Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1992, Side 47
LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1992.
59
Fréttir
Stórgróði Sameinaðra verktaka í skjóli einokunar fyrir herinn:
Einkaréttur frá ríkinu
er viða í viðskiptalífinu
Einkaréttur frá ríkinu er víða
Islenskir aðalverktakar
íslenskir aðalverktakar eru með einkarétt á
framkvæmdum fyrir herinn á Keflavíkurflugvelli.
Fjölmiðlun
Ríkissjónvarpið, Stöð 2
og Sýn eru með einkaleyfi
á rásum.
SÍF og Síldarútvegsnefnd.
Ymis störf
lögvernduð.
Ymsar starfsstéttil
Sjávarútvegur
Kvótar til útgerðar frá
ríkinu ókeypis.
Flugleiðir eru með einkarétt
á helstu flugleiðum.
Akstur
Rútusérleyfi og leigubílar.
Landbúnaður
Kvótar til bænda frá ríkinu.
iDVi
Þótt Sameinaðir verktakar, sem til skamms tíma áttu helminginn í íslenskum aðalverktökum, hafi verið ■ sviðsljós-
inu eru mörg önnur einkafyrirtæki með einkarétt frá ríkinu til að framleiða, þjónusta og selja.
Umræðan um 900 milljóna króna
greiðslu til eigenda Sameinaðra
verktaka, sem grætt hafa á tá og
fingri í skjóh einokunar íslenskra
aðalverktaka á framkvæmdum fyrir
herinn, hefur beint sjónum manna
að einokun og einkarétti fyrirtækja
í íslensku viðskiptalífi.
Einkaréttur frá ríkinu leynist ótrú-
lega víða. Til að mynda gefur ríkið
útgerðarmönnum landsins kvóta á
hveiju ári fyrir um 16 milijarða
króna. í samanburði við það verða
svakaiegar upphæðir Sameinaðra
verktaka nánast smáaurar.
900 milljóna fundur-
inn á Hótel Sögu
Það sem gerðist á hlutafjárfundi
Sameinaðra verktaka á Hótel Sögu
síðastliðinn mánudag og hefur verið
í umræðunni alla vikuna var það að
stofnfélagarnir voru að leysa tii sín
900 milljóna króna eign út úr fyrir-
tækinu. Eign sem þeir áttu fyrir,
hafði orðið til á mörgum áratugum
og félagið hafði greitt skatt af í formi
eignaskatts og tekjuskatts.
Dæmið um Sameinaða verktaka
sýnir hins vegar hvemig félög í
einkaeign, sem njóta einkaréttar í
ábatasömum viðskiptum, geta hagn-
ast ótrúlega vegna velvildar ríkisins
að leyfa þeim einum að sitja að kjöt-
kötlunum.
Mikil umræða hefur orðið á und-
anfómum árum um kvótakerfið í
sjávarútvegi og hvernig ríkið leyfir
sumum að veiða og öðrum ekki.
Kvótakerfið í sjávarútvegi er hrika-
legasta dæmið um einokun í íslensku
viðskiptalífi.
Útgerðarmenn fá
lómilljarðaáári
Til er markaðsverð á kvótanum
sem útgerðarmenn hafa fengið hjá
ríkinu. Kílóið af þorskkvóta, sem selt
er á aimennum markaði, er núna á
um 40 krónur. Ætla má að heildar-
veiði íslenskra útgerða nemi núna
um 400 þúsund tonnum þorskígilda.
Ef kílóið kostar 40 krónur fæst út
talan 16 miiljarðar króna á ári.
Efkvótakerfmu verður ekki breytt,
þannig að þeir sem eiga kvóta núna
hafi hann ótakmarkað áfram án þess
að greiða krónu til ríkisins fyrir
hann, verða tölumar stjamfræðileg-
ar á íslenska vísu sem ríkið gefur
einstökum útgerðarmönnum.
Miðað við að kílóið af þorskkvóta
til eins árs gangi á um 40 krónur má
tífalda þá upphæð (miðað við 10 pró-
sent arðsemiskröfu) þannig að farið
er að tala um 160 milljarða eða svo.
Markaðurinn með kvóta tekur nú
hins vegar tillit til óvissu með fram-
hald kvótakerfisins og eru svonefnd-
ir langlífiskvótar á þorski seldir á
um 160 krónur kílóið. í þeim tilvikum
kaupa útgerðarmenn bæði skip og
kvóta þess.
Dæmi eru um að útgerðarmenn,
sem fengið hafa gefinn kvóta frá rík-
inu, hafi ákveðið að hætta útgerð og
selt kvótann. Nú lifa þeir kóngalífi á
því að ávaxta fé sitt á verðbréfamark-
aði en þar eru allar vaxtatekjur full-
komlega skattfrjálsar. Skiptir þá
ekki máh hvort viðkomandi hefur
eina miUjón í vaxtatekjur á ári eða
100 milljónir. Þetta heitir ekki aðeins
að láta peningana vinna fyrir sig
heldur ríkið Uka.
Einkaréttur Flugleiða
á helstu flugleiðum
í samgöngum á íslandi ríkir viða
einokun. Þekktasta og umdeildasta
dæmið er að Flugleiðir hafi einkarétt
frá íslenska ríkinu á helstu flugleið-
um til og frá íslandi. Aörir sem vilja
komast ekki að.
Þó má geta þess aö íslenska ríkið
getur ekki meinað erlendum flugfé-
lögum, sem vilja fljúga áætlunarflug
á þessum leiðum, aðgang. Þannig
flýgur SAS í samkeppni við Flugleiö-
ir á Kaupmannahafnarleiðinni. Brit-
ish Airways gæti hvenær sem það
viU haflð áætlunarflug á leiðinni
London-Keflavík. Þá má geta þess
að þýska flugfélagið Lufthansa flýg-
ur lítillega tU íslands yfir sumarið.
Þjónustu-
samningurinn á
Keflavíkurflugvelli
Nýlegt dæmi um hreinan og kláran
einkarétt Flugleiða frá ríkinu er
samningur samgönguráðuneytis og
Flugleiða í byrjun ársins um að félag-
ið hafi einokun á að þjónusta flugvél-
ar sem lenda á KeflavíkurflugveUi.
Áöur höfðu Flugleiðir um nokkra
hríð haft sams konar samning. Og
þennan einokunarsamning fengu
Flugleiðir þrátt fyrir að annað félag
hefði óskað eftir því að fá að þjón-
usta á vellinum.
í akstri eru sérleyfi frá ríkinu. Tak-
mörk eru á fjölda leigubíla. Þar njóta
þeir þess sem lengi hafa verið í leigu-
bílaakstri og voru svo heppnir að fá
leyfið á sínum tíma. Aðrir sem vUja
aka leigubílum og standa fyrir utan
geta ekki hafið leigubflaakstur. Þá
má geta þekktra sérleyfa rútufyrir-
tækja á einstökum sérleiðum.
Ókeypis kvóti
til bænda
í landbúnaði er kvótakerfi sem
nefnt er fuUvirðisréttur. Það er sams
konar kerfi og það sem er í sjávarút-
vegi. Þegar Jón Helgason, þáverandi
landbúnaðarráðherra, gerði búvöru-
samninginn fræga árið 1985 var kom-
ið á kvótakerfi sem tók mið af fram-
leiðsluástandinu í landbúnaði. Það
varð virkt árið 1986.
Bændur geta selt kvótann sem
þeim er úthlutað ókeypis frá ríkinu.
TU er markaðsverð bæði á mjólkur-
kvóta og kindakjötskvóta. Til viðbót-
ar njóta svo bændur þess að land-
búnaðurinn á íslandi er ríkisstyrkt-
ur.
Lögverndaðar
starfsstéttir
Margar starfsstéttir njóta þess að
vera lögverndaðar af ríkinu. Aðeins
þeir sem hafa til þess tUskilin rétt-
indi hafa einkarétt á aö stunda þær,
aðrir mega ekki koma þar nálægt.
Hér má nefna iðnaðarmenn, auk
auðvitað stétta eins og lækna og flug-
manna.
Annað gott dæmi um vemdaða
starfsgrein er kennarar. Vegna
skorts á kennurum víða úti á landi
Fréttaljós
Jón G. Hauksson
hafa ómenntaðir kennarar, svo-
nefndir leiðbeinendur, kennt. Þeir
verða hins vegar að víkja samstundis
sæki menntaður kennari um og vUji
starfið.
Færa má rök fyrir því að lögvernd-
aðar starfsstéttir fái hærri laun fyrir
það eitt að starfið er lögverndað.
Væntanlega eru gæði þjónustunnar
einnig betri.
SÍF með einokun
í mörg ár
Almenna reglan í útflutningi á
sjávarafurðum er sú að tU þarf leyfi
stjómvalda. Útflutningur á frystmn
fiski er fijáls. Hins vegar er engum
heimUt að flytja út sUd, þótt vUji sé
fyrir hendi, nema sUdarútvegsnefnd.
Þá hefur Sölusamband íslenskra fisk-
framleiðenda, SÍF, fengið eitt félaga
undanfama áratugi leyfi til að selja
saltfisk í helstu markaðslöndunum.
Um áramótin stóð hins vegar tU að
auka frelsið og gefa fleirum tækifæri.
Stöð 2 með verðmætt
ríkisleyfi á
metrabylgjusviði
í fjölmiðlum er verðmætur einka-
réttur frá ríkinu í sjónvarpsrekstri.
íslenska ríkissjónvarpið, Stöð 2 og
Sýn hafa sjónvarpsleyfi, aðgang að
ákveðnum rásum sem takmarkaður
fjöldi er af.
Þessar sjónvarpsstöðvar eru á
metrabylgjusviði en á því sviði er
ekki rúm fyrir fleiri sjónvarpsstöðv-
ar. Þær sjónvarpsstöðvar, sem ætla-'
að hefla útsendingar, þurfa að vera
á desímetrasviði. Áhorfendur þurfa
að fara upp á þak og breyta sjón-
varpsloftnetum sínum tU að ná út-
sendingum á desímetrasviði. Verð-
mæti þess fyrir Stöð 2 og Sýn að vera
með sjónvarpsleyfi frá ríkinu á
metrabylgjusviði má meta tU hundr-
aða milljóna króna og stöðvamar
væru nánast einskis virði án þessa
einkaréttar.
Af þessu er ljóst að einokun og
einkaréttur fyrirtækja, bænda og
einstakhnga frá ríkinu er miklu víð-
ar að finna en hjá eigendum Samein-
aðra verktaka sem tóku rétt sisvona
við ávísunum að andvirði 900 mUlj-
óna króna í lok fundarins á Hótel —
Sögu á mánudaginn.
Þessa dagana fara upptökur fram
á þeim tíu lögum sem keppa munu
í Söngvakeppni Sjónvarpsins.
Fyrri hluti laganna, fimm lög,
verða kynnt fóstudaginn 7. febrúar.
Keppnin mun fara fram í sjón-
varpssal síðar í febrúar. Höfundar
laganna verða ekki gefnir upp fyrr
en í lokin.
Þegar ljósmyndari DV leit inn í
upptökuver Sjónvarpsins á
fimmtudag var Bjami Arason aö
syngja. í bakröddum hjá honum
var stór hópur manna, Magnús Þór
Sigmundsson, Jóhann Helgason,
Eva Ásrún Albertsdóttir, Ema
Gunnarsdóttir og Eyjólfur Kristj-
ánsson.
Sigurlagið í keppninni verður
þátttakandi í Eurovision sem fram
fer að þessu sinni í Stokkhólmi í
maí.
Sviðsljós
Bjarni Arason syngur hér af mikilli innlifun lag ókunns höfundar í
Söngvakeppni Sjónvarpsins. DV-myndir Brynjar Gauti