Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1991, Side 29
MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ1991.
41
i>v Menning
Sódóma Reykjavík
Nú standa yfir tökur á kvikmynd-
inni Sódóma Reykjavík. Handritiö er
eftir Óskar Jónasson sem jafnframt
er leikstjóri, aðstoðarleikstjóri er
Kristín Erna Amardóttir og kvik-
myndatökumaður er Sigurður
Sverrir Pálsson. Myndin fékk hæsta
styrkinn frá Kvikmyndasjóði íslands
þetta árið, eða 15 milljónir.
Framleiðandi er Kvikmyndafélagið
Moli hf. en framkvæmdastjóm er í
höndum Halls Helgasonar og Ingvars
H. Þórðarsonar. Aætlað er að kvik-
myndatökum ljúki 10. ágúst en frum-
sýning myndarinnar er ráðgerð í
apríl á næsta ári.
Hér er á ferð hröð gamanmynd um
ungt fólk sem er djúpt sokkið í
skemmtanalíf Reykjavikur. Það
stundar harðsvíraðan skemmtistað,
Sódómu, sem er rekinn af þremur
skuggalegum dyravörðum. Þessir
menn iðka alla glæpastarfsemi sem
hugmyndaflugið leyfir.
Það er eins gott að allt sé á sínum stað. Leikstjórinn og handritshöfundur-
inn, Óskar Jónasson, kíkir hér í tökuvélina hjá Sigurði Sverri Pálssyni.
Llngt fólk, sem er djúpt sokkið í skemmtanalíf Reykjavíkur, er viðfangsefni
myndarinnar. í þessu atriði má þekkja Helga Björnsson (i lopapeysunni)
og Guðnýju Helgadóttur (sitjandi við borðið). DV-myndir JAK
Sýnt er inn í þennan skuggaheim
frá sjónarhóli Axels sem er ungur
og hlédrægur maður. Hann ekur
glæsilegum bíl, vinnur á verkstæði
og býr í litlu herbergi hjá móður
sinni. Axel hefur ekki gruflað mikið
í skemmtanalífinu en yngri systir
hans, Mæja, lifir og hrærist á Só-
dómu og djammar dag og nótt.
Dag einn skerast ólíkir heimar
systkinanna. Mæja hefur ekki komið
heim eftir partínótt og Axel hefur
leit að systur sinni. Fyrir tilviljun
flækist hann í harðvítugt uppgjör á
milli bruggara og næturklúbbaeig-
enda. Innan skamms er hann kom-
inn á bólakaf og fremur ólíklegustu
hetjudáðir en klær skemmtanalífsins
sleppa honum ekki lausum svo létt.
Helstu hlutverk leika Björn Jör-
undur Friðbjörnsson, Sóley Elías-
dóttir, Helgi Björnsson, Eggert Þor-
leifsson, Stefán Sturla Sigurjónsson,
Þröstur Guðbjartsson og Margrét
Hugrún Gústavsdóttir.
-GRS
íslandslög:
Lög sem fylgt haf a þjóð-
inni í útsetningum
Gunnars Þórðarsonar
Út er komin ný plata, íslandslög,
sem hefur að geyma klassísk lög sem
margir vilja segja að séu orðin ís-
lensk þjóðlög og er alls ekki vitað
hverjir eru höfundar sumra laganna
en engu að síður er um að ræða sí-
gild lög sem hafa fylgt þjóðinni í
gegnum tíðina. Lögin sem sjálfsagt
allir kannast við eru útsett af Gunn-
ari Þórðarsyni og flutt af landsþekkt-
um listamönnum. Má nefna að Sav-
anna tríóið kom saman eftir margra
ára pásu og söng eitt lag inn á plöt-
una.
Þeir sem syngja lögin á plötunni
eru Björgvin Halldórsson, Savanna
tríóið, Egill Ólafsson, Eyjólfur Kristj-
ánsson, Bjami Arason, Sigríður
Beinteinsdóttir, Ólafur Þórarinsson,
Jóhann Sigurðarson, Jóhann Helga-
son, Magnús Þór Sigmundsson og
Sigríður Guðnadóttir.
Gunnar Þórðarson, upptökustjóri og útsetjari laganna á Islandslögum, og
Egill Ólafsson, einn flytjenda, virða fyrir sér albúmið af íslandslögum.
Birgitta Spur, ekkja Sigurjóns Ólafssonar, sést hér bak við styttuna af
Jóni E. Bergsveinssyni. Með henni á myndinni eru börn og tengdabörn
Jóns. DV-mynd S
Listasaf ni Sigur-
jóns færð gjöf
I tilefni þess að 27. jum siöastlið-
inn voru liðin 112 ár frá fæðingu
Jóns E. Bergsveinssonar, erin-
dreka Slysavarnafélags íslands,
ákváöu börn hans og tengdaböm
að gefa Listasafni Sigiujóns Ólafs-
sonar gifsmynd sem Sigurjón gerði
af Jóni einhvemtíma á ámnum
1949-1954. Bronsafsteypa þessarar
myndar er geymd á skrifstofu
Slysavarnafélags íslands. Með af-
hendingu fmmmyndarinnar til
safnsins telja afkomendur Jóns
þetta verk listamannsins vera
komið á þann stað sem því ber að
vera.
Aíhending styttunnar fór fram
27. júní að viðstöddum afkomend-
um Jóns og var það Birgitta Spur,
ekkja Siguijóns, sem veitti verkinu
viðtöku. Það kom fram að ættingjar
Jóns telja að þetta listaverk Sigur-
jóns Ólafssonar eigi að vera fyrir
almenningssjónum og ekki vera
geymt þar sem eingöngu fáir geta
notið þess. Þeir telja einnig að í
þessu verki hafi Siguijóni tekist að
laða fram persónu Jóns á skýran
og listrænan hátt og lýstu afkom-
endur því yfir að þeir hefðu ávallt
verið sérstaklega ánægðir með
myndverkið.
Birgitta Spur þakkaði þessa höfð-
inglegu gjöf og sagði meðal annars
að nú stæöi yfir í safninu yfirhts-
sýning á andlitsmyndum Sigurjóns
sem hann gerði á rúmlega fimmtíu
árum, frá 1927-1980 og fer vel á að
þessi gjöf, andUtsmynd af Jóni E.
Bergsveinssyni, bætist við þessa
sýningu.
-HK
BRIMBORG
BÍLAGALLERÍ
Faxafeni 8
Sími 91-685870
Opiðvirka daga 9-18.
Laugardaga 10-16.
Mazda 323 LX '88, hvitur, 5 gira,
útvarp, einn eigandi, 43.000 km.
Verð 595.000.
Volvo 245 GL station '87, Ijósblár,
sjálfsk., vökvast., útv./segulb.,
74.000 km. Verð 1.130.000.
Volvo 740 GL ’88, silfurgrænn, 5
gira, vökvast., samlæs., útv./seg-
ulb., 47.000 km. V. 1.320.000.
Volvo 740 GL '88, hvitur, sjálfsk.,
vökvast., útv./segulb., 59.000 km.
Verð 1.370.000.
Volvo 240 GL '88, beige metallic, 5
gira, vökvast., útv./segulb., sem nýr
bill, 68.000 km. Verð 1.080.000.
VW Jetta '85, rauöur, sjálfsk., út-
varp, framhjóladrif, 97.000 km.
Verð 460.000.
Peugeot 205 '87, hvítur, 4 gira,
útv./segulb., 71.000 km. Verð
410.000.
Nissan Micra '87, beige met., 5 gira,
útv./segulb., 71.000 km.
Verð 400.000.
MMC Lancer GLX '86, silfurgr., 5
gira, vökvast., útv./segulb., 88.000
km. Verð 530.000.