Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1991, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1991, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 1991. 17 Fréttir Sveitarstjórinn á Raufarhöfti sem gert var að segja upp störfum eða vera sagt upp annars: Engin gagnrýni hef ur komið fram á mín störf Gyffi Kristjánsson, DV, Akuxeyii „Það hafa aldrei orðið neinir árekstrar vegna starfa minna hér. Það hefur aldrei verið kvartað undan minni vinnu og ég hef ekki haft und- an neinu að kvarta. Þess vegna má segja að þegar mér var gert að segja upp störfum eða vera sagt upp að öðrum kosti hafi það komið mér gjör- samlega á óvart,“ segir Júlíus Þórar- insson, sveitarstjóri á Raufarhöfn, en hann hefur nú sagt upp starfi sínu og það verið auglýst laust til um- sóknar. Júlíus es ekki gamall í starfinu, en hann tók viö því 1. febrúar á þessu ári eftir að starfið hafði verið auglýst og hann valinn úr hópi umsækjenda. „Mér skilst að það hafi verið kosn- ingaloforð hér að ráöinn yrði utanað- komandi maður til starfsins," segir Júlíus. Fjárhagserfiðleikar Menn hafa leitt að því getum að erfið fjárhagsstaða bæjarins hafi óbeint valdið því að Júlíusi hafi verið gert að segja upp, hann hafi verið notaður sem sökudólgur í því máli. „í sjálfu sér var fjárhagsstaðan ekki svo slæm og það voru öll lán í skilum. Loðnuvertíðin brást hins vegar algjörlega og það var áfall þar sem 60% af tekjum hafnarinnar hafa komið inn vegna hennar og 25% af tekjum sveitarfélagsins. Margir karlar sem að öllu jöfnu vinna við loðnubræðsluna fóru síðan á grásleppuvertíð sem einnig brást og það var auðvitað tap fyrir sveitar- félagið beint og óbeint. Þarna var staðan orðin þannig að sveitarfélagið átti orðið þónokkuð af útistandandi skuldum og það var lögö áhersla á að gengið yrði í að innheimta þær. Það var reynt að fara eins varlega í þær innheimtuaðgerðir og hægt var og ég lagði áherslu á að átta mig á stööunni hjá hverjum skuldara áöur en farið var af stað. Ég get því alveg fullyrt að það var varið varlega í sakimar í þeim efnum.“ Engir árekstrar Þannig að innheimtuaðgerðimar eru ekki ástæðan? „Nei, það er af og frá, þarna hlýtur allt annaö að búa að baki. Ekki er þaö óreiða, ekki óregla því ég er bind- indismaður á tóbak og nota sáralítið áfengi. Það urðu engir árekstrar og þaö var aldrei fundið neitt að mínum störfum. En samt sem áður var ég kallaður á fund og mér tilkynnt um óánægju með mín störf þótt ég fengi ekki neina frekari skýringu á því í hveiju sú óánægja væri fólgin. Á þessum fundi var mér tilkynnt að þess væri óskað að ég segði upp svo ekki þyrfti að segja mér upp. Daginn eftir var hreppsnefndarfundur og þá sagði ég upp starfi mínu.“ Voru það ekki mistök? „Jú, það má segja það og þá sér- staklega miðað við þau viðbrögð sem ég hef fengið frá bæjarbúum. Hér fóm í gang undirskriftalistar mér til stuðnings og á þá skrifuðu 73 aðilar sem era yfir 20% atkvæðisbærra manna hér.“ Ekki rétti maðurinn Og þú hefur alls enga hugmynd um hvað getur legið að baki? „Nei, aUs enga. Það eina sem ég hef fengið að heyra er að e.t.v. sé ég ekki rétti maðurinn í starfið og hafi ekki þá eiginleika sem þarf. Ég er ef til vill ekki nógu frekur." Eftir að unairskriftirnar til stuön- ings Júlíusi bárast hreppsnefndinni þar sem krafist var skýringa, var gerð samþykkt í hreppsnefndinni þar sem sagði m.a.: „... er hreppsnefnd- in sammála um að endurtaka þær skýringar að beiðni hennar til Júl- íusar um að segja upp starfinu sé reist á persónulegum ástæðum og ítreka að þær séu trúnaðarmál Júl- íusar og hreppsnefndarinnar." Hefur þú gert eitthvert slíkt sam- komulag við hreppsnefndina? „Nei, og um þetta hef ég reyndar sáralítið að segja. Ég er afskaplega svekktur yfir þessu öllu saman, sér- staklega þegar ég hef talið mér trú um að ég væri að vinna hér gott starf samkvæmt bestu samvisku. Þeir hafa sagt að ég hafl unnið vel og skil- að góðu verki en vilja samt greinilega eitthvað annað.“ Ætlað einhverjum öðrum Telur þú að eitthvað sé til í því sem pískrað er um hér í bænum að ein- hver aðili í meirihluta hreppsnefnd- arinnar ætli að taka að sér starfið? „Ég veit það hreinlega ekki en auð- vitað get ég ekki útilokað að svo sé eða að starfið sé ætlað einhveijum öðrum aðila. Fyrir mig er hins vegar ekki um neitt annað að ræða en aö fara héðan þótt mér hafi líkað mjög vel hér. Ég hef eignast marga vini hérna og tekið þátt í félagsstarfsemi ýmiss konar en ég verð að fara eitt- hvað og fá mér vinnu.“ Júlíus Þórarinsson á skrifstofu sinni sem hann yfirgefur senn. DV-mynd gk Raufarhöfn: sveitarstjórinn er á förum. ’Amitsubishi HQ myndbandstæki E12 3 hausar 30 daga 8 stöðva upptökuminni • Þráðlaus fjarstýring • Euro skart samtengi • Sjálf- virkur stöðvaleitari • PAL/NTSC afspilun • Klukka + teljari • Skipanir á skjá • Fullkomin kyrrmvnd. Sértilbod 39.950,- stgr. Afborgunarskilmálar HIJOMCO FÁKAFEN 11 — SIMI 688005 igoömvma rtopi Viðföcjnum vori og opnum Viðeyjorstofu jyrir Fiópi Borðpantanir og upplýsingar í síma 28470. VeisCur og monnfagnaðir í fiöjðingCegu. umhverfi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.