Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1991, Síða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1991, Síða 50
m'áMMöUR rS. APRÍL i’4l Afmæli Marvin Kj arval Marvin Guöbjöm Þorsteinsson Kjarval, rafvirki og fyrrv. b., til heimilis að Heimabæ II, Arnardal, Ísaíiröi, verður sjötugur á morgun. Starfsferill Marvin fæddist á Nauteyri í Naut- eyrarhreppi og var þar og að Fossi til fimm ára aldurs en síðan á Naust- um í Skutulsfirði hjá móður sinni og kjörföður. Hann stundað almenn sveitastörf og verkamannavinnu fram undir tvítugt en hóf þá nám í rafvirkjun hjá Jóni Albertssyni á ísafirði auk þess sem hann stundaði þar nám við iðnskólann í fjóra vet- ur. Marvin lauk rafvirkjanámi 1946 og stundaði rafvirkjastörf á ísafirði. Hann flutti að Kjarvalsstöðum árið 1950 og stundaði þar búskap í átta ár eða þar til bærinn varð víkja fyrir ísafiarðarflugvelli en flutti þá að Heimabæ í Arnardal þar sem hann hefur átt heima síðan. Marvin stundaöi ætíð einhver rafvirkjastörf með búskapnum. Sjálfur hætti hann búskap 1977 er sonur hans tók við búinu en Marvin hefur unniö hjá Orkubúi Vestfiarða síðan. Fjölskylda Kona Marvins er Ásthildur Jó- hannsdóttir frá Skjaldfönn í Naut- eyrarhreppi, f. 13.6.1923, húsfreyja en hún er dóttir Jóhanns M. Ás- geirssonar, b. á Skjaldfönn, og konu hans Jónu Sigríðar Jónsdóttur, ljós- móður í Nauteyrarhreppi. Marvin og Ásthildur eiga fimm böm. Þau eru Jóna Sigríður, f. 16.3. 1946, húsmóðir á Patreksfirði, gift Kristjáni Helgasyni prentara og á hún fiögur börn; Unnsteinn, f. 17.8. 1947, múrarameistari í Reykjavík, kvæntur Vilborgu Birgisdóttur sjúkraliða og eiga þau þrjú börn; Þorsteinn Ingi, f. 29.3.1950, húsa- smiður í Reykjavík; Jóhann Björg- vin, f. 3.5.1955, b. í Árnardal, kvænt- ur Þórdísi Sumarliðadóttur sjúkra- liða og eiga þau tvö böm; Gunnvör Rósa, f. 11.1.1964, húsmóðir í Arn- ardal, gift Guðjóni Jóhannesi Jóns- syni b. og eiga þau eina dóttur. Marvin á tvö hálfsystkin sam- feðra. Kjörfaðir Marvins var Þorsteinn Kjarval, f. 4.3.1878, b. á Naustum og Kjarvalsstöðum. Foreldrar Marvins voru Steinn Leósson, f. 21.1.1898, yfirbókari og aðstoðarbæjarstjóri á ísafirði, og Ingibjörg Guömundsdóttir Kjarval, f. 24.3.1893, d. 12.5.1988, húsfreyja. Ætt Steinn var sonur Leós, söðlasmiðs og kaupmanns á ísafirði, bróður Stefáns á Kleifum, Höllu, skálds á Laugabóli, og Steinólfs, skólastjóra og útgerðarmanns í Grímsey, afa Sigurðar Geirdal, bæjarstjóra í Kópavogi, og Sögu Jónsdóttur leik- konu. Leó var sonur Eyjólfs, b. á Kleifum í Gilsfirði, Bjamasonar, prests og læknis í Garpsdal og Staf- holti, Eggertssonar, prests í Staf- holti, Bjarnasonar, landlæknis Páls- sonar. Móðir Eggerts var Rannveig Skúladóttir, landfógeta Magnússon- ar. Móðir Leós var Jóhanna, systir Halldóru, ömmu Haralds, fööur Cecils fríkirkjuprests. Jóhanna var dóttir Halldórs, prests í Trölla- tungu, Jónssonar, b. á Kleifum, Þor- leifssonar, ogHalldóru, systur Sig- ríðar, ömmu Finns, afa Marsellíus- ar Bernharðssonar skipasmíða- meistara. Halldóra var dóttir Mála- Ólafs, í Saurbæjarþingum, Gísla- sonar. Móðir Mála-Ólafs var Anna Lárusdóttir Gottrup, lögmanns á Þingeyram. Móðir Steins var Kristrún Benediktsdóttir frá Hyrn- ingsstöðum í Reykhólasveit. Ingibjörg, móðir afmælisbarnsins, var dóttir Guðmundar, formanns í Þernuvík í Ögurhreppi, Sveinssonar Sigurðssonar. Móðir Ingibjargar var Björg Jónsdóttir, á Hornstööum Marvin Guðbjörn Þorsteinsson Kjarval. í Laxárdal, Ólafssonar, b. á Þor- bergsstöðum, Guðmundssonar. Móðir Jóns var Kristín Hallgríms- dóttir. Móðir Bjargar var Krist- björg, systir Þorvarðar, hreppstjóra í Leikskálum, föður Sigurðar Þ. Skjaldberg, kaupmanns í Reykjavík, og Kristjóns, föður Hákons Heimis lögfræðings. Kristbjörg var dóttir Bergþórs, b. í Leikskálum, Þorvarð- arsonar, b. í Leikskálum, Bergþórs- sonar, b. í Leikskálum, Þovarðar- sonar. Halldór Einarsson Halldór Einarsson, sjómaður og nú starfsmaður við netagerð, Hellu- braut 1, Grindavík, er fertugur í dag. Starfsferill Halldór fæddist í Grindavík og ólst þar upp í foreldrahúsum. Á ungl- ingsárunum vann hann við fisk- vinnslu og fór síðan til sjós sautján ára að aldri. Hann hefur lengst af stundað sjómennsku síðan á bátum frá Grindavík, verið oftast háseti, eneinnigkokkur. Halldór hefur nú starfað í landi við netagerð sl. fiögur ár. Fjölskylda Halldórkvæntist 11.3.1984 Sigur- laugu Sigurðardóttur, f. 27.5.1962, húsmóður, en hún er dóttir Sigurð- ar Gunnarssonar, b. á Bjarnastöð- um í Grímsnesi, og Sólveigar Árna- dóttur, húsmóður í Grindavík. Halldór og Sigurlaug eiga tvö börn. Þau era Sólveig, f. 29.12.1983, og Sigurður, f. 3.12.1986. Halldór á þrjú systkini. Þau eru Dagbjartur Einarsson, f. 26.6.1936, útgerðarmaður í Grindavík, kvænt- ur Birnu Óladóttur og eiga þau fimm börn; Kolbrún Einarsdóttir, f. 3.10.1943, húsmóðir í Grindavík og á hún tvö börn; Guðjón Einarsson, f. 11.4.1947, skipstjóri í Grindavík, kvæntur Elínborgu Ásu Ingvadótt- ur og eiga þau fiögur böm. Foreldrar Halldórs voru Einar Dagbjartsson, f. 24.6.1917, d. 21.2. 1981, sjómaður í Grindavík, og kona hans, Laufey Guðjónsdóttir, f. 12.4. 1912, d. 26.7.1982, húsmóðir. Ætt Systir Einars er Vilborg Júlía, móðir Erlu, konu Kristjáns Kristj- ánssonar hljómlistarmanns, og móður Péturs Kristjánssonar söngvara en systir Erlu er Svala, kona Steingríms Steingrímssonar píanóleikara. Einar var sonur Dag- bjarts, útgerðarmanns í Grindavík, bróður Einars í Garðhúsum, afa Ólafs Gauks hljómlistamanns. Dag- bjartur var einnig bróðir Jóhönnu, langömmu Ásgeirs Hannesar Ei- ríkssonar alþingismanns. Dagbjart- ur var sonur Einars, útvegsb. hreppstjóra og dbrm. í Garðhúsum í Grindavík, bróður Þorláks, langafa Steingríms Hermannssonar forsæt- isráðherra og þeirra bræðra, Berg- steins brunamálastjóra og Sigurðar, bæjarfógeta á Akranesi, Gizurar- sona. Annar bróðir Einars var Sæ- mundur, faðir Bjarna fiskifræðings, afa Bjarna, forstjóra Byggðastofn- unnar og Guðmundar, forstöðu- manns Skipaútgerðar ríkisins, Ein- arssona. Sæmundur var einnig faðir Margrétar, ömmu Ellerts Eiríksson- ar, bæjarstjóra í Garði, og Guðlaugs Þorvaldssonar ríkissáttasemjara. Einar kaupmaður var sonur Jóns, drbm. og útvegsb. á Húsatóftum í Grindavík, ættföður Húsatóftaætt- arinnar, Sæmundssonar. Móðir Einars var Margrét Þorláksdóttir, b. og bókbindara á Húsatóftum, Björnssonar og konu hans, Kristr- únar Einarsdóttur. Móðir Dagbjarts var Guðrún Sigurðardóttir, b. í Götu í Selvogi og síðast í Krísuvík, Gísla- sonar, og konu hans, Sigríðar Jóns- dóttur. Móðir Einars sjóinanns var Valgerður, systir Árna, fyrrv. for- manns í Grindavík sem nú er á hundraðasta aldursári. Valgerður var dóttir Guðmundar, sjómanns á Klöpp í Þórkötlustaðahverfi, Jóns- sonar og konu hans, Margrétar Árnadóttur. Systir Laufeyjar er Svava, kona Oddgeirs Kristjánssonar tónskálds. Laufey var dóttir Guðjóns Júlíusar, sjómanns og húsamálara í Vest- mannaeyjum, Guðjónssonar, og konu hans, Guðbjargar Jónsdóttur. Sigurður Haraldsson, Núpskötlu 1, Kópaskeri. Soffía Georgsdóttir, Öldugötu 42, Hafnarfirði. Guðmundur H. Rögnvaidsson, Brekkuhvammi 7, Hafnarfirði. Sigurður Sveinsson, Álíheimum48, Reykjavík. Ari Vigfússon, Sandgerði, Dalvík. Guðný Sæmundsdóttir, Rauðá 1, Ljósavatnshreppi. 60ára Július Gunnar Geirmundsson, Ásbraut 7, Kópavogi. Páll Gíslason, Ferjubakka 8, Reykjavik. Jónína Þórisdóttir, Múlavegi 1, Seyðisfirði. Guðný Hrafnhildur Valgeirsdótt- ir, Garðabyggð 18, Blönduósi. ' Guðmundur Guðmundsson, Borgarvegi 36, Njarövík. Helga Guðrún Jakobsdóttir, Hegranesi 35, Garðabæ. 40 ára Gísli Guðbjörnsson, Austurbergi 10, Reykj avík. DÖMUBINDIN KVENLEGU Libresse t .? Libresse Menriing_________ Píanótónleikar Jónas Sen píanóleikari hélt einleikstónleika á vegum Epta, Evrópusambands píanókennara, í Kirkjuhvoli Garðabæ á laugardag. Lék hann verk eftir Johannes Brahms, Robert Schumann, Leos Janacek og Alexand- er Skijabin. Flytjendur tónlistar þurfa eins og kunnugt er að leggja á sig mikla líkamlega þjálfun til aö ná valdi á list sinni og trúlega verja flestir mun meiri tíma í þá hlið mála en listrænan og andlegan undirbúnig. Þegar þeir félagar Pavarotti, Carreras og Domingo sungu á fótboltahátíðinni í fyrra virtist aðalatriðið vera hver söng hæst en aukaatriöi hvernig það var gert eða hvað var sungið. Svipuð viðhorf koma stundum upp hjá hljóðfæraleikurum þegar þeir taka íþróttamennsku tækninnar fram yfir listina. Þessar hugsanir skutu upp kollinum á tónleikum Jónasar því að drjúgur hluti verkanna virtist hafa fyrst og fremst líkamlegt gildi. Sónata Skijabins nr. 7 og Kreisleriana Schumanns virðast hafa það helst aö augnamiði að troða sem flest- um nótum aö á sem skemmstum tíma. Sex fantasíur Brahms era sumar einnig heldur yfirhlaðnar þótt tölu- vert sé þar af góöu efni innan um. Jónas sýndi mikla fimi og úthald í að glíma við skessur þessar og er greinilega ekki fisjað saman á tæknivellinum. Fróðir menn um myrkviöi píanótækninnar tjáðu gagnrýn- Tórúist Finnur Torfi Stefánsson andanum aö Kreisleriana sé talinn með illvígari verk- um píanóbókmennanna og er þá mikið sagt. Jónas fór í gegnum þetta allt og sumt með glæsibrag. Sem betur fer voru ekki eingöngu fmgurbrjótar á efnisskránni. Grónar götur eftir Janacek og Desir eft- ir Skrjabin eru afslappaöri tónsmíðar og báðar mjög fallegar hvor á sinn hátt. Hér sýndi píanóleikarinn á sér aörar hliðar og var gott að vita til þess að hann átti þær til. SMÁAUGLÝSINGASiMINN FYRIR LANDSBYGGÐINA: 99-6272 -talandi dæmi um þjónustu! IUMFERÐAR Iráð

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.