins vegar meira fjöri og æsingi var að framí- köll voru bönnuö. Reyndir menn voru sammála um að það væru mis- tök að banna framíköll. Þau væru einmitt það sem þyrfti á svona fram- boðsfundi og þau gæfu tilefni til hnyttinna svara og skemmtilegra orðaskipta. Það sem einkenndi ræður margra frambjóðenda voru ásakanir á alla bóga um slælega lestrarkunnáttu eða að andstæðingar hefðu ekki lesið stefnuskrár hinna. Það mun vera nokkuð algengt á svona fundum. Það var misjafnt hversu margir töluðu frá hveijum hsta, allt frá ein- um frambjóðanda upp í þijá. Skýr afstaða til EB Sigurður Þórólfsson, 2. maður á B-lista, hóf framsöguna og sagði að nú yrði kosiö um störf ríkisstjórnar- innar á kjörtímabilinu og um þann árangur sem náðst hefði á sviði efna- hagsmála. Hann sagði að ríkisstjórn- in hefði tekið við erfiðri stöðu, óða- verðbólgu, atvinnuleysi en tekist að rétta stöðuna með markvissum að- gerðum. Stöðugleikanum, sem tekist heföi að ná undir stjórn Framsóknar- flokksins, þyrfti að viðhalda. Sigurður sagði að taka þyrfti skýra afstöðu til inngöngu í Evrópubanda- lagið en Alþýðuflokkur og Sjálfstæð- isflokkur hefðu frestað því fram yfir kosningar. Framsóknarflokkurinn tæki skýra afstöðu gegn inngöngu í EB þar sem íslendingar myndu með Ingibjörg Pálmadóttir, Framsóknar- flokki. inngöngu afsala sér yfirráðum yfir auðlindum sínum. Sigurður sagði að þótt búvöru- samningurinn væri ekki gallalaus væri hann mjög til bóta fyrir bænd- ur. Nauðsynlegt væri að vernda landið gegn innflutningi landbúnað- arvara og herða þyrfti gæðakröfur til innfluttra matvæla. Sams konar gæðakröfur ætti að gera til þeirra og innlendra. Höfnum alræði Díana Dröfn Ólafsdóttir talaði fyrir F-listann, lista Fijálslyndra. Hún sagði aö fjórflokkarnir hefðu fengið að reyna að stjóma landinu en þeir hefðu skotið framhjá. Hún sagði að draga mætti stefnu F-listans í eina setningu: „Við höfnum alræði, hvort heldur er peninga eða skriffinna og stefnum að einlægu þjóðfélagi þar sem fólk fær að njóta sín og þess sem í því býr án hafta en þeim sem minna mega sín sé rétt hjálparhönd." Helstu stefnumál F-listans sagði Díana vera þau að heimilisstörf séu metin til jafns við önnur störf, að maki geti nýtt sér persónuafslátt til fulls, skattleysismörk verði hækkuð þessu verði náð án þess að tekjur ríkissjóðs lækki. Virðisaukaskattur verði í tveimur þrepum. Horfið verði frá mismunun búvöruframleiðslu eftir tegundum, kjarnfóðurgjald lagt niður og fullvirðisréttur verði fram- seljanlegur milli býla og bændum verði heimilt að leggja inn afurðir sínar hvar sem er á landinu. Lands- hlutabundnum aflakvóta verði kom- ið á og að fiskiskip sem smíðuð eru á íslandi njóti sérréttinda umfram skip sem smíðuð eru erlendis hvaö varðar lánafyrirgreiðslu. Díana sagði að Fijálslyndir vilji vinna að valddreifingu þannig aö staðbundin stjórnvöld geti tekið í sín- ar hendur verkefni sem nú eru leyst hjá ríkisstofnunum í Reykjavík. Al- þingismenn verði kjömir af lands- hsta og fullum jöfnuði atkvæðisrétt- ar verði náð. Verði þingmaður ráð- herra taki varamaður sæti á Alþingi. íslandsmet í skattheimtu Frá D-lista Sjálfstæðisflokks tók fyrstur til máls Guðjón Guðmunds- son, 2. maður á listanum. Hann sagði að viðskilnaður þessarar ríkisstjóm- ar væri íslandsmet í skattheimtu, hrikalegur halli væri á ríkissjóði, verulegt atvinnuleysi og stóraukin gjaldþrot og flótti af landsbyggðinni. Guðjón sagði að lækka þyrfti Helga Gísladóttir, Þjóöarflokki - Flokki mannsins. Vesturland A Þingmenn & Landskjörnir Hlutfallsskipting 1987 Stjórnarandstaöa Stjórnarflokkar Kosningar ’91 Nanna Sigurdórsdóttir skatta, afnema undanþágur varðandi virðisaukaskatt og að heimilt væri að nota skattkort maka að fullu, svo og bama sem þyrfti að senda burt til menntunar. Guðjón sagði að varðandi fiskveiði- stefnu þyrfti að móta heildstæöa stefnu frá veiðum til vinnslu og sölu og um slíka stefnu tækist sem víð- tækust samstaða útgerðar, sjómanna og fiskvinnslufólks. Hann sagði að fulltrúar Alþýðuflokks boði auð- hndaskatt og að Alþýöubandalagið boðaði aflagjald. „Ég óttast að slík gjaldtaka muni reynast mörgum of- viða og færi kvótann á færri hendur og fari iha meö landsbyggðina. Gylfi Þ. Gíslason hefur í fjölda ára talað um ágæti auðlindaskatts og Jóhann Ársælsson hefur stært sig af tillögum i þá átt og að Gylfi hefði tekið undir sínar thlögur. Gylfi hefur jafnan tal- að fyrir daufum eyrum en nú loks hefur hann fundið bandamann og ég óska Jóhanni til hamingju með fé- lagsskapinn." Hvernig ætla sjálfstæðismenn að lækka skatta? Árni E. Albertsson, 4. maður á lista Alþýðubandalagsins', G-listans, sagði að stefnuleysi sjálfstæðismanna væri algert. Þaö væru bara tvö mál sem Arnór Pétursson, Frjálslyndum. lagt væri áherslu á. Annars vegar Davíð á þing og hins vegar að lækka skatta. „En hvemig ætla sjálfstæðis- menn að lækka skatta? Jú, Geir H. Haarde ætlar að hætta að gefa út bæklinga og spara þannig hundrað milljóna. Ég veit ekki hvaða bækling- ar eru svona ofboðslega dýrir.“ Árni sagði að sjálfstæðismenn slái úr og í hvað fiskveiðistjórnun varð- ar. „Þeir eru sjálfsagt búnir að gleyma því blessaðir að það voru þeir, í samvinnu við framsóknar- menn, sem á sínum tíma settu þessi kvótalög." Aðild að EB sagði Árni vera eitt af stærstu málunum sem kosið yrði um. Alþýðubandalagið væri á móti öllum hugmyndum um inngöngu og aðild að EB. Atvinnuþátttaka kvenna efnahagsleg nauðsyn Danfríður Skarphéðinsdóttir, sem skipar 1. sæti Samtaka um kvenna- hsta, sagði að nauðsynlegt væri að jafna stöðu karla og kvenna í þjóð- félaginu. Sérstaklega vegna þess að atvinnuþátttaka kvenna væri orðin almenn, enda efnahagsleg nauðsyn fyrir heimih í landinu. Undirstöðuat- vinnuvegir þjóðarinnar standi og fahi með vinnu kvenna. Samt hvíli heimilsstörf og umönnum barna á herðum kvenna. Konur í fullu starfi fái aðeins 60% af launum karla í fullu starfi. Þessu þurfi að breyta. Kvennalistinn vill bæta kjör hinna lægstlaunuðu og það er krafa þeirra að einstakhngur geti framfleytt sér af dagvinnulaunum. Danfríður sagði að á meðan láglaunafólk héldi uppi þjóðarsáttinni og stöðugleiki efna- hagslífsins væri því að þakka, kæmi í ljós hinn mikli gróði hlutabréfaeig- enda. „Það em dæmi um 10 mhljón króna hagnað einstaklings á mánuði. Það er því ljóst að það eru til breið bök sem era betur í stakk búin th að taka á sig kjaraskerðingu heldur en láglaunafólk.“ Danfríður sagði að með sýn kvenna á lífið væri tekin afstaða til allra málaflokka stjórnmálanna. „Við höf- um átt frumkvæði að mikhvægum thlögum, til dæmis um lengingu fæð- ingarorlofs í 6 mánuði og lengingu skóladagsins." Þjóðarsátt haldi áfram Af hálfu Alþýðuflokks, A-lista, hóf máls Sveinn Þór Ehnbergsson, 3. maður á hstanum. Hann sagði að Alþýöuflokkurinn hefði komið Jóhann Ársælsson, Alþýðubanda- lagi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.