Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1991, Side 48

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1991, Side 48
. mMdIqur 64 Stjómmál Hverju spáir þú um úrslit kosninganna í Norður- landskjördæmi vestra (spurt á Blönduósi og Hvammstanga): Kristófer Kristjánsson bóndi: „Þetta verður í stórum dráttum óbreytt og engin breyting á milli ílokka." Benedikt Ólafsson bifreiðastjóri: „Ég hef ekki hugmynd um það, verður þetta ekki svipað og síöast?" Jónas Sigurgeirsson rafvirki: „Ég held að Sjálfstæðisflokkurinn geti bætt við sig manni á kostnað Al- þýðuflokksins.“ Reynir Hallgrímsson bóndi: „Ætli þetta verði ekki óbreytt nema að kratinn falli fyrir öðrum manni íhaldsins." Arnar Reynisson, atvinnulaus: „Þetta fer illa eins og venjulega, nefnilega eins og síöast." Gísli Jónsson veitingamaður: Sjálf- stæðisflokkur og Framsókn fá tvo og Alþýðubandalagið jöfnunarsætið." DV á kosningafundi í Norðurlandskjördæmi vestra Tekst Vilhjálmi Egils að fella Jón Sæmund? Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Kosningabaráttan í Norðurlands- kjördæmi vestra stendur þessa dag- ana að flestra mati um það hvort Sjálfstæðisflokkurinn nær að bæta við sig manni á kostnað Alþýðu- flokksins og ef svo færi yrði Vil- hjálmur Egilsson hagfræðingur al- þingismaður að loknum kosningum í stað Jóns Sæmundar Sigurjónsson- ar. Hinir þingmenn kjördæmisins virðast sitja í öruggum sætum ef marka má bæði skoðanakannanir og það sem fólk í kjördæminu tjáir sig um þetta mál. Kjósendur á Norðurlandi vestra geta valið um átta framboðslista að þessu sinni, Alþýðuflokk, Alþýðu- bandalag, Framsóknarflokk, Sjálf- stæðisflokk, Þjóðarflokk/Flokk mannsins, Heimastjórnarsamtökin, Kvennalista og Fijálslynda. Fulltrú- ar þessara framboða hafa verið á þeytingi í kjördæminu að undan- fómu og á fimmtudag leit DV inn á sameiginlegum framboðsfundi þeirra á Hvammstanga. 24 ræður! Það verður aö segjast eins og er að ekki eru þeir beint frumlegir í fund- artilhögun á Noröurlandi vestra. Á fundinum á Hvammstanga, sem haldinn var í félagsheimilinu, sátu frambjóðendur þétt á sviði og þeim sem mættu til að hlusta á þá var boðið upp á hvorki meira né minna en 24 ræður þeirra í einni bunu. All- ir þeir sem DV ræddi viö á fundinum, bæði hinir almennu kjósendur og frambjóðendur, voru mjög óánægðir með þetta fyrirkomulag en enginn virtist hafa nein úrræði til úrbóta. Þaö er öllu verra að sumir fram- bjóðendanna, sem komu með ræður sínar skrifaðar, virtust varla vera læsir og voru í hinum mestu vand- ræðum með að „stauta" sig fram úr textanum. Þetta var ákaflega vand- ræðalegt og á stundum engu hkara en einhver annar hefði skrifað text- ann fyrir þá og þeir ekki einu sinni haft fyrir því að lesa hann yflr áður en farið var í pontu. Fundurinn var nokkuð vel sóttur og þar voru sennilega á þriðja hundr- að manns þegar flest var. Fólkið var þó ekki nærri því allt í salnum held- ur á vappi á göngum og í hliðarsal. Virtist nokkuö ljóst að margir voru ekki komnir eingöngu í þeim tilgangi að hlýða á mál frambjóðendanna, heldur og ekki síður í þeim tilgangi að hitta fólk og ræða málin. Atvinnumálin í brennidepli Það fer ekki á mflli mála að það eru atvinnumálin sem helst brenna á kjósendum á Norðurlandi vestra og verst er ástand þeirra á Siglufiröi. Þá mun það vera staðreynd að kjör- dæmið er „láglaunasvæði", meðal- laun þar allnokkru lægri en víðast annars staðar og því þungt í mörg- um. Samgöngumnálin hefur einnig borið á góma og þá aðallega veginn úr Fljótum til Siglufjarðar sem hefur orðið útundan í kjördæminu sem er að öðru leyti allvel sett hvaö varðar samgöngur á landi. Og ekki má gleyma hafnarmálun- um á Blönduósi. Um þau er tekist á og eru það aðallega nágrannamir á Skagaströnd sem deila við Blönduós- inga um þá framkvæmd sem þeir telja alls ekki nauðsynlega og ótíma- bæra. Vigdísi að kenna! Elín R. Líndal hreppstjóri, sem skipar 3. sætiö á hsta Framsóknar- flokksins, mætti fyrst í ræðustól og sagði m.a.: „Þrátt fyrir að sumum sé þaö sérstaklega gefið að neita stað- reyndum þá verður það ekki hrakið að árangur er til staðar og hann verulegur. Atvinnuvegir þjóðarinn- ar voru leiddir af blindgötu íhaldsins og með markvissum aðgeröum var stöðugleiki skapaður í efnahagsmál- um þjóðarinnar. Þar með var komið það umhverfi sem ger.ði þjóðarsátt- ina mögulega." „Vilhjálmur nokkur Egilsson setti fram nýja kenningu hér á Hvamms- tanga um það hvers vegna sjálfstæð- ismenn hrökkluðust úr ríkisstjórn á haustdögum 1988. Það var forsetan- um okkar að kenna, henni Vigdísi. Auðvitað þurfum við hagfræðinga til að finna svona nokkuð út.“ Elín ræddi einnig landbúnaðarmál og sjávarútvegsmál og kom m.a. inn á það sem hún kallaði stefnuleysi Sjálfstæðisflokksins í sjávarútvegs- málunum. Hún sagöi að flokknum hefði ekki tekist aö berja saman fisk- veiðistefnu. Hún sagði að Hjálmar Jónsson, Sjálfstæðisflokki, hefði tek- ið það sérstaklega fram á fundi á Sauðárkróki aö sjálfstæðismenn Norðurland vestra I Kosningar ’91 Gylfi Kristjánsson skömmuðust sín ekki fyrir stefnu sína. „Mennirnir kunna bara ekki aö skammast sín, það er málið," sagði Elín. Hann veitfátt um sjávarútvegsmál Hjálmar Jónsson, 3. maður á hsta Sjálfstæðisflokksins, var næstur í ræðustól og sagði í upphafi að Sjálf- stæðisflokkurinn gengi til kosning- anna með skýra stefnuskrá og væri stoltur af. „Við sjálfstæðismenn eru bjartsýnir á að okkur verði gefinn kostur á að sýna í verki að það er hægt að gera betur, miklu betur en núverandi ríkisstjórn hefur gert.“ Hann sagði að kjördæmið væri lág- launasvæði og þar hefði orðið fólks- fækkun undanfarin ár. Það væri því ekki hægt að segja að vel hefði verið stjórnað. „Ef hægt er að vera ánægð- ur með það að fjórir af fimm þing- mönnum kjördæmisins hafi átt aðild að fráfarandi ríkisstjórn er illa kom- ið fyrir þessu kjördæmi.“ „Það þarf ekkert aö kenna mér varðandi sjávarútveg. Ég hef fylgst með og veriö í tengslum allbærilega til þessa, skroppið túr og túr á togara til að gleyma ekki handtökunum meðan Hörður (Ingimarsson, efsti maður á H-hsta) hefur verið að selja Skagfiröingum danskar mublur. Það er nú öh heimastjórnin. Hann veit fátt um sjávarútvegsmál, og eins og fleiri, skilur ekki að fara þarf með gát í ahar breytingar á sjávarútvegs- stefnunni." Hjálmar sagði að sumir töluðu um og þökkuðu sér þjóðarsáttina. „í sama mund ala þeir þó á sundrungu, etja saman stétt gegn stétt, ala á öf- und og tortryggni mhli einstakhnga, byggöa og þjóða. Við vhjum af styrk og festu skapa jafnvægi og stöðug- leika öllum landsins börnum til blessunar. Ég vil svo, góöu vinir, óska ykkur alls hins besta og vonast th þess að th minna kasta komi við stjóm þessara mála og yfirleitt hags- munamála í kjördæminu, ég er tilbú- inn aö leggja mig fram.“ Hlupu frá vandanum Jón Sæmundur Siguijónsson, Al- þýðuflokki, gerði að umræðuefni við- skhnað ríkisstjómar Þorsteins Páls- sonar sem fór frá 1988 og sagöi m.a.: „Sú stjórn var vart tekin við þegar hver efnahagsaðgerðin rak aðra. Ástandið var svo slæmt að það var alveg ótrúlegt að fjögur árin á undan hefðu verið óvenjulegt góðæri. Vaxt- arverkirnir voru slíkir, ofíjárfesting- in slík að þegar harðnaði á dalnum urðu miklir brestir og menn voru ekki viðbúnir því hvernig taka ætti við. Þessi nýja stjóm var varla búin að vera nema í eitt ár þegar hún sprakk á vandanum. Það voru sjálf- stæðismenn sem sprungu á limminu, þeir hlupu frá vandanum, bjuggu sér th gerviástæður th að hlaupast á brott. Þeirra ráð vom stórfelld geng- isfelhng sem hefði einhent launafólki út í kjarabaráttu sem hefði drifið verðbólguna upp eins og var hér á árum áður og við þekkjum allt of vel.“ Jón Sæmundur gerði síðan að umtalsefni þróunina síðan Alþýðu- flokkurinn kom inn í ríkisstjórn árið 1988. „Það hefur verið haldið svo vel á málum að verðbólgan er komin niöur á stig sem er jafnvel lægra en í helstu viðskiptalöndum okkar. Hún mælist í dag fjögur komma eitthvaö prósent. Þetta eru tölur sem við höf- um ekki séð í 25 ár í íslensku efna- hagslífi. Og það var tekið til höndum. Elín R. Líndal, Framsóknarflokki. Jón Sæmundur Sigurjónsson, Al- þýðuflokki. Níels ívarsson, Heimastjórnarsam- tökunum. Þórir Hilmarsson, Frjálslyndum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.