Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1991, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1991, Page 11
LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1991. 11 Melba er leikin af Lindu Cropper. Melba: Tók sönginn fram yfir ástina Helen Porter Mitchell fæddist í Richmond, smáborg í nágrenni Mel- bourne í Ástralíu 19. maí 1861. Stúlk- an, sem var af af góðum ættum, hlaut góða almenna menntun og lagði með- al annars stund á hljóðfæraleik og söng. Hún vildi gjarnan læra meira í söng’en vegna andstöðu strangs fóður hennar varð ekki af því. Þess í stað giftist hún írskum liðsforingja, Charles N. F. Armstrong, og flutti með honum úr landi. Þrátt fyrir ástríðufullt hjónaband varð á endanum löngunin til frekara söngnáms yflrsterkari og Helen yf- irgaf eiginmann sinn og hóf nám í söng og raddbeitingu hjá Mathilde Marchesi í París. Undir handleiðslu hennar tók rödd hennar stórstígum framfórum og fyrstu tónleikarnir fóru fram í Brussel 1887. í kjölfarið tók Helen sér sviðsnafn- ið Melba sem er virðingarvottur við Melbourne í Ástralíu sem hún leit ávallt á sem sína heimaborg. Hún varð íljótlega heimsfræg og ferðaðist um heiminn og söng fyrir konunga og keisara auk þess að koma reglu- lega fram í frægustu óperuhúsum heimsins, Covent Garden og Metro- pohtan óperunni í New York. Henni var sýndur margvíslegur heiður á lífsleiðinni og nægir að nefna aðals- tign breska heimsveldisins og hinar heimsfrægu Melba perur en sá réttur á eftir að varðveita nafn hennar að eilífu. Melba settist í helgan stein í Ástral- íu 1926 og lést þar í febrúar 1931. Hún var frá náttúrunnar hendi gædd ótrúlega tærri og sveigjanlegri sópr- anrödd sem hún beitti af mikilli snilld þó samtíðarmenn hennar teldu hana aldrei mikla leikkonu. Sjónvarpið hefur nú sýnt fyrsta þáttinn af átta í þáttaröð frá breska sjónvarpinu um stormasamt líf þess- arar miklu listakonu. Þættirnir verða á dagskrá á mánudögum og það er Linda Cropper sém fer með titilhlutverkið. Auk .hennar koma fram í þáttunum ótal þekktir breskir leikarar bæði af sviði og úr kvik- myndum. Nægir að nefna Googie Withers, Joan Greenwood, Jean Pierre Aumont, Maria Aitken og Tom Burlinson. Það er sópransöngkonan Yvonne Kenny sem leggur til rödd söngkon- unnar en sinfóníuhljómsveit ástr- ölsku ópérunnar, óperunnar í París og óperunnar í Covent Garden sáu til skiptis um undirleik. Ævi Melbu var stormasöm og ligg- ur við að vera ótrúleg. Þessi vilja- sterka kona fórnaði flestu sem hægt er að fórna fyrir listina, það eina sem henni fannst vera einhvers virði í lífinu. Sumar orrusturnar vann hún en í öðrum mátti hún lúta í lægra haldi. Sviðsljós Britt Ekland: Finnuríyrir heimþrá Leikkonan Britt Ekland er at- vinnulaus og með heimþrá til fóður- landsins, Svíþjóðar. Hún hefur þá skoðun að þriggja ára sonur hennar, Thomas Jefferson, hafi ekki gott af að alast upp í Los Angeles. Þetta sagði leikkonan í nýlegu útvarpsvið- tali. Hins vegar er haft eftir leikkon- unni að ódýrara sé að lifa í LA held- ur en í Svíþjóð og maður þurfi ekki að vinna mjög mikið til að þéna vel. Það er ekki auðvelt fyrir Britt að flytja heim. Hún segist ekki einu sinni kunna að skrifa á ritvél. Reynd- ar er Svíþjóð í hyllingum hjá leikkon- unni því hún flutti þaðan ung að árum. Henni bauðst hlutverk í bíómynd á unglingsaldri og fljótlega kynntist hún Peters Sellers en þau gengu í hjónaband. Þau skildu og síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar í ástar- málum Britt Ekland. Hún hefur oft- sinnis verið orðuð við auðuga menn. Britt Ekland hefur leikið í allmörg- um bíómyndum en þær hafa flestar Britt Ekland. verið B-myndir. í rauninni eru það elskhugar hennar sem hafa gert hana fræga. Britt er að verða fimmtug þó hún líti vart út eldri en þrítug. Hún segist hafa eytt miklum tíma í útlit sitt. Meðal annars með trimmi. Þar að auki eru hún nánast grænmetisæta og afar sjaldan sem hún smakkar áfengi. „Ég vil deyja í Svíþjóð," segir leikkonan sem hefur allt sem hún getur óskað sér, fallegt heimili í Be- verly Hills og nítján árum yngri eig- inmann. Flug og bíll • Flug og bíll • Flug og bíll BALTIMORE 2 i bíl, Ford Escort, i 2 vikur, kr. 55.800 á mann. SÉRTILBOÐ AMSTERDAM 2 í bíl, VW Golf, 1 vika, kr. 24.600 á mann. 2 vikur, kr. 34.800 á mann. Brottför á mánudögum og þriðjudögum i júli og ágúst. Siðasti söludagur 15. júlí. LÚXEMBORG 2 í bíl, Ford Escort, 1 vika, kr. 27.300 á mann. 2 vikur, kr. 34.100 á mann. Brottför á fimmtudögum og föstudögum í júlí og ágúst. Síðasti söludagur 15. júli. Barnaafsláttur er veittur af öllu ofangreindu verði. Ef fleiri eru um bilinn LÆKKAR verðið. Sumarhús og íbúðir víðs vegar um Evrópu I tengslum við flug- og bíltilboðin getum við bókað sumarhús og íbúðir viðs vegar um Evrópu í öllum verð- og gæðaflokkum. Dæmi um vikuverð, hús/íbúð: Þýskaland: kr. 37.490 Frakkland: kr. 27.690 Sviss: kr. 34.790 Ítalía: kr. 30.630 Austurriki: kr. 43.370 TUNGUMÁLASKÓLAR við allra hæfi i Englandi, Skotlandi, Frakklandi, Þýska- landi, á ítaliu, Spáni og i USA. BENIDORM Beint flug í sólina alla fimmtudaga Næstu ferðir: 4. júli - uppselt 11. júlí - 10 sæti laus 18. júlí - 15 sæti laus 25. júlí - 12 sæti laus Seljum fáein sæti í ferðirnar 11. júlí og 18. júli, í 1, 2 eða 3 vikur, á kostakjörum. Kynntu þér verðið hjá okkur. Hafðu samband. Sjáumst! FERÐASKRIFSTOFA.i^k reykjavíkurmRI Aðalstræti 16 - sími 621-490

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.