Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1992, Side 8
LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1992.
Nauðungaruppboð
Vegna vanefnda uppboðskaupanda verður hl. úr fasteigninni Glaðheimar
14, þingl. eign Þóris Jóhannssonar, boðin upp að nýju og seld á nauðung-
aruppboði sem fram fer á eigninni sjálfri þriðjudaginn 28. janúar 1992, kl.
16.00. Uppboðsbeiðendur eru Ólafur Gústafsson hrl., Fjárheimtan hf., Jón
Ingólfsson hrl., Reynir Karlsson hdl. og Landsbanki íslands.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik
Matgæðingur vikuimar
Stóðhestastöð ríkisins
Gunnarsholti, Rangán/öllum, 850 Hellu, sími 98-75320
HESTAMENN
Nýtt stóðhestahús verður kynnt í Gunnarsholti laug-
ardaginn 25. janúar kl. 14. Margir af efnilegustu stóð-
hestum landsins til sýnis í glæsilegu hesthúsi.
Allir velkomnir.
Stóðhestastöð ríkisins
Utboð
Laugarvatnsvegur, Snorrastaðir
- Laugardalshólar
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í lagningu
3,8 km kafla á Laugarvatnsvegi.
Helstu magntölur: Fyllingar og neðra burðarlag
21.000 m3, fláafleygar, blönduð færsla 4.900
m3 og skeringar 8.000 m3. Verki skal að fullu
lokið 27. júní 1992.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
á Selfossi og í Borgartúni 5, Reykjavík (aðal-
gjaldkera), frá og með 27. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 10. febrúar 1992.
Vegamálastjóri
Kl
KENNARASAMBANDISLANDS
Grettisgötu 89-105 Reykjavík - Sími 91 -624080 - Símabréf 91 -623470
Frá stjórn Orlofssjóðs Kennarasambands Íslands
Kennarasamband Islands óskar að taka góða sumar-
bústaði á leigu á sumri komanda.
Sumarbústaðir víðs vegar um land koma til greina
en sérstaklega vantar okkur bústaði á Vestfjörðum
og Snæfellsnesi.
Upplýsingar veitir formaður stjórnar Orlofssjóðs, Sig-
ríður Jóhannesdóttir. Viðtalstími á skrifstofu Kl á
mánudögum frá kl. 14.30 til 17.00, heimasími
92-12349.
Tilboð, gjarnan með mynd af sumarhúsinu, sendist
til stjórnar Orlofssjóðs Kl, Grettisgötu 89, 105
Reykjavík, fyrir 10. febrúar.
Stjórn Orlofssjóðs Kennarasambands íslands
INNANHUSS- 95
ARKITEKTÚR
í frítíma yðar með bréfaskriftum
Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafíst til
þátttöku. Spennandi atvinna eða aðeins til eigin nota.
Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti,
lýsingu, list, þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr stíll,
blóm, skipulagning, nýtisku eldhús, gólflagnir,, vegg-
klæðningar, vefnaðarvara, þar tilheyrir gólfteppi, hús-
fagnaefni og gluggatjöld ásamt hagsýni o.fl.
,g óska án skuldbindingar að fá sendan bækling yðar um
INNANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ
Nafn ..............................
Heimilisfang ......................
Akademisk Brevskole
Jyllandsvej 15 9 Postboks 234
2000 Frederiksberg 9 Kobenhavn 9 Danmark
Framandi
fiskpottréttur
„Þetta er mjög einfaldur og fljót-
lagaður réttur. Uppskriftin er ætl-
uð fyrir fjórar til fimm manneskjur
og í hana má nota alls kyns græn-
meti, t.d. gulrætur eða sveppi,“ seg-
ir Helga Gísladóttir, matgæðingur
vikunnar og húsmóðir. Helga er að
mestu heimavinnandi en tekur að
sér íhlaupavinnu og hleypur þá í
toll og þess háttar snúninga.
Hún býður lesendum upp á fram-
andi fiskpottrétt sem hún hefur að
nokkru leyti búið til eða endurbætt
eins og hún nefndi það.
Helga er með stórt heimili því oft
eru átta manns í mat hjá henni.
Hún segir að sér finnist gaman að
prófa nýja rétti og oft verði fiskur
fyrir valinu. „Börnin myndu þó
kvarta ef það væri alltaf fiskur
þannig að maður prófar ýmislegt,"
segir hún.
I fjölskyldu Helgu er mataráhug-
inn mikill og einnig meðal vina og
kunningja. „Mér finnst fólk hugsa
meira en áður um hvað það er að
borða,“ segir hún. Fiskpottréttur-
inn hennar Helgu er ekki fitandi
þannig að hann ætti að vera við
allra hæfi. En hann hljóðar svo:
Það sem þarf
600 g ýsuflök (beinlaus og roðflett)
1 blaðlaukur eða 1 gulur laukur
2 paprikur, mismunandi á lit
1 dós sýrður rjómi
Helga Gisladóttir, matgæðingur vikunnar.
2-3 msk. appelsínuþykkni
1 tsk. engifer
/2 fiskteningur
/2 tsk. salt
1 /2 dl mjólk
lítil dós minimais (eða ca 200 g
djúpfrystur)
Aðferðin
Skerið flskinn í bita. Skerið blað-
laukinn í ræmur, eða gula laukinn
smátt. Þá er paprikurnar einnig
skomar í ræmur. Hrærið saman
sýrðum rjóma, djús, engifer, fisk-
teningi, salti og mjólk í potti. Látið
sjóða saman, hrærið síðan öllu
grænmetinu út í. Leggið fiskinn í
DV-mynd Hanna
og sjóðið undir loki í cirka fimm
mínútur.
Fiskpottrétturinn er borinn fram
með hrísgijónum.
Helga segir að mjög gott sé að
kreista sítrónusafa yfir fiskinn áð-
ur en hann er soðinn. Það gerir
hann frískari og stinnari. Hún seg-
ist gera þetta oft við soðinn fisk.
Helga ætlar að skora á Guðrúnu
Þórarinsdóttur, sjávarlíffræðingog
húsmóður, að vera matgæðingur
næstu viku. „Guörún er mikið fyr-
ir að elda og hefur gaman af þvi.
Þar að auki er hún með stórt heim-
ili,“ segir Helga Gísladóttir.
-ELA
Hinhliðin
Ut að borða með
Tinu Turner
- segir Hans Guðmundsson, markvarðaskelfir í handbolta
Hans Guðmundsson í FH er
markahæsti leikmaður 1. deildar-
innar í handbolta um þesar mund-
ir, hefur skorað 105 mörk. Hans
hefur einu sinni verið markakóng-
ur í 1. deild og verið með marka-
hæstu mönnum undanfarin ár.
Hans er ahnn upp í handbolta hjá
FH í Hafnarfirði en steig þó fyrstu
skref sín í handboltanum með erk-
ifjendunum Haukum, þá 9 ára gam-
all. Kristján Arason og fleiri bekkj-
arfélagar hans í þá daga voru harð-
ir FH-ingar og voru ekki lengi að
telja Hans á að skipta yfir í FH þar
sem hann lék óslitið frá 1972-1985.
Þá fór hann til Kanaríeyja þar sem
hann spilaði með Maritim, kom
heim og lék eitt ár með KR og síðan
tvö með Breiðabliki. Hann fór aftur
til Kanaríeyja í eitt ár, lék með
Puerto Cruz, og síðan heim þar sem
hann lék með KA í eitt ár. í haust
kom hann loks aftur á heimaslóðir,
til FH. Það er markahrókurinn
Hans Guðmundsson sem sýnir á
sér hina hliðina að þessu sinni.
Fullt nafn: Hans Guömimdsson.
Fæðingardagur og ár: 26. maí 1961.
Maki: Unndís Ólafsdóttir.
Böm: Finnm-, 12 ára, Birkir, 7 ára,
og Daníel, 6 mánaða.
Bifreið: BMW 520, árgerö 82.
Starf: Sölumaður í Veggfóðraran-
um.
Laun: Þokkaleg.
Áhugamál: íþróttir, fjölskyldan og
að vera í skemmtilegum félags-
skap.
Hvað hefúr þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Þrjár.
Hans Guðmundsson.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Að vinna leik með einu
marki, sérstaklega þegar búið er
að tvíframlengja.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að rífast við konuna mína.
Uppáhaldsmatur: Maturinn sem
konan eldar handa mér á sunnu-
dögum.
Uppáhaldsdrykkur: ískalt ískóla.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? íslensku
strákamir í ensku knattspymunni.
Þeir era bestu varamenn í heimi.
Uppáhaldstimarit: 3T bílablaðið.
Öll önnur tímarit era leiöinleg þar
sem maöur les það sama í þeim
öllum.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka? Þessari
spurningu er ekki hægt að svara.
Ertu hlynntur eða andvigur rikis-
stjórninni? Hflynntur. Loks er ríkis-
stjóm sem tekur á hlutunum þó
sumar aðgerðimar séu óvinsælar.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Eg væri til í að fara út að
borða með Tinu Turner, hún er
ábyggilega skemmtileg pesóna.
Uppáhaldsleikari: Sean Connery.
Uppáhaldsleikkona: Jessica Lange.
Uppáhaldssöngvari: Þeir era marg-
ir, Brace Springsteen, Freddy
Mercury, Tina Tumer og fleiri.
Uppáhaldsstjómmálamaður: Dav-
íð Oddsson. Hann er skemmtilega
góður stjómmálamaður sem eng-
um hefur tekist að klekkja á ennþá.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Öndin Duffy (Duffy duck).
Uppáhaldssjónvarpsefni: Dallas, en
það er því miður hætt.
Ertu hlynntur eða andvigur veru
varnarliðsins hér á landi? Andvígur
eftir að þeim var gefið ferðafrelsi.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Rás 2.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Hall-
grímur Thorsteinsson.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Bjami
Felixson.
Uppáhaldsskemmtistaður: Garða-
kráin í Garðabæ.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: FH.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Að verða ríkari en ég
er í dag. Þá er ég ekki að meina í
krónum talið þó þær megi að sjálf-
sögðu vera með í myndinni.
Hvað gerðir þú í sumarfriinu? Ég
eignaðist alveg bráðmyndarlegan
son í sumar. Ég ætla að eignast
annan í næsta sumarfríi.