Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1992, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 14. MARS 1992.
3
Fréttir
Guðmundur Helgason sendiráðsritari um mál Soffiu Hansen:
Tyrkneski dómarinn mun
túlka hin íslensku lög
„Þar sem mál Soffiu er fyrir tyrk-
neskum dómstól, og faöirinn og
börnin eru í Tyrklandi, veröur engin
önnur niöurstaöa tekin gild í málinu
en niðurstaða dómstólsins þar. Úr-
skurður héðan frá íslandi verður
aldrei settur í framkvæmd þar. Það
er enginn samningur á milli íslands
og Tyrklands um gagnkvæmar við-
urkenningar á dómsúrskurðum eða
neinu þess háttar," sagði Guðmund-
ur Helgason, sendiráðsritari í utan-
ríkisráðuneytinu, í samtah við DV í
gær um máiarekstur Soffiu Hansen
í Istanbui vegna dætra hennar.
Eins og fram kom í DV í gær fékk
Soffia umgengnisrétt við dætur sínar
fyrir tyrkneskum dómstól á fímmtu-
dag. Hún fær að sjá dæturnar fyrsta
og þriðja laugardag hvers mánaðar,
sex klukkustundir í senn. Afstaða I
sjálfu forræðismálinu verður tekin
tyrir dómstólnum 5. júní.
Guðmundur sagði að þar sem Soff-
ía og faðir barnanna eru ekki skráð
gift samkvæmt tyrkneskum lögum
geri lög ráð fyrir að forsjármál yfir
börnunum verði rekið á grundvelli
þeirra landslaga sem hjón eigi sam-
eiginleg. Soffia er einungis íslenskur
ríkisborgari en faðirinn hefur bæði
íslenskt og tyrkneskt ríkisfang - því
sé farið eftir íslenskum lögum.
„Það er svo dómstólsins að ákveða
hvar íslenskum lögum skal beita í
málinu. Tyrkneski dómarinn mun
túlka þau lög. Það breytir hins vegar
ekki því að þar sem faðirinn er í
Tyrklandi nýtur hann allra réttinda
og verndar sem slíkur borgari," sagði
Guðmundur.
„Hjónin voru ekki skilin þegar fað-
irinn fór meö stúlkurnar til Tyrk-
lands. Hann hafði því forræði til jafns
við móðurina. Þannig séð var ekkert
ólöglegt sem gerðist. Hins vegar var
loforð svikið um að koma til baka.
En þá kom sú staða upp, sem gert
hefur málið erfitt, að faöirinn er þar
með í Tyrklandi, hann er faðir bam-
anna, hefur forræði til jafns við móð-
ur og það er enginn sem getur skikk-
að hann tfi að skiia börnunum. Eins
og lög gera ráð fyrir eru svona mál
því afgreidd fyrir dómstólum þama
erlendis.
Það er mun skynsamlegra að hafa
þessi mál fyrir dómstólum en hjá
ráðuneytum. Hjónin fengu skilnað
að borði og sæng þann 11. janúar
1991. En það sem hefur einnig gert
þetta mál erfitt er að móðirin fékk
bráðabirgðaforræði eftir ákvörðun
dómsmálaráðuneytisins. Slíkir úr-
skurðir hafa ekkert gildi i Tyrk-
landi. Þetta er ákvörðun sem tekin
Bókaútgáfan Fróði:
Löghald á fast-
eign Maríu
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
hefur fallist á kröfu bókaútgáfunnar
Fróða um löghald á fasteign í eigu
Maríu Guðmundsdóttur ljósmynd-
ara vegna riftunar á samningi um
ævisögu. Samkvæmt úrskuröi fógeta
mun Fróði leggja fram rúmlega
tveggja milljóna króna tryggingu
vegna löghaldsins. Útgáfan mun
höfða skaðabótamál fyrir Bæjarþingi
Reykjavíkur síðar á árinu.
Fróði gerði samning við Maríu um
bókina. Þegar verk höfundar var
komið vel á veg vildi María hins veg-
ar rifta samningnum. Þar sem útgef-
endur töldu að forsendur hefðu ekki
verið fyrir riftuninni var ákveðið að
fara í skaðahótamál vegna tapaðrar
vinnuogkostnaðar. -ÓTT
er í ráðuneytinu en ekki hjá dóm-
stól. Tyrkir benda á að betra væri
ef þetta væri ákvörðun dómstóls. En
þó svo að þannig væri yrði ísland að
uppfylla ákveðin skilyrði gagnvart
Tyrkjum til að þeir tækju dómsúr-
skurð gildan. Einhverjir samningar
um viðurkenningu yrðu að vera í
gildi. Það atriði kemur þvi alveg í
sama stað niður,“ sagði Guðmundur.
-ÓTT
Ert þú í forsvari fyrir félag, fámennt eða
fjölmennt, formlegt eða óformlegt?
Félagaþjónustan greiöir fyrir fjármálum
félagasamtaka.
Þá veistu hvaö þaö fer mikill tími í innheimtu félagsgjalda, aö
halda félagatalinu réttu, vita hverjir hafa gert skil,
senda rukkanir á réttum tíma, taka
viö greiöslum og koma þeim íbanka.
Til aö þú hafir meiri tíma til aö sinna eiginlegum félagsstörfum
höfum viö þróaö Félagaþjónustu íslandsbanka.
Félagaþjónustan felst meöal annars í eftirfarandi þáttum:
Gíróseölar fyrir félagsgjöldum eru skrifaöir út og sendir
greiöendum á réttum tíma. Um leiö er félaginu send skrá
yfir útskrifaöa gíróseöla.
Hœgt er aö velja árlega og allt niöur í mánaöarlega
innheimtu.
Reikningsyfirlit meö nöfnum greiöenda eru skrifuö út í
byrjun hvers mánaöar.
Dráttarvextir eru reiknaöir, sé þess óskaö.
• Gjöld geta hœkkaö samkvœmt vísitölu, sé þess óskaö.
Aö auki er boöin margþœtt viöbótarþjónusta.
Notfœröu þér Félagaþjónustu íslandsbanka fyrir þitt félag og
notaöu tímann til aö sinna sjálfum félagsstörfunum.