Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1992, Síða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 21. JÁNUMalÖ92.
Viðskipti
Raunvextir útlána voru á síðasta ári þeir hæstu um langt skeið:
Gjaldeyrisreikningar
skiludu lágri ávöxtun
- neikvæð ávöxtun sparibóka og tékkareikninga
Ólafur K. Ólafs hagfræðingur:
„Hæstu raunvextir um langt skeið á
útlánum síðasta árs.“
Gjaldeyrisreikningar skiluðu lágri
ávöxtun á síðasta ári. Neikvæð
ávöxtun var á sparibókum og tékka-
reikningum banka og sparisjóða.
Fólk þurfti að greiða að jafnaði um
10 prósent raunvexti af víxillánum á
síðasta ári. Svipaða raunvexti þurfti
fólk að greiða af óverðtryggðum
skuldabréfum. Raunávöxtun banka
og sparisjóða af 15 til 24 mánaða vísi-
tölubundnum innlánsreikningum
var mjög svipuð á síðasta ári.
Þetta eru niöurstöður Ólafs K. Ól-
afs, hagfræðings í peningamáladeild
Seðlabankans, í tveimur athyglis-
verðum greinum sem hann hefur
skrifað í efnahagstímaritið Vísbend-
ingu að undanfómu.
Hæstu útlánsvextir
um langt skeið
Ólafur segir: „Raunvextir á útlán-
um á árinu 1991 voru þeir hæstu um
langt skeið ef árið 1988 er undanskil-
ið. Það er athyglisvert í ljósi lágra
vaxta á fyrri hluta ársins 1991. Þetta
bendir til þess að útlánsvextir hafl
verið verið mjög háir á seinni hluta
ársins 1991.“
Víxilvextir vom hærri á síðasta ári
en á árinu 1990. Að jafnaði þurftu
lántakendur að greiða 9,1 prósent
raunvexti árið 1990 af víxlum en 10,4
prósent í fyrra.
Raunvextimir ruku upp síðari
hluta ársins þegar verðbólgan snar-
lækkaði en bankar og sparisjóðir
treguðust við að lækka. Þeir unnu
því upp þaö vaxtatap sem þeir urðu
fyrir á fyrri hluta ársins í fyrra og
raunar gott betur.
Raunvextir verðtryggðra
lána hækkuðu
í greinum Ólafs kemur fram að
raunvextir á vísitölubundnum lán-
um hækkuðu á síðasta ári frá árinu
áður.
„Á árinu 1991 vom bankar og
sparisjóðir nokkuð samstiga í breyt-
ingum vaxta á vísitölubundnum lán-
um en meðaltal þeirra fór úr 8 pró-
sentum í 10 prósent um mitt ár. Vext-
ir bankanna voru aö meðaltali 9,1 til
9,4 prósent á árinu 1991 en 7,6 til 8,5
prósent árið 1990.“
Ólafur fjallar um breytingar í for-
ystu hárra útlánsvaxta: „Þegar vext-
ir banka og sparisjóða lækkuðu á
haustmánuðum varð fljótlega ljóst
að sparisjóðir og Búnaöarbanki tóku
stærri sf: ■ f í lækkun vaxta á óverð-
tryggðum lánum en Landsbanki og
íslandsbanki.
Á árinu 1990 voru hæstu útláns-
vextir hjá Landsbanka og íslands-
banka en á árinu 1990 var íslands-
banki ásamt sparisjóðunum yfirleitt
með hærri vexti en aðrir. Hugsan-
lega em ástæður þessara umskipta
auknar afskriftir útlána."
Bankar og sparisjóðir hafa vegna
vaxandi samkeppni um spariféð
greitt mjög háa innlánsvexti af
bundnum reikningum. Til dæmis
bera vísitölubundin innlán bank-
anna næstum jafnháa vexti og spari-
skírteini ríkissjóðs. „Það bendir til
þess að bankar og sparisjóðir séu
ekki eingöngu í samkeppni innbyrðis
heldur einnig við aðra aðila á fjár-
magnsmarkaönum."
Skiptikjarareikningar
Ólafur segir um skiptikjarareikn-
inga: „Á árinu 1991 buðu eingöngu
Búnaðarbanki og sparisjóðimir
bundna innlánsreikninga með
skiptikjöram. Raunávöxtun þeirra á
árinu 1991 var 6,8 prósent að meðal-
tah en 5,7 prósent 1990, hækkaði um
1,1 prósentustig."
Hæsta ávöxtun innlána hjá bönk-
um og sparisjóðum á síðata ári var
á vísitölubundnum innlánum, 15 til
24 mánaða. Þetta era bundnir inn-
lánsreikningar.
Bundnir innlánsreikningar
Bundnir innlánsreikningar voru
eftirfarandi hjá bönkunum og spari-
sjóðum á síðasta ári:
Sparisjóðir 7,2%
íslandsbanki 7,1%
Búnaðarbanki 7,0%
Landsbanki 6,6%
Ljóst er af þessu að mjótt er á mun-
unum á milli banka og sparisjóða í
raunávöxtun bestu reikninga sem
þeir bjóða. Sparisjóðimir era í efsta
sæti með 7,2 prósent raunávöxtun en
Raunvextír víxillána
m 1990
O 1991
10,6 10,4 10,0 10 0
9,4... „ „ 8,9 '
Raunávöxtun alm. sparisjóðsb.
— meðaltal allra banka —
-3,2 -4,5 |
-6,0
T— y— T— y—
P 05 05 0>
o ‘ • —L
05 05 T“ 'CÖ 'Cö <T5
r-I c\i co
DV
Óverðtryggð skuldabréf
raunvextir allra banka og sparisj.
| j
. '
1 1
118,8
11,0
4,9
CT
O U—'
CT 'CO
CT
05 05
'Cö
cvi
•cö
có
05
'CÖ
Eau
Raunávöxtun gjaldeyrisreiknings
— meðaltal allra banka —
Pund ■ 1990
DV
Fólk greiddi aö jafnaði um 10 prósent raunvexti á víxillánum á síðasta ári. Raunvextir óverötryggðra skuldabréta
ruku upp seinni hluta árs, raunávöxtun gjaldeyrisreikninga var léleg og raunávöxtun almennra sparibóka var
neikvæð, þó ekki síðasta ársfjórðunginn þegar verðbólga mældist tvo mánuði í kringum núlliö.
hinir eru mjög nálægt þeirri ávöxt-
un.
Ólafur minnist á ávöxtun spari-
bóka og tékkareikninga. „Fyrstu þrjá
ársfjórðungana var hún neikvæð um
3 til 6 prósent en hins vegar jákvæð
á fjórða ársfjórðungi, 3,3 prósent að
meðaltali."
Um tékkareikninga: „Raunávöxt-
un almennra tékkareikninga er jafn-
an mjög neikvæð. Á árinu 1991 var
hún -6,4 prósent að meðaltali."
Léleg ávöxtun á
gjaldeyrisreikningum
Raunávöxtun gjaldeyrisreikninga
var léleg á síðasta ári. „Árleg raun-
ávöxtun dollarareikninga var nei-
kvæð annað árið í röð.“
Og áfram: „Hæsta raunávöxtun á
innlendum gjaldeyrisreikningum á
árinu 1991 reyndist hins vegar vera
af innstæðum í japönskum jenum hjá
sparisjóðunum, 7,4 prósent, og
sænskum krónum, 4,5 prósent." -JGH
Peningamarkaður
INIMLÁNSVEXTIR (%) hæst
INNLAN OVERÐTRYGGÐ
Sparisjóðsbaekur óbundnar 2,25-3 Landsbanki
Sparireikningar
3ja mánaða uppsögn 2,25—4 Sparisjóðirnir
6 mánaða uppsögn 3,25-5 Sparisjóðirnir
Tékkareikningar, almennir 1 Allir
Sértékkareikningar 2,25-3 Landsbanki
VlSITÖLUBUNONIR REIKNINGAR
6 mánaöa uppsögn 3 Allir
1 5-24 mánaða 6,5-7,75 Sparisjóðirnir
Orlofsreikningar 5,5 Allir
Gengisbundnir reikningar í SDR 6,25-8 Landsbanki
Gengisbundnir reikningar í ECU 9-9,25 Búnaðarbanki
ÓBUNDNIR SÉRKJARAREIKNINGAR
Vísitölubundin kjör, óhreyfðir. 3,25-3,5 Búnb., Landsb.
óverötryggð kjör, hreyfðir 5,0-6,5 Islandsbanki
SÉRSTAKAR VERÐBÆTUR (innantlmabíls)
Vísitölubundnir reikningar 2,25-4 Landsb., Islb.
Gengisbundir reikningar 2,25-4 Landsb., Islb.
BUNDNIR SKIPTIKJARAREIKNINGAR
Vísitölubundin kjör 6,25-7 Búnaðarbanki
Óverötryggð kjör 7,25-9 Búnaðarbanki
INNLENDIR GJALDEYRISREIKNINGAR
Bandaríkjadalir 2,75-3,25 Islandsbanki
Sterlingspund 8,75-9,3 Sparisjóðirnir
Þýsk mörk 7.75-8,3 Sparisjóðirnir
Danskar krónur 7,75-8,3 Sparisjóðirnir
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
ÚTLAN ÖVEBÐTRYGC3Ð
Almennir víxlar (forvextir) 14,5-15,5 Búnaðarbanki
Viðskiptavíxlar (forvextir)1 kaupgengi
Almenn skuldabréf B-flokkur 15,25-16,5 Búnaðarbanki
Viöskiptaskuldabréf1 kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdráttur) 17,75-18,5 Allir nema Landsb.
útlAn VERÐTRYGGÐ
Almenn skuldabréf 9,75-10,25 Búnaðarbanki
AFURÐALÁN
Islenskar krónur 14,75-16,5 Búnaðarbanki
SDR 8,5-9,25 Landsbanki
Bandaríkjadalir 6,25-7 Landsbanki
Sterlingspund 1 2,6-1 3 Sparisjóðirnir
Þýsk mörk 11,5-11,75 Allir nema Islb.
Hú$m»öi$lán 4,9
Ufeyris$jöðslán 5-9
Dráttarvextir 23.0
MEÐALVEXTIR
Almenn skuldabréf janúar 16,3
Verðtryggð lán janúar 10,0
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala janúar 31 96 stig
Lánskjaravísitala desember 31 98stig
Byggingavísitala desember 599 stig
Byggingavlsitala desember 187,4stig
Framfærsluvísitala janúar 160,2 stig
Húsaleiguvlsitala 1,1 % lækkun 1. janúar
VERÐBREFASJÓÐIR hlutabréf
Gengl brófa veröbréfasjóöa Sölu- og kaupgengi að lokinni jöfnun:
KAUP SALA
Einingabréf 1 6,067 HÆST LÆGST
Einingabréf 2 3,226 Sjóvá-Almennar hf. - 5,65 L
Einingabréf 3 3,987 Armannsfell hf. 2,40 V
Skammtímabréf 2,022 Eimskip 5,05 K 5,80 V,S
Kjarabréf 5,700 Flugleiöir 1,85 K 2,05 K
Markbréf 3,059 Hampiðjan 1,50 K 1,84 K,S
Tekjubréf 2,118 Haraldur Böðvarsson 2,00 K 3,10 K
Skyndibréf 1,767 Hlutabréfasjóður VlB 1,04 V 1,10 V
Sjóösbréf 1 2,906 Hlutabréfasjóöurinn - 1,73 V
Sjóösbréf 2 1,937 Islandsbanki hf. _ 1,73 F
Sjóösbréf 3 2,009 Eignfél. Alþýðub. 1,25 K 1,70 K
Sjóðsbréf 4 1,725 Eignfél. Iðnaöarb. 1,85 K 2,22 K
Sjóösbréf 5 1,203 Eignfél. Verslb. 1,15 K 1,48 K
Vaxtarbréf 2,0477 Grandi hf. 2,10 K 2,70 S
Valbréf 1,9194 Olíufélagið hf. 4,50 K 5,00 V
Islandsbréf 1,276 Olís 2,10 L 2,18 F
Fjórðungsbréf 1,138 Skeljungur hf. 4,80 K 5,40 K
Þingbréf 1,272 Skagstrendingur hf. 4,60 F 4,90
öndvegisbréf 1,254 Sæplast 6,80 K 7,20 K
Sýslubréf 1,296 Tollvörugeymslan hf. 1,09 F 1,13 L
Reiðubréf 1,232 Útgerðarfélag Ak. 4.50 K 4,80 L
Launabréf 1,014 Fjárfestingarfélagið 1.18 F 1,35 F
Heimsbréf 1,079 Almenni hlutabréfasj. 1,10 F 1,1 5 F.S
Auölindarbréf 1,04 K 1,09 K,S
Islenski hlutabréfasj. 1,15 L 1,20 L
Síldarvinnslan, Neskaup. 3,10 L 3,50 L
1 Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila,
er miðað við sérstakt kaupgengi.
K= Kaupþing, V = VlB, L= Landsbréf, F = Fjárfestingarfélagið, S = Verðbréfav. Sam-
vinnubanka
Nánari upplýsingar um peningamarkaðinn birtast i DV á fimmtudögum.