Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1992, Blaðsíða 16
16
LAUGARDAGUR 14. MARS 1992.
Skák
DV
Apple-skákmótið í Faxafeni:
Úrslitaskák
efstu manna í dag
- Hannes nær stórmeistaraáfanga ef hann vinnur Þröst
Fyrir síöustu umferö Apple-
skákmótsins - 15. Reykjavíkur-
skákmótsins - sem hefst kl. 13 í dag
í skákmiöstöðinni viö Faxafen er
Jóhann Hjartarson með vinnings-
forskot á Lettann Alexei Sírov. Svo
skemmtilega vill til að þeir tefla
saman í dag. Sírov verður aö leggja
allt undir með svörtu mönnunum
því aö einungis með sigri nær hann
hlutdeild í efsta sæti.
Önnur skák í dag er ekki síður
spennandi. Það er glíma alþjóðlegu
meistaranna Hannesar Hlífars
Stefánssonar og Þrastar Þórhalls-
sonar. Hannes hefur teflt skínandi
vel í rnótmu og á möguleika á því
aö krækja sér í annan áfanga af
þremur að stórmeistaratitli. Fyrsta
áfangann fékk hann á skákmóti í
Gausdal í fyrra en síðan hefur hann
átt misjöfnu láni að fagna þar til
nú. Hannes þarf að vinna Þröst til
að ná tilskildum 7 vinningum á
mótinu. Búast má við mikilli bar-
áttuskák þvi að Þröstur leggur ekki
í vana sinn að gefast upp þótt á
móti blási en hann hefur mátt þola
mikið mótlæti til þessa og vermir
neðsta sætið.
Staðan fyrir síðustu umferð er
þessi:
1. Jóhann Hjartarson 7,5 v.
2. Alexei Sírov 6,5 v.
3. -4. Hannes Hlífar Stefánsson og
Vasiiios Kotronias 6 v.
5.-7. Jón L. Árnason, Oliver Renet
og James Plaskett 5 v.
8.-9. Karl Þorsteins og Margeir Pét-
ursson 4,5 v.
10. Stuart Conquest 4 v.
11. Helgi Ólafsson 3,5 v.
12. Þröstur Þórhallsson 2,5 v.
Óhætt er að segja aö mótið hafi
tekist afskaplega vel í alla staði.
Framkvæmdin er hnökralaus að
vanda, ákjósanlegar aðstæður jafnt
fyrir keppendur sem áhorfendur í
Faxafeni og hvorki hefur skort á
spennu né baráttugleði. Ég man
varla eftir móti þar sem leikgleðin
hefur verið jafnmikil - „stórmeist-
arajafnteflin" hvimieiðu sem
gjarnan fylgja svo sterkum mótum
eru nú víðsfjarri. Að öðrum ólöst-
uðum hafa ensku stórmeistaramir
tveir líkast til teflt af mestri hörku.
Conquest hefur ekkert jafntefli gert
og undirritaður vann það afrek aö
gera jafntefli við Plaskett, sem er
bersýnilega mun erfiðara heldur
en að vinna, eða tapa fyrir honum.
Aðsókn áhorfenda hefur verið
þokkaleg en þeir þurfa hvorki að
kvarta yfir taflmennskunni - nema
afleikirnir séu helst til of margir -
né árangri íslendinganna: Jóhann
í efsta sæti og Hannes með von um
stórmeistaraáfanga. Hinir íslensku
keppendurnir hafa að vísu ekki
Skák
Jón L. Árnason
sýnt hvað í þeim býr eða eru algjör-
lega heillum horfnir, eins og ís-
landsmeistarinn Helgi, sem á nú
sitt lakasta mót um langa hríð.
Skoðum tvær skákir lir níundu
umferð sem eru lýsandi dæmi um
baráttugleðina. íslendingar eru í
aðalhlutverki í þeim báðum. Þröst-
ur jafnar taflið í fyrri skákinni gegn
Jóhanni sem er greinilega ekki
ánægður með gang mála. Hann
byijar aö „príla" á kóngsvængnum
en tilburðir hans hafa engan ávinn-
ing í för með sér. Rétt fyrir fyrri
tímamörkin missir Þröstvu- af væn-
legri leið en heldur þó taflinu gang-
andi með mjög góðum vinnings-
færvun. Þá gerir hann sig sekan um
gróf mistök og eins og hendi sé
veifað nær Jóhann að snúa taflinu
sér í vil.
í seinni skákinni tefla Hannes og
Helgi fjöruga. Helgi fómar skipta-
mun eftir byrjunarleikina og ekki
verður betur séð en að hann hafi
nægileg gagnfæri. Hannes tekur þó
hraustlega á móti og eftir óná-
kvæmni Helga tekst honum að
þvinga fram kaup á drottningum
og stendur eftir með unnið enda-
tafl.
Hvítt: Jóhann Hjartarson
Svart: Þröstur Þórhallsson
Slavnesk vöm.
1. c4 c6 2. d4 d5 3. Rc3 Rf6 4. Rf3
e6 5. e3 Rbd7 6. Bd3 dxc4 7. Bxc4 b5
8. Bd3 a6 9. e4 c5 10. d5 c4 11. Bc2
Dc7 12. 0-0 Bc5 13. De2 e5 14. Rh4
0-0 15. Khl He8 16. Bg5 g6 17. Hadl
Bf818. Dd2 Rh5 19. Bh6 Dd6 20. Bxf8
Hxf8 21. Dh6 Rdf6 22. f3 Bd7
Framtíöarhorfur svarts í þessari
stöðu hljóta að vera góðar. Frels-
ingi hvíts á d5 er skorðaður Qvótt
drottningin sé að vísu ekki besti
maðurinn í þvi hlutverki) og peða-
meirihlutinn á drottningarvæng
gæti farið að segja til sín. Jóhann
reynir að vonum að leita eftir fær-
um á kóngsvæng.
23. Re2 Hfe8 24. g4 Rg7 25. Rg3 a5
26. Hgl Ha6 27. Rgf5 Df8!
Ekki 27. - gxf5? 28. gxf5 og nú 28.
- Rh5 29. Dxh5, eða 28. - Df8 29. d6
og vinnur.
28. Rxg7 Dxg7 29. De3 Df8 30. h3 Dd6
31. Hcl Db4 32. Hbl Hc8 33. f4!?
Svartur er með öruggt frum-
kvæði ef hvítur gerir ekkert í mál-
unum. Jóhann reynir að opna taflið
í tímahrakinu.
exf4 34. Dxf4 c3 35. a3 De7 36. g5(?)
Rh5 37. De3 cxb2 38. Bdl
1
Á 1
I 1
1 k A A
JS A
A A
Á
2 Jk, s A?
ABCDEFGH
38. -Rg7?
Hér var 39. - b4! mjög sterkt.
Hvítur á ekkert gott svar við hótun-
inni 40. - Hc3.
39. Hxb2 Hc4 40. He2 b4 41. Dd3 Dc5
42. Bb3 Hc3! 43. Dxa6 Hxb3 44. DfB
Hxh3+ 45. Hh2 De3 46. Hfl Dxe4+
47. Rg2 Hxh2+ 48. Kxh2 Dxd5 49.
Re3
8
7 4. 141
6 111 »4.
5 k m a
k
3 A &
2 i
ABCDEFGH
49. - Db3??
Þröstur var aftur kominn í tíma-
hrak og leikur nú skákinni af sér.
Eftir 49. - De6 50. Dd8+ Be8 51. Rg4
Rf5 eru möguleikarnir svarts meg-
in.
50. Dd8+ Be8 51. Rg4!
Skyndflega era 52. RÍ6+ og 52.
Rh6+ óviðráðanlegar hótanir.
51. - h5 52. gxh6 fr.hl. f5 53. hxg7
Og Þröstur gafst upp.
Hvítt: Hannes Hlifar Stefánsson
Svart: Helgi Ólafsson
Sikileyjarvörn.
1. e5 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
RfB 5. Rc3 a6 6. Be3 e6 7. g4 h6
Helgi kýs að sniðganga manns-
fómina úr Neskaupstað: 7. - e5 8.
Rf5 g6 9. g5 gxf5 10. exf5 d5 11.
gxfB!? d4 12. Bc4, eins og tefldist í
skák hans við Guðmund Sigurjóns-
son (hvítt) á alþjóðamótinu þar 1985
og vakið var tfl lífs í tveimur skák-
um á Apple-mótinu.
8. Bg2 Rc6 9. Rxc6 bxc6 10. e5 Rd5
11. Rxd5!?
Athyghsverður leikmáti, í stað
11. exd6, sem leikið hefur verið
áður í stöðunni.
11. - cxd5 12. c4 dxe5 13. cxd5 Bb4+
14. Kfl 0-0! 15. a3 Bd6 16. dxe6 Bxe6
17. Bxa8 Dxa8 18. Hgl Hd8
Mér segir svo hugur um að svart-
ur hafi nægileg færi fyrir skipta-
mun 19. De2 Hc8 20. Hcl Hxcl + 21.
Bxcl Dc6 22. Ddl Bc4 + 23. Kel e4?!
E.t.v. er 23. - De4+ 24. Be3 Bc5
betra.
24. g5! Bxh2 25. Hg2 Be5 26. gxh6 g6
27. Dc2 De6 28. Hg5! Bd4 29. Be3 Bd3
Svarið viö 29. - Bxe3 gæti orðið
30. Dc3! sem er óþægflegt.
30. Dc7! Bxe3 31. fxe3 Dfl6
32. De5! Dfl+ 33. Kd2 De2+ 34. Kc3
Dc2+ 35. Kb4 Dc4+ 36. Ka5
Kóngurinn er sloppinn í örugga
höfn og vegna máthótunarinnar á
g7 verður svartur að skipta á
drottningum. Hvítur vinnur létt.
36. - Db5+ 37. Dxb5 axb5 38. a4 bxa4
39. Kxa4 Kh7 40. b4 Kxh6 41. Ha5!
g5 42. b5 Bxb5 43. Hxb5 Kh5 44. Kc4
Kg4 45. Kd4 f5 46. Hb5 f4 47. Kxe4 f3
48. Hf5
Og Helgi lagöi niður vopn.
-JLÁ