Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1992, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1992, Síða 20
20 Veiðivon Aðalfundur Ármanna haldinn í Árósum Armenn ætla að halda aðalfund sinn í dag að Árósum klukkan tvö og má búast viö fjölmenni. Ármönnum hefur fjölgað hin síðari árin og voru um síðustu áramót 283 og segir þeim svo hugur um að á tví- tugsafmælinu nái þeir tölunni 300. Það þóttu stórtíðindi þegar Ár- mönnum tókst að auka framboð sitt á veiðileyfum í Grenlæk um 150%. Daði Harðarson gefur áfram kost á sér sem formaður en gerð er tillaga um Halldór Lárusson, Karl Óskar Hjaltason og Þorsteinn G. Gunnars- son sem nýja stjómarmenn. -G.Bender Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar: Félagsheimilið vígt í dag klukkan fimm „Við erum að klára þetta fyrir op- unina hjá okkur á laugardaginn. Allt er að verða klárt hjá okkur,“ sagði Siguröur Bergsson, formaður Stangaveiðifélags Hafnarfjarðar, í samtali við DV í vikunni. Stanga- veiðifélag Hafnarfjarðar varð 40 ára 6. desember síðasthðin. Þeir félagar hafa síöustu vikumar unnið að því að standsetja þetta nýja félagsheimih sitt sem er að Flatahrauni 29 í Hafn- arfirði. „Þetta þýðir miklar breytingar fyr- ir okkur og þetta félagsheimih er allt annaö en við vorum í áður. Ég er bjartsýnn fyrir hönd félagsins að þetta verði gjörbreyting með tilkomu þessarar nýju aðstöðu," sagði Sig- urður í lokin. Það má búast við fjölda fólks þegar félagsheimihð verður vígt í dag. -G. Bender Þessa dagana er veiðileyfasalan aö komast á iúht og fariö að selja veiðileyíl í flestar veiðiár landsins. „Það er komin hreyfing á söiu veiðileyfa hjá okkur, töluvert spurt Rögnvaldur Guðmundsson, einn af leigutökum Hvolsár og Staðarhóis- ar í Dolum. „Við seljum ódýrasta daginn á 15 þúsund en sá dýrasti er á 23 þús- und. Árnar veröa opnaöar fyrr núna en veriö hefur eða 20. júní,“ sagði Rögnvaldur ennfremur. -GJBender Árni Þ. Sigurðsson Ármaður með góða veiði á flugu, en silungsveiði hefur stóraukist hin síðari ár. LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1992. Eg bíÖ eftir yður Kvöld nokkurt á stríðsárunum kom Churchih akandi í leigubif- reið aö j aöalstöðvum breska út- varpsíns, BBC, til aö halda þar ræðu. Hann baö leigubílstjórann að bíöa eftir sér en bílstjórinn, sem þekkti ekki Churchill í myr- krinu, kvaðst því miður ekki geta það þar sem hann ætiaði að hlusta á ræðu Churchiils í út- varpinu. Þetta líkaöi Churchiil vel að heyra og stakk því vænm peningasummu að bílstjóranum. „Á ég að fá allt þetta?" spurði leigubflstjórimi hissa. „Já, góði rninn," svaraði Churc- hfll. „Það er gott,“ stundí leigubíl- stjórinn, „Til heivítis meö Churc- hill, ég bíð sko eftir yður.“ Ljúgðu Rithöfundurinn Mark Twain sagði einhveiju sinni við borðdömu sína í fínni veislu: „En hvað þér eruð fallegar, ffú.“ Og frúin svaraði: „Mér þykir leitt að geta ekki endurgoldið þessa guflhamra yð- „Gerðu bara eins og ég... ljúgðu," svaraði Mark Twa- in að bragði. Kóngalíf Veisla var haldin í húsi einu á Akureri skömmu eftir lok seinni heimsstyijaldarinnar. Sátu þar karlar og konur i sömu stofu, en hvor í sínu horni þó, við spjall og spaug. Körlunum var tíörætt um karl- mannsleysið i Þýskalandi, sem væri svo raikið að konur borguðu karlmönnum allt upp í 30 raörk fyrir nóttina. „30 mörk,“ gall þá við í einum þeirra er Ólafur hét. „Það er eng- inn smáskildingur. Maöur gæti bara haft þetta að atvinnu þama úli og lifað sannkölluðu kónga- lífi.“ Þá heyrðist í konu Ólafs: „Ja, sá held ég aðmyndi nújifa kóngalífi af 60 mörkum á mán- uöi.“ Finnur þú fimm breytingai? 139 Já, já, en f Innst þér þó ekki vel af sér vikið að vinna þig aftur í spilunum? Naf n:. Heimillsfang: Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á hægri myndinni og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum hðnum birtum við nöfn sigurvegara. 1. verðlaun: SHARP stereo ferðaútvarpstæki með kas- settu að verðmæti kr. 6.380 frá Hfjómbæ, Hverfisg. 103. 2. verðlaun: Fimm Úr- valsbækur að verðmæti kr. 3.941. Bækurnar, sem eru í verðlaun, heita: Á elleftu stundu, Falin markmið, Flugan á veggnum, Leik- reglur, Sporlaust. Bækumar eru gefnar út af Frjálsri fjölmiðlun. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 138 c/o DV, pósthólf 5380, 125 Reykjavík Vinningshafar í hundrað þrít- ugustu og sjöundu getraun reyndust vera: 1. Sonja Kristinsdóttir Smáraflöt 15, 210 Garðabæ. 2. Þórhallur Ágústsson Furugrund 66, 200 Kópavogi. Vinningamir verða sendir heim.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.