Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1991, Side 47
MÁNUDAGUR 15. APRlL 1991.
r 'V' TT rxrr - -• r < T r-r r \ » rir/ « f
dv Meiming
Evgeny Kissin.
Eldhugi við
hljómborðið
- Camegie tónleikar Evgeny Kissins á geisladiski
Fáar þjóðir virðast unga út fleiri undrabörnum í tónlist, einkum og sér
í lagi píanóleikurum, en Sovétmenn. Nú liggur stöðugur straumur korn-
ungra sovéskra píanósnillinga um tónleikahallir Vesturlanda þar sem
þeir hrífa kröfuhörðustu gagnrýnendur upp úr skónum, jafnt fyrir tækni-
lega fullkomnun sem túlkun.
Ein af skærustu stjörnunum í þessu unglingagengi er án efa Evgeny
Kissin, sem hélt debúttónleika í Carnegie Hall í New York fyrir hálfu
ári. Nú hefur upptaka á þessum tónleikum verið gefin út á geisladiski
(RCA Victor Red Seal RD60443), sem bendir til þess að þessi ungi píanó-
leikari eigi framtíðina fyrir sér. Ekki sakar heldur að Kissin hefur bæði
úthtið og nafnið með sér, og ætti hvort tveggja einnig að greiða fyrir frama
hans, að minnsta kosti meðal engilsaxneskra þjóða. Manni verður eigin-
Geisladiskar
Aðalsteinn Ingólfsson
lega hverft við, hafandi hlustað á stórbrotna og djúptæka túlkun Kissins
á verkum á borð við sónötu Prokofievs (No. 6, Op. 82), sem er hluti af
tónhstarlegu uppgjöri tónskáldsins við Stalínstímann, að uppgötva að
túlkandinn er átján ára gamall drengstauli!
Erfið dagskrá
Þó ber að taka tillit th þess að Kissin hóf nám í píanóleik undir hand-
leiðslu Önnu Pavlonu Kantor aðeins tveggja ára og lék í fyrsta sinn með
hljómsveit tíu ára gamall.
Fyrir tónleika sína í Carnegie Hall setti Kissin saman feUcnarlega erfiða
dagskrá. Hann hóf leik sinn með Abegg tilbrigðum Schumanns, lék síöan
ahar sinfónískar etýður sama tónskálds, átján að tölu, síðan áðurnefnda
sónötu Prokofievs, þriðja Liebestraum eftir Liszt, svo og spænsku rapsód-
iu hans sem sjaldan er leikin, tók svo fyrir vals eftir Chopin (Op. 64, No.
2), etýðu eftir Liszt, Widmung þeirra Schumanns og Liszt og klykkti út
með etýðu eftir Prokofiev (Op. 2, No. 3).
Spennan í Camegie Hah er næstum áþreifanleg meðan á leik þessa
metnaðarfulla eldhuga stendur, og við lok þrælerfiðrar Prokofiev etýð-
unnar brýst út slíkur fógnuður í salnum að sjaldan hefur annað eins
heyrst á geisladiski.
Ljóðrænn, kröftugur
Hvers konar píanóleikari er svo Kissin? Umfram allt, gífurlega fjöl-
hæfur, ljóðrænn í ljóðrænum etýðum Liszts, kröftugur í kraftmikilli só-
nötu Prokofievs. Sjálfum var það mér mikil upplifun að heyra spænska
rapsódíu Liszts fyrsta sinni, og í túlkun á Schumann á Kissin fáa sína líka.
Geisladisknum fylgir bæklingur þar sem Kissin ræöir um uppáhalds
tónskáld og píanóleikara sína, og þar kemur fram næmt skynbragð hans
á alls konar píanóleik. „Enginn túlkar Bach eins vel og Gould og Bu-
soni,“ segir hann, „Beethoven eins og Schnabel, Kempff og Gílels, Chop-
in eins og Rubinstein eða Neuhaus, Debussy og Ravel eins og Gieseking,
LiszteinsogHorowitzogRachmaninoffeinsog.. .ja,Rachmaninoff..
Þessum unga snillingi virðast því standa allar dyr opnar, bæði í eiginleg-
um og óeiginlegum skilningi.
Ríkisspítalar
Leikskólinn Stubbasel, Kópavogsbraut 19
Fóstra eða starfsmaður óskast í hlutastarf sem fyrst
(vinnutími 13.30 til 18.00). Ekki er um sumarstarf
að ræða. Upplýsingar gefur Katrín Einarsdóttir for-
stöðumaður í síma 44024.
Davíð
þorir
ekki
en þorir Friðrik?
Jón Baldvin
Hannibalsson
skorar á
Friðrik Sophusson
að mæta sér á
opnum fundi í
Átthagasal Hótel Sögu
þriðjudagskvöldið 16. apríl kl. 20.30.
Umræðuefni:
★ Landbúnaðarmál
★ Neytendamál
★ Ríkisfjármál
★ Skattamál
ALÞ ÝÐUFLOKKURINN
63