Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1991, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1991, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1991. Skák Bd3 c4 9. Bf5 Da5 10. Dc2 0-0 11. 0-0 He8 Talið best því að svartur treystir völdin á e4-reitnum en þangað myndi hvítur gjarnan vilja koma peði sínu. Karpov hugsaði sig nú lengi um og eftir næsta leik hafði hann eytt 40 mínútum en Jóhann aðeins 9 mínútum. 12. Bh4!? Dæmi um þennan leik er að finna í nokkrum nýlegum skákum en áður var 12. Rd2 talið nauðsynlegt til að valda e4 og undirbúa f2-f3 og síðan framrás e-peösins. Eftir 12. Rd2 g6 er 13. Bh3 möguiegt og einn- ig 13. Bxd7 Rxd7 14. f3 er hvítur getur gert sér einhverjar vonir um frumkvæði. 12. - g6 13. Bh3 Bxc3 14. bxc3 Re4 15. Hfcl! I i. I 1 á 1 1 w 1 á A 4 Ji, A A A A lil A A s : CfcQfl JSSZ& Síðasti leikur Karpovs er mun sterkari en 15. Hacl Rb6 (eða 15. -. Da3 eins og tefldist í skák Hoek- sema og Brenninkmeijer á hol- lenska meistaramótinu í ár) 16. Skák Jón L. Árnason Bxc8 Hac8 er svartur hefur ákveðin færi á drottningarvæng. Með því að leika kóngshróknum á cl, má svara 15. - Rb6 meö 16. Bxc8 Hac8 17. Habl og síöan 18. Hb4 og „frysta“ færi svarts á drottningar- væng í eitt skipti fyrir öll. Karpov hafði nú notað klukkustund og níu mínútur af umhugsunartíma sín- um - Jóhann klukkustund minna en nú var komið aö honum að leggj- ast í þunga þanka. 15. - ffi?! Þessi og næsti leikur orka tví- mælis því aö svartur veikir stöðu sína á kóngsvæng. Betra er 15. - Kg7. 16. Rd2 g5 17. Bg3 Rb6?! Nú er Jóhann óskamkvæmur sjálfum sér. Fyrst hann fór af stað með peðin kóngsmegin hefði hann mátt reyna 17. -Rffiog setja riddar- ann á g6. 18. Bxc8 Haxc8 19. Rfl Ra4 20. f3 Rxg3 21. hxg3 b5 22. g4! Hc6 23. Kf2 Hce6 24. a3!! Að mínum dómi er þetta besti leikurinn í skákinni! Þessi varúð- arráðstöfun á eftir að koma að góð- um notum. 24. - a6 25. Dd2 Áætlun Karpov er einfóld: Næst 26. Hc2, síöan 27. Hel og þá er e- peðið nægilega valdaö, svo að ridd- aratilfærsla til f5 getur orðið að veruleika. Ef Jóhann reynir að mæta þessu með þvi aö snúa sínum riddara til varnar gæti teflst 25. - Rb6 26. Hc2 Rc8 27. Hel Rd6 28. Rg3 Dd8 29. Rf5 Rxf5 30. gxf5 H6e7 31. g4! og fyrr eða síðar kemur e3-e4 og svartur lendir í úlfakreppu. 25. - Kh8!? 26. Hc2 Dc7 27. Hel h5! Eina vonin. Með því að fórna peði linar svartur tök hvíts á f5. 28. gxh5 f5 29. Hccl Df7 30. Rg3 I m A i Á á á á A % á A A A H A B C ■ TSSf: D A A 5 E F th A G H 30. - f4? Hér er Jóhann of bráður á sér og eftir þetta vinnur Karpov þving- að. Hann hefði getað veitt meiri mótspyrnu með því að bíða átekta, t.d. með 30. - Hf8 en eftir 31. Dc2 er staðan enn erfið. Nú gengur ekki 31. - f4? 32. exf4 gxf4 33. Rfl Hxel 34. Hxel Dxh5 35. He5 eins og Karpov sýndi fram á eftir skákina. 31. exf4 gxf4 32. Re2 Df6 „Milliskákin" á g6 gerir það að verkum að svartur getur ekki vald- að f-peðiö. T.d. 32. - Hf6 33. Rxf4! Hxel 34. Rg6+ o.s.frv. 33. Rxf4 Dh4+ 34. g3 Dh2+ 35. Rg2 Hxel 36. Hxel Hxel 37. Dxel Rb2 Riddarinn er kominn í leikinn og ætla mætti að Jóhann hefði ein- hverja von. Karpov er fljótur að telja honum trú um hið gagnstæða. 38. De8+ Kh7 39. f4! Rd3+ 40. Kf3 Dhl 41. De7+ Kh8 42. h6! Ddl+ 43. De2 Dhl 44. Kg4! Ddl Eða 44. - Dxh6 45. De8+ Kg7 (45. - Kh7 46. Df7 + Dg7 47. Dxg7 + Kxg7 48. Re3) 46. Rh4 með vinningsstöðu. Takið eftir að í endatöflunum á svartur enga von því að 24. a3!! rændi hann möguleikum á að bijótast í gegn. 45. Dxdl Rf2+ 46. Kg5 Rxdl 47. f5 Rxc3 48. ffi Og Jóhann gafst upp. -JLÁ Heimsbikarmót Flugleiða: Lærdómsríkt að fylgjast með Karpov Er fram líða stundir verður heimsbikarmóts Flugleiða e.t.v. fyrst og fremst minnst vegna þátt- töku heimsmeistarans fyrrverandi, Anatolys Karpov, sem teflir nú í fyrsta sinn hér á landi. Þótt Karpov hafi orðið að játa sig sigraðan gegn Ljubojevic í áttundu umferð er eng- inn vafi á því að hann hefur teflt allra manna best á mótinu. Mikill fengur er að því að fá að fylgjast með honum „í návígi“ við taflborð- ið og skákir hans eru sérlega lær-. dómsríkar. Fyrir réttri viku tefldi Karpov við Jóhann Hjartarson en skákunn- endur biðu sem vonlegt er spenntir eftir þeirri glímu. Þeir voru ekki sviknir af skákinni þó svo að „okk- ar maður“ hafi beðiö lægri hlut. Karpov þurfti að sýna hvað í hon- um býr og tefldi skákina frábær- lega vel. Jóhann þurfti ekki annað en að leika peðum sínum ógætilega fram á kóngsvængnum svo að einn reit- ur í herbúðum hans varð óvarinn. Þetta nægöi Karpov til sigurs! Er þeir skoðuðu skákina aö henni lok- inni var með ólíkindum hve Karpov hafði skynjað blæbrigði stöðunnar vel. Einu gilti hvaða möguleikum Jóhann stakk upp á, Karpov hafði svar á reiðum hönd- um við þeim öllum og ávallt tókst honum að sýna fram á yfirburða- stöðu. Áður en við skoðum þessa lær- dómsríku skák skulum við leiða hugann að því hverjir tefla saman um helgina: 10. umferð, laugardag: Jóhann - Chandler Karpov - Andersson Khalifman - Ivantsjúk Gulko - Ljubojevic Portisch - Timman Beljavskí - Seirawan Speelman - Ehlvest Salov - Nikolic 11. umferð, sunnudag: Ljubojevic - Jóhann Seirawan - Karpov Ivantsjúk - Gulko Nikolic - Beljavskí Timman - Salov Chandler - Speelman Ehlvest - Portisch Andersson - Khalifman Nk. mánudag og fóstudag verða tefldar biðskákir en aðra daga heíj- ast umferðir kl. 17.10 á Hótel Loft- leiðum. Lokaumferðin verður á laugardag eftir viku. Hvítt: Anatoly Karpov Svart: Jóhann Hjartarson Ragozin-vörn 1. d4 RfB 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3 Bb4 Fjölbreytni Jóhanns í byrjanav- ali er með mestu ólíkindum - varla er sú byrjun til sem hann hefur ekki einhvem tíma teflt. Hér er hartn að því er ég best veit að tefla Ragozin-vörn í fyrsta skipti. Sjálf- sagt gert í þeim tilgangi að koma Karpov á óvart og virðist hafa tek- ist bærilega því að Karpov notaði mikinn tlma á fyrstu leikina. Þessi leikaðferð er kennd við sov- éska stórmeistarann Vjatsjeslav Ragozin (1908-1962), sem var að- stoðarmaður Botvinniks, fyrrver- andi heimsmeistara, um tíma. Önnur nafngift er „Ragozin- afbrigðið af drottningarbragði" og sumir vilja blanda Nimzo-ind- verskri vöm í máliö enda getur hvítur nú meö 5. e3 komið taflinu í hefðbundinn farveg þeirrar byij- unar. 5. cxd5 exd5 6. Bg5 Rbd7 7. e3 c5 8. -10. og 11. umferð tefldar um helgina Anatoly Karpov og Jóhann Hjartarson við upphaf skákar sinnar í fimmtu umferð. Jóhann veikti stöðu sína „örlítið" með framrás peðanna á kóngs- væng og Karpov þurfti ekki meira til að vinna skákina.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.