Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1992, Blaðsíða 44
56
LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1992.
Til leigu og sölu
brúðarkjólar frá
San-Martin,
einnig
samkvæmiskjólarog
smókingar.
^rwóarkjólaíeipp, fyóm
Stallaseh'2 0 109Reykjavík
0 Sími 73471
VERKAKVENNAFÉLAGIÐ FRAMSÓKN
ALLSHERJARATKVÆÐAGREIÐSLA
Ákveöið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu við kjör stjórnar og í önnur trúnaðarstörf
félagsins fyrir árið 1992 og er hér með auglýst eftir
tillögum um félagsmenn í þessi störf.
Frestur til að skila listum er til kl. 12.00 á hádegi
föstudaginn 31. janúar 1992.
Hverjum lista þurfa að fylgja meðmæli 100 fullgildra
félagsmanna.
Listum ber að skila á skrifstofu félagsins, Skipholti
50A.
Stjórnin
BMW 518i
árgerð '91, topplúga, álfelgur, all-
ur hugsanlegur aukaútbúnaður.
Verð 1.980.000.
Upplýsingar í síma 642323.
Nauðungamppboð
30.-31. janúar 1992,
annað og síðara,
fer fram á eftirtöldum eignum
á neðangreindum tíma.
Aðaktræti 78, efri hæð, Patreksfrrði,
þingl. eign Egils Össurarsonar og Sig-
fríðar Sigurjónsdóttur, fer fram eftir
kröfu Lífeyrissjóðs Vestfirðinga,
Gunnars Sæmundssonar hrl., Skúla
J. Pálmasonar og Húsnæðisstofhunar
ríkisins fimmtudaginn 30. janúar 1992
kl. 18.00 á skrifstofú embættisins að
Aðalstræti 92, Patreksfirði.
Balar 4, jarðhæð t.h., Patreksfirði,
þingl. eign Örlys Sigurðssonar, fer
fram eftir kröfu Húsnæðisstofhunar
ríkisins, Grétars Haraldssonar hrl. og
Sigríðar Thorlacius hdl. fimmtudag-
inn 30. janúar 1992 kl. 18.30 á skrif-
stofii embættisins að Aðalstræti 92,
Patreksfirði.
Skálholt, Barðastrandarhreppi, þingl.
eign Flóka h/f, fer fram eftir kröfú
LÖeyrissjóðs Vestfirðinga og Vátrygg-
ingafélags íslands föstudaginn 31. jan-
úar 1992 kl. 10.00 á skrifstofu embætt-
isins að Aðalstræti 92, Patreksfirði.
Lóð úr landi Bijánslækjar til bygging-
ar þriggja íbúðarhúsa og eins veit-
ingaskála, þingl. eign landbúnaðar-
ráðuneytisins, fer fram eftir kröfú
Byggðastofnunar, Landsbanka ís-
lands og Hallgríms B. Gefrssonar hrl.
föstudaginn 31. janúar 1992 kl. 10.30
á skrifstofu embættisins að Aðalstræti
92, Patreksffrði.
Aðalstræti 39, neðri hæð, Patreks-
ffrði, þingl. eign Finnboga Pálssonar,
fer fram eftir kröfú Islandsbanka h/f
föstudaginn 31. janúar 1992 kl. 11.00
á skrifstofú embættisins að Aðalstræti
92, Patreksffrði.
Aðalstræti 39, efri hæð, Patreksfirði,
þingl. eign Sigríðar Pálsdóttur, fer
fram eftir kröfú Gunnars Sæmunds-
sonar hrl., Húsnæðisstofiiunar ríkis-
ins og Lögheimtunnar h/f föstudaginn
31. janúar 1992 kl. 11.30 á skrifstofú
embættisins að Aðalstræti 92, Pat>
reksfirðL
SÝSLUMAÐUR BARÐASTRANDARSÝSLU
Andlát
Myndgáta
Jón Már Gestsson, Hringbraut 119,
Reykjavík, andaðist 22. janúar.
Aðalsteinn Hallgrímsson, Hraunbæ
42, Reykjavík, andaðist í Borgar-
spítalanum fimmtudaginn 23. jan-
úar.
Tilkynningar
Félag eldri borgara
Sunnudaginn 26. janúar verður spiluð
félagsvist kl. 14 í Risinu. Fugl í búri sýnt
kl. 17. Dansað í Goðheimum kl. 20.
Silfurlínan
síma- og viðvikaþjónusta fyrir eldri borg-
ara. Símatimi alla virka daga frá kl. 16-18.
Símalínan, sími 616262.
Saurbæingar, athugið!
Þorrablót Saurbæinga verður haldið i
kvöld í Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14.
Húsið opnar kl. 18.45. Mætum öll.
Fundur
Aðalfundur Oddafélagsins
veröur haldinn í Odda á Rangárvöllum
og á Hellu sunnudaginn 2. febrúar nk.
Jónas Gíslason vígslubiskub prédikar í
Odda og Páll Bergþórsson veðurstofú-
stjóri flytur erindi á Hellu. Aðdragandi
aðalfundarins sjálfs verður með eftirtöld-
um atburðum og eru að vonum allir vel-
komnir að taka þátt í þeim, hvort sem
menn sækja aðalfund í lokin eða ekki.
Klukkan 2 e.h.: Messa í Oddakirkju. Aö
messu lokinni í Odda veröur haldið í
kaffi í Laufafelli (Grillskála) á Hellu. Um
kl. 4 e.h. verða haldin tvö stutt erindi í
Laufafelli. Klukkan 5 hefst svo á sama
stað aðalfundur Oddafélagsins. Reykvík-
ingum og nágrönnum er bent á að bíll frá
Austurleið fer frá Umferðarmiðstöðinni
(BSÍ) kl. 12 á hádegi en heimferð frá Hellu
til Reykjavíkur verður í síðasta lagi kl. 7
um kvöldið. Farpöntun og nánari uppl.
hjá formanni Oddafélagsins, Þór Jakobs-
syni, í simum 600600 og 31487.
Aðalfundur Bolvikinga-
félagsins
verður á morgun, sunnudaginn 26. jan-
úar, í veitingahúsinu Glæsibæ og hefst
kl. 16.
Meiming
Góðir gestir -
góðir gestgjafar
Þaö voru svo sannarlega góöir gestir sem sóttu Sin-
fóníuhljómsveit íslands heim á fimmtudagskvöldið en
þar voru á ferðinni fmnski hljómsveitarstjórinn Osmo
Vánska og píanóleikarinn Dmitry Alexeév. En það er
eins gott að góðir gestir fái góðar móttökur, og það
fengu þeir svo sannarlega því að framlag heimamanna
var með ágætum.
Tónleikarnir hófust á verki eftir Finn Torfa Stefáns-
son sem hann kallar Hljómsveitarverk n og bendir sú
nafngift til að þetta sé ekki fyrsta hljómsveitarverk
hans, þó að þetta sé hið fyrsta sem hér heyrist. Verkið
byggist að mestu á örlitlum laglínubrotum, uppbygg-
ingin er ekki hefðbundin og hljómræn framvinda ekki
heldur en samt tekst Finni að ná fram spennu og að
skapa heilsteypt verk. Verkið virkar á mig að sumu
leyti eins og mynd sem er samsett úr örlitlum smábrot-
um sem samankomin mynda eina sannfærandi heild.
Þegar maður skoðar þessi smábrot kemur í ljós að þau
eru býsna fjölbreytileg og að þar kennir margra Ut-
ríkra grasa. Finnur teflir saman andstæðum í hljóm-
sveitarht, bæði andstæðum hljóðfærahópum og and-
stæðum í fjölda, þ.e. fáum hljóðfærum gegn mörgum.
Oft mátti heyra mjög fallega samsetta hljóman, eins
Tónlist
Karólína Eiríksdóttir
og til dæmis hjá tréblásurum um miðbik verksins.
Kröftug hljómsveitartúttí heyrðust svo inn á milli. Þau
voru líka mjög stutt eins og laglínubrotin og komu
skyndilega og óundirbúin. Flutningurinn var mjög
góður og komu þessar andstæður og spenna mjög vel
fram.
Hið vinsæla tónaljóð Richards Strauss um prakkar-
ann fræga, Till Ugluspegil, var næst á dagskrá. Strauss
lætur engan sérstakan söguþráð fylgja tónaljóðinu en
tvö aðalstef leiða áheyrandann með söguhetjunni í
gegnum verkið; hið hetjulega sem Joseph Ognibene
kynnti fyrir okkur á fyrstu sekúndum verksins með
sínum siifurtæra homtóni og prakkarastefið sem oft-
ast heyrist í klarinettum. Tónaljóöið er fyrir stóra
Finnur Torfi Stefánsson. Frumflutt var hér á landi
verk hans, Hljómsveitarverk II.
hljómsveit og var liðsauki í tréblásuram. Þetta skilaði
sér allt með ágætum og var flutningurinn kraftmikill,
nákvæmur og lifandi.
Eftir hlé var mættur Dmitry Alexeév sem lék þriðja
píanókonsert Prokofievs áséunt hljómsveitinni. Það er
mikill fengur í slíkum gesti, hann hefur flest það til
að bera sem prýða má einn píanóleikara. Hann ræður
yfir afburðatækni, óvenjulega klingjandi og glitrandi
tón og þeirri innlifun sem til þarf til að koma tónlist-
inni til skila, án þess þó aö ofgera neinu. Áheyrendur
kunnu líka að meta hann og tókst að kría út úr honum
lítinn vals eftir Chopin sem aukalag.
Hljómsveitin spilaði vel á þessum tónleikum, bæði
sem heild og þeir fjölmörgu einstaklingar sem skipa
hana. Osmo Vánska er einn af þessum finnsku stjömu-
hljómsveitarstjórum sem hafa lært hjá Jorma Panula
og er með allt sitt á hreinu. Hann gæddi öll þessi verk
því lífi sem í þeim býr og tókst svo sannarlega að laöa
það besta fram hjá hljómsveitinni.