Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1991, Blaðsíða 52

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1991, Blaðsíða 52
FR ÉTTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 5.000 krónur. Fullrar nafn- hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta- í DV, greiðast 2.000 krónur. skotum allan sólarhringinn, Ritstjórn - ILflWMKIimiM S. (Q)ie®flB0íi 1*.. 17 ára piltur sem banaði manni við Bankastræti: Dæmdur í rúmlega 6 ára f angelsi fyrir manndráp Sakadómur Hafnarljaröar hefur dæmt 17 ára pilt í sex ára og fimm mánaða fangelsi fyrir að hafa ban- að Úlíári Úlfarssyni við bakhúsið að Bankastræti 14 í Reykjavík og rænt hann aðfaranótt 3. mars síð- astliðins. Hann var einnig sakfelld- ur fyrir að hafa baríð og rænt ann- an mann við Hverflsgötu sömu nótt. 15 ára stúlka, sem var með honum, var fyrir aðild sína að báð- um ránunum dæmd í 24 mánaða varðhald, þar af 21 mánuð skilorðs- bundinn. Guðmundur L. Jóhann- esson, sakadómari í Hafnarfirði, kvað upp dóminn. Pilturinn viðurkenndi að hafa slegið Úlfar þremur þungum högg- um í höfuðið og hafði hann hnúa- járn innan í hönskum sínum. Eftír að fórnarlambið féll við greiddi pilturinn manninn tvö hnefahögg. Taliö er að Úlfar hafl látist um háifri klukkustund eftir árásina. Sakadómur komst að þeirri niður- stöðu að piltinum hefðu ekki átt að dyljast afleiðingar gerða sinna með árásinni með hnúajárnunum. Hann var því sakfelidur fyrir manndráp með svokölluðum lík- indaásetningi. Stúlkan, sem nú er orðin 16 ára, var ákærð fyrir aðfld að morðinu og einnig árásina á manninn við Hverfisgötu. Hún var sýknuð af sakargiftum að beinni aðild að morðinu en sakfeUd fyrir aðild sína að ránunum. Eftir að Rannsóknarlögregla rík- isins handtók ungmennin var stúlkunni komið fyrir i forsjá Barnaverndarnefndar á unglinga- heimili vegna aldurs hennar. Hún hefur síðan verið vistuð á sveita- heimiU. Pilturinn var fyrst vistað- ur í gæsluvarðhaldsfangelsinu í Síðumúla en hefur að undanförnu verið í Hegningarhúsinu við Skóla- vörðustíg. Til frádráttar refsingu hans kemur gæsluvarðhaldsvistin sem hófst 15. mars. Máli piltsins verður sjálfkrafa áfrýjað til Hæstaréttar vegna þyngdar refsingarinnar. Uni hins vegar ríkissaksóknari og stúikan sjálf hennar dómi fer hann ekki til Hæstaréttar. -ÓTT Skeiðará: Hlaupið fer sérhægt „Það geta liðið margir dagar áður en hlaupið nær hámarki," sagði Snorri Sophaníasson, vatnamæl- ingamaöur hjá Orkustofnun, við DV í gær. Hlaup er nú hafið í Skeiðará. Það fer sér mjög hægt og vatnavextir hafa ekki verið miklir enn sem kom- ið er. Snorri sagði hins vegar að það leyndi sér ekki að um hlaup væri að ræða. Talsverð brennisteinsfýla væri af ánni og mikill sandur væri í henni en hún græfi mikið þegar um hlaup væri að ræða. Þá hefði greining á sýni úr ánni sýnt að um hlaupvatn væriaðræða. -JSS ÞJÓFAVARNIR FYRIR FYRIRTÆKI OG HEIMIU Vönduð og viðurkennd þjónusta VARI 91-29399 Allan'sólarhringinn Oryggisþjónusta síðan 1 9Ó9 LOKI Fróöleg bók þetta! Opinberri heimsókn Vigdfsar Finnbogadóttur, forseta Islands, til irlands lauk i gær. Hér sjást hinir tignu gestir skoóa fimm þúsund ára gamalt grafhýsi við Newgrange. Nánar er greint frá lokadegi heimsóknarinnar á bls. 4. DV-símamynd Brynjar Gauti Fróðihf.: Maria vill stödva útgáfuævi- sögunnar - skrásetjari viU gefa út „Þetta mál leysist allavega ekki á næstu vikum,“ sagði Gullveig Sæ- mundsdóttir, ritstjóri Nýs lífs, er DV spurði hana hvað liði bókinni um Maríu Guðmundsdóttur, fyrrum fyr- irsætu. María gerði á sínum tíma samning við útgáfufyrirtækið Fróða hf. um útgáfu á ævisögu sinni þar sem með- al annars yrði rakinn litríkur ferill hennar sem fyrirsætu og síðan tísku- ljósmyndara í París. Var Gullveig fengin til að skrifa bókina. Þegar hún var búin með hluta hennar kom í ljós að María var alls ekki ánægð með verkið. Náðist ekki samkomulag um framhaldið. Endirinn varð sá, að María rifti samningnum við Fróða og hyggst nú banna útgáfu bókarinn- ar. Gullveig hefur hins vegar fullan hug á að ljúka verkinu. Deiluaðilar hafa nú fengið lögfræð- inga sér til aðstoðar til að leiða deil- una til lykta. Gullveig kvaðst ekki vilja tjá sig um málið nú þar sem það væriáafarviðkvæmustigi. -JSS Veðrið á sunnudag og mánudag: Austlægar áttir og hlýnandi veður Á sunnudag eru horfur á suðaustlægri átt og hlýnandi veðri. Dálítil rigning verður um landið sunnanvert en þurrt og víða léttskýjað norðanlands og á Vestfjörðum. Á mánudag má búast við hvassri austanátt og rigningu víða um land, einkum suðaustan- og austanlands. Hiti verður á bilinu 3-8 stig.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.