Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.1991, Side 32
44
MÁNUDAGUR 8. JÚLÍ 1991.
Fréttir
Kristín Þórunn Tómasdóttir í hópi krakka í sumarbúðunum við Vestmannsvatn.
DV-myndir gk
Rosalega gaman
að Vestmannsvatni
- „það er hægt að gera allt mögulegt“
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Æskulýðssamband kirkjunnar í
Hólastifti hefur um langt árabil rekið
sumarbúðir fyrir börn að Vest-
mannsvatni í Reykjadal í Þingeyjar-
sýslu. Þar dvelja allt að 50 börn
hveiju sinni en einnig hafa komið
þangað hópar af bhndu fólki til dval-
ar.
Kristín Þórunn Tómasdóttir guð-
fræðinemi, sem starfar í sumarbúð-
unum, tjáði okkur að þar væru aðal-
lega börn frá nærliggjandi héruðum,
flest á aldrinum 8-11 ára, og þeim
Guðmundur Geir Hannesson „að
sulla“ í vatninu.
sinna 8 starfsmenn. Ýmislegt er gert
fyrir börnin, þau sigla um á bátum
á vatninu, leika sér í leiktækjum,
farið er á hestbak, í heimsókn í
Byggðasafnið á Grenjaðarstað, í
gönguferðir, heimsóknir á bóndabæ
og þá er nokkur áhersla lögð á biblíu-
fræðslu.
„Það er alveg rosalegt að vera
héma, það er hægt að gera allt mögu-
legt,“ sagði Guðmundur Geir Hann-
esson, 11 ára Akureyringur, sem
naut þess greinilega að sulla í vatn-
inu á sundskýlunni sinni. Hann
sagðist vera þarna í fyrsta skipti,
hafa komið í fyrradag, og mest gam-
an af öllu væri að sigla um á bátun-
um.
ÚRVALS bón- og
hreinsivörur!
Olíufélagið hf
Sauðárkrókur:
Lögreglu- og sýslumanns-
embætti í nýtt húsnæði
Þórhallur Asmundasan, DV, Sauðárkróki:
Nokkurt fjölmenni var viðstatt er
aðsetur lögreglu- og sýslumanns-
embættisins var formlega tekið í
notkun fyrir nokkru. Meðal gesta
voru Þorsteinn Pálsson dómsmála-
ráðherra, ýmsir verktakar og velf-
lestir hreppstjórar sýslunnar en þeir
eru nokkuð margir þrátt fyrir sam-
einingu hreppa á síðustu misserum.
Flutti dómsmálaráðherra ávarp og
óskaði Skagfirðingum til hamingju
með nýja húsið. Halldór Jónsson
rakti byggingarsögu Suðurgötu 1,
lýsti húsnæðinu og gerði samanburð
við það sem embættið var í áður. Er
húsrými nú allt annað og betra. Þá
gat sýslumaöur þeirrar skemmtilegu,
tilviljunar að sýsluskrifstofumar
væru á ný komnar við hhð þess húss
sem þær voru í áður en flutt var á
Víðigrundina.
Sýslumannsfrúin, Aðalheiður
Ormsdóttir, hefur starfað á sýslu-
skrifstofunni í nokkur ár. Gat hún
þess í óopinberu spjalh við frétta-
menn að það hefði verið gleðidagur
þegar sýsluskrifstofurnar hefðu ver-
ið fluttar af Víðigrundinni en bústað-
ur sýslumannshjónanna er í því
sama húsi. „Það er óskaplega þreyt-
andi að búa á vinnustaðnum og aht
annað líf að búa heima hjá sér og
vinna úti í bæ eins og venjulegt fólk,“
sagði Aðalheiður.
Hártap?
Nýjasta tækni í meðferð gegn hártapi
1. Hársrætur, óvirkar og dauðar. Hártap.
2. Lokaaðgerð. Nýja hárið hefur náð festu
og mun endurnýjast og endast ævilangt.
' Ókeypis ráðgjöf. * Skrifleg lífstíðar-
ábyrgð.' Framkvæmt af færustu læknum
hjá elstu og einni virtustu einkastofnun í
Evrópu.
Hringið eða skrifið til:
Harley Dean Clinic, Skúlatúni 6, box
7102, 127 Reykjavík.
Sími 91-27080 milli kl. 9 og 17 og sími 91-17160 milli kl. 19 og 21.
Myndgáta dv
Andlát
Einar Eðvaldsson, til heimihs í
Gyðufelh 10, lést 2. júh á Spáni.
Gréta Jóelsdóttir Skaftafell, Dal-
braut 18, Reykjavík, lést 4. júlí.
Valgerður Bjarnadóttir Gould lést 28.
júní í Canberra, Ástralíu.
Hrefna Kristjánsdóttir, Freyjugötu
44, Reykjavík, lést í Landspítalanum
2. júh. Jarðarförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Steinunn Auðunsdóttir, Bústaðavegi
89, andaðist að morgni 29. júní.
Jarðarfarir
Útför Jónu Kristjánsdóttur fer fram
frá Fossvogskirkju í dag, mánudag-
inn 8. júlí, kl. 13.30.
Útfór Sverris Bernhöft stórkaup-
manns, Garðastræti 44, fer fram frá
Dómkirkjunni þriðjudaginn 9. júlí
kl. 13.30.
Útfór Þóru Sveinsdóttur, Funafold
59, Reykjavík fer fram í Dómkirkj-
unni 9. júlí kl. 10.30.
Þórður Kristjánsson, Bræðraborgar-
stíg 23 A verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju miðvikudaginn 10. júlí kl.
13.30.
Anna Katrín Sigurðardóttir, Háaleit-
isbraut 105, Reykjavík verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju þriðju-
daginn 9. júlí kl. 15.00.
Tónleikar
Tónleikar í Listasafni
Sigurjóns
Á þriðjudagstónleikum í Listasafni Sig-
urjóns Ólafssonar þann 9. júli nk. kl. 20.30
munu söngkonumar Signý Sæmimds-
dóttir og Björk Jónsdóttir flytja fjöl-
breytta efnisskrá við undirleik Davið
Tutt píanóleikara. Signý Sæmundsdóttir
mun syngja Sieben fruhe Lieder eftir
Alban Berg, Björk Jónsdóttir syngur lög
eftir Johannes Brahms og saman flytja
þær dúetta eftir Schötz, Luigi Cherubini
og Mendelssohn.
Danskt blúsband leikur
hér á landi
5. júlí sl. komu til landsins íslandsvinim-
ir í „Peter Qerling blues connection"
danska blúsbandinu sem spilaði hér á
landi við góöan orðstir í fyrra. Hljóm-
sveitina skipa Peter Qerling (gítar/söng-
ur), Asger Jakobsen (bassi/söngur),
Lennart Larsen (munnharpa/söngur) og
íslendingurinn Ólafur Sigurðsson
(trommur). Þeir félagar munu leika á eft-
irtöldum stöðum: Firðinum, Hafnarfirði,
10. og 11. júlí, Höfða, Vestmannaeyjum,
13. júlí, 1929, Akureyri, 17. og 18. júli,
Berlín, Reykjavik, 19. og 20. júli, Tveimur
vinum, Reykjavik 25. júlí og Púlsinum,
Reykjavík 26. og 27. júlí.
Tilkyiuiingar
Félagar í deild
lífeyrisþega innan
Hjúkrunarfélags íslands
Farið verður í skemmtiferð fimmtudag-
inn 18. júlí nk. kl. 13 frá Suðurlandsbraut
22. Komið til baka rnn kl. 19. Farið verður
austur í sveitir, drukkiö kaffi á Laugar-
vatni og ekin Lyngdalsheiðin um Þing-
velli til baka. Tilkynnið þátttöku til skrif-
stofu HFÍ í síma 687575 í síðasta lagi fyr-
ir hádegi mánudaginn 15. júli.
Litla leikhúsið sýnir barna-
leikritið Önnu ómögulegu
í samvinnu við Dagvistun bama í Reykja-
vík sýnir Litla leikhúsið leikritið ðnnu
ómögulegu á eftirtöldum gæsluvöllum:
Amarbakka í dag, 8. júlí, Fannafold, 9.
júlí, Vesturbergi 10. júli, Frostaskjóli 11.
júU, Ljósheimum, 12. júU, Malarási 15.
júU, StakkahUð 16. júU, Rauðalæk 17. júU,
Tunguvegi 18. júU og FífuseU 19. júU.
Sýningamar hefjast aUar kl. 14. Leikritið
Ánna ómögulega er samið í hópvinnu
leikhópsins undir leiðsögn Jóns Hjartar-
sonar sem einnig leikur eitt hlutverkið í
leikritinu. Aðrir leikendur em Ragnheið-
ur Tryggvadóttir og EmU Gunnar Guð-
mundsson. Leikritið Anna ómögulega er
annað verk leikhússins á þessum vett-
vangi og er þessi sýning ætluð bömum á
aldrinum 2-6 ára. Aðgangur er ókeypis
og em allir velkomnir.