Dagblaðið Vísir - DV - 29.06.1991, Page 20
LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1991.
Baráttan
umMGM
Kvikmyndir
kvikmpda
verið
Þeir sem sóttu kvikmyndasýning-
ar í Gamla bíói meðan það var og'
hét kvikmyndahús, muna ábyggilega
eftir ljóninu sem birtist í upphafi
flestra þeirra mynda sem bíóið sýndi.
Eftir að hafa hrist hausinn og gefið
frá sér sígilt ljónsöskur, birtust síðan
staflrnir MGM. Þetta var nefniiega
kynningarmerki bandaríska kvik-
myndaversins MGM, sem Gamla bió
hafði þá umboð fyrir.
Hin rótgrónu bandarísku kvik-
myndaver hafa alltaf gegnt stóru
hlutverki í Hollywood og raunar um
allan heim. Þau hafa á að skipa góðu
dreifingar- og auglýsingakerfi ásamt
því að geta fjármagnað fjölda mynda
og tekið fjárhagslega skelli upp að
ákveðnu marki enda eru þau mörg í
eigu stórfyrirtækja. Að vísu hafa
nokkur kvikmyndaver lagt upp laup-
ana eins og United Artists en á móti
hafa ný fæðst eins og Orion Pictures,
Umsjón
Baldur Hjaltason
sem reist var á rústum þess fyrr-
nefnda.
Ríkiíríkinu
Kvikmyndaver eins og MGM, Para-
mount, Walt Disney, Columbia,
Wamer Brothers og Urdversal eru
næstum orðin aö sjálfstæðum stofn-
unum og eru talin af mörgum gegna
lykilhlutverki í skemmtana- og af-
þreyingariðnaði Bandaríkjanna. Því
þótti Bandaríkjamönnum það næst-
um glæpur þegar erlendir aðilar fóru
að reyna að kaupa sér völd og aðgang
að þessum atvinnuvegi gegnum
kvikmyndaverin. Nýlega rann
Wamer Brothers kvikmyndaverið
saman við Time-Life fyrirtækið en
það sem fór fyrir brjóstið á flestum
voru hins vegar kaup japönsku Sony
samsteypunnar á Columbia kvik-
myndaverinu. Japanska fyrirtækið
sá sér hag í því að eignast kvik-
myndaverið tú að fá aðgang að kvik-
myndum inn í hinn sístækkandi af-
■þreyingartækjamarkað.
ítalskur furðufugl
En það eru fleiri sem hafa verið að
beijast við að kaupa kvikmyndaver.
Einn þeirra er ítalski ævintýramað-
urinn og fjármálaspekúlantinn
Giancarlo Parretti sem nýlega eign-
aðist MGM kvikmyndaverið eftir
rúmlega árs baráttu við að fjár-
magna kaupin. En sigurinn var
skammvinnur. Hann varð að láta af
stjómartaumnum að kröfu stærsta
lánadrottinsins sem er að reyna að
bjarga fyrirtækinu frá gjaldþroti.
Sagan að baki falli MGM er að mörgu
leyti forvitnileg og lýsir bæði bjart-
sýni, græðgi og síðast en ekki síst
dómgreindarleysi og hve lánið getur
verið fallvalt í henni Hollywood.
Upphafið aö MGM má rekja til fyr-
irtækisins Loews, sem rak kvik-
myndahús um og upp úr aldamótun-
THELMA & LOUISE er Ijósið í myrkrinu fyrir MGM.
um. A öðrum áratug aldarinnar
keypti fyrirtækiö Metro pictures,
sem var kvikmyndaframleiðandi og
hafði gert hinar vinsælu myndir
THE FOUR HORSEMAN - OF THE
APOCALYPSE og PRISONER OF
ZENDA. Um líkt leyti gekk Samuel
Goldwyn til liðs við Metro með fyrir-
tæki sitt og ári síðar bættist við Lou-
verðmætin þar lágu í kvikmynda-
safni þess. Kerkorian hefur selt ýmsa
hluta MGM-UA veldisins en verið
samtímis að leita að kaupanda að
kvikmyndadeildinni. Það hefur því
lítið farið fyrir MGM og framleiðslu
kvikmynda verið haldið í lágmarki
þótt MGM hafi dreift fjölda mynda
sem aðrir framleiddu. Því má segja
Kvikmyndajöfurinn Giancarlo Parretti.
is B. Mayer Pictures. Þar með var
risið upp merkilegasta- kvikmynda-
ver sögunnar en á gullaldarárum
þess voru framleiddar þar myndir
eins og BEN HUR, og THE THIN
MAN. Auk þess hafði MGM á sínum
snærum hóp af stjörnum eins og
Garbo, Gable, William Powell og
Laurel and Hardy. Það var sagt að
það væru fleiri stjörnur hjá MGM en
á himnum.
Fallið
En allt hefur sinn endi. Segja má
að MGM hafi verið í lausu lofti síðan
fjármálaspekúlantinn Kirk Kerkor-
ian ákvað að kaupa kvikmyndaverið
fyrir rúmum tuttugu árum. Hann
eignaðist einnig United Artists en
laus. Enginn vissi hvaöan Parretti
ætlaði að fá þá upp undir 80 milljarða
sem var kaupverð MGM. Hann var
alltaf á síðustu stundu með greiðslur
og slúðursögur fóru af stað að mafían
stæði á bak við kaupin. Enn í dag
rannsakar bandaríska alríkislög-
reglan hvernig staðið var að kaupun-
um og lætur fylgjast með Parretti.
að Parretti hafi verið nokkurs konar
riddari á hvítum hesti þegar hann
tilkynnti að hann vildi kaupa
MGM/UA. Parretti var heldur enginn
nýgræðingur í kvikmyndafram-
leiðslu þótt frami hans á því sviði
hafi verið hraður. Hann hafði keypt
hið rótgróna franska fyrirtæki PAT-
HÉ sem hann notaði sem grunninn
að veldi sínu. Þegar Canon fyrirtæk-
ið var á barmi gjaldþrots kom Pa-
retti einnig sem hvítur riddari og
keypti það. Þeir Canon bræöur voru
ósammála um söluna og síðan hefur
annar þeirra, Yoram Globus, starfað
fyrir Parretti.
Erfið fæðing
En kaupin á MGM voru ekki átaka-
Ekkert hefur þó komið í ljós ólöglegt
og einnig er nú ljóst að franski bank-
inn Credit Lyonnais hefur fjármagn-
að stærsta hlutann.
Það hefur farið fyrir brjóstið á
mörgum hve óforskammaður Par-
retti var þegar hann ákvað að selja
sjónvarpinu gegn fyrirframgreiðslu
sýningarréttinn að stórum hluta
þeirra mynda sem MGM átti, auk
réttarins að myndum sem eftir var
aö frumsýna. Telja fróðir menn að
þar hafi margar góðar myndir farið
fyrir lítið. Raunar drap þama Par-
retti eina aðalgullkúna sína sem eru
James Bond myndirnar. í nær þrjá
áratugi hefur Bond malað gull fyrir
MGM og reiknaði Parretti með því
að 17. Bond myndin yrði framleidd í
ár og myndi skapa tekjur upp á 6
milljarða fyrir kvikmyndaverið. En
framleiðandinn, hinn 81 árs gamli
Broccoli, hefur höfðað mál gegn
MGM og ásakar fyrirtækið um að
selja sjónvarpsréttinn að Bond
myndunum á allt of lágu verði. Því
er staðan í dag sú að engar umræður
eru í gangi um að gera nýja mynd,
ekkert handrit til og engar dagsetn-
ingar í sjónmáli.
Ofmetnar myndir
Hluta af vandræðum Parretti má
rekja til bjartsýni hans á velgengni
þeirra mynda sem MGM var að fram-
leiða. Þær áttu að skapa tekjur til að
fjármagna næstu myndir. Aætlunin
gerði ráð fyrir því að frá 1993 fram-
leiddi MGM íjórar myndir í A flokki,
5 myndir í B flokki og 5 myndir í C
flokki. Þessar myndir áttu að skapa
nægjanlega miklar tekjur til að halda
MGM á floti. En þar sem næstum
allar myndirnar, sem MGM hefur
sent frá sér sl. ár, hafa gengið illa eru
engir peningar til sem hægt er að
nota til að fjármagna næstu myndir.
Eitt fyrsta áfallið sem Parretti varð
fyrir var myndin ROCKY V. Parretti
hafði gert ráð fyrir að hún skilaði
um 6 milljörðum í tekjur og þar af
rynni rúmur helmingur til MGM.
Raunin varð sú aö tekjurnar voru
aðeins um 2,4 milljarðar og hagnað-
urinn eftir því. Ekki tók betra við
þegar RUSSIA HOUSE var frumsýnd
en við þá mynd höfðu aðstandendur
MGM bundið miklar vonir. Þótt Sean
Connery væri í aðalhlutverki vant-
aði myndina þennan neista sem þarf
til að draga að áhorfendur. Sama
gerðist með næstu myndir sem voru
DESPERATE HOURS og svo SKIN
TIGHT.
Ljós í myrkrinu
En fátt er svo með öllu illt að eigi
boði gott. MGM virðist loksins hafa
slegið í gegn með myndinni
THELMA AND LOUISE sem er leik-
stýrð af Ridley Scott. Myndin er í dag
ein vinsælasta myndin í Bandaríkj-
unum en því miður eina myndin á
listanum yfir 60 vinsælustu mynd-
irnar þar sem sjá má merki MGM.
Það er ólíklegt að MGM kvik-
myndaverinu verði lokað en líklegt
að Parretti missi það endanlega úr
höndum sér. Núverandi fram-
kvæmdastjóri MGM hefur ýmislegt
í pokahominu og við skulum sjá
hvaða myndir munu líta dagsins ljós
yfir sumarmánuðina. Þaö gæti leynst
óslípaður demantur meðal þeirra
eins og Touchstone kvikmyndaverið
komst í raun um í fyrra þegar
PRETTY WOMAN sló óvænt í gegn.
B.H. Helstu heimildir:
Variety, Premier.