Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1992, Blaðsíða 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1992.
Menning
Laugarásbíó - Glæpagengið: ★★
Ungir glæponar
Það sem á yflrborðinu virðist vera afsprengi Young
Guns með svipaðan leikhóp í svipuðum hlutverkum
er í raun grafalvarleg gangster-mynd sem færist mikið
í fang við að segja frá því hvernig nokkrir (sannsögu-
legir) smákrimmar í undirheimum New York á bann-
árunum tóku sig saman og urðu á endanum stórlaxar
eftir blóðugt en úthugsað valdataíl.
Handritshöfundurinn hefur ætlað sér að gera stóra
hluti en kvikmyndaverið tekið heilmikið af röngum
ákvörðunum sem á endanum hefur getið af sér galla-
grip þar sem glittir í það sem heíði kannski getað orðið.
Fystu mistökin eru leikstjórinn, sem er nýgræðingur
tekinn úr auglýsingageiranum. Hann er vita kraftlaus
og það er sorglegt að horfa upp á hvernig hann glutr-
ar niður öllu sem heitir dramatík og persónusköpun.
Önnur mistök eru táningastjömurnar fjórar í aðal-
hlutverkunum. Þær hafa verið ráðnar út á vinsældim-
ar, en fá ekki að gera neitt af því sem gerði þær vinsæl-
ar (í tilfelli Grieco er það blessun).
Þriðju mistökin eru að ráða þijá afburða eldri leik-
ara til að leika glæpakóngana sem þarf að ryðja úr
vegi. Þetta er svona svipað og að rífa Tajh Mahal til
að byggja hamborgarastað. Fjórðu mistökin eru að
moka peningum í sviðsmyndina og gera hana svo góða
Kvikmyndir
Gísli Einarsson
og eðlilega að táningastjörnumar eru eins og kræki-
ber í helvíti.
Fimmtu mistökin em síðan að selja myndina eins
og eitthvað í Young Guns stíl þannig að góður hluti
bíóáhorfenda heldur sig íjarri og hinir fá allt annað
en þeir áttu von á.
Mobsters (band - 1991) 104 min.
Leikstjóri: Michael Karbelnikof.
Leikarar: Christian Slater, Patrick Dempsey, Richard Grieco,
Costas Mandylor (Soapdish), F. Murray Abraham (Amadeus,
Scarface), Michael Gambon (Cook, Thief..., Singing Detec-
tive), Lara Flynn Boyle (Poltergeist III), Anthony Quinn (Only
the Loneiy, Revenge).
Patrick Dempsey, Richard Grieco, Costas Mandylor og Christian Slater leika glæpakóngana (jóra.
Andlát
Gunnar Friðrik Þorsteinsson, Álfta-
mýri 38, Reykjavík, andaðist á gjör-
gæsludeild Landspítalans þann 20.
janúar.
Bárður Olgeirsson, Vallarbraut 2,
Njarðvik, lést á sjúkrahúsinu í Kefla-
vík 17. janúar.
Sigríður Hallgrimsdóttir, Bogahlíð
15, er látin.
Magnús Grimsson, Fumgerði 1, áður
til heimihs í Háagerði 35, er látinn.
Gunnlaugur Pétur Helgason, lést á
heimili sinu aðfaranótt 19. janúar.
Leifur Einarsson, Hólmgarði 1,
Reykjavík, iést á heimili sínu laugar-
daginn 18. janúar.
Jardaifarir
Ingibjörg Sigurðardóttir, Eyrarvegi
7, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri fostudaginn 17.
janúar. Útfor hennar fer fram frá
Akureyrarkirkju fimmtudaginn 23.
janúar kl. 13.30.
Hafsteinn Smári Halldórsson, sem
léstþann 11. janúar, var jarðsunginn
frá Fossvogskapellu fóstudaginn 17.
janúar í kyrrþey.
Amfríður Jónsdóttir, Fannafold 105,
Reykjavík, sem lést 13. janúar, verð-
ur jarðsungin frá Dómkirkjunni í
Reykjavík fimmtudaginn 23. janúar
kl. 13.30.
Sigríður M. Jónsdóttir, Langholts-
vegi 2, verður jarðsungin frá Ás-
kirkju fimmtudaginn 23. janúar kl.
13.30. Þeim sem vildum minnast
hennar, er vinsamlega bent á að láta
Áskirkju njóta þess.
Aðalheiður Ármann, Álakvísl 96,
verður jarðsungin frá Fossvogskap-
ellu miðvikudaginn 22. janúar kl.
15.00.
Fundur
ITC deildin Irpa
heldur fund í kvöld kl. 20.30 í Brautar-
holti 30. Rithöfundurinn Olafur Jóhann
Ólafsson verður kynntur ásamt nokkr-
mn bóka hans allir eru velkomnir. Uppl.
hjá Vilhjálmi í síma 78996 og Hjördísi í
síma 28996.
Kvenfélagið Seltjörn
Fundur í félagsheimilinu kl. 20.30 í kvöld.
Sóroptimistar koma í heimsókn. Elísabet
Jökulsdóttir les úr verkum sínum. Kaffi-
veitingar.
Aðalfundur Framkvenna
verður haldinn miðvikudaginn 29. janúar
kl. 20 í Framheimilinu viö Safamýri.
Venjuleg aðaltundarstörf.
Stjómin
Námskeið
Breyttu áhyggjum i
uppbyggjandi orku
ITC námskeiðið: Markviss málflutning-
ur, verður haldið að Brautarholti 30,
þriðju hæð, Reykjavik, fimmtudags-
kvöldið 23. janúar 1992 og miðvikudags-
kvöldið 29. janúar 1992 kl. 20 bæði kvöld-
in. Þetta er tveggja kvölda námskeið þar
sem farið er í alla helstu þætti mælsku-
listarinnar. Uppl. gefur blaðafulltrúi ITC,
Guðrún Lilja Norðdahl, í síma 46751.
Reykjavíkurdeild Rauða
kross íslands
gengst fyrir námskeiöi i skyndihjálp sem
hefst miðvikudaginn 22. janúar kl. 20 og
stendur fjögur kvöld. Kennsludagar
verða 22., 23., 28. og 29. janúar. Námskeið-
iö verður haldið í Fákafeni 11, 2. hæð.
Öllmn 15 ára og eldri er heimil þátttaka.
Þeir sem hafa áhuga á að komast á nám-
skeiðið geta skráð sig í síma 688188. Að
námskeiðinu loknu fá nemendur skír-
teini sem hægt er að fá metið í ýmsum
framhaldsskólum.
Námskeið í skapandi
listþjálfun
verður haldið fyrir börn, unglinga og
fullorðna á vorönn 1992. í listþjálfun tjá
þátttakendur tilfinningar sínar og hugs-
anir í máli og myndum. Þátttakendur
þurfa ekki að hafa „tæknilega fæmi“ í
listum. Leiðbeinandi á námskeiðunum
er Unnur Óttarsdóttir sem er listþjálfi
(art therapisti) og kennari að mennt. Inn-
ritun og uppl. eru í Kvöldskóla Kópavogs
í simum 641507 og 44391 kl. 17-21 til 22.
janúar.
Tilkyimingar
Vitni óskast
Árekstur var þann 22. desember í beygj-
unni í Lokinhömrum milli Dverghamra
og Bláhamra, bíll ffá Reykjavíkurborg
með snjótönn og fólksbíll lentu saman.
Yitni óskast í síma 676303 og vs. 606980,
Áslaug Gísladóttir.
Frá „Áhugafólki um heim-
speki á Akureyri“
Jón Bjömsson flytur tvo fyrirlestra í
Háskólanum á Akureyri við Þórunnar-
stræti fimmtudaginn 23. janúar kl. 20.30
og laugardaginn 25. janúar kl. 14. Fyrir-
lestur Jóns á fimmtudaginn heitir „Ham-
ingjuhugtakið" og fjallar um merkingar
orðsins hamingja, skilgreiningu ham-
ingjunnar og mælingu hennar. í öðrum
fyrirlestri sínum á laugardaginn fjallar
Jón um nokkur tilbrigði við hamingju-
hugtakið og ýmis tengsl hamingjunnar
við kringumstæður manna og lífsskilyrði
þeirra. Áhugafólk um heimspeki á Akur-
eyri undirbýr nú fyrirlestrahald, m.a. dr.
Vilþjálms Ámasonar, dr. Guömundar
Heiðars Frímannssonar o.fl. Allt áhuga-
fólk er velkomið á fyrirlesturinn og er
aögangur ókeypis.
Félag eldri borgara
Opið hús í Risinu í dag þriðjudag kl.
13-17. Bridge og ffjáls spilamennska. Kl.
20 er dansað í Risinu. Sýning á Fugl í
búri er miðvikudag, laugardag og sunnu-
dag.
OA á íslandi
í tilefni af 10 ára afrnæh OA á íslandi,
samtaka fólks sem á við ofátsvanda að
stríða, verður haldinn kynningarfundur
sunnudaginn 2. febrúar kl. 16 í safnaðar-
heimili Langholtskirkju. Fundurinn er
opinn og allir velkomnir. Frekari upplýs-
ingar er að fá hjá eftirtöldum aðúum:
Birgir vs. 685854, Ingi hs. 689029, Lilja hs.
621892.
Fuglaverndarfélag íslands
Næsti fræðslufundur Fuglavemdarfé-
lagsins verður haldin þriðjudaginn 21.
janúar i stofu 101 í Odda, húsi hugvís-
indadeildar HÍ og hefst kl. 20.30. Efni
fundarins nefnist: Fuglalíf og vemd
sunnlensks votlendis. Einar Ó. Þorleifs-
son og Jóhann ÓU Hfimarsson munu
skýra frá starfi voUendishóps Fugla-
vemdafélagsins og munu þeir sýna Ut-
skyggnur og glærur samfara máU sínu.
Fundurinn er öUum ophm.
Myndgáta
- ■ EvÞÓr.—A—
Myndgátan hér að ofan
lýsir lýsingarorði.
Lausn gátu nr. 233:
Liggur fyrir
dauðanum
22*
Tapað fundið
Fríða Dís er týnd
Fríða Dís sem er gulbrún læða, frekar
smávaxin fór frá heimUi sínu, Mjóstræti
2B í Rvik, snemma á sunnudag, 19. jan-
úar, í sína reglubundnu morgungöngu
en hefur ekki komið heim. Ef íbúar gamla
bæjarins og nágrennis vUdu kíkja eftir
henni í skúra á lóðum sínum eða kjöUur-
um væri það vel þegið. Síminn hennar
er 16959 ef einhveijir geta gefið upplýs-
ingar.
Leikhús
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
STÓRA SVIÐIÐ
RÓMEÓ OG JÚLÍA
eftir William Shakespeare
Fimmtud. 23. jan. kl. 20.00.
Sunnud. 26. jan. kl. 20.00.
Laugard. 1. febr. kl. 20.00.
Laugard. 8. febr. kl. 20.00.
eftir Paul Osborn
Laugard. 25. jan. kl. 20.00.
Sunnud. 2. febr. kl. 20.00.
Föstud. 7. febr. kl. 20.00.
SÝNINGUM FER FÆKKANDI
M. BUTTERFLY
eftir David Henry Hwang
Föstud. 24. jan. kl. 20.00.
Föstud. 31. jan. kl. 20.00.
Fimmtud. 6. febr. kl. 20.00.
LITLA SVIÐIÐ
KÆRA JELENA
eftir Ljudmilu Razumovskaju
Mlövikud. 22. jan. kl. 20.30.
Uppselt.
Föstud. 24. jan.kl. 20.30.
Uppselt.
Laugard. 25. jan. kl. 20.30.
Uppselt.
Þrlðjud. 28. jan.kl. 20.30.
Uppselt.
Fimmtud. 30. jan. kl. 20.30.
Uppselt.
UPPSELT ER Á ALLAR SÝNINGAR
Á KÆRU JELENU TIL 9. FEBR.
MIÐAR Á KÆRU JELENU SÆKIST
VIKU FYRIR SÝNINGU ELLA SELDIR
ÖÐRUM.
ATHUGID AÐ EKKIER UNNT AÐ
HLEYPA GESTUM INN í SALINN
EFTIR AÐ SÝNING HEFST.
SMÍÐAVERKSTÆÐIÐ
ÉG HEITIÍSBJÖRG,
ÉG ERLJÓN
eftir Vigdísi Gríms dóttur
Frumsýning föstud. 24. jan.
kl. 20.30.
Uppselt.
2. sýn. sunnud. 26. jan. kl. 20.30.
3. sýn. föstud. 31. jan. kl. 20.30.
4. sýn. laugard. 1. teb. kl. 20.30.
Miðasalan er opin frá kl. 13-18
alla daga nema mánudaga og
fram að sýningum sýningar-
dagana. Auk þess er tekið á
móti pöntunum í síma frá kl. 10
alla virkadaga.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA.
GRÆNA LÍNAN 99-6160.
Leikhúskjailarinn er opinn öil
föstudags- og laugardagskvöld.
Leikhúsveisla: Leikhúsmiði og
þrírétfuð máltið öll sýningar-
kvöld á stóra sviðinu.
Borðpantanir í
miðasölu.
Leikhúskjallarinn.