Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1991, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1991, Blaðsíða 25
LAUGAKDAGUR 5. ÖKTÖBER 1991. Eins og sjá má var oft vel af fiski í netunum og nóg að gera við að greiða úr. Tollvöruuppboð Að kröfu Tollinnheimtu ríkissjóðs, Eimskipafélags íslands hf., Jóna hf. o.fl. aðila fer fram opinbert nauðungaruppboð á ýmsum vörum til lúkningar vangreiddum aðflutnings- og geymslugjöldum. Uppboðið fer fram laugardaginn 12. október nk. að Hjallahrauni 2, Hafnar- firði, og hefst kl. 13.00. Seld verða m.a. leikföng, matvæli, sælgæti, fatnaður, hreinlætis- og snyrti- vörur, umbúðir og tæki til fiskvinnslu, rafsuðuvír, gólfteppi, húsgögn, salt- dreifari, hreinsiefni, nælonnet, áhöld fyrir gasgrill, mótorhjól, vörubíll og grind, vélar og drifsköft, myndavélar, offsetfilmur, tjaldvagnar og hjólhýsi o.fl. Greiðsla við hamarshögg. Uppboðshaldarinn í Hafnarfirði ---------------------------------------N SUMARHÚS TIL SÖLU Nokkur orlofshús í orlofsbyggöinni í Svignaskarði eru til sölu. Húsin eru seld til brottflutnings af svæð- inu. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Iðju, félags verksmiðjufólks, Reykjavík. Sími 626620. Byggingarnefnd orlofshúsa, Svignaskarði. __________________I____________________/ laxi, þetta er allt önnur og miklu betri vara. Ég er alls ekki sátt við það ef á að fara að koma á einhverju lopa- peysuverði á íslenskan vatnasilung." Fiskurinn líkarmjögvel - Hvernig hefur silungurinn frá þér líkað í Frakklandi, þessu landi sæl- keranna? „Fiskurinn hefur líkað mjög vel, bæði í Svíþjóð og Frakklandi, en sennilega betur í Frakklandi. Ætli það sé ekki vegna þess að þeir kunna frekar þær matreiðsluaðferðir sem henta. Þefr snöggsteikja flökin og ég get fullyrt að þetta er mikill herra- mannsmatur.“ - Þannig að þessi útflutningur á framtíð fyrir sér? „Já, tvímælalaust. Það eina sem ég er hrædd viö er að þetta geti farið eins og með eldisfiskinn, að það fari allt of margir út í þetta og fari að undirbjóða hver annan. Það yrði mjög slæmt því það þarf að fást gott verð fyrir þessa gæðavöru, enda út- heimtir það geysilega vinnu að koma henni á markaðinn. Sem dæmi um hversu mikil vinna þetta er og mikið í kringum þetta get ég sagt þér að í sumar þurftum við að setja fiskinn á ís strax og hann kom upp úr vatninu. Við þurftum því að hafa með okkur ís í bátnum. Þegar fiskurinn hafði verið flakaður var hvert einasta flak þerrað með pappír, síðan voru flökin sett í plast- poka sem voru lofttæmdir, þá þurfti að ísa þessa poka í einangrunarköss- um og loks að koma þessu á flugvöll- inn sem er í um 70 km fjarlægð. En þótt þetta kalli á mikla vinnu er þetta ákaflega spennandi og það Kristlaug með einn af urriðunum sem komu í netin en þeir geta orðið ansi vænir í Kálfborgarárvatni. er gaman að fást við þetta. Ef við skilum góðri vöru sem líkar vel er- lendis, eins og hún hefur gert hingað til, og vel verður staðið að kynningu þá er þama um stóran markað að ræða og það verður hægt að veiða geysilegt magn,“ sagði Kristlaug. Haldið „í róður" Nú var kominn tími tii að halda upp að Kálfborgarárvatni og „leggja í’ann“, enda var Anna Heiður Jóns- dóttir, sem er „háseti“ hjá Krist- laugu, orðin óþohnmóð. Það var því ekið upp að vatni, snarast um borð og stefnan tekin á net nyrst í vatn- inu. Þar höföu þær lagt grófriðin net daginn áður og í þeim var talsvert af vænni bleikju og enn stærri ur- riða. Þaðan var svo siglt að suður- enda vatnsins þar sem vitjað var um fínriðnari net. í þeim netum var ekki minna af fiski, smárri bleikju, ná- kvæmlega eins og þeirri sem útlend- ingamir vilja helst kaupa. Alis vitj- uðu þær um 14 net og sennilega hafa fiskarnir, sem þær greiddu úr netun- um, verið um 150 talsins. Þar sem komið var fram í lok september og orðið ansi kalt var haldiö til lands skömmu síðar, enda afhnn orðinn ágætur. Þáð er peningur í Egils gleri! *i' ~ft Allar glerflöskur frá Ölgerðinni eru margnota með 10 króna skilagjaldi. Ekki henda verðmcetum, hafðu tómt Egils gier meðferðis þegar þú endurnýjar Egils birgðirnar í næstu verslunar- eða sjoþþuferð. Það er drjúgur peningur!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.