Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1991, Síða 20
20
'reor saaörao ,s huoaqhaöua.t
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1991.
Kvikmyndir
Bresktfyrirtæki
Þessa dagana er verið að gera
kvikmyndina A Rage in Harlem.
Myndin er framleidd af breska
fyrirtækinu Palace Pictures sem
ætlar sér með myndinni að slá
loksins í gegn í henni Ameríku.
Palace Pictures hefur haft orð á sér
fyrir að gera listrænar myndir sem
hingað til hafa ekki fallið að smekk
Bandaríkjamanna. í stað þess að fá
Leikstjórinn Bill Duke.
frægan leikara í aöalhlutverkið er
skrautfjöður aðstandenda Palace
Pictures hin undurfagra Robin Gi-
vens sem varð fyrst reglulega fræg
er hún giftist boxaranum Mike
Tyson. Hjónabandið stóð ekki
nema í átta mánuði en á meðan
birtust í öllum fjölmiðlum fréttir
af hjónabandserjum þeirra. Þessi
26 ára gamla fyrrverandi fegurðar-
drottning var orðin heimsfræg. Að
vísu hafði hún verið ráðin til að
leika í sjónvarpsþáttaröðinni Head
of the Class sem hún gerði í fimm
ár áður en henni bauðst hlutverk
í A Rage in Harlem.
Svartagengið
Að undanfömu hafa íjölmargar
kvikmyndir verið gerðar í Banda-
ríkjunum af þeldökkum leikstjór-
um. Talað hefur verið um svokall-
að „svart gengi“ eða afrísk-amer-
ískar kvikmyndir með sjálfan
Spike Lee í fararbroddi. Sumar
þessar myndir hafa gengið mjög
vel, eins og New Jack City, sem
nýlega var sýnd hérlendis og Mario
Van Peebles leikstýrði, og Boyz N
the Hood, þar sem John Singleton
var leikstjóri. Leiötogar hópsins
em taldir þeir Spike Lee, John
Singleton, svo og hinn 48 ára gamh
Bill Duke sem er einmitt leikstjóri
A Rage in Harlem.
A Rage in Harlem er byggðá sam-
Umsjón:
Baldur Hjaltason
Erfiöleikar
En því miður virðast draumar
þeirra Paiace Pictures manna ekki
hafa ræst nema að hiuta til. Síðan
A Rage in Harlem var frumsýnd í
september hafa viðtökur verið
undir meðallagi. Svo virðist sem
sú ákvörðun að hafa Robin Givens
í aðalhlutverki hafi ekki haft tilætl-
uð áhrif á aðsóknina.
Því miður hafa þeldökkir kvik-
myndaleikstjórar ekki mörg tæki-
færi að gera kvikmyndir. Lengi vel
var Sidney Poitier fyrirmynd ann-
arra þeldökkra leikstjóra en hann
gerði meðal annars hinar vinsælu
gamanmyndir Stir Crazy (1980) og
Hanky Panky (1982). Nýjasta
stjarnan er hins vegar Spike Lee,
þótt mörgum kynbræðrum hans
finnist Lee of yfirborðskenndur.
Hann hefur gert m.a. myndirnar
She’s Gotta Have It, School Daze,
Mo’ Better Blues og Do the Right
Thing.
Svona er myndin auglýst.
mönnum, glæpamönnum og öðrum
óþverralýð. Það er nokkuð af
þekktum leikurum í myndinni en
þeirra þekktastur er líklega Greg-
ory Hines sem leikur smákrimm-
ann, bróður Jacksons. Myndin er
ekki tekin upp í Harlem heldur i
Cincinnati vegna þess að sú borg
er líkari Harlem fyrir 40 árum held-
ur en Harlem sjálft nú, auk þess
sem kvikmyndaframleiöendur eiga
í engum útistöðum við verkalýðsfé-
lögin.
A Rage in Harlem markar ákveð-
in tímamót hjá Palace Pictures.
Fyrirtækið hefur gert myndir eins
og Mona Lisa, Scandal og The
Company of Wolves sem allar hafa
hlotið mikið lof. Hins vegar hafa
þær verið stimplaðar „breskar” og
því ekki gengið vel utan Evrópu.
Mona Lisa
„Það er augljóst," var nýlega haft
eftir Steve Woolley hjá Palace Pict-
ures, „að til þess að fyrirtækið
haldi velli er nauðsynlegt að mynd-
ir okkar gangi einnig vel í Banda-
ríkjunum. Sem framleiðandi verð
ég að hafa í huga hvemig fyrirtæk-
ið getur þróast og dafnað og hvaða
framtíðarmöguleika við eigum. Við
verðum að gera kvikmyndir með
bandarískum leikurum.
Bandaríkjamenn sjá ekkert ann-
að en sinn eigin nafla og ef þeir sjá
breska mynd finnst þeim hún
ómöguleg. Myndir eins og Mona
Lisa geta þó gert það gott í Banda-
ríkjimum en það er sjaldgæft. Það
er einnig mjög sjaldgæft að mynd-
ir, sem eru vinsælar í Bandaríkjun-
um, verði ekki vinsælar í Bret-
landi, svo það sést vel hve mikil-
vægt það er fyrir Palace Pictures
að komast inn á Bandaríkjamark-
að. Við erum að reyna að gera A
Rage in Harlem að spennandi
mynd án þess aö eyða morð fjár í
gerð hennar.“
Vantartækifæri
Spike Lee varð mjög reiður út í
dómnefndina í Cannes í fyrra þegar
hún veitti myndinni Sex, Lies and
Videotapes gullpálmann þar sem
hann taldi sjálfan sig eiga rétt á
honum fyrir myndina Do the Right
Thing. Hins vegar gafst hann ekki
upp og sendi nýlega frá sér Jungle
Fever.
Bill Duke, leikstjóri A Rage in
Harlem, er harðorður um þessi
mál. í nýlegu viðtah sagði hann
meðal annars: „Ég er ekki ánægður-
með stöðuna nú. Ég vil fá fleiri
tækifæri til að spreyta mig á. Vegna
litarafts míns fæ ég þau ekki. Kvik-
myndaiðnaöurinn er mjög þröngur
nú. Það eru mjög fáir aðUar sem
taka allar ákvarðanir um hvað
selst og selst ekki.
Það verður forvitnilegt að fylgjast
með „svarta genginu“ á næstu
árum og sjá hvort því tekst að
þroskast sem leikstjórar og fara inn
á nýjar og meira krefjandi brautir.
Aðeins tíminn mun leiða í ljós
hvort það tekst.
Heístu heimildir: Variety, Empire.
Nýtt blóð
Hvað er það sem gerir eina kvik-
mynd vinsælli en aðra? er spuming
sem margir kvikmyndaframleið-
endur vildu án efa gefa mikið fyrir
að fá rétt svar við. Hver hefur sína
skoðun á þessum málum en líklega
telja flestir aö stórstjörnur séu það
sem tryggi best góöa aðsókn að
kvikmyndum. Það er nokkuð til í
því, ekki síst ef höfð er í huga vel-
gengni Amolds Schwarzenegger í
myndinni Tortímandinn 2: Dóms-
dagur sem virðist vera nærri
því að slá met hvaö varðar að-
sókn.
En kvikmyndaframleiðendur
beita fleiri brögðum. Eitt þeirra er
að bjóða frægum skemmtikröftum
eitt af aðalhlutverkunum enda þótt
rennt sé blint í sjóinn að hluta til
hvaö varðar leikarahæfileika þessa
fólks. Hér má nefna sem dæmi
popparana Cher og David Bowie
og svo 0. J. Simpson sem hóf frægð-
arferil sinn sem fótboltahetja.
nefndri bók eftir rithöfundinn
Choster Himes sem hann samdi
árið 1957. Myndin fjallar því ekki
um fátækrahverfin í Harlem nú,
eins og fyrst kemur upp í hugann
þegar nafn myndarinnar ber á
góma, heldur um Harlem fyrir 40
árum. Myndin er um undirförla
konu sem fer huldu höfði í Harlem.
Hún hefur undir höndum mikið
magn af stolnu gulli sem margir
ágirnast, svo sem fyrrverandi elsk-
hugi hennar og ránsfélagar.
Ákveðin tímamót
Það er Robin Givens sem fer meö
hlutverk konunnar. Meðan hún
ghmir við alla þessa þijóta tekst
henni að festa í kóngulóarvef sinn
hinn saklausa Jackson sem hún
vefur síðan um fingur sér. Allt
þetta myndar ramma um myndina
sem síðan er fylltur með lögreglu-
Þao er
hin
undurfagra
Givens
sem fer með
aðal-
hlutverkið.