Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1991, Qupperneq 11
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1991.
11
Smíðarveið-
arfæri til að
ná ígulkerum
afhafsbotni
Þórhallur Ásmunds., DV, Norðurl. vestra:
„Þegar verkfæri til hlutanna eru
ekki til er ekki um annað að ræða
en smíða þau,“ segir þúsundþjala-
smiðurinn Einar Jóhannesson á
Blönduósi. Einar kann aö smíða
ýmislegt og leiðir líka hugann að
nýtanlegum fisktegundum í sjón-
um. Nú er hann að smíða veiðar-
færi til að ná ígulkerum af hafs-
botni. Heldur því staðfastlega fram
aö gnægð sé af ígulkerum í sjónum
aOt í kringum landið. Margir eru
sömu skoðunar.
Einar er fyrrum sjómaður en
mörg undanfarin ár hefur hann
dundað sér við járnsmíði og fer
ekki troðnar slóðir í þeim efnum.
Smíðaði fyrir nokkrum árum nýja
tegund af skelplóg, sem þykir taka
fyrri veiðarfærum í þeirri grein
talsvert fram. Og lífið á hafsbotnin-
um er Einari hugleikið. Nú á að
ná ígulkerunum.
„Ég er ánægður með útkomu
frumhönnunar. Fór og prófaði
veiðarfærið nýlega og þaö kom bet-
ur út en ég hafði þorað að vona.
Nú vantar bara peninga til að hægt
sé að klára þetta,“ sagði Einar.
Blönduósbær veitti honum styrk
við upphaf verksins. Fleiri hafa
ekki styrkt þetta verkefni.
- Þarf ekki að rannsaka miðin?
„Jú, nú er komið nothæft tæki til
þeirra hluta og aöeins stendur á
peningunum til rannsókna. Manni
fmnst eðlilegt, nú þegar þarf að
draga úr veiðum á hefðbundnum
fisktegundum, að farið verði að
leita fyrir sér í vannýttari tegund-
um.“
- Eru þessar álitlegar?
„Já, mjög. ígulker eru mjög verð-
mæt lúxusvara. japanir eru vit-
lausir i þetta og Frakkar einnig.
Japanir eru með verksmiðju í
Bandaríkjunum og hafa óskað eftir
ígulkerum héðan. Menn hafa verið
að kafa eftir þeim - það er seinlegt
og við getum aldrei sinnt markaðn-
um með því móti. Við teljum að
möguleikar okkar íslendinga felist
í því að safna ígulkerunum saman
og rækta þau á ákveðnum svæðum,
t.d. í lónum. Þannig gætum við af-
greitt þetta eftir pöntunum."
Einar Jóhannesson.
DV-mynd Magnús Ólafsson
MYJUMG AISLANDIIIÍ
0 0
nu ER FAANLEG A ISLAríDI HY TEGUMD AF HREiriGERM-
INGARVÉL SEM HEPÍTARVELÁ HEIMILUM, í FYRIRTÆRJUM
OG Á STOFHUHUM.
VELIM SAMEINAR I EIMU TÆKI
- Rakatæki -
- Lofthreinsara -
- Ryksugu -
- Vatnssugu -
- Teppabankara -
- Teppa- og húsgagnahreinsara
- ofl. ofl., Á
Flisaþvottur.
Enginn ryksugupoki.
Hafið því Rainbow vélina i huga þegar ákvörðun er tekin
um kaup á hreingerningarvél því hún er KRAFTMIKIL OQ
ÁHRIFARÍK, falleg, léttoglipur.
RAiriBOW„hrein Qárfesting”.
RAIfiBOW vélin fæst ekki í verslunum.
kainbow
LEITIÐ UPPLÝSINGA HJÁ: Rairibow air á íslandi
Sími 91-67-77-73.