Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1991, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1991, Qupperneq 16
16 LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1991. Skák DV Meistarar fr amtí ö arinnar —Vladimir Kramnik efnilegasti Sovétmaðurinn Vladimir Kramnik, 15 ára gamall Rússi, sem sigraði í keppni ungra meistara i Úkraínu tyrir skömmu, þykir sérlega efnilegur skákmaður. Það er lítil hætta á því að veldi K-anna í skákheiminum líði undir lok ef Vladimir Kramnik uppfyllir þær vonir sem við hann eru bundn- ar. Þessi 15 ára gamli Rússi var yngsti þátttakandinn á Sovétþingi ungra meistara á dögunum. Hann lét ungan aldur þó lítið á sig fá, varð efstur við þriðja mann og var dæmdur sigur á mótinu á stigum. Árangur háns er eftirtektarverður og vissulega glæsilegur. Ekkert met var þó slegið: Garrí Kasparov var aðeins 13 ára er hann varö unglingameistari Sovétríkjanna 1977 - tveimur vinnningum fyrir ofan næsta mann. Mótiö, þar sem Kramnik komst á spjöld sögunnar, var haldið í Kher- son í Úkraínu og voru 14 keppend- ur. Nokkrir þeirra eru þegar orðnir kunnir utan síns heimalands af taflmennsku í opnum mótum hér og þar en aðrir eru lítt þekktir og komu jafnvel mjög á óvart. Svo var um Ibrahimov sem kom nálægt því að verða einn efstur en tapaði tveimur skákum undir lokin. Við skulum líta á lokastöðuna þótt nöfnin komi flestum eflaust ókunnuglega fyrir sjónir. Hver veit nema rétt sé að leggja þau á minnið? 1.-3. Kramnik, Ibrahimov og Kharlov 8 v. 4. Sorokin 7,5 v. 5. Sakajev 7 v. 6. -9. Minasijan, Tivjakov, Geo. Timoshenko og Kruppa 6,5 v. 10.—11. Alexandrov og Serper 6 v. 12. -13. Komarov og Brodsky 5 v. 14. Galdunc 4,5 v. Því er ekki að leyna að fróðlegt er að skoða skákir frá þessu móti en þá verður íljótt ljóst hve mikil áhrif heimsmeistarinn hefur haft á unga skákmenn. Nú er ekki lengur í tísku að sulla taflmönnunum fram og til baka og reyna að nýta sér smæstu glufur til sigurs. Nú tefla allir eins og Kasparov: Kunna „teoríuna" upp á tíu fingur og reyna að knýja mótherjann til upp- gjafar með kröftugum sóknarlot- um. Vladimir Kramnik virðist hafa tileinkað sér þessa aðferð ágætlega. Skákstíll hans er dæmigerður fyrir ungu sovésku meistarana og kannski unga skákmenn almennt. Skák hans við Brodsky úr 7. um- ferð var sérlega skemmtilega tefld. Hvítt: Maxim Brodsky Svart: Vladimir Kramnik Sikileyjarvörn. 1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rffi 5. Rc3 e5 Lasker-afbrigðið, sem Sovétmenn kenna gjarnan við stórmeistarann Sveshnikov eða heimaborg hans, Seljabínsk. Sveshnikov vakti af- brigðið úr dái fyrir um 15 árum og nú er það aftur að verða vinsælt. 6. Rdb5 d6 7. Bg5 a6 8. Ra3 b5 9. Bxf6 gxfB 10. Rd5 f5 11. Bd3 Be6 12. Dh5 Hg8!? í stað 12. - Bg713.0-0 f414. c4 sem gefur hvítum vonir um smátt en öruggt frumkvæði, reynir svartur tólf ára gamlan tvíeggjaðan leik. 13. 0-0-0? í nýlegri bók um þetta afbrigði skoðar Sveshnikov 13. f4,13. c3, eða 13. g3! en bætir við: „Athygli verð- skuldar 13. 0-0-0 (13. - Hxg2 14. f4!).“ Hvítur hefur þekkingu sína bersýnilega úr bókinni en hefur ekki skyggnst nægilega djúpt í stöðuna. 13. - Hxg2 14. f4 Rd4! 15. Re3 Dálítið flóttalegur leikur en einn keppenda mótsins, Tivjakov, bend- ir á í skýringum við skákina, að eftir 15. Hhgl fxe4! 16. Hxg2 exd3 hefur svartur meira en nægileg færi fyrir skiptamun og hann á einnig góða stöðu eftir 15. Dh3 Hg8 16. Dxh7 Hg6. Sömuleiðis, ef 15. c3 Bxd5 16. exd5 b4! 17. Rc4 bxc3 18. bxc3 Hc8 19. cxd4 Da5 á svartur vinningsstööu. 15. - Hf2 16. exf5 Bxa2 17. fxe5 dxe5 18. Rxb5 I f éi 1 1 5 6 ► ';+'[> <3 M A 1 A s ABCDEFGH Hvítur viröist á grænni grein eft- ir riddarafórnina. Ef nú 18. - axb5 19. Bxb5+ Ke7 20. Dh4+ og síðan fellur hrókurinn á f2. En svartur á kynngimagnaðan millileik... 18. - Bh6! Fallegur leikur; svarið við 19. Dxh6 yrði 19. - Hxc2 + ! og áfram 20. Rxc2 Rb3 mát, eða 20. Bxc2 Re2 mát! 19. Hhel axb5! 20. Bxb5+ Ke7 21. Dh4+ f6 22. Dxf2 Bf7! Þennan leik varð svartur að sjá fyrir er hann tók riddarann í 19. leik. Svörtu mennimir eru afar virkir og hvítur sleppur varla lif- andi. Nú er 23. Kbl einfaldlega svarað meö 23. - Da5 með máthót- unum. 23. Bd3 Db6 Hótar 24. - Hal+ 25. Kd2 Db4+ 26. c3 Dxb2+ 27. Bc2 Dxc2 mát - riddarinn er leppur. 24. Be4 Ha2 25. c4 Bxc4 26. Kbl Da5 27. Rd5+ Bxd5 28. Dxd4 Hvítur reynir að slá ryki í augu Skák Jón L. Árnason mótherjans en svartur lætur ekki glepjast af réttri leið. 28. - Hal+ 29. Kc2 Hxdl! 30. Dxdl Da4+ 31. Kc3 Og hvítur gaf um leið, því að eftir 31. - Dc4 blasir mátið við. Skákin hér að framan er gott dæmi um það aö yfirborðskennd „teóríukunnátta“ getur komið skákmanninum í koll. Hvítur fylgdi blindandi uppástungu í byrj- unarbók án þess að reyna sjálfur að skilja stöðuna. Hér er önnur skák frá mótinu þar sem mistökin eru af svipuðum toga. Svartur reynir að endurbæta þekkta skák stórmeistaranna Kha- lifmans og Nikolic frá undanrásum heimsbikarmótanna í Moskvu í fyrra. „Endurbótin" er hins vegar ekki gæfulegri en svo að tveimur leikjum síðar situr hann uppi meö tapað tafl. Júrí Kruppa Svart: Dimitry Komarov Frönsk vörn 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 Re7 5. a3 Bxc3 6. bxc3 c5 7. Dg4 0-0 8. Bd3 Rbc6 9. Dh5 Rf5 10. Rf3 ffi 11. g4 c4 12. gxf5! cxd3 13. Hgl Re7 Þetta er nýjung svarts. Skák Kha- lifmans og Nikolic tefldist 13. - exf5 14. Bh6 Hf7 15. Kd2! Be6 16. Bxg7! Hxg7 17. Hxg7 + Kxg7 18. Hgl + og svartur gafst upp! 14. exf6 HxfB I i.* 7 á Á 41 Í Á 6 1 1 5 Á A w 4 A 3 A A Á £> 2 A A A 1 2 Jt & s ABCDEFGH 15. Hxg7 +! Kxg7 16. Dg5+ Rg6 Ekki 16. - Kf717, Re5 + og svartur verður að sleppa valdi á hróknum. 17. fxg6 hxg6 Hvítur hótaöi 18. Dh6+ með al- varlegum afleiðingum. 18. Bf4! Bd7 19. Be5 dxc2 20. h4! Laglega leikið! Nú er svartur varnarlaus gegn því að hvítur komi riddaranum í leikinn um h2-reit- inn. 20. - Be8 21. Rh2 Kf7 22. Dh6 Ke7 23. Bxf6+ Kxf6 24. Df8+ Bf7 25. Rg4+ Kf5 26. Dxf7+ Kxg4 27. Ke2! Ogsvarturgafstupp. -JLÁ Ungir sovéskir skákmenn taka bersýnilega taflmennsku heimsmeistar- ans Kasparovs sér til fyrirmyndar. DV-mynd EJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.