Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1991, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 1991.
13
dv Fréttir
Barnaleikur
að versla í dag
- segir Guðlaugur Pálsson, verslunareigandi í 74 ár
„Þaö var erfiðara aö versla áður
fyrr en núna, þetta er enginn sam-
jöfnuður. Það er barnaleikur að
versla í dag. T.d. flutti maður allt
á hestum og vögnum fyrstu 3 árin
og tók upp kartöflur, gulrætur og
rófur í gamla daga. Það var flutt á
vögnum til og frá Reykjavík á hest-
um,“ sagði Guðlaugur Pálsson,
kaupmaður á Eyrarbakka, sem
rekið hefur verslun í 74 ár.
„Eruð þið frá Dagblaðinu, já? Það
eru ansi góðar þessar sögur í dag-
blöðunum, þessar sakamálasögur,
sem koma á laugardögum. Ég les
þær allar, ég er spenntur að vita
hvernig þeir geta upplýst þessa
glæpi. Þeir geta kannski komið því
upp á einu mannshári. Svo les ég
líka alltaf dagfarann þarna, ég les
hann alltaf. Ég les nú allt nema
ekki auglýsingar."
Guðlaugur ólst upp á Eyrarbakka
hjá ömmu sinni og föðursystur
sinni. Hann fór til Sigurðar Guð-
mundssonar, kaupmanns og póst-
meistara á Eyrarbakka, og starfaði
hjá honum tvö ár en að þeim tíma
hðnum leigði Guölaugur verslun-
arplássið af Sigurði og keypti af
honum vörubirgðirnar.
Guðlaugur hóf rekstur sinnar
eigin verslunar 4. desember 1917,
þá tuttugu og eins árs að aldri, og
hefur rekið hana síðan eða í tæp-
lega 74 ár, lengur en nokkur annar
kaupmaður í veröldinni sam-
kvæmt Heimsmetabók Guinness.
Guðlaugur hefur alla tíð skráð
allar færslur í verslunarbækur
sem hann á ennþá. Fjármálaráðu-
neytið ætlaði að láta hann nota
sjóðvél eins og lög gera ráð fyrir:
„Ég sagði þeim að ég gæti keypt
vélina en það væri annað hvort ég
gæti lært á hana. Þeir hafa ekki
látið heyra í sér síðan.“
Guðlaugur hefur opið frá 9.30-17
og 20-21.30 alla daga vikunnar.
Hann hefur 11 sinnum fariö til út-
landa en aðeins lokað búðinni í tvö
síðustu skipti þegar hann fór til
Spánar og London. „Ég loka bara
ef ég skrepp til Reykjavíkur að
hitta mitt fólk.
Verslunin er ekki stór, ekki á
móti stóru verslununum í Reykja-
vík. Það eru margar búðir orðnar
þar. Það eru upp í 100 í einu húsi,
eða á annað hundraö. Það er mikið
að þær skuli allar þrífast þessar
Verslunin er ekki stór en þar fæst allt milli himins og jarðar. Hér er
Guðlaugur með 1. verslunarbókina frá 4. desember 1917.
DV-mynd BrynjarGauti
búðir í Reykjavík. Það er alveg
merkilegt. Ég hef gengið um götu
í London þar sem voru á annaö
hundrað þúsund íbúar, eins og
Reykjavík er. Það er svo margt fólk
sem fer til Reykjavíkur og það fer
til Selfoss að kaupa og jafnvel til
Glasgow líka.“
-Pj
Utanhúss-
málning
Kr. 460 I stgr.
Perma-Dri
15-20 ára ending
SMIÐSBUÐ
byggingavöruverslun, Smiðsbúð 8 - sími 656300
Gert samkvœint hefðbundnuni
íunerískuni aðferðum
AMERÍSKAR SAMLOKUR
Bakaðar úr fersku deigi og völdu kryddi
stráð yfír. Bornar fram heitar ineð
sérstakri Italskri tómatkryddblöndu og
parmesan osti.
MEXIKONSK PIZZA
Ofnbakaðar, sérstök Pizza Hut ilressing
sett á sainlokuna og bún borin frain
með karlöíluílögmn Pizza Hut tómatblanda, tvö lög af osti,
AMERIKA SAMLOKA
Pepperoni, skinka, salathlöð, tómatai
og ostur.
NEW YORK SAMLOKA
Skinka, oslur, salatblöð og tómatar.
nautahakk, laukur,tómatar og Jalapeno
Peppers.
Pizza
4lut
Hótel Esju • Suðurlandsbraut 2 • Sími 680809.
MITSUBISHI
MOTORS
HEKLA
LAUGAVEGI 174
SÍMI695500
□ Handskiptur / Sjálfskiptur
□ Aflstýri og veltistýrishjól
□ Framdrif
Verðfrákr. 771.840