Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1992, Blaðsíða 46
58
LAUGARDAGUR 14. MARS 1992.
Afmæli
DV
Þórdís Gunnarsdóttir
Þórdís Gunnarsdóttir, starfsmaður
hjá Ó. Johnson og Kaaber, til heim-
ilis að Öldugötu 25 A, Reykjavík,
verður fimmtug á morgun.
Starfsferill
Þórdís fæddist að Öldugötu 25 A
og hefur ætíð búið þar. Hún stund-
aði nám við Gagnfræðaskóla Vest-
urbæjar, var í sumarskóla í Kent á
Englandi 1963, stundaði sumamám
í Frakklandi 1971 og hefur stundað
nám í íslensku við Námsflokka
Reykjavíkur.
Þórdís starfaði hjá Þorsteini Ólafs-
syni tannlækni 1958-63, hjá Gjald-
heimtunni í Reykjavík 1965-78 og
starfar nú hjá Ó. Johnson og Kaa-
ber.
Systkini Þórdísar eru Gunnar
Birgir Gunnarsson, f. 9.11.1943, b.
og bílamálari að Arnarstöðum,
kvæntur Guðríöi Vaigeirsdóttur
húsfreyju og eiga þau íjögur böm,
Vaigerði, f. 25.4.1967, Rögnu, f. 6.8.
1971, Birgi, f. 16.5.1974 og Guðmund
Valgeir, f. 5.12.1977; Pétur Gunnars-
son, f. 15.6.1947, rithöfundur í
Reykjavík, kvæntur Hrafnhildi
Ragnarsdóttur, doktor í barnasál-
fræði, og eiga þau tvo syni, Dag, f.
12.12.1973, og Gunnar, f. 21.1.1978;
Sigrún Gunnarsdóttir, f. 11.11.1948,
starfsmaður við Landsbankann í
Reykjavík, gift Bjarna Bjarnasyni,
starfsmanni hjá Tryggingamiðstöð-
inni, og eiga þau þrjár dætur, Jó-
dísi, f. 9.8.1971, Hlín, f. 26.12.1972
og Margréti, f. 29.9.1981; Ásdís
Gunnarsdóttir, f. 22.9.1950, deildar-
stjóri í gjaldeyrisdeiid við Vegamó-
taútibú Landsbankans, gift Guö-
laugi Hermannssyni, skrifstofu-
manni hjá Orkustofnun, og eiga þau
tvö börn, Sigrúnu, f. 15.6.1973, og
Finn, f. 15.5.1978; Þorgeir Gunnars-
son, f. 14.5.1955, kvikmyndagerðar-
maður hjá Nýja Bíói, búsettur í
Reykjavík og á hann einn son, Gísla,
f. 14.12.1982; Siguijón Gunnarsson,
f. 20.12.1956, smiður á Seltjamar-
nesi, kvæntur Eddu Kjartansdóttur
kennara og eiga þau tvo syni, Berg,
f. 27.3.1986 og Guðmund Ara, f. 12.9.
1988.
Foreldrar Þórdísar voru Gunnar
Valberg Pétursson, f. 17.1.1914, d.
17.9.1983, bílamálari oglagermaður
hjá Hans Petersen, og kona hans,
Guðmunda Þorgeirsdóttir, f. 8.6.
1918, d. 17.11.1988, húsmóðir og
skrifstofumaður hjá Alþingi.
Ætt .
Gunnar Valgeir var sonur Péturs,
sjómanns og smiðs í Reykjavík, Sig-
urðssonar og Guðrúnar Gróu Jóns-
dóttur.
Guðmunda var dóttir Þorgeirs,
verkamanns í Reykjavík, Guðjóns-
sonar, sjómanns og trésmiðs í Ein-
kofa á Eyrarbakka, Bjarnasonar,
kirkjusmiðs Jónssonar. Móðir Guð-
jóns var Guðbjörg Guðmundsdóttir.
Móöir Þorgeirs var Guðrún Einars-
dóttir, hreppstjóra aö Urriðafossi,
Einarssonar, b. aö Urriðafossi,
Magnússonar. Móðir Einars hrepp-
stjóra var Jóreiður Magnúsdóttir.
Móðir Guörúnar var Guðrún
Þórdís Gunnarsdóttir.^
Ófeigsdóttir, ríka, hreppstjóra og
ættfóður Fjallsættarinnar, Vigfús-
sonar. Móðir Guðrúnar Ófeigsdótt-
ur var Ingunn Eiríksdóttir, ættfóður
Reykjaættarinnar, Vigfússonar.
Móðir Guðmundu var Jódís
Ámundadóttir, b. í Saurbæ í Vill-
ingaholtshreppi, Ámundasonar, og
Sigríðar Guðmundsdóttur.
Til hamingju með daginn 14. mars
Eiður Jóhannesson, Lundarbrekku8, Kópavogi.
85 ára
Þóranna Guðmundsdóttir, Faxabraut 13, Keflavík. 50 ára
Jóhannes Jónasson, Rauðalæk 65, Reykjavik. Sigríður Þorsteinsdóttir,
75ára
Helga Pétursdóttir, Hólmgarði 32, Reykjavík. Helga tekur á móti gestum í húsi Kiwanisklúbbsins, Smiðjuvegi 13a Kópavogi, á milli kl. 16 og 19 á af- mælisdaginn. Hjaltabakka 24, Reykjavík.
40ára
Sigríður Dagmar Agnarsdóttir, Marbakkabraut 36, Kópavogi. Bjarni Rúnar Guðmundsson, Möðrafelli, Eyjafiaröarsveit. Sverrir Haraldsson,
70 ára
Hjálmar Kjartansson, Sólheimum 27, Reykjavik. Sigríður Ágústa Söebech, Torfúfelli 29, Reykjavík. Hólum 2 Reykjadal, Reykdæla- hreppi. Jón Stefánsson, Austurvegi 4, Þórshafnarhreppi. Jónína Jónsdóttir,
60 ára Kaplaskjólsvegi 61, Reykjavík. Hörður Þórðarson, Búhamri 72, Vestmannaeyjum,
Jón Sigurðsson, Karfavogi 56, Reylfiavík.
Jón Kaldal
Jón Pálmi Gíslason
Jón Pálmi Gíslason, bóndi á
Sámsstöðum í Eyjafjarðarsveit, er
sextugurídag.
Fjölskylda
Jón fæddist á Sámsstöðum og ólst
þar upp. Hann kvæntist 24.11.1974
Helgu Sigríði Ámadóttur, f. 26.9.
1956, húsfreyju. Hún er dóttir Áma
Gunnarssonar og Marsibil Hólm
Agnarsdóttur.
Böm Jóns Pálma og Helgu Sigríð-
ar em Jóhannes Gísli Pálmarsson,
f. 29.8.1974, verkamaður; Sveinbjörg
Sigrún Pálmadóttir, f. 24.2.1976; Eva
Hrönn Pálmadóttir, f. 31.3.1982;
Marsibil Sara Pálmadóttir, f. 30.9.
1987.
Systir Jóns Pálma er Steinunn
Ragnheiður Gísladóttir, f. 12.3.1930,
gift Óttari Björnssyni, b. á Garðsá í
Eyjafjarðarsveit, og eiga þau fjögur
böm.
Foreldrar Jóns Pálma voru Gísli
Guðmundsson, f. 8.6.1901, d. 12.12.
1974, sjómaður á yngri árum og síð-
ar b. á Sámsstöðum, og Sveinbjörg
Guðrún Magnúsdóttir, f. 2.9.1894,
d. 13.6.1968, húsfreyja.
Jón Pálmi verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Jón Kaidal byggingarfræðingur,
Laugarásvegi 18, Reykjavík, er
fimmtugurídag.
Starfsferill
Jón fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp, auk þess sem hann var í sveit
að Akri í Vestur-Húnavatnssýslu
fimm sumur. Jón stundaði nám við
Myndlistarskólann í Ásmundarsal á
áranum 1958-62, hjá Veturliða
Gunnarssyni, Ragnari Kjartanssyni
og Hafsteini Austmann. Hann lauk
sveinsprófi í húsasmíði 1964 hjá
Magnúsi K. Jónssyni og lauk prófi
sem byggingarfræðingur 1966 frá
Kobenhavns Bygningskonstruktor-
skole.
Jón starfaði á Teiknistofunni Ár-
múla 6 á áranum 1966-71 en hefur
unnið sjálfstætt frá 1971.
Jón var fyrsti formaður Bygging-
arfræðingafélags íslands 1967-72.
Auk þess hefur hann sinnt félags-
málum sem tengjast áhugamálum
hans, jass-tónlist og skíðaiþróttinni.
Fjölskylda
Jón kværitist31.4.1967 Steinunni
K. Kaldal, f. 9.12.1945, tækniteikn-
ara. Hún er dóttir Kristins R. Sigur-
jónssonar byggingarmeistara og
Rögnu Halldórsdóttur húsmóður.
Böm Jóns og Steinunnar: Kristinn
Ragnar Sigurbergsson, f. 1.2.1963,
kennari, og á hann tvær dætur;
Anna Kaldal, f. 25.5.1966, lögfræði-
nemi viö háskólann í Lundi í Sví-
þjóð, og er sambýlismaður hennar
Henrik Mondrian Lorstad; Jón
Kaldal, f. 24.6.1968, nemi í bók-
menntafræði við HÍ; Guðrún Kald-
al, f. 16.7.1970, nemi viö íþrótta-
kennaraskóla íslands; Steinar Kald-
al, f. 24.5.1979; Sóley Kaldal, f. 21.1.
1983.
Systur Jóns eru Ingibjörg Kaldal,
f. 11.4.1947, ljósmyndari, og á hún
einn son; Dagmar Kaldal, f. 30.1.
1945, gluggaskreytingamaður, gift
Ágústi Friðrikssyni hárskerameist-
ara og eiga þau þrjá syni.
Foreldrar Jóns voru Jón Kaldal,
f. 24.8.1896, d. 30.10.1981, ljósmynd-
ari í Reykjavík, og Guðrún Kaldal,
f. 14.8.1918, d. 10.1.1984, húsmóðir.
Ætt
Jón ljósmyndari var bróðir Leifs
Kaldal gullsmiðs. Jón var sonur
Jóns, b. í Stóradal, bróður Þorleifs,
póstmeistara og alþingismanns, foð-
ur Jóns Leifs tónskálds. Annar
bróðir Jóns var Pálmi, b. á Ytri-
Löngumýri, faðir Jóns, alþingisfor-
seta á Akri, fóður Pálma, alþingis-
manns á Akri. Systir Jóns var Guö-
rún í Stóradal, móðir Jóns, alþingis-
manns í Stóradal. Pálmi var sonur
Jóns, b. og alþingismanns í Sólheim-
um og Stóradal, bróður Erlends, föð-
urafa Sigurðar Guðmundssonar
skólameistara, föður Örlygs og
Steingríms listmálara. Systir Jóns
var Ingibjörg, amma Ingvars Pálma-
sonar alþingismanns, afa Ingvars
Gíslasonar, ritstjóra Tímans og
fyrrv. alþingismanns og ráðherra.
Önnur systir Jóns var Elísabet,
móðir Sigríðar, ömmu Páls Gísla-
sonar, formanns Ungmennafélags
íslands. Jón var sonur Pálma, b. í
Sólheimum, Jónssonar, b. þar Bene-
diktssonar, af Eiðsstaðaættinni.
Móöir Pálma í Sólheimum var Ingi-
ríður Jónsdóttir, b. á Skeggsstööum,
Jónssonar, ættföður Skeggsstaða-
ættarinnar. Móðir Jóns, b. í Stóra-
dal var Ingibjörg Salóme, systir
Jón Kaldal.
Iiigibjargar, langömmu Jakobs
Benediktssonar oröabókarhöfund-
ar. Bróðir Ingibjargar Salóme var
Þorleifur í Stóradal, langafi Sigríðar
í Djúpadal, ömmu Sigurgeirs, bæj-
arstjóra á Seltjarnamesi. Ingibjörg
Salóme var dóttir Þorleifs „ríka“ í
Stóradal, Þorkelssonar, bróður Ingi-
gerðar, langömmu Jóhönnu, ömmu
Páls Ásgeirs sendiherra, föður
Tryggva bankastjóra. Móðir Ingi-
bjargar Salóme var Ingibjörg Guð-
mundsdóttir, „ríka“ í Stóradal,
Jónssonar, b. á Skeggsstöðum,
Jónssonar, ættföður Skeggsstaða-
ættarinnar.
Guðrún, móðir afmælisbarnsins,
var dóttir Sigurðar, jársmiðs í
Reykjavík, og eins af stofnendum
Járnsmíðafélags Reykjavíkur, Sig-
urðssonar járnsmiðs Jónssonar, b.
frá Hliðnesi á Álftanesi, Halldórs-
sonar.
Móðir Guðrúnar var Dagmar
Finnbjörnsdóttir Elíassonar Eld-
járnssonar, ættuö frá Hnífsdal og
Aðalvík.
Einar Ingvar Egilsson
Einar Ingvar Egilsson, forstjóri Fé-
lagsbókbandsins -Bókfells, til
heimilis að Barrholti 19, Mos-
fellsbæ, verður fimmtugur á morg-
un.
Starfsferill
Einar fæddist á ísafirði og ólst þar
upp um skeið en síðan í Vogunum
í Reykjavík. Hann hóf bókbands-
nám í Gutenberg árið 1959 og lauk
þar sveinsprófi 1963.
Einar starfaði um skeið í Guten-
berg og Leiftri en réðst síðan til
Bókfells 1963 og var frá 1971-1975
verkstjóri í Gutenberg. Hann varð
meðeigandi og forstjóri Félagsbók-
bandsins frá 1975. Félagsbókbandið
keypti Bókfell fyrir þremur áram
og rekur Einar það í samvinnu við
meðeiganda sinn, Leif Gunnarsson.
Fjölskylda
Einar Ingvar kvæntist 26.1.1963,
Höllu Svanþórsdóttur, f. 8.12.1943,
húsmóður. Hún er dóttir Svanþórs
Jónssonar, f. 5.9.1912 á Stokkseyri,
múrarameistara í Reykjavík og
konu hans, Sigríðar Þorsteinsdótt-
ur, f. 1.8.1908 í Háholti, húsmóður.
Börn Einars og Höllu era: Svan-
hildur, f. 6.6.1962 í Reykjavík, íjár-
málastjóri í Mosfellsbæ, í sambýli
með Sveini Þórði Birgissyni tónlist-
armanni og eru dætur hennar íris
Þöll og Agla Ösp auk þess sem fóst-
ursonur Svanhildar og sonur Sveins
er Birgir Dagbjartur Sveinsson;
Agla Björk, f. 23.8.1964 í Reykjavík,
verslunarmaður í Mosfellsbæ, gift
Alberti Axelssyni, starfsmanni hjá
Félagsbókbandinu, og eru dætur
þeirra HaUa Ýr, Tinna Rut og Vera
Ósk; Svanþór, f. 20.9.1976 í Reykja-
vík, nemi.
Systir Einars er Þorgerður, f. 18.4.
1935, húsfreyja í Reykjavík, gift Ein-
ari Jónssyni, verkstjóra og eiga þau
fiögur böm, Brynhildi, Sigurlaugu,
Önnu Guðríði og Egil Örn.
Foreldrar Einars Ingvars eru Egill
Öm Einarsson, f. 26.4.1910, á Hafra-
nesi við Reyðarfiörð, lengst af vél-
sfióri og sjómaður í Reykjavík, nú
starfsmaður Félagsbókbandsins, og
Inga Ingvarsdóttir, f. 16.9.1916, á
ísafirði.
Ætt
Meðal systkina Egils Amar er
Friðrik Einarsson, læknir í Reykja-
vík. Faðir Egils var Einar Sveinn
Friðriksson, b. á Hafranesi, sonur
Friðriks, b. í Þemunesi, Þorleifsson-
ar, verslunarþjóns á Eskifiröi, Þor-
leifssonar, skipasmiðs á Norðfiröi,
Stefánssonar. Móðir Einars Sveins
var Anna Guðmundsdóttir b. í Fróði
í Seyðisfirði, Einarssnar, b. í Brúna-
vík, Bjarnasonar.
Móðir Egils Arnar var Guðrún
Vilborg Hálfdánardóttir, b. á Hafra-
nesi, Þorsteinssonar (Kvæða-Þor-
steins) b. í Víkurnesi o.v., Þorsteins-
sonar í Eyjarfirði, Sigurðssonar.
Kona Hálfdáns var Jóhanna Einars-
dóttir, b. á Hafranesi, Erlendssonar,
b. í Áreyjum, Eiríkssonar.
Inga, móðir Einars Ingvars, er
dóttir Ingvars, útgerðarmanns og
verkstjóra á ísafirði, Péturssonar,
húsmanns í Reykjarfirði við Djúp,
bróður Guðmundar í Krossanesi,
föður Petrínu Sigrúnar, móður Sím-
onar Jóhanns Ágústssonar prófess-
ors. Pétur var sonur Óla, b. í Reykj-
arfirði, Ólasonar b. í Reykjarfirði.
Móöir Ingu var Sigurlaug Ámadótt-
Einar Ingvar Egilsson.
ir, húsmanns í Litlu-Ávík, Árnason-
ar, b. á Kambi, Árnasonar, b. í Veiði-
leysu, Halldórssonar. Móðir Sigur-
laugar var Ingveldur Sigurðardótt-
ir, b. í Reykjanesi, Jónssonar, b. í
Reykjanesi, Einarssonar.
Einar tekur móti gestum í sal
Múrarafélags Reykjavíkur, Síðu-
múla 25, laugardaginn 14.3. klukkan
17-19.