Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1991, Blaðsíða 18
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1991.
Veiðivon
Guðmundur G. Þórarinsson, fyrrum alþingsmaður, var veislustjóri og fórst það vel úr hendi, hér er Guðmundur í hópi stangaveiðimanna.
Veiðiballið í L.A. Kaffi
Stangaveiðimennimir
skemmtu sér konunglega
Gunnar Gunnarsson tekur við happdrættisvinningi úr hendi Jósteins
Kristjánssonar.
DV-myndir Guðmundur Stefán
„Þessi fyrsta uppskeruhátíð veiði-
manna í lok veiðitímans, sem við
héldum upp á, tókst meiriháttar vel
og þetta er vonandi bara sú fyrsta
af rnörgum," sagði Björn Friðþjófs-
son í L.A. Kaffl nokkrum mínútum
eftir að skemmtun veiöimanna lauk
um síðustu helgi.
L.A. Kaffi ætlar að halda þetta á
hverju ári hér eftir.
„Veiðimenn ætla að vinna í þessu
máli með okkur og að ári munum
við halda þetta aðeins seinna, líklega
jafnvel um miðjan október. Veiði-
menn eru ennþá aö renna fyrir sjó-
birting," sagði Björn í lokin.
Þessi uppskeruhátíð veíöimanna í
lok veiðitímans er skemmtileg fyrir
stangaveiðimenn.
Við vorum á staðnum og festum
atburðinn á filmu. Þetta er merkileg
nýjung fyrir veiðimenn.
„Maturinn var frábær og skemmt-
unin góö,“ sagði okkar maður á
staðnum. -G.Bender
Laxadansinn var stiginn að hætti góðra
veiöimanna.
ÞjóðarspaugDV
Ekki öllum
sýndir
Þegar Bogi Ólafsson, sem lengi
kenndi við Menntaskólann í
Reykjavík, var ungur vann hann
sem búðarsveinn hjá bróður sín-
um Gunnari í Vík í Mýrdal. Bogi
þótti löngum kaldhæöinn í svör-
um og fengu sumir nemendur
hans oft að kenna á því,
Einhverju sinni kom séra
Magnús Björnsson inn í búðina
til Boga og bað um aö fá að líta á
hatta. Bogi sýndi honum þá.
Er klerkur hafði litið á hattana
um stund og eigi líkaö þeir sagði
hann af mikilli vandlætingu og
með þjósti nokkrum:
„Að þið skulið sýna nokkrum
almennilegum manni þessa
hatta.“
„Það gerum við heldur ekki,“
svaraði Bogi um hæl og lauk þar
með „viðskiptum" hans og
klerksins.
Sú níunda
Hjón ein úr Kópavogi, sem voru
fastagestir á tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands, voru eitt
sinn sein fyrir á tónleika.
„Þér fyrirgefið hvað við erum
sein,“ sagði frúin við afgreiðslu-
stúlkuna í Háskólabíói, „en hvað
er Sinfóníuhljómsveitm aö leika
núna?"
„Hún er að leika Níundu sín-
fóníuna,“ svaraði afgreiðslu-
stúlkan.
„Hvað segirðu?" æpti írúin.
„Erum við virkilega búin að
missa af átta sinfóníum?"
Ef þér komið
Maður nokkur var að greiða
iðgjöld sín til Sjúkrasamlags Ak-
ureyrar og greiddi þijá mánuði
fram í tímann. Þegar hann var
að fara fékk hann eftirþanka af
þessu og spurði gjaldkerann
hvort Sjúkrasamlagið greiddi
ekki til baka ef hann til dæmis
dæi snögglega.
„Jú, jú,“ svaraði gjaldkerinn,
„ef þér komið sjálfur og náið í
peningana."
Finnur þú fimm breytingar? 123
Mér gekk vel f ellefu ár en svo fékk strákurinn minn ritgerðarefnið: „At- Nafn:.........
vinna fööur míns“.
Heimilisfang:
Myndirnar tvær virðast við
fyrstu sýn eins en þegar betur
er að gáð kemur í íjós að á
myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á hægri myndinni og
senda okkur hana ásamt nafni
þínu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum hðnum birtum
við nöfn sigurvegara.
1. Fimm Úrvalsbækur að
verðmæti kr. 3.743.
2. Fimm Úrvalsbækur að
verðmæti kr. 3.743.
Bækurnar sem eru í verðlaun
heita: Á elleftu stundu, Flugan
á veggnum, í helgreipum hat-
urs, Lygi þagnarinnar og
Leikreglur. Bækumar em
gefnar út af Fijálsri fjölmiðl-
un.
Merkið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 123
c/o DV, pósthólf 5380,
125 Reykjavík
Vinningshafar fyrir hundrað
tuttugustu og fyrstu getraun
reyndust vera:
1. Harpa Jónsdóttir,
Ránargötu 21, 600 Ákureyri
2. Rannveig Lúðvíksdóttir,
Melhaga 2,107 Reykjavík
Vinningarnir verða sendir
heim.