Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1992, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1992.
Fréttir
Verð á lýsi og mjöli hefur heldur lækkað:
Aukinn loðnukvóti hef ur
áhrif á afurðaverðið
- verðið hefur verið 21 þúsund krónur fyrir lýsistonnið en 34 þúsund krónur fyrir mjölið
„Verðið hefur verið bærilegt að
undanfömu. Eftirspum eftir loðnu-
afuröum hefur þó minnkað nokkuð
eftir áramótin og því á ég von á því
að verðið fari heldur niður á við. Það
hefur verið að undanfómu um 360
dollarar, eöa um 21 þúsund krónur
fyrir lýsistonnið, en 345 sterlings-
pund, eða rúmlega 34 þúsund krón-
ur, fyrir tonn af mjöh. Hitt er ljóst
að fréttir héðan um aukinn loðnu-
kvóta hafa áhrif á verðið til lækkun-
ar. Jafnvel þótt okkur takist ekki að
veiöa þennan kvóta,“ sagöi Jón
Reynir Magnússon, framkvæmda-
stjóri Síldarverksmiðja ríkisins, í
samtali við DV.
Jón sagði að afurðaverðið væri nú
hærra en það var á síðustu loðnu-
vertíð. Þá var lýsistonnið á um 300
dollara og tonnið af mjöli á um 300
sterlingspund.
Fyrir nokkrum ámm var mjög
miMð um fyrirframsölu á loðnuaf-
urðum. Úr henni hefur dregið á allra
síðustu ámm, enda loönuveiðarnar
gengið skrykkjótt.
Jón Reynir sagði að það væri þó
alltaf eitthvað um fyrirframsölu.
Þannig væri það einnig nú, þótt það
væri ekki í sama mæh og á árum
áður. Menn færu varlegar enda
reyndist mjög erfitt á stundum að
standa viö fyrirframsöluna. Þannig
hefði þaö Uka verið í haust hjá þeim
sem þá höfðu gert fyrirframsamn-
inga.
-S.dór
LaxáíKjós:
Stórflutningabíil
faukáhliðina
Stór flutningabfll með tengi-
vagni fauk á hUðina við þjóðveg-
inn hjá Laxá í Kjós um klukkan
átta í gærkvöldí. Mikið hvass-
viðri var á þessum slóðum eins
og annars staðar suðvestanlands.
í bílnura var þrennt, bílstjóri
og vanfær kona ásamt manni sem
vom á leið til Reykjavíkur.
Sjúkrabifreið frá Ölafsvík kom
að staðnum stuttu eftir að óhapp-
ið varð. Farþegamir vom teknir
upp og fluttir á sjukrahús til
Reykjavíkur. Þau mun ekki hafa
sakað.
FlutningabflUnn lá enn við veg-
inn hjá Laxá í morgun. Þá átti að
losa úr honum vörur til að hæg-
ara yrði að reisa hann viö aftur.
-ÓTT
Brynjólfur Karlsson, birgöavörður Almannavarna Reykjavíkur við eina kistuna.
Almannavamir Reykjavíkur:
Gáfu verkfærakistur
fyrir 1400 þúsund
„Eftir óveðrið í fyrra stóðu björg-
unarsveitimar heldur illa að vígi ef
annað eins óveður riði yfir landið.
Ekki vom næg verkfæri til að takast
á við slikar hamfarir. Almannavam-
ir Reykjavíkurborgar ákváðu þá að
gera eitthvað í málinu. Sveitunum
var sendur óskaUsti og reyndum við
að uppfyUa hann og gott betur," sagði
Brynjólfur Karlsson, birgðavörður
Almannavama Reykjavíkur, í sam-
taU viö DV.
Almannavamir Reykjavíkur hafa
gefið Hjálparsveit skáta, Flugbjörg-
unarsveitinni, Björgunarsveitinni
Ingólfi og lögreglunni í Reykjavík
veglegar verfærakistur og álstiga.
Fengu björgunarsveitimar þrjú sett
af kistum og stigum en lögreglan eitt
sett. í hverri kistu er fjöldi verkfæra
sem koma aö góðu gagni við hvers
kyns hjálparstarf: hamrar, sagir,
kúbein, saumur, þykkt plast og
margt fleira.
Að sögn Brynjólfs er verðmæti
hverrar kistu, með stiga, um 140 þús-
und krónur. AUs nemur gjöf AI-
mannavarna borgarinnar því 1400
þúsundum króna.
-hlh
Salan á Skipaútgerð ríkisins:
Þingmenn óttast skerta
þjónustu við litla staði
- samgönguráðherra segir enga ástæðu til að óttast það
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra gaf á Alþingi í gær skýrslu um
gang mála varðandi söluna á Skip-
aútgerð ríkisins. Rakti hann þar
samningaviðræður, bæði við Sam-
skip og þann hóp manna sem gerði
tilraun til stofnunar hlutafélags til
að kaupa skipaútgerðina. Hann lauk
skýrslunni á að greina frá því að
samningar hefðu veriö gerðir við
Samskip um þurrleigu og síðan kaup
á Esjunni. Einnig að hafnar væm
viðræður um hugsanleg kaup Sam-
skipa á Heklunni líka.
Höfuðástæðuna fyrir því að Skipa-
útgeröin er lögð niöur sagði ráðherra
vera mikinn taprekstur á skipafélag-
inu. Hefði verið gert ráð fyrir að
Skipaútgerðin þyrfti að fá 230 millj-
óna króna ríkisstyrk fyrir árið 1992.
Hann benti einnig á stórbættar sam-
göngur á landi.
Fjölmargir þingmenn tóku þátt í
umræðunni. Það sem einkenndi mál-
flutning allra landsbyggðarþing-
mannanna var óttinn við að þjónusta
við smærri byggðarlög út um land
yrði stórlega skert eða aflögð með
öllu með þvi aö færa Samskipum
þessa flutninga að hluta.
Einnig bentu þingmenn á aö nauð-
synlegt væri að tryggja með ein-
hverjum hætti atvinnu starfsmanna
Skipaútgerðarinnar.
Halldór Blöndal samgönguráð-
herra sagðist ekki óttast að Samskip
þjónustaði ekki þá staði sem Skipaút-
gerðin hefði gert. Hann benti á að
Skipaútgerðin hefði ekki komið við
á öllum höfnum út á landi. Þá sagð-
ist hann hafa lagt mikla áherslu á
það í samningum við Samskip að
starfsfólk Skipaútgerðarinnar hefði
forgang að vinnu þegar og ef Sam-
skip fjölga starfsmönnum vegna
þessarar auknu þjónústu.
-S.dór
Launakostnaður skorinn niður á Ríkisspítulunum:
Læknum bannað að
vinna utan vakta
- yfirvinnutLmar umfram 20 á mánuði ekki greiddir
Stjórnendur Rikisspítalanna hafa
nú í undirbúningi harkalegar að-
gerðir til að draga úr launakostnaði.
Með aðgerðunum er ætlunin að
skera launakostnaðinn niöur um þau
6,7 prósent sem fjármálaráðherra
hefur gert öllum ríkisstofnunum að
spara. Tilkynning um þetta hefur nú
veriö send öllum yfirmönnum spítal-
ans.
Meðal þeirra aðgerða sem nú eru
í undirbúningi er að banna ailar
ráðningar í störf sem losna án þess
að til komi sérstakt samþykki for-
stjóra, framkvæmdastjóra eða starfs-
mannastjóra stofnunarinnar. Ráðn-
ingarsamningar, sem gerðir verða
án þess að samþykki hggi fyrir, verða
gerðir ógildir og endursendir til hlut-
aðeigandi stofnana og deilda Rikissp-
ítalanna.
Auk þessa er ætlunin að banna alla
yfirvinnu hjá fólki í hlutavinnu
nema í undantekningartilvikum. Yf-
irvinna lækna utan vakta verður
heldur ekki heimiluð nema sérstak-
lega standi á. Þá er markmiðið að
setja þak á yfirvinnu allra starfs-
manna. Yfirvinna umfram 10 tíma á
hálfs mánaðar fresti verður ekki
greidd nema fullnægjandi skýringar
fylgi vinnuskýrslu er meðal þess sem
segir í tilkynningu stjórnenda Rík-
isspítalanna. -kaa
Lágmarksaðhlynning íyrirskipuð á öldrunarlækningadeild:
Sjúklingar ekki þvegn-
ir né teknir úr rúmi
- verið að tala um bnnguþvott, segir hjúkrunarforstjórinn
„Vegna spamaöar Borgarspítala
er bannað að kalla út extravaktir
vegna veikinda. í þeim tilfellum skal
skerða þjónustu til sjúkhnga, til
dæmis sleppa aö taka fram úr rúmi,
veita lágmarksþvott og að öllu leyti
lágmarksaðhlynningu," segir í tíl-
kynningu til starfsfólks á öldnmar-
deild B 5 á Borgarspítalanum. Tfl-
kynning þessi hangir þar uppi og er
undirrituð af yfirmönnum deildar-
innar.
Á sjúkralækningadeild B 5 eru rúm
fyrir 27 sjúklinga. Um er aö ræða
mjög sjúkt aldrað fólk sem þarf mikla
aðhlynningu. Umrædd tilkynning
hefur nú veriö tekin niður.
Að sögn Sigríðar Snæbjömsdóttur
hjúkrunarforsfjóra var þessi til-
kynning hengd upp um síðustu helgi
af defldarstjórunum í góðri trú enda
séu fyrirhugaðar miklar aðhalds- og
sparnaöaraögerðir. Þær aðgerðir
segir hún þó að minnstum hluta
koma til með að bitna á öldmðum
sjúklingum spítalans. Á umræddri
deild hafi nokkuð kveðið að ónauð-
synlegri yfirvinnu og við því hafi
deildarstjóramir í raun verið að
sporna.
„Ég skal viðurkenna að þessi texti
er klaufalegur. Máliö er sjúkhngarn-
ir era þvegnir á hverjum degi en
þama er kannski verið að tala um
að minnka bringuþvott og eitthvað
svoleiðis. Það er leiðinlegt að þessi
texti skuh hafa farið upp á vegg. En
aö sama skapi á ekki að þurfa að
minna fuhorðið fólk á að það á ekki
að kaha út aukavaktir þegar vel er
mannað."
-kaa
Sauðárkrókur:
Loðdýrabændur fá áfram
fóður frá frystihúsinu
Þórhallur Asmundssofn, DV, Sauöárkróki:
Hraðfrystíhúsiö Skjöldur hér á
Sauðárkróki mun í ár halda áfram
rekstri fóðurstöðvarinnar sem áöur
hét Melrakki. 18 loðdýrabændur á
sölusvæði stöðvarinnar ættu þvi að
vera tryggir með fóður þetta árið.
Loðdýrabúin era langflest í Skaga-
firöi, aðeins tvö eftir í Húnaþingi.
{ samningi Stofnlánadeildar og
Skjaldar vora ákvæði um að aðilar
gætu sagt honum upp með tveggja
mánaöa fyrirvara áður en hann
rynni út um síðustu áramót. Yrði
það ekki gert framlengdist hann
sjálfkrafa um ár. Skjöldur tók við
rekstri fóðurstöðvarinnar í byijun
síðasta árs.
„Ég held að þetta eigi að sleppa,
enda höfum við reynt að halda
kostnaði eins mikið niðri og mögu-
legt er. Okkur hefur tekist að fá
hráefnið hér heima; fiskmetið,
beinin og lýsiö. Kaupfélagið hjálp-
aði okkur með það sem upp á hefur
vantað eins og lofað var er við tók-
um við rekstrinum á sínum tíma,“
sagði Ami Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Skjaldar.