Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1992, Page 25
LAUGARDAGUR 25. JANOAR 1992.
25
Danny DeVito er ekki hár í loftinu eins og sjá má af myndinni. Hann er hér
ásamt meðleikurum sínum í Peningar annarra, Gregory Peck og Penelope
Ann Miller.
Kvikmyndir
Saga-Bíó:
Peningar annarra
Peningar annarra (Other People’s
Money) er nýjasta kvikmynd hins
smávaxna leikara Danny DeVito,
sem í dag er einhver eftirsóttasti leik-
arinn í Hollywood. Er myndinni lýst
sem gamanmynd um mjög alvarlegt
málefni. DeVito leikur viðskiptajöf-
urinn Lawrence Garfield sem elskar
kleinuhringi, fiðluna sína, tölvuna
Carmen og peninga, sérstaklega ann-
arra manna peninga.
Garfield hefur skrifstofu í Wall
Street þar sem vinna hans hggur í
að leggja undir annarra manna fyrir-
tæki. Með aðstoð tölvu sinnar fær
hann upplýsingar um stöðu fyrir-
tækja og sé lítið fyrirtæki með nei-
kvæða stöðu, leggur hann það undir
sig, mjólkar það eins og hægt er og
lætur það síðan fara á hausinn.
Þegar myndin hefst er hann á hött-
unum eftir gamalgrónu fyrirtæki en
þar fær hann óvænt mótstöðu frá
eigandanum, gömlum heiðursmanni
sem leggur allt í sölurnar til að halda
fyrirtækinu og kemur því til mála-
ferla og þarf Larry aldeilis að taka á
öllu sem hann á þegar hann reynir
sig gegn þeim gamla.
Peningar annarra er gert eftir vin-
sælu leikriti sem var sýnt á Bro-
adway. Auk Danny DeVito leika stór
hlutverk í myndinni Gregory Peck,
Piper Laurie og Penelope Ann Miller.
Leikstjóri myndarinnar er Norman
Jewison. Segir hann um myndina að
hún sé um græðgi og girnd, en einn-
ig sé myndin villt gamanmynd, auk
þess sem hún hreyfir við tilfinning-
um hjá áhorfandanum.
Jewison hefur verið að leikstýra
kvikmyndum í þrjá áratugi, oftast
með góðum árangri. Hann hefur fjór-
um sinnum verið tilnefndur til ósk-
arsverðlauna, en myndir hans hafa
í heild fengið fiörutíu og fimm til-
nefningar og hreppt óskarsverðlaun-
in tólf sinnum. Jewison er kanadísk-
ur að uppruna og þar byijaði hann
ferill sinn í leikhúsum. 1958 tók hann
tilboði frá CBS sjónvarpsstöðinni og
leikstýrði á næstu árum mörgum
sjónvarpsmyndum og meðan hann
var hjá CBS fékk hann þrjú Emmy-
verðlaun.
Snemma á sjöunda áratugnum hóf
hann að leikstýra kvikmyndum.
Fyrsta kvikmyndin sem hann leik-
stýrði og vakti almenna athygli var
The Cincinnati Kid. Þekktustu
myndir hans til þessa eru The Russ-
ian are Coming, The Russian are
Coming, The Thomas Crown Affair,
In the Heat of the Night, söngleikirn-
ir Fiddler on the Roof og Jesus Christ
Superstar, A Soldier’s Story, Agnes
of God og Moonstruck.
-HK
^ FYLLINGAREFNI
Höfum fyrirliggjandi grús á hagstæöu veröi.
Gott efni, lítil rýmun, frostþoliö og þjappast
vel.
Ennfremur höfum viö fyrirliggjandi
sand og möl af ýmsum grófleika.
Sævarhöfða 13 - sími 681833
Xímarit fyrir alla
Kr. 425
Skop .................
Eftirlýstur lifs eða hðmn-. .......... 3
SaddamHússein........................... H
26
Prelsa oss frá illu ..;... .. 33
Goðsagnirumhinaheimilislausu ............ 40
Ekkihættavið aefmgar '"""u’",nbombu?..... 48
Hvað varð um heimsms mestu ky ... 56
Srengurinnsemkomöllumaovart .........
Kóreska farþegaþotan: ..... 62
Sagansemláiþagnargildi........••••••••... -73
Krabbameinsbóluefm..........."".......... 80
Huösuníorðum ............ 82
Hinn óvenjulegi Míchael Came......'".... g0
Naslið - ogkomist 1 fintform ■ • • • ... 95
Húnsýnirhjálpsemiiver 1 ••■ ........101
Lesiðiandlit........................... 106
Ssetir draumar ........... .............111
Manníifigeimnum ...........'•••'".......122
Karlmenn og lY§ar ......... ............125
Lausnákrosstölugátu ...........126
1 Kvonfangið...........•"•" læknavisindum
Erfðafræði: Eeiknaframfarir 1 læfcnav....^ 55
Krosstölugátan............. .............156
> Hugsaðu! ..................
1. HEFTI
- 51. ÁR - JANÚAR - FEBRÚAR 1992
_ I