Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1992, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1992, Side 2
2 LAUGARDAGUR 14. MARS 1992. Fréttir Skipulogð gjaldþrota- leið er mjög varasöm - segir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra um stöðu sjávarútvegsins Eftir að þú birtir skýrslu á Alþingi um að 5 af hveijum 8 fyrirtækjum í sjávarútvegi væru á gjaldþrota- braut hafa jafnvel ráðherrar lýst því yfir að ákveðinn hluti sjávarút- vegsfyrirtækja verði að fara í gjald- þrot. Þú hefur lýst því yfir að þessi leið verði ekki farin. Er þarna ágreiningur um leiðir? „Það vona ég að sé ekki. Ég held að flestir séu þvi sammála að halda þannig á hlutunum að fyrirtæki verði ekki gjaldþrota. Hins vegar getur það alltaf gerst í sjávarútvegi eins og annars staöar. Þá verða menn bara að taka því. Kjami málsins er hins vegar sá að við er- um með fleiri fyrirtæki, bæði í veiöum og vinnslu, en þörf er fyrir miðað við þann afla sem við getum tekið á land. í útgeröinni erum við að taka á þessu með markvissri úreldingu fiskiskipa. Ég fékk sam- þykkt lög um þetta á Alþingi í vet- ur. Kvótakerfið hefur stuðlað að því að menn vilja færa saman veiði- heimildir. Uppi em hugmyndir í endurskoðunamefndinni að kanna hvort hægt er að koma viö svipuð- um aðgeröum að því er varðar fisk- vinnsluna. Það er flóknara mál og ekki víst að það sé framkvæman- legt. Þama erum við að tala um stuöningsaðgerðir til að auðvelda atvinnugreininni aðlögun að breyttum aöstæðum." Margir segja að fjölmörg fyrirtæki í sjávarútvegi hafí ekki tima til að bíða eftir þvi að þessar aðgerðir sem þú nefndir hafi áhrif? „Það verður aldrei komið í veg fyrir að einhver fyrirtæki geti orðið gjaldþrota. Til þess geta líka legið margvíslegar ástæður, svo sem lé- leg stjómun svo dæmi sé tekið. Þá er það bara á ábyrgð eigendanna. Við emm hér að glíma við miklu stærra viðfangsefni en lýtur að þessum þáttum. En ég vil taka fram að skipulögð gjaldþrotaleið er mjög varasöm. Hún leiðir ekki til þeirrar hagræðingar sem nauðsynlegt er að stefna að. Við sjáum það í mörg- um tiifellum þar sem fyrirtæki í sjávarútvegi hafa orðið gjaldþrota. Þá koma sveitarfélögin inn, bank- arnir koma inn. Allir em að veija sína hagsmuni og sama fyrirtækið er sett af stað aftur. Það dregur því ekki úr fjárfestingunni á bak við framleiðsluna heldur skekkir bara myndina enn frekar. Endurreista fyrirtækið fær tækifæri til að keppa viö annað fyrirtæki á staðn- um, skuldsett en skár sett, og koma því á höfuðið. Svona getur þetta gengiö koll af kolli. Það er því þjóð- hagslega hagkvæmt að taka á vandanum með skipulögðum hætti." Ertu með þessu að segja að tími sértækra aðgerða sé ekki liðinn eins og ríkisstjórnin hefur boðað? „Ríkisstjómin hefur einsett sér aö hverfa frá sértækum aðgerðum sem mest enda skila þær ekki ár- angri til langtíma htið. En það er ekki hægt að neita því að við þess- ar aöstæður em mjög víðtækar aðgerðir í gangi. Þær hljóta að telj- ast sértækar. Sveitarfélög eru að ganga inn í fyrirtæki, ýmist með lánafyrirgreiðslu eða eignaraðild. Sennilega er meira um þetta nú en um langan tíma. Það hlýtur að vera keppikefli fyrir ríkisstjóm, sem vinnur gegn slíku, að snúa dæminu þannig við að rekstur sjávanit- vegsins kalli ekki á sértækar að- gerðir. En meðan viðskiptahaflinn er jafn mikill og raun ber vitni er við því að búast að sveitarfélög og aðrir aðilar hlaupi inn í reksturinn, jafnvel þótt ríkið dragi sig út úr slíkum aðgerðum." Það er mikill munur á skoðunum þinum á sjávarútvegs- og atvinnu- málum og til að mynda Daviðs Oddssonar og fleiri ráðherra. Marg- ir halda því fram að þú sért fyrst og fremst hagsmunagæslumaður sjávarútvegsins? „Eg held að menn séu að ofgera einhvem áherslumun í þessu efni. En sá sem er hagsmunagæslumað- ur íslensks sjávarútvegs er um leið hagsmunagæslumaður fyrir ís- lenskan þjóðarbúskap. Sjávarút- vegurinn leggur þjóðarbúinu til 80 prósent af gjaldeyristekjum fyrir Yfirheyrsla Sigurdór Sigurdórsson vöruútflutningi landsmanna. Meg- inhluti verðmætasköpunar í þjóð- arbúinu og lífsviöurværis fólksins í landinu, þeim sem í öðmm grein- um starfa, er sprottinn upp úr sjáv- arútveginum. Ég stunda því að sjálfsögðu hagsmunagæslu fyrir íslenskan þjóðarbúskap. Mér er trúað fyrir málefnum sjávarút- vegsins og mun rækja það starf af kostgæfni." Þú viðurkennir ekki skoðanaá- greining milli þín og Daviðs Odds- sonar i sjávarútvegs- og atvinnu- málum? „Ég held að það fari ekki á milfl mála að menn eru sammála um að það þurfi að reka hér efnahags- stefnu sem viðheldur stöðugleika, eyðir viðskiptahallanum og tryggir góða afkomu höfuðatvinnugreinar þjóöarinnar. Ég hef ekki heyrt ágreining um þessi markmið." Veiðileyfagjald, þar er ágreiningur. Ekki bara innan Sjálfstæðisflokks- ins, heldur á milli stjómarflokk- anna. Hafnar þú því með öllu? „Það er ekki nýtt að ágreiningur sé um hvort skattleggja eigi sjávar- útveginn. Menn verða að hafa það í huga aö í 20 ár höfum við búið við viðskiptahalla að árinu 1986 undanskildu. Það táknar að við erum að taka fjármuni frá sjávar- útveginum og færa til neyslunnar. Það hefur því verið gengið á hlut sjávarútvegsins. Þess vegna meðal annars er hann í þessari erfiðu stöðu í dag. Það hljómar því dálítið skringilega í, eyrum almennings þegar menn á sama augnabliki minna á að skuldir sjávarútvegsins hafa aukist jafnt og þétt með hverju árinu, en segja svo í hinu aö þaö þurfi að leggja á hann nýja skatta. Ég held að allir geri sér grein fyrir því að það er ekki leiðin út úr vand- anum nema síður sé. Um hitt deila menn ekki að þegar tekist hefur að snúa þessari þróun við, sem ugg- laust tekur nokkur ár, þá verður ekki ágreiningur um aö sjávarút- vegurinn borgi eðlilega af sinni af- komu í sameiginlegan sjóð lands- manna.“ Þótt þú hafnir veiðileyfagjaldi er það staðreynd að útgerðarmenn fá endurgjaldslaust afíakvóta frá þjóðinni, en versla svo með hann sem sina eign án tillits til byggðar- laga, hvað þá sjómanna sem eiga allt sitt undir kvótanum. Þeir út- gerðarmenn sem kaupa kvóta í dag fyrir milljónir af öðrum útgerðar- manni tala ekki um skatt. Er þetta ekki veiðileyfagjald sem rennur bara í vasa þess útgerðarmanns sem selur? „Þetta er auðvitað misskilningur. Það er grundvallarmunur á skatt- greiðslu til ríkisins og fjárfestingu í kvóta til lengri eöa skemmri tima. Ég hef bent á það til skýringar að þótt Morgunblaðiö hafi efni á að byggja nýja Mörgunblaðshöll, af því aö þaö er nauösynleg fjárfesting til áframhaldandi reksturs blaðs- ins, þá eru það ekki rök fyrir því að Morgunblaðið geti borgar hærri skatta. Á sama hátt er útgeröin að fjárfesta í viðbótaraflaheimildum til að nýta betur þá fjárfestingu sem fyrir er. Framsal á aflaheimildum er óhjákvæmilegur þáttur til að ná fram þeirri hagræðingu, sem við keppum aö. Ef þaö væri bannað myndi hagræðingin ekki nást. Flest fiskiskip eru veðsett fyrir skuidum að 80 til 90 hundraðshlutum. Sá sem selur kvóta þarf að nota pen- ingana til að greiða þessar skuldir niður ella sætu fjármálastofnanir uppi með skuldirnar og yrðu að afskrifa þær. Við skulum líka hafa það í huga að verömæti fiskiskipa með aflaheimildum í dag er ekkert meira en verðmæti fiskiskipa áður en kvótakerfið var sett á. í heild eru því ekki meiri verðmæti í fiski- skipum og kvóta en áður.“ Þú hefur lagt fram frumvarp sem þrengir nokkuð kost frystiskipa. Þau eru þó með langbestu afkom- una, sem og skip sem selja afla sinn á mörkuðum. Skip bundin frysti- húsum og fiskvinnslustöðvum í landi standa illa sem og fiskvinnsl- an. Er frystingin i landi ekki orðin dragbítur á lifskjör hér á landi? „Nei, því fer víðs fjarri. Hagvöxt- ur í framtíðinni er kominn undir nýrri vöruþróun í vinnslu sjávaraf- urða. Aukinni fullvinnslu og virk- ari markaðssetningu. Ég hafna því alveg að fiskvinnsla í landi sé drag- bítur á lífskjörin, þá væri illa kom- iö fyrir þjóðinni ef svo væri. Frysti- togararnir gegna mikilvægu hlut- verki. Þeir vinna hráefni mjög ferskt. Þaö hefur hins vegar skort á að þeir nýti hráefniö nægjanlega vel. Það er jafnvel innan við helm- ingur af hráefninu sem þeir nýta. Frumvarpið sem ég hef lagt fram miðar að því að auka gæðin og tryggja betri nýtingu hráefnis. Viö getum ekki aukið hagvöxtinn á næstu árum með því að taka hrá- efni úr sjónum. Hagvöxtur verður því fyrst og fremst til með nýrri vöruþróun og nýrri markaðssetn- ingu. Við þurfum ekki að fjárfesta í fiskiskipum eða fiskvinnslufyrir- tækjum heldur í nýjum lílutum. Við þurfum sjávarútveg sem skilar miklum hagnaði til að takast á við ný verkefni og nýja möguleika sem opnast með evrópska efnahags- svæðinu."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.