Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1992, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1992, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 14. MARS 1992. Fréttir Danski Kínafarinn óánægður með hrossaviðskiptin á íslandi: Segir fjóra af f imm hestum ónothæfa - íhugaraðnotadanskfæddahestaíleiðangurinn Hér sjást þeir félagar, Paul Rask, til vinstri, á Toppi, og Steen Gees Christensen á Blakki, tveimur þeirra hesta sem þeir hugðust nota í Kínaferðina. Þeir reyndust hins vegar vera ónothæfir að þeirra mati þegar á hólminn var komið. „Ég get ekki með góðri samvisku ráðlagt fólki að kaupa hesta frá ís- landi nema það sé 100 prósent öruggt um að hestamir séu í lagi. Það er hægt að skila hestum sem eru keypt- ir í Danmörku og Þýskalandi en þaö er ekki nokkur leið að skila hestum sem eru keyptir á íslandi,“ segir Paul Rask, danskur hestamaður, sem er óánægður með þá hesta sem hann hefur fengið frá íslandi. Hami og Steen Christiansen hafa haft í hyggju að fara ríðandi um 15 þúsund kílómetra leiö frá Viborg í Danmörku til Peking í Kína á sex íslenskum hestum og er áætlaður brottfarardagur 1. mars á næsta ári. Þrír hestanna eiga að koma frá ís- landi og þrír frá Danmörku og er til- gangur ferðarinnar meðal annars sá að gera samanburðarrannsókn á vöðvabyggingu íslenskfæddra hesta og danskfæddra. Leiðangur Rasks og félaga hans hefur vakið mikla athygli og hefur verið fjallað um hann í fjölmiðlum ytra, meðal annars í Þýskalandi, Frakklandi, Englandi, Kanada, Sví- þjóð og Danmörku og breska sjón- varpsstöðin BBC hefur sýnt áhuga á að fylgja leiðangrinum eftir og jafn- vel að gera heimildarmynd um hann. Fékk fimm hesta Rask telur því að vonum að þetta gæti verið góð auglýsing fyrir ís- lenska hestinn og orðið til þess að auka enn frekar útflutning á þeim. Það er ef samtök hestamanna á íslandi hafa vit á aö nýta tæki- færið í stað þess aö kasta því á glæ. Rask hefur nú fengið fimm hesta senda til Danmerkur frá íslandi og hafa þeir vakið litla hrifningu hans. Tveir voru með spatt í afturfótum, einn var með lélega hófa, sá fjóröi var brokkari en allt virtist í lagi með þann fimmta. í bréfi, sem Rask hefur ritað Félagi hrossabænda og fleiri aðilum, segist hann hafa átt fund með fulltrúum frá Félagi hrossabænda á Hótel Sögu í september 1991 og þar hafi menn lýst miklum áhuga á leiðangrinum og boöist til að hafa milligöngu um að útvega þijá hesta héðan sem þeir væru fuílvissir um að gætu staðist það álag sem fylgdi því að leggja þessa löngu leið að baki. „Ég taldi að ég hefði gert það sem í mínu valdi stóð til aö finna réttu hestana þijá því ég haföi snúiö mér til sérfróðra manna á íslandi, fólks sem ég stólaði á að myndi fmna réttu hestana og gæti kynnt ísland í fjöl- miðlum. Aö fundi loknum var ég viss um að ég hefði lagt málið í réttar hendur. Áður en ég hélt frá íslandi var mér sagt að Félag hrossabænda myndi styrkja leiðangurinn um 200 þúsund íslenskar krónur. Ég greiddi sjálfur jafnháa upphæð fyrir feröina til ís- lands." Rask fékk svo tvo hesta senda til Danmerkur í september á síðasta ári. Þeir voru umsvifalaust sendir til rannsóknar hjá dýralækninum, Hans Schougaard á Nörlund Heste- hospital. Úrskurður hans var að báðir hest- arnir væru með spatt í afturfótum. Hættu við að styrkja ferðina ' „Skömmu áður en hestamir komu til Danmerkur fékk ég bréf frá Félagi hrossabænda meö tilkynningu um að þeir treystu sér ekki til aö styrkja leiðangurinn um þær 200 þúsund krónur sem þeir höfðu lofað. Mér var hins vegar falið að senda þeim eins fljótt og auðið væri undirritað skuldabréf með vottum upp á 200 þúsund krónur. Nú var ég með í höndunum tvo verðlausa hesta auk eins sem var enn á íslandi og ég vissi ekkert um. Á sama tíma og ég var orðinn 600 þúsund krónum fátæk- ari.“ Rask sneri sér þá til Erlings Jóns- sonar, hestamanns og ritsfjóra, og bað hann að útvega sér þrjá klár- hesta meö tölti í staö hinna fyrri. Segir Rask að Erling hafi orðið við þessari bón en þegar hestamir vom komnir út hafi einn þeirra, Léttir frá Skarði, reynst vera með hófsperm og lélega hófa. Glæsir frá Brekku var brokkari en Fífill frá Auðsvaldsholti reyndist vera í lagi. Danskur dýra- læknir hefur skoöað hestana en hann getur ekki mælt með að Léttir frá Skarði færi í leiðangurinn. Rask klykkir svo út í bréfi sínu með því að segja að ef samtök hesta- manna á íslandi telja að þessir hestar séu verðugir fulltrúar íslenskra hesta ættu þeir að hugsa sig tvisvar um hvað þeir séu að senda úr landi til þess að þeir eyðileggi ekki útflutn- ing á íslenskum hestum. Hann segir einnig að það verði að vega það og meta nú hvort ekki eigi að hætta við að nota íslenska hesta í Viborg- Peking-leiðangurinn og nota þess í stað eingöngu danska hesta. -J.Mar Kristinn Guönason á Skarði í Landsveit um gagnrýni Rasks: Allir haffa verið boðnir og búnir að greiða götu hans hér á landi „Þessi maður er að leika sér að okkur. Það hafa allir verið boðnir og búnir að greiða götu hans hér á landi. Paul Rask kom hingað haustið 1990 tfi að leita að hesti til aö fara í Kína- ferðina. Hann fór með okkur á afrétt ög fékk lánaöan hest sem honum lík- aði óhemju vel við. Ég seldi honum þennan hest fyrir lítið verö. Hann kom svo hingað aftur í haust, sagði okkur þá að hesturinn væri með signa hófbotna en taldi þó að hann kæmist í leiðangurinn," segir Krist- inn Guðnason á Skarði í Landsveit en hann seldi Rask hestana fimm. „Hann fór svo aftur með okkur á fjall til að velja sér hesta. Hesturinn sem hann var hrifnastur af þar og sá eini sem hann var harðákveðinn í að velja sjálfur var rauðblesóttur klár. Rétt áöur en hann fór út keypti hann svo tvo hesta til viðbótar, bleik- an klár og lítinn, brúnan hest. Ég seldi honum hrossin á 400 þúsund krónur sem var langt undir mark- aðsverði. Það næsta sem ég heyri er að bleiki klárinn hafl fengið kveisu og verið kyrrsettur hér heima af dýralæknum. Hinir tveir voru hins vegar sendir út. Rask fer með þá í læknisskoðun, þá kemur í ljós að þeir eru með spatt í afturfótum. Rask hringir í mig í öngum sínum og ég segi honum aö kunningi minn taki þessa hesta og lofa að senda honum aðra klára í staðinn fyrir þessa tvo. Hestamir fara svo út þann 18. desember og höfðu þá gengið í gegnum fullkomna læknisskoöun híá dýralækni hér heima. Til að vera viss um að allt væri í lægi sendi ég honum þann bleika sem ekki hafði komist með í fyrra skiptið. Rask hringir þegar hann er búinn að fá hestana og seg- ist vera ánægður með þá. Síðan höf- um við ekkert heyrt í honum fyrr en hann sendir þetta bréf. Rask hefur ekki borið neinn auka- kostnaö vegna þessa því ég borgaöi flutningskostnaðinn út fyrir hestana sem reyndust vera gallaðir og eins greiddi ég uppihald fyrir þá á meðan þeir voru í hans umsjá." -J.Mar 13 V Halldór Gunnarsson: Valdi og keypti hestana sjalfur „Fullyrðingar Rasks um að Fé- lag hrossabænda hafi valið fyrir hann hesta hér á landi til að nota í leiðangurinn til Kína eru út í hött. Hann valdi og keypti hest- ana sjálfur. Það kom aldrei til greina að aðilar hér á landi færu að kaupa hesta fyrir hann,“ segir Halldór Gunnarsson, formaöur Félags hrossabænda. „Paul Rask var í heimsókn hér á landi haustið 1991 til að ræöa við ýmsa aðila um fyrirhugaða Kínaferð og meðal annars ræddi hann við fulltrúa Félags hrossa- bænda. Við töldum rétt að styðja Paul Rask í þessu máli sem var um margt áhugavert, til aö mynda þær vísindarannsóknir sem áttu að fara fram á hestun- um. Auk þess töldum við að það gæti verið mikil kynning fólgin í þessu fyrir íslenska hesta. Hon- um var því veittur styrkur upp á 200 þúsund krónur til að kaupa hesta hér á landi. Styrkurinn var hins vegar með fyrirvara um að hann færi ferðina eins og hann hafði ky nnt hana. Því var ákveðið að skuldfæra upphæðina við hann þangað til hann hefði lokið ferðinni. Hann fer svo og kaupir þijá hesta og okkur er kunnugt um að tveir þeirra hafi verið dæmdir gallaöir sökum þess aö þeir voru meö spatt. Seljendur hestanna reyndu þegar að bæta honum það með því að senda honum aðra hesta. Nú er hann í þriðja skiptið að tala um að þeir séu ekki nógu góðir og vafalaust verður það skoðað af seljendum hvort enn verði komiö til móts við hann." -J.Mar HelgiSigurösson: Það var alltílagi með hest- anaþrjá „Ég skoðaöi hestana þrjá sem fóru út í desember og ég gat ekki fundiö annað en það væri allt í lagi með þá,“ segir Helgí Sigurðs- son dýralæknir. „Hófsperra er í mjög mörgum íslenskum hestum og stafar af fóðurbreytingum. Hún kemur til að mynda oft upp þegar þeir fara út á vorin eftir að hafa staðið yfir veturinn. Við höfum áður fengið athuga- semdir, til dæmis frá Þýskalandi, um hesta sem hafa farið þangaö og fengið hófsperru. Ef það ætti að dæma islenska hesta ónýta af þessum sökum væru afskaplega margir íslenskir hestar ónothæf- ir. Þetta er þvi afskaplega lang- sótt þegar maðurinn er að benda á þetta atriði. Ég skoðaði ekki hestana sem fóru út og voru með spatt en ég tók röntgenmyndir af þessum nestum sem fóru út í desember og skoðaði þá nákvæmlega. Þaö var allt í lagi með þá. Þó aö þessi eini hestur hafi verið meö hóf- sperru er ég viss um aö hann gæti farið til Kina af þeim sökum. Þetta eru þvi afskaplega langsótt rök sem bent er á í þessu bréfi Rasks." -J.Mar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.