Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1992, Qupperneq 3
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1992.
3
Fréttir
Samningar Vatnsberans hf. um stórfelldan útflutnlng vatns á lokastigi:
Samið um útf lutning á tæpum
20 milljónum lítra á mánuði
Vatnsberinn hf. í Hafnarfirði er að
ganga frá samningi um sölu á miklu
magni vatns til Saudi-Arabíu, Kúvæt
og Kanada. Er um aö ræða 15 milljón-
ir lítra á mánuði til tveggja fyrr-
nefndu landanna og 4,5 milljónir til
viðbótar til Kanada. Vatnið verður
einungis selt í 1,5 lítra flöskum. Véla-
kostur til framleiðslunnar verður
keyptur frá Þýskalandi. Það mun
kosta um 630 milljónir króna að
fullbúa verksmiðjuna vélum. Stefnt
er að því að hefja framleiðslu í sept-
ember næstkomandi og í allra síðasta
lagi 1. desember ef einhverjar tafir
verða, að sögn ÞórhaUs Gunnlaugs-
sonar framkvæmdastjóra
Á síðasta ári gerði Vatnsberinn hf.
samning við bandaríska fyrirtækið
United Gulf Trading sem er dóttur-
fyrirtæki OMNI-fjármálakeðjunnar.
Bandaríska fyrirtækið hefur einka-
rétt á allri framleiðslu Vatnsberans.
Það sér um markaðssetningu, sölu
og dreifingu á vatninu. Það hefur náð
samningum um sölu í Saudi-Arabíu,
Kúvæt og Kanada fyrir hönd Vatns-
berans. Hljóðar samningurinn upp á
10 milljónir 1,5 htra flaska á mánuði
til Saudi-Arabíu og Kúvæt. Salan til
Kanada er enn á tilraunastigi. Er
fyrirhugað að senda þangað 3 millj-
ónir af 1,5 lítra flöskmn á mánuði til
að byrja með.
Undirritun í vikunni
Samningar þessa efnis verða und-
irritaðir fyrir vikulokin ef allt fer
sem nú horfir. Þeir eru gerðir til tíu
ára með framlengingarétti til ann-
arra tíu.
Vélar til átöppunar mun Vatnsber-
inn kaupa frá Krupp-verksmiðjun-
um í Þýskalandi. I vikunni koma
hingað til lands menn frá verksmiðj-
unum til að undirbúa uppsetningu
þeirra. Eru þær væntanlegar hingað
til lands í maí. Þær munu kosta sam-
tals um 630 milljónir króna þegar
allt er komið. Byrjað verður með ein-
falda samstæðu en aukið við eftir
aðstæðum.
Bandaríska fyrirtækið sér um að
fjármagna vélakaupin og uppsetn-
ingu verksmiðjunnar. Það fær síðan
endurgreitt í vatni á næstu tíu árum.
Gert er ráð fyrir að verksmiðjan
verði komin með fulla afkastagetu á
miðju ári 1993.
Vatnið verður flutt út undir heitinu
Aquarius. Miðarnir á flöskurnar
verða prentaðir í verksmiðjunni.
Endurvinnsluvör-
urímikillisókn
Gylfi Kristjánsson, DV, Aknreyri:
Gúmmívinnslan hf. á Akureyri,
sem er endurvinnslufyrirtæki sem
vinnur vörur úr endurunnu gúmmíi,
sýndi 102% söluaukningu á síðasta
ári. Fyrirtækið hefur framleitt vörur
úr endurunnu gúmmíi síðan árið
1983 og söluaukning hefur verið jöfn
og þétt allan tímann þótt aukningin
hafi aldrei verið jafnmikil og á síð-
asta ári.
Á síðasta ári varð langmest sölu-
aukning í millibobbingum sem not-
aðir eru á troll en salan á þeim um
það bil ijórfaldaðist. Þá framleiðir
Gúmmívinnslan utanhússgólfefni
sem m.a. er mikið notað á leikvöllum,
við sundlaugar og á svölum og sól-
pöllum. Þessi framleiðsla gengur
undir nafninu „GV-reiturinn“.
Af annarri framleiðslu Gúmmí-
vinnslunnar má nefna mottur sem
notaðar eru í bása í gripahúsum, á
vinnustööum og um borð í skipum.
- langstærstur hluti þess fer til Saudi-Arabíu
Vatnið verður væntanlega tekið úr
Kapelluhrauni. Þar verða á næst-
unni hafnar boranir og sett upp
stöðvarhús á vegum fyrirtækisins.
Vatninu verður síðan veitt í lokuðum
æðum beint til verksmiðjunnar.
Vatnið í Kapelluhrauni er um 1100
ára gamalt. Rannsóknir, sem gerðar
hafa verið á því, sýna að það stenst
ströngustu kröfur.
35-45 starfsmenn
Vatnsberinn hefur tekið á leigu
4500 fermetra húsnæði að Hjalla-
hrauni í Hafnarfirði þar sem starf-
semin verður til húsa. Að auki fylgir
10.500 fermetra lóð sem verður notuð
sem gámasvæði. Er gert ráð fyrir að
við verksmiðjuna starfi 35-45 manns.
Mötuneyti verður komið upp á
staðnum, svo og rúmgóðri aðstöðu
fyrir starfsfólkiö.
Að sögn Þórhalls standa nú yfir
viðræður við íslensku skipafélögin
um flutning á vatninu. Er um að
ræða flutning á 420 fjörutíu feta gám-
um á mánuði. Þórhallur kvaðst ekki
vita enn hvort hægt yröi að semja
við íslenskt skipafélag um flutning
alla leið. „En við leggjum höfuðá-
herslu á að hafa öll þau störf í hönd-
um íslendinga sem við verður kom-
ið,“ sagði hann.
-JSS
Þórhallur Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Vatnsberans hf., fyrir utan húsnæði fyrirtækisins við Hjallahraun 2 í
Hafnarfirði. DV-mynd GVA
HF
ióirút
afsláttur af öllum vörum
Sértilboð Metró Sértilboð Málarans
25% afsláttur af stökum teppum og dreglum. 30% afsláttur af lituðum blöndunartækjum. 25% afsláttur af sturtuhengjum og baðmottusettum. Ódýr húspögn í barnaherbergið eða sumarbustaðinn. 20% afsláttur af öllum Rowney listmálaravörum. Teppabútar í úrvali.
Gerið góð kaup hjá okkur !
/Stma METRÓ HAFNARFIROI í MJODD <®í> G.Á. Böðvarsson hf. SELFOSSI Giensásvegi 11 • Reykjavik • Simi 83500