Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1992, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1992, Blaðsíða 25
25 LAUGARDAGUR 14. MARS 1992. Baráttu við b arnavernd arnefnd lauk á dramatískan hátt fyrir 20 árum: Rændi syni sínum - nefndin virtist ekki hugsa um hagsmimi mína, segir sonurinn „Ég missti íbúðina sem ég leigði þar sem leigusalinn dó og íbúðin var seld. Ég stóð á götunni með tvö börn, 13 ára stelpu og 9 ára strák. Það fannst mér ekki ganga og því leitaði ég hjálpar hjá félagsmálastofnun um stundarlausn á vandraeðum mínum. Bömunum var komið fyrir, stelp- unni í sveit fyrir austan og stráknum á afskekktum bæ við Grindavík. Mér var sagt að ég fengi þau aftur um leið og ég hefði fundið húsnæði. Stráknum líkaði hins vegar ekki al- veg vistin í fyrstu og vildi koma til mín. Ég vildi sækja hann og fara með hann til móður minnar á Akranesi. Þegar ég síðan reyndi að fá strákinn var mér neitað og þar við sat. Eftir nær fimm ára baráttu við kerfið hafði ég og íjölskylda mín fengið nóg. Við tókum þá ákvörðun að fara suð- ureftir og sækja drenginn. Við rænd- um honum hreinlega," sagði Jenný Franklínsdóttir, húsmóðir að Refs- stöðum í Hálsasveit í Borgarfirði, í samtali við DV. Jenný komst á forsíðu Vísis fyrir 20 árum þegar hún fór ásamt fóður sínum, bróður og fleirum að bæ við Grindavík og rændi Guðlaugi syni sínum frá fjölskyldu þar sem honum hafði verið komið fyrir í fóstur á vegiun barnaverndamefndar. Und- angengna fimm mánuði hafði Jenný reynt að fá son sinn til sín aftur en án árangurs. Eftir að hafa þrætt veg- inn milli félgsmálastofnunar, barna- verndarnefndar Reykjavíkur og barnavemdarráðs án þess að fá son sinn var henni nóg boðið. í dag er Guðlaugur 29 ára gamall. Hann á konu og 10 mánaða gamlan son. Fjölskyldan býr í Breiðholti, í íbúð sem þau keyptu fyrir fjórum ámm. Guðlaugur vinnur sem bíl- stjóri hjá fyrirtæki í bænum og lifir eins og fólk gerir flest. Treysti munnlegu samkomulagi „Ég fékk íbúðina sem ég leigði forð- um í gegn um Félagsmálastofnun Reykjavíkur. Þegar ég fór þangað aftur vegna húsnæðisvandræða minna hitti ég mann sem spurði hvort krakkarnir gætu ekki farið í sveit um sumariö. Ég tók ágætlega í það og fóru þau að bæ í Gaulverja- bæjarhreppi fyrir austan. í septemb- er segir sami maður mér að hann sé búinn að fá pláss fyrir strákinn suð- ur í Grindavík. Ég var sæmilega sátt við það þar sem hann átti frændfólk í Grindavík. Til að uppfylla formsatr- iði kom maðurinn með plagg sem ég varð að skrifa undir, öðruvísi gat ég ekki fengið hjálp stofnunarinnar. Ég skrifaði undir án þess þó að skoöa plaggið neitt nánar. Við höfðum talað um að vistunin yrði tímabundin og ég treysti manninum fullkomlega." Guðlaugi var komið fyrir á af- skekktum bæ við Grindavík 16. sept- ember 1971. Á afmælisdaginn hans, 29. september, hringir Jenný í haim. Fannstfarið ábakvið sig „Hann grét í símann og sagðist ekki vilja vera þama, sér leiddist svo mikið. Mér leið ekki vel að heyra það svo ég hringdi í manninn hjá félags- málastofnun og tjáði honum það. Hann sagði þá að strákurinn yrði að vera áfram í fóstri, ég hefði enn ekki fengiö nema herbergi að búa í. Ég sagðist vilja ganga í máhð og tala viö móður mína á Akranesi. Það gekk hins vegar ekki. Ég hringdi þá í barnavemdamefnd og kvartaði yfir þvi að Félagsmálastofnun væri að bijóta á mér. Þá kom hins vegar í ljós að ég var að tala við sama mann- inn og hafði með mál mitt hjá Félags- málstofnun að gera. Hann var þá líka Jenný og Guðlaugur skoða blaðaúrklippur þar sem sagt er frá því er hún rændi honum úr fóstri fyrir 20 árum. Jenný finnst hafa verið farið á bak við sig og Guðlaugi finnst ráðstöfun barnaverndarnefndar á þessum tíma ekki hafa miðast við hagsmuni sina. , DV-mynd GVA % W~ — í barnaverndamefnd og stýrði mál- inu þaðan. Það hafði ég ekki haft hugmynd um.“ Jenný sagði Utið hald hafa verið í munnlegu samkomulagi sem hún gerði við umræddan mann. Þegar á reyndi kom upp úr kafinu að hún hafði skrifað undir plagg þar sem stóð að sonur hennar yrði að vera í fóstri eitt ár hið minnsta. Hún segir að at- hygU sín hafi aldrei verið vakin á því. „Það var ekki allt. í stað þess að vera í Grindavík var strákurinn á afskekktum bæ án rafmagns. Maður- inn haföi gefið vUyrði fyrir þvi að strákurinn fengi að koma heim fil móður núnnar á Akranesi um jóUn en þar kom fjölskyldan alltaf saman. Það var hins vegar svikið. Þá kom einnig í ljós að þar sem bærinn var svo afskekktur var ekki hægt að senda strákinn í skóla. Hann fór tvisvar í skóla í Grindavík þessa fimm mánuði. Við höfum aldrei haft neitt á móti fólkinu sem fóstraöi strákinn, það gerði sitt besta en það gat hver maður séð að þetta var ekki gott fyrir hann. Þar að auki fékk hann ekkert tækifæri til að leika við jafnaldra sína. Hjónin voru barnlaus. Þetta var því mjög sérkennileg ráð- stöfun hjá nefnd sem kennir sig við barnavemd. Og það mislíkaði mér eðUlega. Mér fannst farið iUa á bak við mig.“ Ömurlegjól Jenný og tveir bræöur hennar fóru Guðlaugur 8 ára, skömmu áður en hann var vistaður suður með sjó. suður eftir daginn fyrir Þorláks- messu, vissu ekki betur en strákur fengi að vera með fjölskyldunni um jóUn. „Strákurinn kom á móti mér og æpti „Mamma er komin, mamma er komin." Mér var bent á að maöurinn hjá bamavemdarnefnd hefði hringt og sagt að ekki væri tímabært að drengurinn færi heim. Ég ætlaði ekki að gefa mig en varð þó frá að hverfa. Ég ætlaði ekki að hafa það þegar við gengum frá bænum í snjónum og án hans. Ég lak hreinlega niður.“ Jenný fór upp á Akranes með dótt- ur sína sem leið vel í sinni vist aust- ur í sveitum. Þessi jól segir hún hafa verið þau ömurlegustu jól sem hún hefði nokkum tima upplifað. Mælirinn fullur „Eftir áramót hélt ég áfram að ganga á mUU aðila í kerfinu. Það var farið að síga í mig og mitt fólk. Það var á hreinu að bamavemdar- nefnd hafði ekkert á mig. Ég var reyndar hálfur öryrki vegna bak- veiki en vann í söluturni og hafði aldrei vanrækt börnin. Örorkan var notuð gegn mér, sagt að ég væri ekki hæf til að hafa strákinn. Það lá aldr- ei neinn úrskurður eða dómur fyrir um að ég ætti ekki að hafa drenginn og ég ætlaði mér aldrei að láta dreng- inn, bara vista hann tímabundið. Mamma vildi taka strákinn og mig aö sér og skrifaði bamavemdar- nefnd í Reykjavík bréf vegna þess en aUt kom fyrir ekki. Ákvörðun nefnd- arinnar varð ekki haggað. Ævintýraleg ferð Við ákváðum að gefa okkur ekki gegn ofurvaldi bamavemdarnefndar og ákváðum að taka strákinn. Það varð ævintýraleg ferð.“ Með í ferð 19. febrúar 1972 voru foreldrar Jennýar, bróðir og maður sem að- stoðað hafði Jenný eftir fóngum. Far- ið var á tveimur bílum. Þegar komið var að bænum kom strákurinn hlaupandi. „Ég sagðist vera að sækja hann. Hann varð voða kátur og hljóp inn til að ná í dótið sitt. Hins vegar skellti húsfreyjan á mig dymnum en mér tókst að setja fótinn milU stafs og hurðar. Þá kom bróðir minn og hjálpaði mér og sagði stráknum að smeygja sér út. Hann gerði það en frúin segir þá að síminn sé til mín. Þá var maðurinn frá bamaverndar- nefnd í símanum og spurði hvað ég væri að gera. Ég sagðist vera að gera það sem ég hefði alltaf ætlað aö gera, sækja strákinn." TU að bóndinn á bænum elti ekki var loftinu hleypt úr dekkjunum á bílnum hans. Ékið var til Þorláks- hafnar og þaðan tfi Hveragerðis. Hópurinn fékk spurnir af leit lögregl- unnar og við Hveragerði sáu þau lög- reglubU bíða á Kambabrún. Þá var ákveðiö að aka til Þingvalla. Þar skildi leiðir. Jenný og maðurinn óku í bæinn en foreldrar hennar og bróð- ir með strákinn um Kjósarskarð og upp á Skaga. Jenný fór ekki heim til sín í Reykjavík þar sem þar biði ör- ugglega lögregla. Lögreglan í Reykjavík hringdi upp á Skaga tU að biðja Akraneslögregl- una að fara inn í Hvalfjarðarbotn. Átti að hindra að bíUinn með strákn- um kæmist yfir mörk lögsagnarum- dæmisins. Það tókst hins vegar ekki. Óróleg vegna keppnisferða Guðlaugur ólst upp á Akranesi næstu árin, var í fótbolta með ÍA og gekk vel. Jenný segist þó alltaf hafa verið hrædd við keppnisferðir. „Ég var óróleg, sérsaklega þegar hann fór til Keflavíkur. Þá bað ég þjálfarann að hafa aldrei af honum augun.“ Eftir ævintýrið við Grindavík vildi Jenný afgreiða málið en fékk heldur óblíðar viðtökur hjá bamaverndar- yfirvöldum. Fékk hún þá lögfræðing í málið og hefur ekki heyrt neitt frá opinberum aðUum síðan. í rafmagnsleysi til 16 ára aldurs Guðlaugur segist muna vel eftir þessum atburðum. „Mér leið ekkert svo illa hjá fólkinu sem hafði mig, þetta var aUs ekki slæmt fólk, en ég vUdi samt fara heim. í fyrstu vissi ég ekki neitt um hvað yrði um mig en síðan var mér -alltaf sagt að ég ætti að vera þarna þar til ég yrði 16 ára. Ég yrði að sætta mig við það. Þeir sögðu það báðir, bóndinn og maðurinn frá félagsmála- stofnun. Þá fór mig bara að langa enn meira heim,“ segir Guðlaugur. Guðlaugur segist hafa hlaupið strax tíl móður sinnar þegar þau komu að sækja hann. Hins vegar hafði verið brýnt fyrir honum nær daglega hvað hann ætti að segja ef hann yrði tekinn úr vistinni. „Ef lögreglan stoppaði okkur átti ég að segja að ég vUdi fara aftur til fósturforeldra minna. Það ákvað ég hins vegar strax að segja aldrei. Ég vUdi alltaf fara heim, það var alveg á hreinu. Eftir á finnst mér ráðstöfun bamaverndarnefndar skrýtin. Ég var sendur á afskekktan bæ þar sem ekkert rafmagn var og engir krakkar á mínu reki. Ég komst ekki í skóla nema í tvö skipti. Reyndar sóttu hjónin námsefni tíl Grindavíkur og létu mig læra eitthvað á hverjum degi. Þau vom ágæt en auðvitað átti ég að eiga kost á að ganga í skóla og eiga samneyti við -jafnaldra mína. Mér finnst nefndin ekki hafa haft hagsmuni mína að leiðarljósi í þessu rnáli." -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.