Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1991, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1991.
3
Fréttir
>
>
Guömundur Magnússon prófessor:
Hálf gerð f lóttamannaleið
að bíða með ECU-tengingu
- ECU færir völdin frá stjómmálamönnum yfir á markaðinn
Guðmundur Magnússon, hagfræð-
ingur og prófessor við Háskóla ís-
lands, segist sammála þvi að gengi
íslensku krónunnar verði tengt við
myntir Evrópu, ECU. Það tryggi bet-
ur fastgengisstefnu og þar með nauð-
synlegan stöðugleika í verðlagsmál-
um. Kosturinn sé sá að völd stjórn-
málamanna séu minnkuð og þau
færð yfir á markaðinn. Guðmundur
vill hins vegar ekki bíða til ársins
1993 heldur tengja krónuna strax við
ECU.
„Rökin fyrir því að fylgja ECU eru
alltaf að veröa sterkari. Um þrír
fjórðu af okkar viðskiptum eru við
Evrópu og því er nauðsynlegt að
fylgja myntum Evrópulanda meira á
kostnað dollarans."
Það er flóttamannaleið
að bíða með ECU-tengingu
Guðmundur segir ennfremur að það
myndi auka trú manna á fastgengis-
stefnu núverandi ríkisstjórnar ef
krónan yrði tengd ECU sem fyrst.
„Mér heyrist að menn vUji fá frest
tU að laga svo og svo margt í íslensku
efnahagslífi áður. Það er að nokkru
leyti rétt. En mér fmnst það vera
hálfgerð Uóttamannaleið að vera að
bíða með þetta of lengi.“
- Hvernig rökstyður þú það?
„Ríkisstjórnir á íslandi eru búnar
að heykjast svo oft á að framfylgja
yfirlýstri stefnu sinni, fastgengis-
stefnunni. Ég tel að sú stefna verði
ekki trúverðug núna nema hnykkt
verði á henni með því að tengjast
ECU strax. Ef stjórnmálamenn vilja
láta taka sig trúanlega verða þeir að
gera eitthvað meira en segjast ætla
að halda genginu föstu. Þeir hafa
þarna tæki í höndunum til þess.“
- En eru forsendur til að tengjast
ECU strax. Eru ekki of miklar sveifl-
ur í efnahagslífinu?
„Ég held það. íslenskt efnahagslíf
sveiflast miklu minna en áður og
hagsveiflur hér eru ekkert meiri en
til dæmis hjá Norðmönnum núna.
Eftir að kvótakerfið var tekið upp í
sjávarútvegi varð stöðugleikinn
meiri."
Völdin frá stjórnmálamönnum
yfir á markaðinn
- Þýðir tenging við ECU að völdin
séu tekin af íslenskum stjórnmála-
mönnum?
„Ég held að það væri til mikilla
bóta ef völd stjórnmálamanna
minnkuðu og þau færðust meira yfir
á markaðinn. Og raunar er það ein-
mitt það sem verið er að gera með
því að tengjast ECU. Hins vegar er
yfirlýsing um að fylgja ECU ekki eins
sterk og að ganga einfaldlega í mynt-
bandalag."
- Árið 1988 fylgdi ríkisstjórn íslend-
inga mjög ákveðið fastgengisstefnu
með þeim afleiðingum að allt var
komið í kalda kol árið 1989 og þá
þurfti að snarfella krónuna til að ná
■ upp fyrra raungengi. Hver er munur-
inn á fastgengisstefnu með ECU og
þeirri fastgengisstefnu sem fylgt var
árið 1988?
„Munurinn er sá aö það var ekki
gengisstefnan sem var röng árið 1988
heldur peningamálin og ríkisfjár-
málin. Þau fóru úr böndum. ECU
veitir það aðhald að taka verður
stefnuna í peningamálum og ríkis-
fjármálum alvarlega. Mér sýnist það
vera-gert í ríkisíjármálunum núna
Guðmundur Magnússon, prófessor
í hagfræði. „Með ECU er verið að
minnka völd stjórnmálamanna og
auka völd markaðarins."
og shkt verður einnig að gera í pen-
ingamálunum."
Kemur ECU í veg fyrir
verðbólgu-kjarasamninga?
- Hindrar yfirlýst tenging við ECU
kjarasamninga sem ganga út á
launahækkanir er fara beint út í
verðlagið?
„Því hefur verið lýst yfir af stjórn-
völdum að hornsteinninn í kjara-
samningunum sé fast gengi og þau
viiji semja á þeim nótum. Eg trúi að
það hjálpi mikið ef aðilar vinnu-
markaðarins geta treyst því að það
verði stöðugt verðlag. En jafnframt
veitir það þeim sjálfum líka meira
aöhald við gerð samningana."
- Er með tengingunni við ECU runn-
in upp sú sögulega stund að íslenska
krónan verði sterk mynt sem verði
gjaldgeng erlendis?
„Já, ég geri mér vonir um það.“
Að lokum má geta þess að skil-
greiningin á ECU er þessi: ECU, evr-
ópska mynteiningin European Curr-
ency Unit. Gjaldmiðill sem notaður
er í viðskiptum á milh ríkja. Gengi
hans tekur tilht til myntkörfu sem
sett er saman úr gjaldmiðlum hinna
tólf ríkja Evrópubandalagsins. Vægi
þýska marksins í ECU er 30,3 pró-
sent, franska franksins 19,1 prósent
og breska sterlingspundsins 12,7 pró-
sent. Aðrar myntir vega minna. -JGH
>
>
)
i
t
'
I
í
Nissan Sunny SLX 1.6 16 ventla
hlaðinn aukahlutum s.s. rafdrifnum rúðum,
rafstillanlegum speglum, upphituðum sætum,
vökvastýri, samlæstum hurðum og m.fl.
Fáanlegur í ýmsum útfærslum.
Bflasýning laugardag og sunnudag kl. 1400-1700.
Nissan Sunny SLX1.6 3ja dyra. Verð kr. 869.000.
4ra dyra stallbakur. Verð kr. 949.000.-
5 dyra hlaðbakur. Verð kr. 944.000.-
Ingvar
Helgason
Sævarhöfða 2
sími 91-674000
NISSAN SUNNY SLX 1.6
GJÖRBREYTTUR OG GLÆSILEGUR