Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1992, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1992.
9
IMönd
Þegar Gennadíj Burbulis, aö-
stoðarforsætisráöherra Rúss-
lands, kemur í tveggja daga heim-
sókn til Svíþjóðar í dag verður í
för með honum maður sem Svíar
ráku úr landi.
Vladímír Kozjemjakín heitir
: maðurinn og var áður í sovéska
sendiráðinu í Stokkhólmi. Hon-
um var vísað úr landi í Svíþjóð
fyrir lífstíð áríð 1990 þar sem
hann haföi orðið uppvís að at-
hæfi sem stefndi öryggi sænska
ríkisins í hættu.
Á sínum tíma sýndi hann ein-
um of mikinn áhuga á leynilegri
hátækni, m.a. innan sænska her-
gagnaiðnaðaríns.
Carl Bildt, forsætisráðhen-a
Svíþjóöar, segir að utanríkis-
ráðuneytið hafi minnt Rússana á
að Kozjemjakín hafi verið vísað
úr landi.
vilja landvist í
Ástralíu
Rumlega fimmtíu kínverskir
skipbrotsmenn sem urðu að
leggja krókódíia, eðlur og eitraða
snáka sér til munns til aö Iifa af
þrengingar í eyðimörk Ástralíu
eiga nú fyrir höndum annars
konar baráttu. Þeir viija nefni-
lega fá landvistarleyfi.
Kínverjamir sem voru um borð
í sextán raetra tréskipi sem
strandaði á gamlársdag undan
norðvesturströnd Ástralíu hafa
sagt innflytjendayfirvöldum að
þeir ætli aö sækja um pólitískt
hæli. Þeir verða að sanna fyrir
rétti að þeir eigi rétt á hæli.
Skaðabæturfyr-
kvændishús
Kiichi Miazawa, forsætisráð-
herra Japans, nýkominn úr ferð
tii Suður-Kóreu, sagði í gær að
Japanir ættu að greíða skaðabæt-
ur fyrir að neyða tugþúsundir
kóreskra kvenna til að þjóna i
vændishúsum japanska hersins
fyrir 50 árum.
Milii 100 og 200 þúsund konur,
þar af 80 prósent frá Kóreu, voru
þvingaðar til að stunda vændi í
sérstökum hóruhúsum sem jap-
anski herínn kom upp i Kína og
annars staöar í Asíu. Mál þetta
hefur vakið mikla reiði að und-
anfömu og skyggði á ferð
Miazawas til Suður-Kóreu.
TT og Reuter
Gamsakhurdia
lagður á flótfta?
- fékk ekki þann stuðning heima sem hann átti von á
Allt bendir nú til að Zviad Gamsak-
hurdia, réttkjörinn forseti Georgíu,
sé enn lagður á flótta. Þó er ekki vit-
að með vissu hvar hann er niður-
kominn þessa stundina.
Andstæðingar hans, sem nú hafa
öll völd í lýðveldinu, brugðust hart
við þegar hann sneri heim frá Arm-
eníu fyrir íjórum dögum og hafa að
því er virðist náð að hrekja forsetann
úr landi enn á ný.
Gamsakhurdia er ættaður frá vest-
urhéruðum Georgíu og vonaðist til
að fá þar nægan liðsstyrk til að hefja
vopnaða sókn gegn valdaránsmönn-
um í höfuðborginni Tíflis sem er í
landinu austanverðu. Gamsakhur-
dia á enn marga ákafa fylgismenn í
Georgíu. Þeir eru hins vegar ekki til-
búnir að grípa til vopna í nafni leið-
toga síns.
Herstjórninni í Tíflis hefur þó verið
mótmælt daglega allt frá því að
Gamsakhurdia hraktist úr landi fyrr
í mánuðinum. Fólkið kallar „Zviad,
Zviad“ og hefur á lofti myndir af for-
setanum. Gamsakhurdia var kjörinn
forseti með afgerandi mun á síðasta
ári en stjóm hans þótti handahófs-
kennd og spillt.
Enn er allt óráðið um hvemig
stjóm lýðveldisins verður háttað í
framtíðinni. Ekki hefur verið boðað
til kosninga og herstjórnin í Tíflis er
án umboðs frá þjóðinni. Nokkur
áhætta er fyrir hana að láta kjósa
því þá gæti Gamsakhurdia komist til
valda á ný.
TT
GEORGIA
I Georgíu búa 5,5 miiljónir manna
og eru um 70% þeirra Georgíumenn
sem tala eigið tungumál. Af öðrum
þjóðum eru Armenar og Rússar fjöl-
mennastir, um 9% af hvorri þjóð.
Georgíumenn eiga sér forna menn-
ingu og aldagamlar bókmenntir sem
ritaðar eru á sama máli og enn er
talað í lýðveldinu. Georgía varð
sjálfstætt ríki á árunum 1918 til
1921 þegar Rauði herinn hertók
landið að undirlagi Georgíumanns-
ins Stalíns.
Georgía er eitt af auðugri lýðveidun-
um sem áður tilheyrðu Sovétríkjun-
um. Loftslagið er milt og til lýðveldis-
ins hafa Rússar lengi fjölmennt f sum-
arleyfum. Georgíumenn framleiða
mikið af ávöxtum og selja Rússum.
Þar er einnig ræktað tóbak til útflutn-
ings og sömuleiðis vfn af ýmsum
gerðum. Koníak þaðan þykir ganga
næst frönsku koníaki að gæðum.
Georgíumenn eru einnig auöugir af
orkulindum bæði hvað kol og vatnsafl
varðar.
Norömenn og Svíar í sjónvarpsstríði:
Deilur um sænskan barnaþátt
Nýjasta innleggið í eins konar
sjónvarpsstríði Norðmanna og Svía
kom í lok kvöldfréttatíma norska
sjónvarpsins í gærkvöldi. Það var
góðlátleg skrítla sem hljóðaði svona:
Ég er ekki veikur, ég er bara Svíi.
Upphaf stríðs þessa má rekja til
barnaþáttar sem sýndur var í
sænska sjónvarpinu í desember. Þar
var ein persóna þáttarins látin leika
fífl og eins og til að leggja áherslu á
fíflsku hennar tróð einhver pijóna-
húfu á höfuð henni og á húfunni stóð
„Norway" eða Noregur upp á ensku.
Atriði þetta fór mjög fyrir brjóstið
á starfsmönnum norska sendiráðs-
ins í Stokkhólmi og sendu þeir mót-
mælabréf til sænska sjónvarpsins af
því tilefni. Sendiráöið telur að með
þessu hafi verið látið aö því liggja að
Norðmenn væru fífl.
„Er það tilgangur þáttagerðar-
mannanna að sænsk börn læri að
líta á orðin „fífl“ og „Norðmaður"
sem samheiti?" stóð m.a. í bréfi
sendiráðsins til sjónvarpsins.
Fréttainnskotið í norska sjónvarp-
inu í gærkvöldi varð aldrei það alvar-
lega uppgjör við nágrannana sem
sumir Norðmenn höföu kannski átt
von á. Sjónvarpsmönnum haföi
greinilega ekki tekist að fá neinn til
sín sem vildi fara í slíkt uppgjör í
eitt skipti fyrir öll.
Upplýsingafulltrúi sænska sendi-
ráðsins í Osló sagðist ekki alveg vita
hvort hann ætti að hlæja eða gráta
yfir sterkum viðbrögðum Norð-
manna við sænska sjónvarpsþættin-
um og sagðist vera undrandi á þeim.
Starfsmenn norska sendiráðsins í
Stokkhólmi höfðu hins vegar ekki
enn komið auga á spaugilegu hhðina
ámálinuígærkvöldi. ntb
Mynntur
smokkum
ískólum
Lionel Jospin, menntamálaráð-
herra fVakklands, lagðist í gær á
sveif með tillögu þess efnis að
dreifa smokkum í menntaskólum
til aö koma i veg fyrir útbreiðslu
eyöniveirunnar.
Tillagan var lögð fram um helg-
ina og gerir hún ráö fyrir að hver
smokkur verði seldur fyrir einn
franka, eða sem nemur um tíu
krónuro. Ekki eru allir jafh hrifn-
ir af tillögu þessari og hefur hún
valdið hneykslan meðal sumra
foreldra og presta sem telja að
hún geti haft siðspillandi áhrif á
unglingana.
f Frakklandi hefur eyðniveiran
verið greind í rúmlega fimmtán
þúsund einstaklingum og er það
mesti fjoldi í nokkru Evrópu-
landi.
Tollarar notadul-
Búlgarskir tollverðir hafa tekið
dulskynjun (ESP) í þjónustu sina
til að grípa eiturlyfjasmyglara,
að því er talsmaður tollgæslunn-
Talsmaðurinn sagði að um 90
tollveröir heföu fengiö þjálfun við
að nota dulskynjunartæknina á
undanförnum tveimur árum.
Hins vegar var hætt við kennsl-
una þegar háttsettir yfirmenn
lögðust gegn henni.
Að sögn hefur tollurunum oröið
vel ágengt og munu dulskynjun-
armenn ná fleiri smyglunmi en
Kókamfinnstí
rúsinupökkum
Tollverðir í Gautaborg lögðu
haldá 40 kíló af kókaini í síðustu
viku og var það falið í rúsínu-
pökkum. Lögiæglan rakti slóð
viðtakendanna og reyndist þaö
vera alþjóðlegur smyglhringur
með aösetur sitt í Stokkhólmi.
Níu manns voru handteknir
vegna málsins um helgina og hafa
átta þeirra verið settir í gæslu-
varðhald. Enginn hinna hand-
teknu hefur áöur komist í kast
við fíkniefnalögregluna. Verð-
mæti kókaínsins er talið vera um
100 milljónir sænskra króna, eða
um milljarður íslenskra.
Tollverðir í Gaugaborg fundu
kókaínið þann 12. janúar í rús-
ínufarmi sem haföi komiö flutn-
ingaskipi frá borginni Valparaiso
í Chile, þegar þeir beittu gegnum-
lýsingartæki ákassana. Kókaínið
var falið í tíu af 1650 kössum.
Reuter og TT
w HEILDSÖLU-
RYMINGARSALA