Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1992, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 14. MARS 1992.
63
Iðnskólinn og Búnaðariélagshúsið á öðrum áratugnum.
-Ljósmynd Magnús Ólafsson/Ljósmyndasafn Reykjavikurborgar.
Reykjavík fyrr og nú
Húsin eins og þau líta út í dag, uppgerð.
Frá Iðnskóla til Tjamarskóla
Meðal hinna fáu gömlu tímburstór-
hýsa ReyHjavíkur eru Iðnskólinn
gamli við Vonarstrætí (Lækjargata
14 A) og Búnaðarfélagshúsiö (Lækj-
argata 14 B).
Húsin standa á uppfyllingu út í
Tjömina. Búnaðarfélag islands
keyptí lóðina 1897 en seldi skömmu
síðar Iðnaðarmannafélagi Reykjavík-
ur norðurhlutann undir iðnskólahús.
Félögin létu byggja húsin árið 1906.
Arkitektar
og yfirsmiðir
Ásgeir efnaverkfræðingur, sonur
Torfa í Ólafsdal, teiknaði Búnaðarfé-
lagshúsið enda var hann forstöðu-
maður Efnarannsóknarstofu ríkisins
sem þar varð til húsa.
Það er hins vegar ekki víst hver á
heiðurinn af uppdrætti Iðnskólans
og þar með hornturninum sem óneit-
anlega setur meginsvipinn á sam-
bygginguna. Um þetta álitamál segir
ekkert í fundargerðarbókum Iðnað-
armannafélagsins né í bókunum
byggingarnefndar.
Því hefur verið haldið fram, m.a
af Árna Óla, að Rögnvaldur Ólafsson
arkitekt hafi teiknaö Iðnskólann en
aðrir telja líklegra að Einar J. Páls-
son hafi teiknaö húsið. í þeim hópi
er Leifur Blumenstein, einn helsti
sérfræðingurinn í gerð gamalla
timburhúsa borgarinnar. Hann hef-
ur gert ítarlegan samanburð á Iðn-
skólahúsinu og öðrum húsum þess-
ara gömlu meistara.
Trésmíðafélagið Völundur hf., þá
nýstofnað, var verktaki að Iðnskóla-
byggingunni en Einari J. Pálssyni
var falin yfirumsjón með verkinu.
Steingrímur Guðmundsson húsa-
smíöameistari, afi Steingríms Her-
mannssonar, sá um byggingu Búpað-
arfélagshússins.
Búnaðarfélagshúsió
í Búnaðarfélagshúsinu voru skrif-
stofur Búnaðarfélagsins allt til árs-
ins 1962 er Bændahöllin var tekin í
notkun. Þá var skrifstofunum breytt
í skólastofur sem Gagnfræðaskólinn
við Vonarstræti fékk til afnota í
nokkur ár. Fóstruskóli Sumargjafar,
(síðar Fósturskóli íslands) var í hús-
inu 1969-76 og hafði seinni árin einn-
ig aðgang að hluta Iðnskólahússins.
Þá var Leiklistarskóli íslands í hús-
inu en frá 1987 hefur Tjamarskólinn
verið þar til húsa.
Gamla Iðnskólahúsið
Iðnskólinn var rekinn við Vonar-
strætíð þar tíl hann flutti í nýtt skóla-
hús á Skólavörðuholtinu 1955.
í gamla Iðnskólanum var einnig
rekinn annar þeirra tveggja gagn-
fræðaskóla sem stofnaðir voru í
Reykjavík árið 1928. Það var Gagn-
fræðaskóh Reykvíkinga, oftast
nefndur Ágústarskóhnn eftir Ágústi
H. Bjamasyni prófessor og háskóla-
rektor sem var skólastjóri þessa
skóla frá stofnun og til 1944. Síðar
var þar Gagnfræðaskólinn við Von-
arstrætí, „Vonin“ eins og landsprófs-
nemar köhuðu hann gjarnan, sem
var rekinn í húsinu til 1970. Þá hafði
Leikfélag Reykjavíkur þar skrifstofu
leikhússtjóra, saumastofu og æfinga-
aöstöðu til 1986.
Niðurrifsáform 1965
Reykjavíkurborg keypti bæði hús-
in 1965 og stóð þá til að þau vikju
fyrir ráðhúsi. Ekkert varð af þeim
ráðhúsáformum og 1980 voru húsin
friðuð. Þá var farið að endurbæta
húsin að utan og lauk þeirri vinnu
um 1984.
Eldsvoði 1986
í júní 1986 kom upp eldur í Iðn-
skólahúsinu. Rishæðin gjöreyðhagð-
ist og önnur hæðin skemmdist mikið.
Brunavamaveggurinn kom í veg fyr-
ir að eldurinn breiddist yfir í Búnað-
arfélagshúsið en steinuU, sem þá
nýverið hafði verið sprautað miUi
þilja, heftí að öðra leyti útbreiðslu
eldsins. Þetta tvennt hefur sennilega
komið í veg fyrir að bæði húsin
brynnu til grunna.
Safnaðarheimili
Dómkirkjunnar
Strax eftir brunann ákvað borgar-
stjórn að byggja Iðnskólahúsið upp
og hraða framkvæmdum þannig aö
þeim yrði lokið fyrir tvö hundruð ára
afmæli borgarinnar. Og það tókst.
í Iðnskólahúsinu er nú safnaðar-
heimili Dómkirkjunnar. Sóknar-
nefndin lét innrétta húsið mjög
glæsUega og færa í upphaflegri
mynd. Þar era nú tveir u.þ.b. fimm-
tíu manna salir á annarri og þriðju
hæö, skrifstofur prestanna og sókn-
arnefndarinnar og aöstaða fyrir
dómorganista á jarðhæð auk þess
sem þar er kennslustofa fyrir ferm-
ingarböm kirkjunnar. í húsinu hef-
ur kirkjan aðstöðu fyrir sunnudaga-
skóla, félagsstarf aldraðra og AA-
deild.
Baðstofuloft
iðnaðarmanna
Áriö 1926 tóku iðnaðarmenn í notk-
un svonefnda baðstofu í norðvestur
hluta þriðju hæðarinnar sem snýr
að Vonarstræti. Þar höfðu þeir fund-
arsal og aðstöðu fyrir stjórn Iðnaðar-
mannafélags Reykjavíkur. Hús-
næðið var undir skarsúð og setbekk-
ir í hveiju stafgólfi. Undir hverri
sperru var mari og í hann skorin út
hönd sem hélt á kyndli. Þá voru út-
skornar öndvegissúlur á bak við
stjórnarsætin en útskurðinn annað-
ist Ríkarður Jónsson myndskeri.
Auk þess voru fallega útskorin hús-
gögn í baðstofunni. Allt þetta varð
eldinum að bráð 1986.
Þaö var samt huggun harmi gegn
að fyrir eldsvoðann hafði baðstofan
verið ljósmynduð í hólf og gólf og nú
hafa iðnaðarmenn endurbyggt hana
í eins upphaflegri mynd og kostur er.
Þegar iðnaðarmenn seldu borginni
húsið 1965 voru innréttingar baðstof-
unnar undanskildar sölunni og þeim
áskilinn réttur til afnota af baðstof-
unni endurgjaldslaust meðan húsið
stæði.
Þrátt fyrir niðurrifsáform og elds-
voða stendur húsið enn, uppgert og
friðað. Þaö fer vel á því að þar eigi
iðnaöarmenn sér ennþá afdrep.
Kjartan Gunnar Kjartansson
Já... en ég nota nú
yfirleitt beltið!
MARGFELDI 145~
PÖNTUNARSÍMI • 653900
EFST Á BAUGI:
ISLI-:\SKA
ALFRÆÐI
OIÍDABOKIX
sporvagn: almenningsvagn sem
ekið er eftir teinabraut um götur
borga. Fyrsti s var dreginn af hest-
um og var tekinn í notkun í New
York 1832. Ferðir s hófust í París
1854 og í Khöfn 1863. Fyrsti
rafknúni s var kynntur í Berlín
1881. Flestir s fá orku frá raflínum
yfir sporinu.
GóöIp hlustendur!
/ d a i :
Kl. 13:00 Reykjavíkurrúnturinn
með Pétri Péturssyni er einn allra
besti útvarpsþátturinn í dag. Um-
hyggja Péturs fyrir borg sinni og
meðborgurum skín í gegn um
vandaðan undirbúning og frá-
bæran flutning fröðlegs og
skemmtilegs efnis. Endurfluttur á sunnudögum
kl. 10 árdegis.
í k i' ii I d :
Kl. 22:00 Slá í gegn. Gylfi Þór Þorsteinsson
og Böðvar Bergsson sjá um að halda
mönnum í laugardagsskapi. Óskalög og
kveðjur í síma 626060.
Á in o r x ii n , v u n n u d a g :
Kl. 15:00 í dæguriandi. Garðar
Guðmundsson leikur lausum hala í landi
íslenskrar dægurtónlistar.
Kl. 21:00 Úr Bókahillunni. Umsjón
Guðríður Haraldsdóttir. Fjallað er um
nýútkomnar og eldri bækur á
margvíslegan hátt m.a. með upplestri,
viðtölum, gagnrýni o.fl.
90.9 93.7
103.2
Höfuðborgarsvœðið
Suðurnes
Vesturland
Sauðárkrókur
Skagajjörður
Suðurland
Akureyri
FM90WFM103-2
AÐALSTÖÐIN
SfMAR 62 15 20 og 62 12 13
BEIN ÚTSENDING 62 60 60
Veður
A morgun þykknar upp með vaxandi suðaustanátt
og dregur úr frosti vestanlands. Snjómugga verður
um landið sunnanvert er líður á daginn en lengst af
haegur vindur og bjart veður norðaustantil.
Akureyri úrkoma -11
Egilsslaðir snjókoma -11
Keflavíkurflugvöllur snjóél -9
Kirkjubæjarklaustur léttskýjað -7
Raufarhöfn snjóél -12
Reykjavlk úrkoma -9
Vestmannaeyjar léttskýjað -9
Bergen snjóél 0
Helsinki rigning 2
Úsló skýjað 4
Stokkhólmur slydduél 2
Amsterdam skúr 5
Barcelona mistur 13
Berlin snjókoma 1
Chicago léttskýjað -8
Frankfurt rigning 10
Glasgow slydduél 3
Hamborg skýjað 4
London skúr 12
LosAngeles mistur 16
Lúxemborg rigning 7
Madrid hálfskýjað 14
Malaga mistur 17
Mallorca skýjaö 16
New York heiðskírt -4
Nuuk skýjað -13
París rigning 11
Róm þokumóða 13
Vin alskýjað 10
Winnipeg snjókoma -6
Gengið
Gengisskráning nr. 51. -13. mars 1992 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 59,870 60,030 58.800
Pund 102,318 102,591 103,841
Kan. dollar 50,043 50,182 49.909
Dönsk kr. 9,2324 9,2571 9,2972
Norsk kr. 9,1363 9,1607 9,1889
Sænsk kr. 9,8812 9,9076 9.9358
Fi. mark 13,1179 13,1529 13,1706
Fra. franki 10,5535 10,5817 10.5975
Belg. franki 1,7404 1,7451 1,7503
Sviss. franki 39,6228 39,7287 39.7835
Holl. gyllini 31,8364 31,9215 31.9869
Þýskt mark 35,8235 35,9192 36,0294
it. líra 0,04777 0,04790 0,04795
Aust. sch. 5,0899 5,1035 5,1079
Port. escudo 0,4156 0,4167 0,4190
Spá. peseti 0,5665 0,5680 0,5727
Jap. yen 0,44791 0,44911 0,45470
Irskt pund 95,505 95,760 96,029
SDR 81,4681 81.6858 81,3239
ECU 73,2509 73.4467 73,7323
Fiskmarkaðimir
Faxamarkaður 13. mars seldust alls 25,642 tonn.
Magn í Verð í krónum
tonnum Meðal Lægsta Hæsta
Blandað 0,179 29.74 12,00 40,00
Gellur 0,164 288,10 285,00 290,00
Hnísa 0,127 30,00 30,00 30,00
Hrogn 0,239 100,00 100,00 1 00,00
Karfi 7,447 33,03 33,00 38,00
Keila 0,252 18,00 18,00 18,00
Langa 0,301 77,00 77,00 77,00
Rauðmagi 0010 125.00 125,00 125,00
Skarkoli 0,076 73,68 5,00 87,00
Steinbítur 0393 31,20 30,00 54,00
Steinbítur, ósl. 0,210 74,01 57,00 76,00
Þorskur, sl. 1,189 81,96 65,00 94,00
Þorskur, smár 0,250 79.00 79,00 79,00
Þorskur, ósl. 11,439 82,57 73,00 88,00
Ufsi 0336 25,00 25,00 25,00
Undirmál 0,552 30,00 30,00 30,00
Ýsa, sl. 2,235 123,13 86,00 132,00
Ýsa, ósl. 0,236 1,08,32 105,00 113,00
Fiskmarkaður Hafnarfjarðar
13. mars seldust alls 39,889 tonn.
Karfi 0,014 25,00 25,00 25,00
Smáþorskur, ósl. 0,067 64,00 64.00 64,00
Smárþorskur 0,052 64,00 64,00 64,00
Rauðm/gr. 0,115 83,22 70.00 110,00
Ýsa, ósl. 0,622 109,18 86,00 124.00
Þorskur, ósl. 7,874 76,92 76,00 84,00
Steinbítur, ósl. 3,003 49,00 49,00 49,00
Ýsa 1,733 130,20 126,00 136,00
Ufsi 0,899 39,21 39,00 41,00
Þorskur 23,660 93,51 80,00 96,00
Steinbítur 0423 62,91 61,00 64,00
Lúða 0,021 438,14 150,00 625,00
Langa 0733 74.00 74.00 74,00
Koli 0249 37.71 35,00 80,00
Hrogn 0424 175,00 176.00 175,00
Fiskmarkaðurinn í Þorlákshöfn
13. mars seldust alls 38,150 tonn.
Hrogn 0204 145,59 145,00 180,00
Karfi 0,076 52,00 52,00 52,00
Keila 0,051 20,00 20,00 20,00
Langa 0,289 52,00 52,00 52,00
Lýsa 0,012 20,00 20.00 20,00
Rauömagi 0041 83,58 30,00 1 00,00
Skata 0,038 113,00 113,00 113,00
Steinbitur 0,024 61,00 61,00 61,00
Þorskur, ósl. 10196 74,01 72,00 75,00
Ufsi.ósl. 21,270 30,57 30,00 31,00
Undirmálsf. 0039 30,00 30,00 30,00
Ýsa, sl. 0,938 123,57 121,00 126,00
Ýsa, ósl. 4,964 109,47 108,00 115,00
Fiskmarkaður Suðurnesja
13. mars seldust alls 105,589 tonn.
Þorskur.sl. 0630 88,00 88,00 88,00
Ýsa, sl. 1,425 133,23 50,00 136,00
Þorskur, ósl. 69,681 82,63 50,00 1 00,00
Ýsa, ósl. 10,854 126,52 91,00 130,00
Ufsi 11,425 36,84 20,00 41,00
Lýsa 0,041 57,00 57,00 57,00
Karfi 2,199 55,31 46,00 58,00
Langa 2,209 61,07 57,00 62,00
Keila 2,990 44,36 36,00 46,00
Steinbítur 2,089 51,80 50,00 54,00
Hlýri 0,384 20,00 20,00 20,00
ósundurliðað 0,144 39,00 39,00 39,00
Skarkoli 0,134 55,30 45,00 60,00
Grásleppa 0096 17.00 17,00 17,00
Rauðmagi 0529 50,23 50,00 60,00
Hrogn 0,569 133,00 133,00 133,00
Undirmáls- 0,184 70,00 70,00 70,00
þorskur