Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1992, Page 30
42
LAUGARDAGUR 14. MARS 1992.
Er lækning við astma í sjónmáli?
Of mikil
bjartsýni
- segir Davíð Gíslason, sérfræðingur í ofnæmissjúkdómum
Grein í breska blaöinu Sunday
Times um tímamótauppgvötvun á
geni sem veldur astma eða ofnæmi
hefur vakið töluverða athygli. Tal-
að er um það í greininni að hálfur
sigur sé unninn í baráttunni við
astma þegar tekist hafi að finna og
einangra gen það sem þessu veld-
ur. Leitað var til Davíðs Gíslason-
ar, sérfræðings í lyflækningum og
ofnæmissjúkdómum, um álit á
þessum fréttum.
„Ég held að þaö sé algjörlega
óraunsætt mat aö áætla að lækning
við astma geti fundist á 5 árum. Það
er allt of mikil bjartsýni. Ef um það
væri að ræða að þessi uppgvötvun
gæti leitt til varanlegrar lytjameð-
ferðar þá tekur það miklu lengri
tíma en þetta. Uppgvötvunin er
samt sem áður afskaplega mikil-
væg og leiðir sjáifsagt til mjög auk-
inna rannsókna á næstu árum. Það
er enginn vafi á því,“ sagði Davíð
Gíslason.
„Þessu er slegið upp sem gífur-
lega mikilli frétt í Sunday Times.
Samkvæmt greininni telja menn
sig hafa fundiö skýringuna á því
hvemig eríðir stjórna uppkomu
ofnæmis. Það skal tekið fram að
astmi er aðeins að hluta til ofnæm-
issjúkdómur. Þrátt fyrir að hægt
sé að velja fyrirfram úr stóran hóp
manna sem fá ofnæmi og segja
þeim hópi að hann sé í hættu þá
hefur það ekki hjálpað í baráttunni
nema að takmörkuðu leyti. Þessi
uppgvötvun gæti þó haft eitthvað
að segja hvað varðar forgangsröð-
un verkefna í þjóðfélaginu."
- í greininni í Sunday Times er
talað um að dauðsfóli af völdum
astma í Bretlandi séu 2000 á ári (8-9
á íslandi), einn af hverjum þremur
hafi ofnæmiseinkenni og 10% alls
fólks hafi astmaeinkenni. Gilda
sömu hlutfóll hér á'landi?
„Á sjöunda áratugnum dóu á
hverju ári að meðaltali 1,65 ein-
stakhngar af völdum astma, á þeim
áttunda 3,07 en á þeim níunda 2,66
af 100 þúsund einstakhngum. Ég
hygg að það sem ræður mestu um
aö tölurnar eru lægri hér á landi
sé gott aðgengi að læknum ef fólk
veikist hastarlega.
Ofnæmi í sveitum hefur einnig
verið kannað og þar reyndust um
18% vera með jákvæð ofnæmis-
próf. Um 14,7% höfðu einkenni frá
' lungum sem við köllum surg. Það
er reyndar í gangi svokölluð Evr-
ópukönnun og fyrri hluta hennar
er reyndar lokið. Samkvæmt henni
gáfu 18,2% manna það upp að þeir
hefðu þetta svokallaða surg.
Það sem við köllum surg í lung-
um þarf alls ekki að ná til ahra
þeirra sem eru með astma. Það eru
ekki nema 2,4% fólks sem segjast
vera með astma og 2,5% vera á
Davíð Gislason, sérfræðingur í ofnæmissjúkdómum, varar við of mikilli
bjartsýni varðandi uppgvötvun breskra vísindamanna á geni sem veldur
ofnæmi. DV-mynd Brynjar Gauti
astmalyfjum. í Svíþjóð til dæmis heldur en flestar aðrar þjóðir,"
er þetta hlutfall helmingi hærra. sagðiDavíð.
Við erum neðar í þessum tölum -ÍS
Hlýtur að auðvelda alla greiningu
„Astmi eins og ég þekki hann
best, þ.e. í bömum, er í raun og
veru sjúkdómur eða vandamál allr-
ar fjölskyldunnar. Einkennin
koma oft fram á nóttunni og eru
þá slæm og valda því að barn sefur
illa og stopult. Óhjákvæmilega hef-
ur þetta áhrif á svefn foreldranna
einnig og þeir eru því úrvinda að
morgni ekkert síður en barnið,“
sagði Stefán Ólafsson, fyrrverandi
formaður Samtaka gegn astma og
ofnæmi.
„Astminn hefur því mjög truf-
landi áhrif á heimilislífið og það
sem alvarlegast er, á skólagöngu
barnsins. Oft veröur þetta einnig
til þess aö fyrirvinnan verður að-
eins ein því að foreldri, í flestum
tilfellum móðirin, verður að vera
heima hjá veiku barninu.
Það er tiltölulega stutt síðan við-
urkennt var hér að barn gæti verið
með astma og því var ekki rétt
brugðist við sjúkdómseinkennun-
um. Þá má heldur ekki gleyma því
að gífurlegar framfarir hafa orðið
í lyfiaframleiðslu og stöðugt koma
fram ný og betrumbætt astmalyf,
nú síðast kom á markað lyf með
mun lengri virkni en áður þekktist
sem gerir það að verkum að sjúkl-
ingarnir fá betri nætursvefn. Þau
lyf sem notuð eru í dag hafa mjög
litlar eða nánast engar aukaverk-
anir miðað við það sem áður var.
Þau eru einnig miklu meðfærilegri
og vægari.
Lyfiakostnaður astmasjúklinga
er ekki mikhl þar sem astmalyf
fást strax á lyfiakort en hins vegar
þarf að greiða fastagjald fyrir of-
næmislyf sem gjarna þarf einnig
að nota. Því er aðalvandamál
þeirra sem eru með astma og of-
næmi að sjúkdómurinn sé rétt
greindur og viðeigandi meðferð fá-
ist. Lækning er ekki til en það er
hægt að hemja sjúkdómseinkenn-
in. Rétt greining er því aðalmálið,
án hennar er oft notuð dýr og í
raun gagnslaus lyf.
Þessi nýja uppgötvun í Bretlandi
auðveldar vonandi sjúkdómsgrein-
ingu og þar með meðferð. Hvort
hún kemur til með að lækna ast-
mann eða útrýma honum að mestu
er ég ekki maður til að dæma um
en reynslan kennir mér að vara við
of mikilli bjartsýni. En ef rétt reyn-
ist að búið sé að einangra genið sem
veldur astma eru þaö stórkostleg
tíðindi og auðvelda vonandi allt
forvarnarstarf og læknismeðferð,"
sagði Stefán. -ÍS
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í skrifstofu embættisins,
Auðbrekku 10, Kópavogi,
á neðangreindum tíma:
Álfatún 33, 01-01, þingl. eig. Hús-
næðisnefad Kópavogs, miðvikudag-
inn 18. mars 1992 kl. 10.00. Uppboðs-
beiðandi er Veðdeild Landsbanka Is-
lands.
Bræðratunga 11, þingl. eig. Hreinn
Hauksson, miðvikudaginn 18. mars
1992 kl. 10.35. Uppboðsteiðandi er
skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi.
Engihjalh 11, 3. hæð F, þingl. eig.
Gunnar Harrýsson, miðvikudaginn
18. mars 1992 kl. 10.10. Uppboðsbeið-
andi er Bjami Ásgeirsson hdl.
Furugrund 18, 2. hæð B, þingl. eig.
Jóhannes Sölvi Sigurðsson, miðviku-
daginn 18. mars 1992 kl. 10.05. Upp-
boðsbeiðandi er Tryggingastofhun
ríkisins.
BÆJARFÓGETINN í KÓPAV0GI
Nauðungaruppboð
annað og síðara
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í skrifstofu embættisins,
Auðbrekku 10, Kópavogi,
á neðangreindum tíma:
Álfatún 6, 1. hæð, þingl. eig. Þórður
Kristjánsson, miðvikudaginn 18. mars
1992 kl. 10.30. Uppboðsbeiðendur eru
Veðdeild Landsbanka íslands, Klem-
ens Eggertsson hdl., Veðdeild Lands-
banka Islands og Jón Þóroddsson hdl.
Álíhólsvegur 57, þingl. eig. Sturla
Snorrason, miðvikudaginn 18. mars
1992 kl. 10.15. Uppboðsbeiðendur eru
skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi,
Bæjarsjóður Kópavogs og Veðdeild
Landsbanka íslands.
Brattabrekka 4, þingl. eig. Jóhann
Bogi Guðmundsson, miðvikudaginn
18. mars 1992 kl. 10.10. Uppboðsbeið-
endur eru skattheimta ríkissjóðs í
Kópavogi og Bæjarsjóður Kópavogs.
Brattabrekka 9, þingl. eig. Sveinbjöm
Tryggvason, miðvikudaginn 18. mars
1992 kl. 10.10. Uppboðsbeiðandi er
skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi.
Daltún 18, þingl. eig. Guðbjörg H.
Pálsdóttir, miðvikudaginn 18. mars
1992 kl. 10.30. Uppboðsbeiðendur em
skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi,
Bæjarsjóður Kópavogs, Ingólfur Frið-
jónsson hdl., Veðdeild Landsbanka
Islands og Ólafur Bjömsson lögfr.
HlíðarhjaUi 53, íbúð 024)1, þingl. eig.
Inga Helga Jónsdóttir, miðvikudag-
inn 18. mars 1992 kl. 10.05. Uppboðs-
beiðendur em Veðdeild Landsbanka
íslands og Logi Egilsson hdl.
Hraunbraut 19, þingl. eig. Margrét
Runólfsdóttir, miðvikudaginn 18.
mars 1992 kl. 10.00. Uppboðsbeiðendur
em Guðjón Ármann Jónsson hdl. og
Búnaðarbanki íslands.
Lundarbrekka 16, 1. hæð t.v., þingl.
eig. Guðmundur A. Kristinsson, mið-
vikudaginn 18. mars 1992 kl. 1015.
Uppboðsbeiðendur em Guðjón Ár-
mann Jónsson hdl., Helgi V. Jónsson
hrl, Veðdeild Landsbanka íslands,
Sveinn H. Valdimarsson hrl., Ólafúr
Axelsson hrl., Bæjarsjóður Kópavogs
og Ásgeir Magnússon hdl.
Neðstatröð 6, þingl. eig. Gunnar Már
Gíslason o.fl., miðvikudaginn 18. mars
1992 kl. 10.20. Uppboðsbeiðandi er
skattheimta ríkissjóðs í Kópavogi.
Nýbýlavegur 26,3. hæð, austur, þingl.
eig. Óskar J. Bjömsson og Rannveig
Höskuldsd., talinn. eig. Kristófer Ey-
jólfsson, miðvikudaginn 18. mars 1992
kl. 10.25. Uppbóðsbeiðendur em
Gjaldheimtan í Rejykjavík, Sigríður
Thorlacius hdl. og Asgeir Magnússon
hdl.
Smiðjuvegur 4, þingl. eig. Davið Sig-
urðsson hf., miðvikudaginn 18. mars
1992 kl. 10.15. Uppboðsbeiðendur em
Gjaldheimtan f Reykjavík, skatt-
heimta ríkissjóðs í Kópavogi, Sigríður
Thorlacius hdl. og Steingrímur Eiríks-
son hdl.
Sæbólsbraut 38, þingl. eig. Magnús
E. Guðmundsson, miðvikudaginn 18.
mars 1992 kl. 10.25. Uppboðsbeiðendur
em Ævar Guðmundsson hdl., Gjald-
heimtan í Reykjavík, skattheimta rík-
issjóðs í Kópavogi og Veðdeild Lands-
banka íslands.
Þinghólsbraut 15, þingl. eig. _Ámi
Edwins, talinn. eig. Kristmann Áma-
son, miðvikudaginn 18. mars 1992 kl.
10.20. Uppboðsbeiðendur em Pétur
Kjerúlf hdl., Helgi Sigurðsson hdl.,
Biynjólfúr Kjartansson hrl., Bæjar-
sjóður Kópavogs og Sigríður Thprlac-
ius hdl.
BÆJARFÓGEBNN í KÓPAV0GI
Nauðungamppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum:
Ástún 12, 2-5, þingl. eig. Guðrún Ósk
Sæmundsdóttir, fer fram á eigninnþ
sjálfri þriðjudaginn 17. mars 1992 kl.
13.00. Uppboðsbeiðandi er Veðdeild
Landsbanka Islands.
Engihjalli 11,2. hæð F, þingl. eig. Una
Gunnarsdóttir, fer fram á eigninni
sjálfri miðvikudaginn 18. mars 1992
kl. 13.45. Uppboðsbeiðandi er íslands-
banki.
Hlíðarhjalh 63, íbúð 004)1, talinn. eig.
Sigríður A: Guðnadóttir, fer fram á
eigninni sjálfri miðvikudaginn 18.
marsl992 kl. 16.00. Uppboðsbeiðendur
em Ásgeir Thoroddsen hrl. og skatt-
heimta ríkissjóðs í Kópavogi.
Kjarrhólmi 32, 1. hæð t.v„ þingl. eig.
Ólafúr Sigurðsson, fer fram á eigninni
sjálfri þriðjudaginn 17. mars 1992 kl.
15.15. Uppboðsbeiðandi er íslands-
banki.
Kjarrhólmi 4,2. hæð, þingl. eig. Vign-
ir Ragnarsson og Hildur Daníelsdótt-
ir, fer fram á eigninni sjálfri þriðjudag-
inn 17. mars 1992 kl. 13.45. Uppboðs-
beiðendur em Veðdeild Landsbanka
íslands og Bæjarsjóður Kópavogs.
Skjólbraut 20, þingl. eig. Jón Guð-
laugur Magnússon, fer fram á eign-
inni sjálfri þriðjudaginn 17. mars 1992
kl. 14.30. Uppboðsbeiðendur em Sig-
urbjöm Magnússon hdl., Tryggvi
Guðmundsson hdl. og skattheimta
ríkissjóðs í Kópavogi.
Þinghólsbraut 41, kjallari, vesturhl.,
þingl. eig. Margrét Sigmundsdóttir,
fer fram á eigninni sjálfri þriðjudaginn
17. mars 1992 kl. 16.00. Uppboðsbeið-
endur em Jóhannes A. Sævarsson
hdl. og Veðdeild Landsbanka íslands.
BÆJARFÓGETINN í KÓPAV0GI