Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1991, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.1991, Qupperneq 3
MÁNUDAGUR 10. JÚNÍ 1991. 3 Fréttir Ávöxtunarkrafa húsbréfa ætti að vera nálægt hámarki - nema ríkið „sprengi“ rétt einu sinni Ávöxtunarkrafa húsbréfa (raun- vextirnir) ætti sem næst að hafa náð hámarki sínu eftir öllum sólarmerkj- um að dæma eins og rakið verður nánar. Fólk hefur skelfzt vegna gíf- urlegrar hækkunar, sem orðið hefur á ávöxtunarkröfunni. Hún hefur það sem af er árinu rokið úr 7,3% í 8,8%, stöðugt verið að hækka eins og greint er frá á meðfylgjandi grafi. Það gildir um vextina almennt, að þeir ættu að haldast fram á haustið. Þó er eitt, sem gæti sprengt upp vext- ina og þar með ávöxtunarkröfu hús- bréfanna: ef ríkið fer að nýju í lok sumars að bjóða sérkjör á spariskír- teinum sínum. Ef ríkið ætlaði til dæmis með því að keppa við húsbréf- in og hækkaði vexti sína á slíkum „sérkjörum" ,segja sérfræöingar, að húsbréfm færu bara enn hærra, ávöxtunarkrafan hækkaði. Menn óttast þetta, af því að það gerðist í fyrra. Ríkið bauð þá lífeyrissjóðum sérkjör á spariskírteinum síðla sum- ars. Það bauð þá 7,05%, sem var yfir markaðnum, og húsbréfm fylgdu þá eftir. Ríkið bauð þá of hátt, skaut yfir markið. Húsbréf talin sem lausafé Það eykur líkurnar á, að stöðugleiki verði meiri á húsbréfamarkaðinum, að Seðlabankinn hefur ákveðið að leyfa, að bankarnir telji húsbréf með sem lausafé sitt. Með því verða bank- ar miklu tilkippilegri til að eiga hús- bréf, þar sem þau bæta lausafjár- stöðu þeirra, hjálpa til við að bankar uppfylli reglur um lausfjárhlutfall, að vissu marki. Þetta stuðlar að því, að ávöxtunarkrafan á húsbréfum hækki ekki úr því sem komið er, með aukinni eftirspurn eftir húsbréfum. Verðbréfamarkaðirnir voru fyrir kosningarnar búnir að hækka vexti, en ríkið sat eftir vegna kosninganna. Nú eru allir komnir á sama ról. Sér- fræðingar segja, að vextir ættu ekki að fara hærra. Spár í seinni tíð hafa gert ráð fyrir meiri verðbólgu en áður hafði verið ætlað. Þetta stuðlaði að síðustu vaxtahækkun, sem síðan dregur úr verðbólgu, er fram líður. Lífeyrissjóöir flýttu skulda- bréfakaupum Markaðurinn fyrir húsbréfm leitar stöðugt jafnvægis, en menn telja, að það taki húsbréf 2-3 ár að festast á markaði. Nú síðustu vikur varð kippur í sölu húsbréfa eftir hækkun- arkröfunnar í 8,8%. Landsbréf seldu til dæmis 30% meira af húsbréfum í maí en hafði verið í apríl og keyptu 13% minna. Nú ætti að draga enn úr misræmi á þessum markaði. Á sumrin dregur úr fasteignasölu, og framboð húsbréfa verður því minna. Nefna má, fremur til gamans, að fó- geti fer í frí, og þá minnkar „þetta allt“ á meðan, en slíkt hefur aðeins gildi, meðan markaðurinn leitar jafnvægis. Tímaritið Vísbending tel- ur líklegt, að vextir húsbréfa séu að ná hámarki og bendir á, að margir höfðu dregið úr veröbréfakaupum vegna óvissu í vaxtamálum, áður en vextir hækkuðu nú í sumar. Eftir það má búast við, að fleiri kaupendur sýni sig á markaðnum. Lífeyrissjóðir flýttu skuldabréfakaupum af Hús- næðisstofnun síðastliðinn vetur að Sjónarhom Haukur Helgason beiðni félagsmálaráðherra. A meðan höfðu þeir minna fé til að kaupa húsbréf fyrir. Nú hafa þeir keypt meira af skuldabréfum Húsnæðis- stofnunar en þeim ber skylda til sam- kvæmt samningi og geta því keypt mun meira af húsbréfum. Heimilt að auka lánshlutfallið Fleira þarf að athuga. Heimilt er að auka lánshlutfall í húsbréfakerfinu úr 65% í 75%, og stóð til að gera það í vor en því hefur verið frestað, enda mundi sú breyting auka framboð húsbréfa og stuðla að vaxtahækkun- um. Miklu magni af húsbréfum hefur verið dælt á markaðinn í ár eða fyrir 7,4 milljarða það sem af er árinu. Þetta er einn og hálfur milljarður á mánuði eða hálfum milljarði meira að meðaltali á mánuði en gert hafði verið ráð fyrir í byrjun ársins. Mark- aðurinn hefur síðan sveigzt vegna þessa mikla framboðs. En ávöxtun- arkrafan er komin svo hátt, og affóll- in eru 22%, ef sölulaun eru talin með, að vandinn er orðinn mikill fyrir fólk í greiðsluerfiðleikum, sem á kost á að færa lán yfir í húsbréf Riftun á kaupsamningi Blikastaöa: Viss vonbngði „Það eru í sjálfu sér alltaf viss lóðir út úr Blikastöðunum undir vonbrigði þegar eitthvað sem mað- einbýlishús. Þó þú eigir jörð þá er ur hefur ætlaö aö gera lukkast ekki þai* með sagt að hægt sé að ekki, þá þykir manni kannski verra selja úr henni lóðir, það þarf sam- i augnablikinu en svo getur allt þykki skipulagsyfirvalda til þess, snúist til betri vegar. Þetta fer allt það er því ekki raunhæfur kpstur vel einhvern veginn. Blikastaðirmr i stöðunni,“ segir Brynjólfur Kjart- munu vaxa í verði með hverju ár- ansson lögfræðingur. inu sem líður því þetta er að verða „Eins og staðan er í dag er fólk eitt albesta byggingarlandið við einungis landeigendur og verður innanverðan Faxaflóa. Ég veít í það áfram og getur ekki komið sjálfu sér ekkert hvað Mosfellsbæ sinni jörð í verö þó það viiji. Það og Reykjavík hcfur farið á milli getur veriö böl að vera landeig- varðandi forkaupsrétt á Blikastöð- andi. Eins og staðan er í dag er unum,“ segir Sigsteinn Pálsson, stendur allt fast.“ ábúandi á Blikastööum. -J.Mar „Þaö verður ekki hægt að selja 10% Breytingar vaxta á árinu JL Raunvextir útlána banka (meðaltal) 8% 7% Ávöxtunarkrafa spariskírteina ríkissjóðs á Verðbréfaþingi I.Jan. 1. febr. 14febr. 26. mars 12. apríl 23. apríl 8. maí 21.maí 3. Júní Prósentuásinn er rofinn við 6% eftir samþykkt frumvarps Jóhönnu um það í vetur. Ekki er vanzalaust fyrir fólkið að taka lán með 8,8% ávöxtunarkröfu, og fróðir menn á verðbréfamörkuöunum eru farnir að spyrja, hvort sama fólkið verði ekki komið á hausinn eftir 2-3 ár þrátt fyrir húsbréfin. Margt veldur þessu eins og rakið hefur verið. Auk þess hefur ríkisstjórnin ákveðið að loka húsnæðislánakerfmu frá 1986, og framvegis verður eingöngu lánað í formi húsbréfalána. Biðlistinn í gamla kerfinu færist yfir í húsbréfa- kerfið. Grafið sýnir breytingar á helztu vöxtum það sem af er árinu. Kæra frú Hvernig væri að fá elsku eiginmanninn með sér til okkar að skoða hjónarúm? Við eigum alveg einstaklega falleg rúm núna - og stillum upp 40 mismunandi gerðum. tiÉR ERU FJÖGUR FRÁ RAUŒ FABIOLA rúm - náttborð spcgill - dýnur .880,- ANDREA rum - nattboró spegill - dynur 36.400,-1 CARMEN rúm - náttborö spegili - dynur 28.220, GÓÐDÝM = GÓÐUR SVEFTÍ Bí LDSHÖFÐA 20-112 RE YKJAVlK - SÍMI91-681199 - FAX 91-673511

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.