Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1992, Page 26
26
LAUGARDAGUR 14. MARS 1992.
LAUGARDAGUR 14. MARS 1992,
39
Kristín Stefánsdóttir og Svanhvít Valgeirsdóttir faröa hér Auði Hansen og
Vigdísi Másdóttur með No Name snyrtivörum. DV-myndir Hanna
Glæsileg Ford-hátíð á fimmtudagskvöld:
Spennandi og skenuntileg keppni
-þegar Ford-stúlkan 1992 verður valin á Hótel Sögu
Tólf stúlkur munu taka þátt í
Ford-keppninni sem fram fer næsta
fimmtudagskvöld, 19. mars, í Súlna-
sal Hótel Sögu. Kvöldið verður ein-
staklega glæsilegt og sett þannig
fram að allir geti skemmt sér vel um
leið og þeir kynnast hvemig valin er
súperfyrirsæta íslands 1992. Sigur-
vegari keppninnar fær í verðlaun tiu
daga ferð tfi Los Angeles þar sem hún
tekur þátt í keppninni Supermodel
of the World þann 18. júlí nk. Þá mun
hún einnig fá stóran snyrtikassa með
No Name snyrtivörum sem kailast
Professional Make Up Kit. Aðrir
þátttakendur keppninnar fá einnig
sams konar snyrtikassa en heldur
minni.
Gestir fá sérstakan Ford-drykk við
komuna. Eftir að stúlkumar tólf hafa
verið kynntar fyrir gestum hússins
mun ópemsöngvarinn Bergþór Páls-
son syngja nokkur lög. Módel 79
verður með glæsilega tískusýningu.
Til að létta stemninguna í húsinu
fyrir úrslitastundina munu hinir eld-
fjörugu Gysbræður sýna hvað í þeim
býr.
Það er Anne Gorrison sem kemur
hingað frá Ford Models í New York
og velur sigurvegarann. Anne er yf-
irmaður þeirrar deildar hjá Ford
Models sem velur fyrirsætur til
starfa eftir þeim fjölmörgu myndum
sem berast skrifstofunni daglega.
Hún fer héðan til írlands þar sem
hún mun einnig krýna Ford-stúlku.
Kynnir kvöldsins verður Bryndís
Schram og um píanóleik sér Jónas
Þórir.
Á síðunni hér fyrir neðan era
stúlkumar kynntar fyrir lesendum
DV. Þær eru allar ungar að árum og
hafa enga reynslu að baki í fyrir-
sætustörfum. Eileen Ford hefur ein-
mitt áhuga á ómótuðum stúlkum í
keppnina Supermodel of the World
en hún er sett upp til að finna ný
andlit - andlit tíunda áratugarins.
Sú stúlka sem sigrar þá keppni fær
tæplega fimmtán milljón króna
samning við Ford Models í New
York.
Hugsanlegt er að fleiri en ein stúlka
af þeim tólf sem hér eru kynntar fái
atvinnutilboð frá Ford Models. Það
ræöst á úrslitakvöldinu. Bima
Bragadóttir, sem sigraði Ford-keppn-
ina í fyrra, starfar nú við fyrirsætu-
störf á Ítalíu.
Áður en myndirnar hér á síðunni
voru teknar fengu stúlkurnar hjálp
frá færastu sérfræðingum á sviði
hárgreiðslu og fórðunar. Það voru
þær Svanhvít Valgeirsdóttir og
Kristín Stefánsdóttir sem fórðuðu
með No Name snyrtivörum en þær
eru félagar í Félagi íslenskra förðun-
arfræðinga. Um hárgreiðslu sá
starfsfólk hárgreiðslustofunnar Jóa
og félaga, Rauðarárstíg 41.
-ELA
Linda, hárgreiðslumeistari hjá hár-
greiðslustofunni Jói og félagar,
leggur hér síðustu hönd á hár-
greiðslu Hrefnu Jónsdóttur.
Nafn: Þórdís Þórðardóttir.
Fæðingardagur og ár: 18. maí 1977.
Hæð og þyngd: 175 sm og 55 kg.
Staða: Nemandi í framhaldsskólanum í Vest-
mannaeyjum.
Áhugamál: Fyrst og fremst fyrirsætustörf.
Foreldrar: Þorsteina Pálsdóttir og Þórður Karls-
son. Þórdís á fjögur systkini.
Heimili: í Vestmannaeyjum.
Um hárgreiðslu Þórdísar sá Hárgreiðslustofa Þor-
steinu í Vestmannaeyjum og förðun Snyrtistofa
Ágústu.
DV-mynd Ómar, Vestmannaeyjum
Nafn: Lovísa Aðalheiður Guðmundsdóttir.
Fæðingardagur og ár: 20. ágúst 1975.
Hæð og þyngd: 180 sm og 64 kg.
Staða: Nemandi á fyrsta ári í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja.
Áhugamál: Körfubolti, söngur, tónlist og skíði.
Ennþá hef ég ekkert ákveðið hvað ég hef áhuga
á að gera í framtíðinni.
Foreldrar: Guðrún Ágústa Jónsdóttir og Guð-
mundur Sigurjón Reynisson. Lovísa á tvo eldri
bræður.
Heimili: í Innri-Njarðvík.
DV-mynd Hanna
Nafn: Hrefna Jónsdóttir.
Fæðingardagur og ár: 2. ágúst 1976.
Hæð og þyngd: 176 sm og 59 kg.
Staða: Nemandi í tíunda bekk Hjallaskóla.
Áhugamál: Förðun og mig langar að fara í Fjöl-
braut í Breiðholti á snyrtibraut. Ég hef auk þess
áhuga á fyrirsætustörfum, tónlist og börnum.
Foreldrar: Jóna Jónsdóttir og Jón Friðgeirsson,
fósturfaðir er Óskar Örn Óskarsson. Hrefna á tvær
yngri systur.
Heimili: I Kópavogi.
DV-mynd Hanna
Nafn: Brynja Davíðsdóttir.
Fæðingardagur og ár: 3. október 1975.
Hæð og þyngd: 177 sm og 50 kg.
Staða: Nemandi á fyrsta ári í menntaskólanum í
Reykjavík.
Áhugamál: Ég er mikið fyrir dýr og hefði viljað
verða dýralæknir en veit ekki hvort úr því verður.
Fyrirsætustörf heilla mig líka mikið, útivera og
náttúran.
Foreldrar: Janice Balfour og Davíð Þorsteins-
son. Brynja er í miðjunni af þremur systkinum.
Heimili: f Reykjavík.
DV-mynd Hanna
Nafn: Ingibjörg Valdimarsdóttir.
Fæðingardagur og ár: 7. febrúar 1973.
Hæð og þyngd: 177 sm og 65 kg.
Staða: Nemandi í Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi á hagfræðibraut.
Áhugamál: Hef áhuga á fyrirsætustörfum, íþrótt-
um og ferðalögum og að Ijúka námi en framtíðin
er óráðin.
Foreldrar: Jóhanna Jónsdóttir og Valdimar
Björgvinsson. Ingibjörg á tvo yngri bræður.
Heimili: Á Akranesi.
DV-mynd Hanna
Nafn: Hildur Guðjónsdóttir.
Fæðingardagur og ár: 23. janúar 1976.
Hæð og þyngd: 180 sm og 62 kg.
Staða: Nemandi í tíunda bekk Seljaskóla.
Áhugamál: Hef hug á að fara til Ástralíu sem
skiptinemi á næsta ári og síðan í MR. Einnig er
ég með mikla Ijósmyndadellu og tek helst myndir
af fólki.
Foreldrar: Sigrún Stefánsdóttir og Guðjón Sche-
ving Tryggvason. Hildur á tvo yngri bræður.
Heimili: Seljahverfi í Reykjavík.
DV-mynd Hanna
Nafn: Ása Sigurbjörg Haraldsdóttir.
Fæðingardagur og ár: 22. júní 1972.
Hæð og þyngd: 179,5 sm og 57 kg.
Staða: Nemandi á fjórða ári í menntaskólanum
við Sund.
Áhugamál: Mig langar að læra sálfræði eftir
menntaskóla en vonast til að geta ferðast svolítið
fyrst. Þá hef ég áhuga á að hlusta á góða tónlist
og vera með skemmtilegu fólki.
Foreldrar: Valdís Oddgeirsdóttir og Haraldur
Þráinsson. Ása á fjögur systkini.
Heimili: í Reykjavík.
DV-mynd Hanna
Nafn: Hrafnhildur Gísladóttir.
Fæðingardagur og ár: 26. janúar 1976.
Hæð og þyngd: 175 sm og 50 kg.
Staða: Nemandi í tíunda bekk Seljaskóla í Breið-
holti.
Áhugamál: Ég stefni á Verslunarskólann í fram-
tíðinni en áhugamálin tengjast skíðaíþróttinni og
skemmtunum, annars engin sérstök að öðru leyti
en því að halda áfram að mennta mig.
Foreldrar: Guðrún Unnur Úlfarsdóttir og Gísli
Árnason. Hrafnhildur er elst þriggja systkina.
Heimili: Seljahverfi í Reykjavík.
DV-mynd Hanna
Nafn: Vigdís Másdóttir.
Fæðingardagur og ár: 31. maí 1978.
Hæð og þyngd: 177 sm og 56 kg.
Staða: Nemi í áttunda bekk Valhúsaskóla á Sel-
tjarnarnesi.
Áhugamál: Ég ætla í framhaldsnám þegar ég lýk
grunnskóla, sund er mikið áhugamál en ég stund-
aði æfingar í því, boltaíþróttir, tónlist, dans, söng-
ur og partí.
Foreldrar: Guðrún Einarsdóttir og Már Gunnars-
son. Vigdís er önnur elst af fjórum systrum.
Heimili: Á Seltjarnarnesi.
DV-mynd Hanna
Nafn: Helga Kristín Jónsdóttir.
Fæðingardagur og ár: 19. september 1973.
Hæð og þyngd: 180 sm og 64 kg.
Staða: Nemi á þriðja ári í Kvennaskólanum í
Reykjavík.
Áhugamál: Helga hefur áhuga á að stúderá
mannfræði f framtíðinni, tónlist er í uppáhaldi hjá
henni, skemmtanir, bókmenntir og að vera innan
um vini.
Foreldrar: Elísabet Ottósdóttir og Jón Kristjáns-
son. Helga Kristín á tvo yngri bræður.
Heimili: Á Seltjarnarnesi.
DV-mynd Hanna
Nafn: Auður Hansen
Fæðingardagur og ár: 1. mars 1973.
Hæð og þyngd: 176 sm og 57 kg.
Staða: Nemi í Verslunarskóla Islands.
Áhugamál: Flug, iðntæknihönnun, að spila á
píanó, skíðaíþróttin, kötturinn Sigga krúsa og
kærastinn Jón Berg Torfason.
Foreldrar: Margrét Hallgrímsdóttir og Hans Her-
bert Hansen sem er látinn. Fósturfaðir er Reynir
Ólafsson. Auður er yngst þriggja systkina.
Heimili: Breiðholt í Reykjavík.
DV-mynd Hanna
Nafn: Harpa Hjartardóttir.
Fæðingardagur og ár: 21. desember 1972.
Hæð og þyngd: 178 sm og 63 kg.
Staða: Nemi á félagsfræðibraut Ármúlaskóla.
Áhugamál: Að læra eitthvað frekar í félagsfræði
í framtíðinni, öll tegund tónlistar.
Foreldrar: Guðrún Jóna Valgeirsdóttir og Hjörtur
Guðnason. Harpa á þrjá yngri bræður.
Heimili: Laugarneshverfi í Reykjavík.
DV-mynd Hanna