Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1991, Blaðsíða 21
íftiWffíÍ;
SSÆsmm
$É9|ÉÍ$3j&$&£3^M^
l»s^Ætel6|i|í|á86i6iflWíW5laitó
MH
T.AUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1991. ' 21
Nýrri ljósmyndasamkeppni DV hleypt af stokkunum:
Skemmtilegasta
sumarmyndin
- fullkomin Canon-myndavél í 1. verðlaun
Sigurður Sigurðsson, Reykjavík.
Nýrri ljósmyndasamkeppni DV
hefur nú veriö hleypt af stokkunum.
Ber hún nafnið Skemmtilegasta
sumarmyndin. Lesendum DV gefst
kostur á að senda inn skemmtileg-
ustu sumarmyndirnar sínar og taka
þátt í keppni þar sem sex skemmti-
legustu og bestu myndirnar verða
valdar úr innsendum myndum. Þeir
sex lesendur DV sem tekið hafa
skemmtilegustu sumarmyndirnar,
að mati dómnefndar DV, fá að laun-
um vegleg verölaun frá Hans Peters-
en hf.
Gífurleg þátttaka var í ljósmynda-
samkeppni DV og Tannlæknafélags
íslands, Breiðasta brosið, sem lauk
fyrir skömmu en þúsundir mynda
bárust í keppnina.
Síðasta sumar var eitt það veður-
sælasta og fallegasta í manna minn-
um. Er ekki að efa að fjöldi lesenda
DV hefur haft myndavélina á lofti
og náð skemmtilegum sumarmynd-
um. Með því að taka þátt í keppninni
geta lesendur ornað sér við sælar
sumarminningar langt fram á vetur
og átt von á veglegum vinningum.
Þrjár mynda-
vélar í verðlaun
1. vinningur:
Canon EOS 1000 myndavél að verð-
mæti 35 þúsund krónur. Þessa full-
komnu myndavél prýðir allt það sem
tilheyra á úrvalsmyndavélum, þar á
meðal innbyggt flass.
2. verðlaun:
Prima zoom 105 myndavél með tösku
að verðmæti 23 þúsund krónur.
3. verðlaun:
Prima 5 myndavél að verðmæti 9.980
krónur.
Vinningarnir eru allir frá Hans Pet-
ersen hf.
4. -6. verðlaun:
Aukavinningar frá Hans Petersen.
Framlengjum
sumarið
Þeir sem taka vilja þátt í þessum
sumarauka setja einfaldlega
skemmtilegustu sumarmyndina eða
sumarmyndirnar sínar í umslag og
senda þær DV í umslagi merktu
„Skemmtilegasta sumarmyndin“
fyrir 5. nóvember. Áríðandi er að
nafn og heimilsfang sendanda sé
skrifað aftan á hvert umslag og
hverja mynd svo dómnefndin viti
hver eigi að fá verðlaun og svo hægt
sé að endursenda myndirnar að lok-
inni keppninni.
Úrval innsendra mynda verður birt
reglulega í DV þar til skilafresturinn
rennur út, 5. nóvemer. Úrslit ljós-
myndasamkeppninnar verða síðan
kunngjörð í blaðinu um miðjan nóv-
ember.
Væntum við að fá sendar margar
skemmtilegar myndir frá síðasta
sumri. Utanáskriftin er:
DV, Þverholti 11,
105 Reykjavík.
Merkið umslagið „Skemmtilegasta
sumarmyndin".
Hér á síðunni má sjá úrval mynda
sem komu til áhta í ljósmyndasam-
keppninni Breiðasta brosið og nöfn
höfunda.
Kristin Hildur Olafsdóttir, Reykjavik.
Jónína Karlsdóttir, Kópavogi.
Guðný M. Einarsdóttir, Isafirði.
Ragnheiður Kristjánsd., Akureyri. ' Sólveig Rémisdóttir, Seltjarnarnesi. Kjartan Guðjónsson, Garðabæ.