Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1992, Blaðsíða 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1992.
Smáauglýsingar - Sími 27022
Glæsilegur sumarlisti frá 3 Suisses.
Pöntunart. 2 vikur. S. 642100. Fæst
einnig í Bókav. Kilju, Miðbæ, Háaleit-
isbr. Franski vörulistinn, Kríun. 7, Gb.
■ Verslun
Vetrartilboð á spónlögðum þýskum
innihurðum frá Wirus í háum gæða-
flokki. Verð frá kr. 16.950. A & B,
Skeifunni 11, sími 91-681570.
Útsala á þýskum sturtuklefum og
hurðum frá Dusar. Verð frá 15.900 og
12.900. A & B, Skeifunni 11, s. 681570.
Empire pöntunarlistinn er kominn,
glæsilegt úrval af tískuvörum, heimil-
isvörum, skartgripum o.fl. Verð kr. 400
+ bgj. S. 620638 10-18, Hátúni 6B.
Hugsaðu um heilsuna. Ledins heilsu-
matur er steinefnaríkur, basískur,
sykurlaus og hægðaörvandi morgun-
matur. Heilsuvöruverslunin Græna
línan, Laugavegi 46, s. 91-622820.
Vélsleðakerrur - jeppakerrur.
Eigum á lager vandaðar og sterkar
stálkerrur með sturtum. Burðargeta
800-2.200 kg, 6 strigalaga dekk.
Yfirbyggðar vélsleðakerrur. AUar
gerðir af kerrum, vögnum og dráttar-
beislum. Veljum íslenskt.
Opið alla laugard. Víkurvagnar,
Dalbrekku 24, s. 91-43911/45270.
MAMMAM
SÉRVERSLUN FVRIR
VERÐANDI MÆÐUR
Borgarkringlunni
Útsalan hafin. Allt að 40% afsláttur.
■ Bflai tíl sölu
Chevy Malibu Landau, árg. ’78, til sölu,
2ja dyra, vél 305 cu., sjálfskiptur,
vökva- og veltistýri, rafinagn í rúðum,
þarfnast smá lagfæringar fyrir
skoðun. Verð kr. 180.000, 120.000
staðgreitt, ath. skipti. Uppl. í síma
91-671906 eftir kl. 19.
■ Líkamsrækt
Viltu megrast? Nýja ilmoliu-, appelsinu-
húðar- (cellul.) og sogæðanuddið
vinnur á appelsínuhúð, bólgum og
þreytu í fótum. Trim Form vöðvaþjálf-
unartæki til að stinna og styrkja
vöðva, um leið og það hjálpar þér til að
megrast, einnig árangursrík meðferð
við gigt og íþróttaskaða. Bjóðum einn-
ig upp á nudd. 10% afsl. á 10 tímum.
Tímapantanir í síma 36677. Opið frá
kl. 10 til 22. Heilsustúdíó Maríu, Borg-
arkringlunni, 4 hæð.
Sjálfsvíg
Það er augljóst, eftir fréttum og
almennri vitneskju að dæma, að
sjálfsvíg eru algengari hér á landi
en víða annars staðar. Og það með-
al ungs fólks sem á allt sitt líf fram-
undan.
Ég hef rætt við ungt fólk sem
virðist eiga við þann vanda að
stríða að finnast lífið einskis virði,
að ekkert og þá er átt við ekkert á
neinu sviði lífsins vekur áhuga
þess. Það er erfitt að skilja svona
algjört áhugaleysi. En fyrir þessu
unga fólki er þetta raunveruleiki.
Alvarlegt vandamál sem það getur
ekki ráðið fram úr.
Að taka afleiðingunum
Auðvitað er ekki alltaf auðvelt að
vita hvað maður vill gera og það
getur líka vafist fyrir manni hvað
er áhugavert - ef það er þá eitt-
hvað. Ekki eru allir vissir um það
frá byijun hvað þeir vilja verða og
ekki er óalgengt að unglingar skipti
um skoðun á því atriði svo sem
eins og vikulega. Það er ekki rangt
í sjálfu sér. Eftir allt saman eru það
þið sjálf sem verðið að taka afleið-
ingum ákvarðana ykkar. Svo að ef
þið teljið eitt betra en annað, því
þá ekki að breyta til?
Það er heldur engin ástæða til að
flýta sér um of við ákvarðanatöku.
Alla ævina eru menn að ákveða
hitt og þetta svo að það er auðsjáan-
lega ekki hægt að gera allar áætían-
ir í „hvelli" þegar maður er ungl-
ingur. Það er miklu betra að njóta
æskunnar eftir bestu getu þar sem
maður á aðeins kost á þessu tíma-
bili einu sinni í hverju lífi. Og trúið
mér - manni verður það best ljóst
þegar maður er orðinn eldri hve
dýrmæt æskan er.
Slakið á ef ykkur finnst ekkert
áhugavert á þessari jörð. Sú tfifinn-
ing getur breyst fyrr en varir. Einn
dagur, eitt atvik getur gjörbreytt
lífi ykkar og hugsunarhætti. Það
ótrúlegasta getur gerst og engin
ástæða er til að missa af slíkum
tækifærum. Að mínu áhti er það
hvað mest „spennandi“ við lífið að
allt mögulegt getur gerst og það
jafnvel sem maður átti síst von á.
Bara þið sjálf
Hitt og þetta gera unglingar af
þvi aö það þykir svo „töff‘ meðal
þeirra sjálfra. En þið þurfið ekki
að vera neitt nema bara þið sjálf
og ykkur mun ganga miklu betur
þannig! Það eru raunvenfiega
„töff“ unglingar sem eru ekki með
einhverja útúrdúra til þess að vera
eins og allir aðrir. Unglingsárin
líða nokkuð fljótt og flest ykkar
fara að átta sig á hlutunum.
Annaðhvort lærið þið eitthvað tfi
þess að skapa ykkur betri framtíð
Kjallariim
Stella Eyjólfsdóttir
dulfræðingur
eða fáið ykkur vinnu sem ykkur
fellur vel, eignist ykkar eigin heim-
ili, maka og böm. Og þá kemur sú
tíð að þið farið að hneykslast á
unglingunum.
Þetta getur þó því aðeins gerst
að þið endið ekki líf ykkar í upp-
hafi þess.
Mér er ljóst að það er ólíkt auð-
veldara að skrifa þetta en að ganga
gegnum erfiðleikana, ég hef tölu-
verða reynslu af því sjálf. Það er
sú reynsla sem mig langar tfi að
miðla ykkur af.
Ég verð að byrja á því að segja
ykkur frá þeirri trú sem ég aðhyll-
ist. Hún gengur undir ýmsum nöfn-
um, oftast andatrú eða duifræði.
Þið hafið varla komist hjá því að
heyra um þetta form trúar, sem er
í miklum uppgangi nú á tímum,
bæði hér á landi og erlendis. En ef
þið hafið ekki kynnt ykkur þessi
mál þá er sá munur á dulfræði inn-
an kristinnar trúar eða annarrar
trúar og þeirri trú sem iðkuð er í
kirkjum eða samkomuhúsum
þessi: Við trúum á endurfæðingu.
Sem sagt - við fæðumst aftur og
aftur inn í nýtt og nýtt líf hér á
jörðinni tfi að læra og þroskast. Þar
tfi við náum þeirri fullkomnun að
við þurfum ekki að koma hingað
aftur heldur fórum við á hærra stig
í alheiminum þar sem allt er auð-
veldara en hér.
Þar sem við erum ábyrg fyrir lífi
okkar komumst við ekki hjá því
að gjalda fyrir það sem við gerum
rangt á hverju einstöku æviskeiði.
Það kemur að skuldadögum fyrr
eða síðar og hvort sem okkur líkar
betur eða verr. Og það getur verið
óþægileg reynsla. Ég hef sjálf orðið
að ganga í gegnum þetta.
Ég tók mitt eigið líf í löngu liðinni
jarðvist og hef þurft að líða fyrir
það í þessu lífi. Þið megiö trúa því
að þessi mistök mín borguðu sig
ekki, enda hefur mér aldrei dottið
í hug að gera slíkt í þessu lífi,
hversu erfitt sem mér hefur þótt
það og oft hefur þó verið dökkt
framundan. Að maður minnist
ekki á vinaleysi og einmanaleik.
Það einfaldlega borgar sig ekki að
skapa sér vandræði á komandi
æviskeiðum. Þeir sem áhuga hafa
á þessari hhð lífsins geta lesið
meira um það í bók minni „Þetta
líf og önnur líf ‘ sem kom út nýlega.
Nægurtími
Nú getur vel verið að þið álítið
allt þetta eintóma vitleysu. E.t.v.
aöhylhst þið engin trúarbrögð og
sérlega ekki dulfræði og eruð alveg
ósammála því sem ég segi. En bara
til vonar og vara - ef ég hefði nú
rétt fyrir mér - þá er það eitt af því
alversta sem þið getið gert að taka
ykkar eigið líf. Það er sami verkn-
aður og aö taka líf annars manns.
Unga fólk, verið ekki að kaha yfir
ykkur framtiðarvandræði. Trúið
mér, nóg er nú við að stríða á þess-
ari jörð þótt við bætum ekki við
það að óþörfu. Þar fyrir utan er það
ekki aðkallandi að fyrirfara sér á
einhverri sérstakri stundu, það er
hægt að fresta því. Varla hggur svo
mikið á. Það er eins og með aðrar
ákvarðanir - betra að fara rólega í
að framkvæma þær en sér í lagi í
þessu tfifelh þar sem ekki verður
aftur snúið.
Flestu sem við ákveðum getum
við breytt en ekki þessu. Þegar það
er einu sinni búið og gert verður
ekki aftur snúið. Hafið þetta í huga
og bíðið og sjáið til hvort lífið breyt-
ist ekki til batnaðar. Það er nægur
tími tfi þess arna seinna - og enn
seinna.
Stella Eyjólfsdóttir
„Þar sem við erum ábyrg fyrir lífi okk-
ar komumst við ekki hjá því að gjalda
fyrir það sem við gerum rangt á hverju
einstöku æviskeiði. Það kemur að
skuldadögunum fyrr eða síðar..