Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1991, Síða 5
LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1991.
5
>
)
>
)
Fundur Framsóknarfélags Reykjavíkur:
Afskiptaleysi dauðadómur
fyrir íslenskt atvinnulíf
- ríkið á að milda sveiflur, segir Steingrímur Hermannsson
Steingrímur Hermannsson sagði á fundi í gær að hann teldi illar horfur í atvinnumálum landsins. DV-mynd GVA
„Meginverkefni ríkisstjórnarinnar
er aö draga úr þeim áhrifum sem
sjávarútvegurinn hefur á íslenskt
efnahagslíf. Leita þarf leiða til að
breikka grundvöll atvinnustarfsem-
innar í landinu. Nýja ríkisstjórnin
hefur tekið þá stefnu að ríkið eigi
ekki að hafa nein afskipti. Þetta er
alger dauðadómur yfir íslensku at-
vinnulífi. Stjórnvöldum ber að hafa
afskipti af nýsköpun og draga úr
sveiflum og óvissu." Þetta sagði
Steingrímur Hermannsson, formað-
ur Framsóknarflokksins, á fundi í
gær. Bar fundurinn yflrskriftina „Er
verið að leggja íslenskt atvinnulíf í
rúst?“.
Steingrímur taldi ástandið mjög
alvarlegt í íslenskum atvinnumálum
og benti meðal annars á hækkun
vaxta og stígandi verðbólgu máli
sínu til stuðnings. Hann taldi að
miklar opinberar aðgerðir væru
nauðsynlegar til að ná verðbólgu nið-
ur og að verkalýðshreyfingar og aðr-
ir aðilar vinnumarkaðarins hlytu að
kreijast þess.
„Ríkisstjórnin á að hafa hvetjandi
áhrif en fylgjast jafnframt með hag-
ræðingu hjá íslenskum fyrirtækjum.
Til dæmis getur verið að sameining
og skuldbreyting hafi ekki verið næg
í tilfelli Álafoss. En ein ástæða fyrir
slæmri stöðu fyrirtækisins er að nýir
markaðir brugðust," sagði Stein-
grímur. Hann taldi að ef vinnsla
stöðvaðist í ullariðnaðinum hefði það
víðtæk og alvarleg áhrif í för með
sér. Hvatti hann Byggðastofnun til
aö taka á málinu.
Áform núverandi ríkisstjórnar um
að selja ríkisbankana tvo áleit hann
ekki raunhæft. „Mér finnst rétt að í
landinu sé öflugur ríkisbanki en
sameinging bankanna tveggja væri
raunhæfur möguleiki."
Fundargestum lék forvitni á að
heyra um stöðu Evrópumála.
„Framsóknarmenn eru fylgjandi
samningum um evrópskt efnahags-
svæði og tel ég einhver skipti á veiði-
heimildum réttlætanleg, til dæmis
kolmunna í stað loðnu. Ég er ósam-
mála því að aðild að slíkum samn-
ingi sé fordyri Efnahagsbandalags
Evrópu,“ sagði hann ennfremur.
-tlt
Fréttir
Síðasta freisting Krists:
Tekinútaf
dagskrá vegna
tilmælafólks
Forráðamenn Stöðvar 2 hafa
ákveðið að taka kvikmyndina,
Síðasta freisting Krists, út af dag-
skrá í kvöld. Hafa ýmsir haft
samband við Stöðina, þar á meðal
biskup íslands, séra Ólafur
Skúlason, vegna fyrirhugaðrar
sýningar. Því var ákveðið að
fresta henni um sinn. Umrædd
mynd hefur vakið miklar cjeilur
þar sem hún hefur verið sýnd.
„Við ætlum að skoða myndina
mjög gaumgæfllega áður en við
tökum frekari ákvarðanir," sagði
Jónas R. Jónsson, dagskrárstjóri
Stöðvar 2. „Við höfum fengið upp-
hringingar frá áskrifendum sem
hafa beðið okkur um að skoða
málið. Mér finnst sjálfsagt að
verða við því.
Biskup íslands, séra Ólafur
Skúlason, var meðal þeirra sem
hafði samband við Stöðina. Hann
fór ekki fram á að myndin yrði
tekin af dagskrá en kvaö það
mundu gleðja sig ef svo væri gert.
„Hluturinn er sá að þessi mynd
er inni í samningi sem við erum
með við mjög stórt fyrirtæki sem
heitir UIP. Samkvæmt honum
skuldbindum við okkur til þess
að sýna allar nýjar kvikmyndir
sem það framleiðir, aðrar en þær
sem kvikmyndaeftlitið bannar.
Við verðum því að taka málið upp
sérstaklega við umrætt fyrirtæki
ef við ætlum að komast hjá því
að sýna þessa mynd. Það mál
verðum við að skoða líka. Við
erum sumsé ekki hættir við að
sýna hana, heldur höfum við
frestað henni.“ -JSS
I
I
i
i
I
I
I
SUBARU LEGACY
Gæðíngur gæðinganna
Subaru Legacy 1,8 GL 4WD skutbíli
TIL AFGREIÐSLU STRAX.
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
sími 91-674000
Bílasýning á Betri bílasölunni,
Selfossi, laugardag kl. 14-17